|
SA | 07/01 2010 | 17:15 |
|
Skautað á Hólmavík
|
|
|
|
Undanfarna daga hefur fjöldi fólks á öllum aldri lagt leið sína á skautasvellið sem útbúið hefur verið við Galdrasýninguna á Hólmavík. Kvikmyndatökumaður strandir.is myndaði þar unga skautaunnendur í dag sem æfðu sig á svellinu. Spáð er hita yfir frostmarki næstu daga svo það er allt eins víst að svellið góða geti látið eitthvað á sjá, en það er hægt að ylja sér við tilhugsunina um að það hafi aldrei orðið það heitt á Íslandi að það hafi ekki fryst aftur. |
|
Gallerí Dynjandi á Bíldudal hefur verið á sýningarferðalagi með tvær listasýningar um landið og hefur nú sett þær upp í Þróunarsetrinu á Hólmavík. Þetta er afar fjölbreytt og skemmtileg sýning sem allir eru hvattir til að skoða. Kvikmyndatökumaður strandir.is var staddur við opnunina í dag og tók nokkrar svipmyndir ásamt sem hann ræddi við Jón Þórðarson forstöðumann gallerísins. Sýningin samanstendur af verkum listakvennanna Hönnu Woll frá Þýskalandi og Hafdísar Húnfjörð frá Tálknafirði. Sýningin verður opin til kl. 20:00 á morgun, fimmtudag. |
|
Lesa meira...
|
|
|
SA | 18/12 2008 | 20:28 |
|
Hilmir rifinn - myndband
|
|
|
|
Fyrr í dag voru birtar ljósmyndir hér á strandir.is frá því þegar Hilmir ST-1 var rifinn en báturinn stóð á þurru landi á uppfyllingunni við Höfðann í 12 ár. Sigurður Atlason var einnig á svæðinu á þessari örlagastundu eikarbátsins gamla og myndaði síðustu augnablik hans áður en hann umbreyttist í timbur og járnhrúgu. |
|
|
SA | 17/12 2008 | 23:38 |
|
Jólaljósin á Hólmavík
|
|
|
|
Kvikmyndatökumaður strandir.is rölti um Hólmavík í kvöld og festi jólaljósin sem sem setja svo mikinn svip á umhverfið í desember á filmu. Eins og venja er þá eru margir Hólmvíkingar harla duglegir að lýsa upp jólin í skammdeginu. Frostið beit tökumanninn talsvert meðan á tökum stóð sem hafði þau áhrif að snjókarlinn Frosti hafði nokkur áhrif við klippinguna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Það stefnir í hvít jól og hátíðlegan blæ yfir hátíðarnar. Menn eru nokkuð á eitt sáttir að við þau skilyrði, og að þá verða jólin og allt umstangið í kringum þau mun hátíðlegri. En það er líka vert að hafa í huga að þá er um leið erfiðara um vik fyrir smáfuglana að sækja sér fæðu, og þar getum við mannfólkið hjálpað aðeins til. Fuglafóður fæst í öllum betri verslunum en tíðindamaður strandir.is sá fjöldan allan af stórum og smáum sekkjum í pakkhúsi KSH nú fyrir skemmstu. Það er vonandi að þeir pokar verði ekki til sölu mikið lengur og smáfuglarnir fái nóg að bíta og brenna yfir jólin. Í meðfylgjandi myndbandi er hægt að fylgjast með smáfuglum næra sig undir tónum jólalagsins Heims um ból, á norsku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Allir krakkarnir sem taka þátt í Jóladagatali Strandagaldurs, Brúðustrákurinn Tumi og fjallabörnin, stormuðu á frumsýningu eftir hádegi í dag. Daglegar sýningar hefjast svo næstkomandi föstudag hér á strandir.is. Það var mikill glæsibragur yfir hófinu. Komið hafði verið fyrir rauðum dregli í galdragarðinum og upp á aðra hæð Galdrasafnsins á Galdraloftið. Þar gæddu börnin sér á poppi og djúsi meðan þau fylgdust spennt með framgangi Jóladagatalsins. Galdraloftið var fullt út úr dyrum eins og vera ber á frumsýningum, en margar mömmur og pabbar og ömmur og afar gáfu sér tíma til að fylgjast með glæsilegri frammistöðu barnanna. Meðfylgjandi myndband er frá hátíðarsamkomunni, en ljósmyndir munu birtast á strandir.is á morgun. |
|
Lesa meira...
|
|
Fyrirheit Bjarna Ómars Haraldssonar tónlistarmanns á Hólmavík er komið út. Það er annar geisladiskur Bjarna Ómars. Í þessu myndbandi er að finna viðtal sem Sigurður Atlason tók við hann af tilefni útgáfunnar. Einnig birtast svipmyndir frá útgáfutónleikunum fyrir skemmstu. Diskurinn er til sölu hjá Bjarna Ómari í síma 892 4666 og einnig er hægt að versla hann í gegnum netið með því að smella hér.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Árleg karókíkeppni Café Riis var haldin á Hólmavík í kvöld og var fjölmenni og mikil stemmning á keppninni sem fór fram í Bragganum. Það var Árdís Rut Einarsdóttir sem keppti fyrir Hólmadrang sem fór með sigur af hólmi í keppninni að þessu sinni. Í öðru sæti varð Barbara Ósk Guðbjartsdóttir og Jón Halldórsson varð þriðji. Skemmtilegasti keppandinn var valinn Arnar S. Jónsson, en salurinn kaus vinningshafana. Meðfylgjandi vídeó er af sigursöngnum, en það var lagið I Kissed a Girl í flutningi Árdísar, sem Katy Perry gerði upphaflega vinsælt.
|
|
Lesa meira...
|
|
Um sextíu manns mættu á opinn dag Strandagaldurs og Náttúrustofu Vestfjarða á
Strákatanga í Hveravík s.l. laugardag þar sem fram fór kynning á 17. aldar
hvalveiðistöðinni sem rannsökuð hefur verið þar frá árinu 2004. Í ljós hafa
komið mikil mannvirki sem tengjast hvalbræðslu erlendra manna. Engar heimildir
er að finna um bræðsluna í skráðri sögu 17. aldar á Íslandi og ljóst má vera að
starfsemi hennar hefur verið haldið leyndri gagnvart æðstu yfirvöldum á sínum
tíma og síðan fallið í gleymskunnar dá. Kvikmyndatökumaður strandir.is var á
staðnum og slóst í för með Kristínu Einarsdóttur fréttaritara Ríkisútvarpsins og
ræddi við Ragnar Edvardsson, minjavörð Vestfjarða, um rannsóknina í Hveravík. |
|
Lesa meira...
|
|
Á hverju ári bætist við veitingahúsaflóruna á Ströndum. Nýverið
opnaði í Norðurfirði nyrsta kaffihúsið og veitingastaðurinn á Ströndum.
Tíðindamaður strandir.is átti leið um Árneshrepp í vikunni með
kvikmyndatökuvélina og spjallaði þar við Ragnheiði Eddu Hafsteinsdóttur, vertinn
á Kaffi Norðurfirði. Hún lætur vel af sumrinu en það eru um þrjár vikur síðan
staðurinn opnaði. Það hefur alltaf verið gaman að sækja Árneshrepp heim og njóta
alls þess sem hann hefur upp á að bjóða og með tilkomu Kaffi Norðurfjörðs verður
heimsókn í nyrstu byggðir Árneshrepps en ánægjulegri. Það ætti enginn að láta Kaffi Norðurfjörð framhjá sér fara í sumar.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrra 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
| Niðurstöður 1 - 10 af 24 |