Dagrún | 16/06 2013 | 21:17
Þjóðhátíðarkaffi í Sævangi PDF Prenta Tölvupóstur
Image

Ágætis aðsókn hefur verið að Sauðfjársetrinu í Sævangi í byrjun sumars. Í tilefni af 17. júní verður glæsilegt þjóðhátíðar kaffihlaðborð. Það hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 18:00. Boðið verður upp á allsskonar kræsingar og kökur. Auk þess er kjörið að heilsa upp á æðarkollurnar í Orrustutanga en á dögunum voru nokkur hreiður merkt í fjöruferð á vegum Sauðfjársetursins.
Dagrún | 16/06 2013 | 21:06
Sundmót á Drangsnesi 17. júní PDF Prenta Tölvupóstur
Image

Mánudaginn 17. júní verður sundmót Ungmennafélagsins Neista haldið í sundlauginni á Drangsnesi. Hefst mótið klukkan 12:00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Keppendum verður skipt í flokka á staðnum eftir fjölda og þörfum. Að mótinu loknu fá svo fræknir sundgarpar ískaldan íspinna að launum.
Lesa meira...
Dagrún | 16/06 2013 | 20:53
17. júní á Hólmavík PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Eins og venjulega verður skemmtidagskrá á Hólmavík á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Dagskráin hefst klukkan 12:00 og verða helíumblöðrur til sölu í félagsheimilinu, auk þess sem boðið verður upp á fría andlitsmálun fyrir alla þá sem vilja. Klukkan 14:00 verður svo lagt af stað í skrúðgöngu frá félagsheimilinu og er ferðinni heitið niður á Klifstún, þar sem fjallkonan mun lesa ljóð, farið verður í leiki og allsskonar sælgæti verður til sölu í vigtarskúrnum.

Dagrún | 13/06 2013 | 17:46
Sumarmölin: Miðasalan er í fullum gangi PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Forsala miða á fjölskyldutónleikana Sumarmölina sem fram fara í samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi næstkomandi laugardagskvöld er í fullum gangi. Salan fer fram á midi.is og er fólk eindregið hvatt til að tryggja sér miða í tæka tíð. Að tónleikunum loknum mun útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson þeyta skífum fyrir dans- og gleðiþyrsta tónleikagesti, en hann mun taka við um leið og Sumarmölin þagnar og mun hann leika sígilda smelli í bland við nýrri slagara. Aðgangur er ókeypis fyrir gesti hátíðarinnar, aðrir eru að sjálfsögðu velkomnir en aðgangseyrinn er þá 2000 kr.

Lesa meira...
Dagrún | 13/06 2013 | 17:33
Dagur hinna villtu blóma PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Dagur hinna villtu blóma verður haldinn sunnudaginn 16. júní næstkomandi. Þá gefst fólki víðs vega um landið kostur á að fara í gönguferð um nágrenni sitt og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa, án endurgjalds. Náttúrustofa Vestfjarða tekur þátt í þessu átaki með Flóruvinum. Haldið verður upp á daginn á Hólmavík og verður lagt af stað í gönguferð frá Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík klukkan 11:00 en gengið verður með fram sjónum undir leiðsögn Hafdísar Sturlaugsdóttur.

Dagrún | 11/06 2013 | 23:33
Hólmakaffi verður opið í sumar PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Undirbúningur fyrir opnun kaffihússins Hólmakaffi á Hólmavík hefur verið í fullum gangi síðustu daga, en það opnaði núna síðastliðinn sunnudag. Þetta krúttlega kaffihús verður opið í sumar og lögð verður áhersla á gott kaffi, heimabakað bakkelsi og fleira góðgæti að sögn Láru Guðrúnar Agnarsdóttur sem rekuð Hólmakaffi í sumar. Ef vel viðrar er hægt að sitja úti í góða veðrinu og gæða sér á ljúffengu kaffi og meðlæti. Hólmakaffi verður opið frá klukkan 11:00 - 18:00 alla daga í sumar.

Dagrún | 10/06 2013 | 21:30
Sumarmölin: Tónlistarveisla á Drangsnesi PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Núna nálgast risa tónlistarhátíðin Sumarmölin, sem haldin verður í samkomuhúsinu Baldri á Drangsnes laugardaginn 15. júní. Það er frækið lið listamanna sem að mun koma fram en það eru hljómsveitirnar Valdimar, Ojba Rasta, Hemúllinn, Jónas Sigurðsson, Nolo, Gógó píurnar og Borko. Þetta verða stórtónleikar fyrir alla fjölskylduna, þeir hefjast klukkan 20:00 og standa til 00:30 en það er 16 ára aldurstakmark inn á tónleikana, þó eru yngri gestir hjartanlega velkomnir í fylgd fullorðinna.

Lesa meira...
Dagrún | 07/06 2013 | 09:15
Edgar Smári og Sara Hrund spila á Malarkaffi PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Föstudagskveldið 7. júní ætla Edgar Smári og Sara Hrund að heiðra Strandamenn með nærveru sinni og spila fyrir okkur fallega og ljúfa tóna á Malarkaffi á Drangsnesi. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:30 og standa í sirka 2 tíma. Edgar Smári og Sara Hrund syngja mestmegnis rólegheitalög, frumsamin og ábreiður. Ábreiðurnar eru allskonar, gömul sígild íslensk og erlend lög í bland við nýlegri popplög, bæði erlend og íslensk. Eitthvað fyrir alla og frítt inn á Malarkaffi.

JJ | 07/06 2013 | 09:07
Tvær sýningar opnaðar á Laugarhóli PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Tvær sýningar verður verða opnaðar á Laugarhóli í Bjarnarfirði á laugardaginn kemur kl. 15:00. Annars vegar er þar um að ræða sögusýningu undir yfirskriftinni ALLIR EITT í sundskýlinu við Gvendarlaug hins góða en sú sýning fjallar um sögu sundlaugarinnar og sundiðkun í Bjarnarfirði. Hins vegar er samsýning myndlistarmannanna Kristjáns Guðmundssonar og Árna Páls Jóhannssonar í GALLERÍ KLÚKU á Hótel Laugarhóli.

Lesa meira...
JJ | 07/06 2013 | 08:58
Stórleikur hjá liði Snæfells/Geislans PDF Prenta Tölvupóstur
Image

Það er stórleikur í boltanum um helgina þegar Snæfell/Geislinn mætir nágrönnum okkar Strandamanna frá Hvammstanga og Blönduósi á laugardaginn í hörkuleik. Leikið verður á Stykkishólmsvelli og hefst leikurinn kl. 14:00. Þessi leikur er afar áríðandi fyrir bæði lið, því þau hafa hvort um sig 1 stig eftir 3 leiki og stefna bæði að sínum fyrsta sigri í sumar. Ókeypis aðgangur er fyrir alla og eru Strandamenn nær og fjær hvattir til að fjölmenna og hvetja sína menn til dáða.
Lesa meira...
<< Fyrsta < Fyrra 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 1 - 10 af 31
Advertisement