Um vefinn - Ritstjórn og fréttaritarar

strandir.is - útgefandi: Sögusmiðjan, Kirkjubóli, 510 Hólmavík - Ábyrgðarmaður: Jón Jónsson
Auglýsingasími: 451-3474 - Netfang: strandir@strandir.is
Kt. 630198-3139 - vsk.nr. 56982 - bankareikn. 1161-26-262

Ritstjórnarstefna strandir.is

strandir.is er vefrit um málefni Strandamanna. Því er sinnt í áhugamennsku, bæði hvað varðar ritstjórn og fréttaritun. Því er hvorki hægt að lofa því að á hverjum degi birtist nýjar fréttir né að tekið verði á öllu sem máli skiptir eða sagt frá öllum atburðum. Það fer eftir dugnaði og áhugamálum ritstjórnar og þeirra sem senda vefnum fréttir og frásagnir hverju sinni hvað er fjallað um og hvort strandir.is er öflugur og kraftmikill miðill. Ef menn hafa áhuga á umfjöllun um einstök málefni geta þeir ávallt haft samband við ritstjóra og slegist í hóp þeirra sem senda vefnum efni um þau málefni sem þeir hafa áhuga á. Best væri að þeir sem senda inn efni væru sem flestir, þó sumir þeirra geri það bara einstöku sinnum.

strandir.is hefur samt ákveðna ritstjórnarstefnu. Vefritið hefur sérstakan áhuga á atvinnulífi, framkvæmdum og framförum á Ströndum, eflingu byggðar og skemmtilegu mannlífi í héraðinu. Öllu því sem gerir það sérstakt og jákvætt að lifa og starfa á Ströndum eða heimsækja héraðið sem ferðamaður.

strandir.is berst fyrir sameiginlegum hagsmunum Strandamanna og þolir illa að íbúar svæðisins fái ekki jafn góða þjónustu og aðrir landsmenn frá hinu opinbera í ýmsum málaflokkum. Jafnframt gerir vefritið þá kröfu til sveitarstjórnarmanna hér heima fyrir að þeir kappkosti að gera sitt besta og sinni störfum sínum í þágu íbúanna af heilindum og áhuga.

strandir.is vill auka samheldni og samstöðu Strandamanna. Sjálft ætlar vefritið að reyna að leggja sitt af mörkum með því að auka flæði upplýsinga milli fjarða og hreppa á Ströndum og þar með þekkingu manna á ólíkum hlutum sýslunnar. Auk þess er ætlunin að ritið verði að skemmtilegum og áhugaverðum vettvangi fyrir umræðu um málefni Stranda hverju sinni.

 

Nafn Stađa Netfang Sími Fax
Sögusmiđjan - umsjón međ vefnum 451 3474
Jón Jónsson ritstjórn/ritstjóri 451 3474
Arnar S. Jónsson ritstjórn/fréttaritari 661-2009
Sigurđur Atlason ritstjórn/fréttaritari 897 6525
Ester Sigfúsdóttir ritstjórn/fréttaritari
Dagrún Ósk Jónsdóttir ritstjórn/fréttaritari
Áki Guđni Karlsson forritari
 
  • Ritstjórn og fréttaritarar   (7)
Advertisement