Aðsendar greinar
Kristinn H. Gunnarsson | 10/09 2008 | 13:10
Velkomnir til Íslands PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Grein eftir Kristinn H. Gunnarsson

Seint í gærkvöldi komu 29 palestínskir flóttamenn til landsins eftir langt og strangt ferðalag. Þeir hafa hafst við í flóttamannabúðum í Írak við mjög erfiðar aðstæður og koma til með að setjast að á Akranesi. Ég vil bjóða þá velkomna til landsins, fagna því að fá þá til liðs við okkur sem búum hér fyrir og er þess fullviss að Skagamenn muni í samvinnu við stjórnvöld og félagasamtök leysa verkefni sitt af hendi með miklum sóma.
Lesa meira...
Telma Magnúsdóttir | 10/09 2008 | 12:54
"Kostar ekki nema neitt" - Jú mig! PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Grein eftir Telmu Magnúsdóttir

Ég er ung sveitastúlka, uppalin á landsbyggðinni, fyrrverandi og verðandi námsmaður sem notar strætó til að komast milli staða í borginni. Mér stóð ekki til boða nám á framhalds- eða háskólastigi í minni heimabyggð, ég leigi íbúð í höfuðborg Íslands, borga fyrir hita og rafmagn hjá Orkuveitunni, kaupi mér kort í Sundlaugar Reykjavíkur og hef borgað í fjögur ár „skólagjöld“ til Háskóla Íslands. Ég vil fá frítt í strætó fyrir alla námsmenn í Reykjavík!
Lesa meira...
Grímur Atlason | 02/09 2008 | 21:45
Hvert er hlutverk höfuðborgar PDF Prenta Tölvupóstur
Grímur Atlason
Grein eftir Grím Atlason

Gísli Marteinn ætlar ekki að splæsa á landsbyggðarskrílinn í strætó. Á heimasíðu hans má lesa eftirfarandi:
"Reykjavíkurborg býður sínu fólki upp á góða þjónustu, ýmiskonar niðurgreiðslu og afslætti, sem ekki er boðið upp á í öðrum sveitarfélögum. Nemakortin eru þess háttar þjónusta og það væri vægast sagt einkennilegt ef Reykjavík færi að splæsa á utanbæjarfólk í strætó. Það stendur ekki til."
Lesa meira...
Grímur Atlason | 29/08 2008 | 18:06
Hin heimska hönd hagræðingarinnar PDF Prenta Tölvupóstur

Grímur Atlason
Grein eftir Grím Atlason
Stór fundur var haldinn í Dalabúð í vikunni. Sauðfjárbændur boðuðu til fundarins með stuttum fyrirvara en ljóst af fundarsókninni að dæma að ekki var vanþörf á. Niðurstaða fundarins var skýr. Vextir í þessu landi eru auðvitað út úr öllu korti. Afurðarverð til bænda er í besta falli lélegt en í ljósi fákeppni á matvörumarkaði er lítil von á breytingum nema með verulegum aðgerðum sem fælist í þungi í stað hjómkenndra óska fluguvigtarráðherra.

Lesa meira...
Þorgeir Pálsson | 29/08 2008 | 17:08
Þekking á Vestfjörðum PDF Prenta Tölvupóstur
Þorgeir Pálsson
Grein eftir Þorgeir Pálsson
 
Þekking er forsenda framfara. Annað ástand er stöðnun og á endanum afturför. Þekking hefur alltaf skipt máli, alltaf veitt fyrirtækjum og einstaklingum samkeppnisforskot, alltaf skapað verðmæti, en kannski aldrei líkt og nú. Samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja hefur þróast með slíkum hætti að aðgangur að réttum upplýsingum getur einfaldlega skipt sköpum um nýtingu tækifæra og farsælan rekstur.
Lesa meira...
Jón Bjarnason og Atli Gíslason | 28/08 2008 | 15:44
Samfylkingin beygir Sjálfstæðisflokkinn í landbúnaðarmálum PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Grein eftir Jón Bjarnason og Atla Gíslason

 Matvælafrumvarp ríkisstjórnarinnar, þar sem innflutningur á hráu kjöti er heimilaður, hefur mætt harðri andstöðu þeirra er málið varðar. Enginn vafi er á því að samstaða og samtakamáttur Bændasamtakanna, íslenskra matvælaframleiðenda og neytenda, sérfræðinga í matvælaheilbrigði og fjölmargra sveitarfélaga á landsbyggðinni hefur skipt sköpum um að á vordögum sló Alþingi málinu á frest. Þessi frestun málsins var einnig í samræmi við tillögur Vinstri grænna sem kynntar voru í fundaröð flokksins um frumvarpið þann 13.-14. maí sl., en flokkurinn hefur beitt sér af alefli í málinu. Með frestun frumvarpsins fram á haust fylgdu loforð meirihlutans um að ítarlega yrði að málinu unnið yfir sumarmánuðina og tíminn nýttur til gagns.
Lesa meira...
Grímur Atlason | 27/08 2008 | 01:00
Við og þið hin PDF Prenta Tölvupóstur
ImageGrein eftir Grím Atlason
Nemakortin í strætó eiga að stuðla að grænum skrefum eða hvað þetta heitir nú í höfuðborginni þessa dagana. Nemar geta þannig komist í skólann sinn með strætó án gjaldtöku. Það er auðvitað hið besta mál. Þetta á þó aðeins við suma – já, sumir eru jafnari en aðrir. Á heimasíðu strætó má finna eftirfarandi um nemakortið:
Lesa meira...
Þorgeir Pálsson og Shiran Þórisson | 21/08 2008 | 11:42
Hvað gerir Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða? PDF Prenta Tölvupóstur

Aðsend grein: Þorgeir Pálsson og Shiran Þórisson

Þorgeir og Shiran
Nafn félagsins er víðfeðmt og draga allflestir þá ályktum að ATVEST sé eingöngu í því hlutverki að þróa ný störf. Svo er ekki, því almenn öflun og miðlun fagþekkingar til viðskiptavina fyrirtækisins er mikilvægur liður í starfinu. Atvinnusköpun er vissulega óbein afleiðing af því sem við gerum en er ekki eini mælikvarðinn  fyrir það þróunarstarf sem er daglega í gangi hjá félaginu. ATVEST tekur þátt í atvinnusköpun frumkvöðla og fyrirtækja á frumstigum og oftast á sviði rannsóknar, upplýsingaröflunar eða faglegra úrlausna viðskiptatengdra vandamála. 

Lesa meira...
Stefán Gíslason | 17/06 2008 | 12:35
Olíuslys við Vestfirði - drög að áhættumati PDF Prenta Tölvupóstur

Image
Aðsend grein: Stefán Gíslason
Ég var spurður að því um daginn hvernig væri hægt að meta hættuna á meiri háttar olíuslysi út af Vestfjörðum vegna olíuflutninga til hugsanlegrar olíuhreinsistöðvar í Arnarfirði, jafnvel svo stóru olíuslysi að jafnaðist á við Exxon Valdez-slysið við Alaska 1989. Svarið fer hér á eftir, spyrjanda og öðrum til fróðleiks, en kannski ekki skemmtunar.

Lesa meira...
Karl V. Matthíasson | 05/06 2008 | 07:02
Kveðja til sjómanna PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Aðsend grein: Karl V. Matthíasson

Á hverju ári höldum við sjómannadaginn hátíðlegan, þennan dag, sem á fastan sess í huga þjóðarinnar og svo mikinn, að hann hefur oft á tíðum sama yfirbragð og þjóðhátíðardagur okkar 17, júní, ekki síst á þeim stöðum sem hafa nær algerlega byggt afkomu sína á fiskveiðum og sjósókn. Íslendingar þakka þennan dag sjómönnum sínum fyrir störf þeirra á hafinu, en með því leggja þeir drýgstan skerf og grunn að velferð okkar. Á sjómannadeginum lútum við einnig höfði með virðingu og þökk til allra þeirra sem hafa farist á hafinu. Flest eigum við góðar minningar um stundir með horfnum vinum sem hafið tók. Já sjómannadagurinn er dagur virðingar og þakkar.
Lesa meira...
<< Fyrsta < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 51 - 60 af 253
Advertisement