|
Nú standa yfir æfingar á barnaleikritinu Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur hjá Leikfélagi Hólmavíkur og eru leikarar 22. Það er Kristín Sigurrós Einarsdóttir (Stína) sem sér um leikstjórnina að þessu sinni, en hún er jafnframt formaður Leikfélagsins. Fréttaritari strandir.is spurði Stínu út í gang mála við æfingar á leikritinu, enda töluvert verkefni að stýra svona stórum hópi. Kristín hefur lengi verið viðloðandi leikhúsið, en hún er Borgfirðingur, fædd árið 1974 og uppalin á Lundi í Lundarreykjadal. Þar í sveit sá hún frændur sína og sveitunga stíga á svið og hreifst ung af starfi áhugaleikfélaga. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Dagrún | 30/06 2011 | 15:52 |
|
Skjaldbakan frumsýnd í kvöld
|
|
|
|
|
Viðtal: Smári Gunnarsson leikari Strandamaðurinn Smári Gunnarsson undirbýr nú frumsýningu á verkinu Skjaldbakan sem hann hefur verið að vinna á Hólmavík síðustu vikur. Verkið byggir á þeim ævintýralega atburði þegar sjómaðurinn Einar Hansen dró suðræna risaskjaldböku að landi á Hólmavík árið 1963. Leikritið verður frumsýnt í kvöld klukkan 20:00 í Bragganum á Hólmavík. Þess má geta að þetta er fyrsta hringleikhúsið sem sett hefur verið upp á Hólmavík. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Dagrún | 25/06 2011 | 00:00 |
|
"Hélt að þetta væri djók"
|
|
|
|
|
Viðtal: Hadda Borg Björnsdóttir, íþróttamaður ársins á Ströndum Á 64. ársþingi Héraðssambands Strandasýslu (HSS) sem fram fór á Kaffi Norðurfirði í maí síðastliðnum var tilkynnt um úrslit í kjöri á Íþróttamanni ársins 2010 á Ströndum. Að þessu sinni var það Hadda Borg Björnsdóttir í Þorpum sem hlaut afgerandi kosningu og var vel að sigrinum komin. Formaður HSS, Vignir Örn Pálsson, afhenti Höddu veglegan farandbikar við þetta tækifæri. Hadda er 18 ára Strandamær og náði fréttamaður strandir.is tali af henni og fékk að spyrja hana örfárra spurninga. |
|
Lesa meira...
|
|
Viðtal: Leikarar í Leikfélagi Hólmavíkur Leikfélag Hólmavíkur er á leiðinni norður í Árneshrepp til að sýna gamanleikinn góða Með táning í tölvunni. Um lokasýningu á stykkinu er að ræða og hefst hún kl. 20:00 í Árnesi í Trékyllisvík, fimmtudagskvöldið 16. júní. Leikritið hefur fram að þessu verið sýnt átta sinnum á fjórum stöðum á Vestfjörðum. Af þessu tilefni tók fréttamaður strandir.is tók alla sjö leikarana í smá yfirheyrslu. Allir fengu sömu spurningarnar, en svörin sem má finna hér að neðan eru skemmtilega ólík. Vefurinn strandir.is hvetur svo alla til að skella sér í leikhús í Trékyllisvík. |
|
Lesa meira...
|
|
Viðtal: Arnar S. Jónsson framkvæmdastjóri HamingjudagaFréttamaður strandir.is hitti framkvæmdastjóra Hamingjudaga á Hólmavík í dag og tók hann í stutt spjall um hátíðina sem að nálgast óðfluga. Nýlega var haldinn íbúafundur í Strandabyggð vegna hátíðarinnar, enda styttist óðfluga í skemmtunina. Hamingjudagar verða haldnir 1.-3. júlí í ár, en reyndar hefst dagskráin nokkuð fyrr og stendur nærri í heila viku að þessu sinni. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar þetta árið er Arnar Snæberg Jónsson og hlakkar hann mikið til. Nánari upplýsingar og dagskrá má nálgast á www.hamingjudagar.is. |
|
Lesa meira...
|
|
Viðtal: María Ragnarsdóttir í Brellunum
Hólreiðahópurinn Brellurnar lagði af stað á sjómannadaginn frá Patreksfirði til þess að hjóla hringinn í kringum Vestfirði. Þetta er um 640 km leið og þeim miðar vel áfram. Þær eru að safna áheitum fyrir Fríðu Eyrúnu Sæmundsdóttur en hún er nýorðin lögblind. Fréttamaður strandir.is náði tali af einni úr hópnum þegar að þær stöldruðu við á Hólmavík til þess að fá sér að borða. Það var María Ragnarsdóttir sem er ein af Brellunum sem stóð fyrir svörum: |
|
Lesa meira...
|
|
|
Dagrún | 06/06 2011 | 14:41 |
|
"Blaðsíða 11 er aldrei eins"
|
|
|
|
Viðtal: Sara Jóhannsdóttir og Arnór Jónsson Í vetur setti Leikfélag Hólmavíkur upp leikritið Með táning í tölvunni og nú er nýlokið leikferð með farsann hringinn í kringum Vestfirði. Fréttamaður strandir.is yfirheyrði tvo yngstu meðlimi sýningarinnar um hvernig það væri að vera að taka þátt í uppsetningu á leikriti með Leikfélagi Hólmavíkur og hvað stæði helst upp úr. Sara Jóhannsdóttir og Arnór Jónsson eru fjallkát með ævintýrin sem þau hafa lent í með leikfélaginu í vetur. Ein sýning af leikritinu er enn eftir og verður hún í Árnesi í Trékyllisvík þann 16. júní næstkomandi. |
|
Lesa meira...
|
|
|
JJ | 16/01 2010 | 12:20 |
|
Hótel Djúpavík 25 ára
|
|
|
|
Viðtal við Evu Sigurbjörnsdóttir Það hefur verið mikil þróun og uppbygging í ferðaþjónustu á Ströndum síðustu árin. Langt er þó síðan þjónusta við ferðafólk fór að skipta verulegu máli í atvinnulífi Strandamanna, en meðal þeirra sem hafa staðið vaktina hvað lengst eru hjónin Eva Sigurbjörnsdóttir og Ásbjörn Þorgilsson sem reka Hótel Djúpavík. Hótelið á 25 ára afmæli í ár og verður mikið um að vera af því tilefni í sumar. Vefurinn strandir.is tók nýverið viðtal við Evu Sigurbjörnsdóttir, hótelstýru á Hótel Djúpavík, sem var bjartsýn á framtíð ferðaþjónustunnar. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Í vikunni hefst útgáfa nýs prentmiðils á Ströndum og hefur hann fengið heitið Gagnvegur. “Nafnið er sótt í hina fornu og rammíslensku speki hávamál,” segir Kristín Sigurrós Einarsdóttir á Hólmavík, sem gefur út hið nýja blað. Að sögn Kristínar verður blaðið gefið út vikulega og mun innihalda sjónvarpsdagskrá, auglýsingar og fréttir úr héraðinu og verður því einhvers konar blanda af héraðsfrétta- og dagskrárblaði. |
|
Lesa meira...
|
|
|
SA | 24/03 2007 | 12:47 |
|
Leikfélagar teknir tali
|
|
|
|
Félagar í Leikfélagi Hólmavíkur stíga á svið í Félagsheimilinu á Hólmavík í kvöld og frumsýna Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason í leikstjórn Skúla Gautasonar. Leikritið fjallar um ævintýri Jörunds hundadagakonungs og hans kappa. Á Íslandi lenda þeir í allskyns ævintýrum og hitta þar fyrir undarlega þjóð sem býr yfir undarlegu tungumáli og mörgum enn undarlegri siðum. Yfir tuttugu leikarar og hljóðfæraleikarar taka þátt í sýningunni sem undirbúa sig af krafti í dag, hver með sínu lagi. Sýningin hefst kl. 20:30 og ennþá er nóg af lausum sætum. Tíðindamaður strandir.is sló á þráðinn til nokkurra þeirra og innti þá eftir því hvernig þeir höguðu undirbúningnum síðustu klukkustundirnar fyrir frumsýningu. |
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrra 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
| Niðurstöður 1 - 10 af 24 |