|
Matthías Lýðsson | 26/01 2013 | 13:56 |
|
Mannbjörg varð
|
|
|
|
Aðsend grein: Matthías Lýðsson í Húsavík Þegar bátum hekkist á, þeir stranda eða sökkva og svo giftusamlega tekst til að áhöfnin bjargast er oft notað orðalagið „mannbjörg varð“. En það er víðar en á sjó sem mannbjörg verður. Fyrir síðustu áramót áttu félagar björgunarsveita víða um land annríkt við að hjálpa fólki og bjarga verðmætum. Þann 30. des. voru til dæmis 7 félagar úr Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hólmavík allan daginn í fiskeldisstöð Háafells á Nauteyri en þar höfðu þök rofnað og m.a. fennt inn á loft yfir íbúðarálmu. Tveir félagar sveitarinnar fóru þaðan á snjósleðum til að vitja um fólkið á Skjaldfönn, en þangað hafði verið símasambandslaust í nokkurn tíma. Á Skjaldfönn reyndist sem betur fer allt í lagi. |
|
Lesa meira...
|
|
|
strandir.is | 29/05 2012 | 09:33 |
|
Sköpunarverkið Strandir I
|
|
|
|
Aðsend grein: Gunnar Þór Jóhannesson, lektor í ferðamálafræði HÍ, Katrín Anna Lund, dósent í ferðamálafræði HÍ og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, lektor í ferðamálafræði Hólaskóla
Undanfarið ár höfum við undirrituð unnið að rannsókn á Ströndum um mótun svæðisins sem áfangastaðar ferðamanna. Verkefnið er hluti af alþjóðlegri rannsókn um þróun og áhrif ferðaþjónustu á norðlægum jaðarsvæðum og hýst er hjá Háskólanum í Finnmörku, Alta. Ásamt Íslandi er unnið að verkefninu í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Kanada. Rannsóknin á Ströndum hefur m.a. beinst að frumkvöðulshætti og nýsköpun í ferðaþjónustu og ímynd Stranda og Strandasýslu. Í þessari grein viljum við gera stuttlega grein fyrir könnun meðal úrtaks þjóðarinnar um ímynd svæðisins. |
|
Lesa meira...
|
|
Aðsend grein: Arnar S. Jónsson Nú í vikunni og sérstaklega um næstu helgi höldum við bæjarhátíðina Hamingjudaga. Mér finnst Hamingjudagar frábær hátíð og mér hefur fundist það alveg síðan ég mætti fyrst á hátíðina árið 2005. Ég verð samt að viðurkenna að það hefur komið mér pínulítið á óvart hvað allir íbúar í Strandabyggð eru jákvæðir, drífandi og viljugir til að greiða götu hátíðarinnar þannig að hún takist sem best. Það er alveg sama hvaða erindi framkvæmdastjórinn hefur átt við fólk í tengslum við hátíðina; allir eru til í allt með bros á vör. Mig grunar að ástæðan fyrir þessu jákvæða viðhorfi sé einfaldlega sú að íbúar í Strandabyggð eru með það á hreinu hvað Hamingjudagar snúast. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Engilbert Ingvarsson | 06/06 2011 | 09:28 |
|
Hundrað ára símastaur
|
|
|
|
Aðsend grein: Engilbert Ingvarsson Það mun hafa verið fyrri hluta árs 2007 að ég var staddur í Fjarskiptasafni Símans í gömlu loftskeytastöðinni á Melunum í Reykjavík. Þegar forstöðumaður safnsins Jón Ármann Jakobsson vissi að ég var frá Hólmavík fór hann að spyrja um gamlan símastaur, sem hann vissi að hefði verið látinn standa eftir þegar símalínan var rifin niður. Bað hann mig að kanna þetta og símaði ég svo til hans að staurinn væri í góðu standi. |
|
Lesa meira...
|
|
Aðsend grein eftir Helgu Margréti Guðmundsdóttir Það er okkur sem störfum hjá Heimili og skóla mikilvægt að vita til þess að stjórnendur og foreldrar við Grunnskólann á Hólmavík eru að vinna hörðum höndum að því að efla samstarf heimilis og skóla. Heimili og skóli – landssamtök foreldra vinna sífellt að vitundarvakningu meðal foreldra um hvernig foreldrar geta haft áhrif á skólasamfélagið. Í þeim tilgangi hafa samtökin gefið út sérstakar handbækur fyrir foreldrafélög og hafa haldið úti fræðslu og námskeiðum um aðkomu foreldra að stjórnun skóla. Einnig gefa samtökin út vefritið Samstíga sem sent er til allra foreldrafélaga og skóla í landinu. |
|
Lesa meira...
|
|
Aðsend grein eftir Stefán Gíslason (2072) Helsta ástæða þess að ég gef kost á mér til Stjórnlagaþings er umhyggja mín fyrir íslenskri náttúru og komandi kynslóðum. Ég vil sem sagt að hagsmuna íslenskrar náttúru og komandi kynslóða verði verði vel gætt í nýrri stjórnarskrá í samræmi við hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Þessi áhersla mín felur m.a. í sér, að í stjórnarskránni verði kveðið skýrt að orði um að náttúruauðlindir Íslands séu óframseljanleg sameign þjóðarinnar. Þar þarf einnig að koma fram að sjálfbær þróun sé leiðarljós í stjórnun landsins og ákvarðanatöku. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Jón Pálmar Ragnarsson | 26/11 2010 | 22:15 |
|
Framboð til stjórnlagaþings
|
|
|
|
Aðsend grein eftir Jón Pálmar Ragnarsson (2446) Stjórnlagaþing er afar áhugaverð tilraun til að endurskoða stjórnarskrána og í senn forvitnilegt hvað kemur út úr þeirri endurskoðun. Þjóðfundur var haldinn 6. nóvember síðastliðinn þar sem þátttakendur létu í ljós þær skoðanir sínar á því hvaða gildi Íslendingar ættu að hafa í heiðri. Niðurstöður þjóðfundarins eru öllum aðgengilegar og stjórnlagaþing mun hafa þær til ráðgjafar við störf sín. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Sigurður Atlason | 21/06 2010 | 23:00 |
|
Ferðamálasamtök Vestfjarða 26 ára
|
|
|
|
Grein eftir Sigurð Atlason Í dag eru 26 ár frá því að Ferðamálasamtök Vestfjarða voru stofnuð. Það
var þann
21. júní árið 1984 sem boðað var til stofnfundar samtakanna af
undirbúningsnefnd
sem starfað hafði saman frá því fyrr um vorið. Stofnfundurinn var
haldinn á
Hótel Ísafirði og á fundinn voru mættir um 30 manns víðsvegar af
Vestfjörðum.
Reynir Adolfsson setti þennan fyrsta fund samtakanna og bauð alla
velkomna og
fól síðan Úlfari Ágústssyni fundarstjórn. |
|
Lesa meira...
|
|
|
strandir.is | 28/05 2010 | 22:02 |
|
Allir á kjörstað!
|
|
|
|
Grein eftir Jón Jónsson og Rósmund Númason Síðustu vikur höfum við á V-listanum í Strandabyggð háð kosningabaráttu við J-listann sem hefur haft meirihluta í sveitarstjórn hér síðustu fjögur ár. Sú barátta hefur verið skemmtileg og fróðleg. Hún hefur líka farið vel og prúðmannlega fram og þökkum við J-listanum fyrir það. Á V-listanum okkar er kraftmikið og duglegt fólk, þaulvant félagsstörfum, hugmyndavinnu og verkefnastjórn. Við viljum sjá breytingar á ýmsum sviðum og leggjum sérstaka áherslu á stjórnsýsluna, vinnubrögð og upplýsingaflæði. |
|
Lesa meira...
|
|
|
strandir.is | 28/05 2010 | 20:42 |
|
Á réttri leið
|
|
|
|
Grein eftir Jón Gísla Jónsson Flokkarnir sem nú bjóða fram lista í komandi sveitarstjórnarkosningum bjóða öllum íbúum í kaffi og veitingar í Félagsheimilinu á kjördag milli klukkan tvö og fimm. Það er mikilvægt fyrir alla að kjósa því kosningin er í raun hornsteinn lýðræðisins sem við á J-listanum höldum hátt á lofti. |
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
| Niðurstöður 1 - 10 af 253 |