Söguþættir
Guðbrandur Benediktsson | 21/02 2010 | 00:00
Síldveiði í Steingrímsfirði sumarið 1962 PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Söguþáttur eftir Guðbrand Benediktsson
Útgerð Hilmis ST-1 sem undirritaður var hjá veturinn 1961-1962 ákvað um veturinn að stunda smásíldar­veiðar við Steingrímsfjörð sumarið 1962. Sömu menn voru í áhöfn og um veturinn, þeir voru: bræðurnir Guðmundur (Mummi) Guðmundsson, Gústaf (Dúddi) Guðmundsson og Hrólfur Guðmundsson, Jónas Ragnarsson systursonur þeirra, Magnús (Maggi) Ingimundarson og Þorsteinn (Steini) Guðbjörnsson. Hrólfur frá Heiðarbæ hætti hins vegar um sumarið til að sinna sveitastörfum.
Lesa meira...
Matthías Lýðsson | 24/01 2010 | 23:44
Lítið eitt um Arnkötludal PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Söguþáttur eftir Matthías Lýðsson
 
Með nýjum vegi um Arnkötludal opnast fólki leið um land þar sem verið hefur fáförult síðustu áratugina. Því fer þó fjarri að svo hafi alltaf verið. Um Arnkötludal lá áður fjölfarin leið milli Steingrímsfjarðar og Króksfjarðar, svonefnd Bæjardalsheiði kennd við Bæ og Bæjardal í Króksfirði. Velja má um þrjár leiðir upp úr Arnkötludal vestur yfir svonefndar Eggjar og niður á Bæjardal. Enn standa vörður á þessum leiðum, misvel standandi og þó síst á leiðinni innst í dalnum sem virðist mest hafa verið farin og víða sér enn mosagrónar og grjóttíndar götur fyrri heiðarfara.
Lesa meira...
JJ | 16/01 2010 | 12:04
Lákaklettur við Miðdalsá PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Söguþáttur eftir Jón Jónsson
Í landi jarðarinnar Kirkjubóls við sunnanverðan Steingrímsfjörð, er örnefnið Lákaklettur. Á það við um klettavegg sem blasir við ofan við veginn, rétt fyrir utan Miðdalsá og sumarbústaðinn Árból sem þar stendur. Lákaklettur er um það bil kílómetra frá bænum á Kirkjubóli. Nokkur saga er á bak við nafnið á Lákakletti, sem líklegt er að fáir þekki núorðið. Kirkjuból var nefnilega þingstaðurinn í Tungusveit fyrr á öldum, þar sem héraðsdómur var haldinn á þeim tímum Íslandssögunnar sem dauðarefsing lá við ýmsum brotum. Þar sem þannig háttar til eru víða þekktir aftökustaðir.
Lesa meira...
Óli E. Björnsson | 24/12 2009 | 17:01
Um jólatrésskemmtanir á Hólmavík PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Jólaminning eftir Óla E. Björnsson

Dísa á Smáhömrum byrjaði að búa þar 1932. Ég átti heima á bænum þá sex vetra, en var á förum. Ekki varð ég var við neitt jólahald á þeim bæ fyrr en árið áður. Dísa skreytti þá heilmikið jólatré, sem stóð á miðju stofugólfi. Ég man lítið  sem ekkert eftir þessari hátíð, nema það að utan á tréð hafði Dísa hengt sælgætispoka og máttu við­staddir taka sinn pokann hver að eigin vali. Ég var fljótur til, en man ekki fleira frá tíðindum að segja, nema að Óskar Jónatansson, valdi sér rauða glerkúlu, mér til mikillar undrunar.
Lesa meira...
ASJ | 11/04 2007 | 16:32
Skemmtilegar gamlar myndir úr Sævangi PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Sauðfjársetur á Ströndum stefnir að því í sumar að opna litla ljósmyndasýningu í tilefni af 50 ára afmæli félagsheimilisins Sævangs í Tungusveit. Söfnun er þegar hafin, en að sögn Arnars S. Jónssonar framkvæmdastjóra Sauðfjársetursins hefur dálítið magn af myndum borist nú þegar. Margar þeirra eru stórskemmtilegar og ráða má af þeim að Sævangur hefur verið lífleg miðstöð menningar- og skemmtanalífs á svæðinu um árabil. Hér fyrir neðan gefur að líta myndir úr einkasafni Lýðs Magnússonar og Ragnheiðar Runólfsdóttur í Húsavík, en á þeim má m.a. sjá persónur úr leikritinu Lási vinnumaður. Leikritið var sett upp skömmu eftir að Sævangur var tekinn í notkun og því sennilegt að myndirnar séu teknar á árinu 1958.
Lesa meira...
ASJ | 29/01 2007 | 09:32
Ofsaveður í Árneshreppi 1957 PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Nú eru liðnir nokkrir dagar síðan skemma við bæinn Fell í Kollafirði splundraðist í afar hvössu sunnanroki. Það þykja alltaf tíðindi þegar eitthvað fýkur á þennan hátt og Strandamenn hafa ekki farið varhluta af foktjóni í gegnum tíðina. Skemmst er að minnast ofsaveðra sem gengið hafa yfir svæðið nú í vetur, en í þeim hefur orðið talsvert tjón og skemmdir á mannvirkjum. Fyrir 50 árum voru svipuð læti í veðrinu og nú, þá sérstaklega í Árneshreppi. Þessu komst grúskari strandir.is að þegar hann fann gamla frétt í Morgunblaðinu skrifaða af Regínu Thorarensen á Gjögri þann 31. janúar 1957. Eins og þar má sjá hefur mikið gengið á; skemmur, hlöður, bátar og þakplötur hafa fokið í veðrinu og rúður í íbúðarhúsum brotnað. Sem betur fer urðu ekki slys á fólki:
Lesa meira...
ASJ | 22/10 2006 | 16:47
Sláturtíðin árið 1982 PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Nú er að ljúka mesta fjárstússinu hjá Strandabændum, en flestir þeirra eru án efa búnir að senda fé í sláturhús og velja álitleg lömb til að halda eftir heima. Svona hefur þetta gengið í áratugi, en helsta breytingin er eflaust sú að síðustu ár hefur sláturhúsum á Ströndum fækkað niður í ekki neitt. Það er gaman að skyggnast aftur í tímann til að rifja upp tíðarandann þegar starfsemi sláturhúsanna var í fullum gangi. Fyrir nákvæmlega 24 árum, þann 22. október árið 1982, birtist grein í Morgunblaðinu um slátrun á Hólmavík. Í greininni er sagt frá spjalli við Lýð Magnússon sláturhússtjóra um heildarslátrun og fallþunga, en einnig er greint frá áformum Strandamanna í refabúskap:
Lesa meira...
JJ | 13/09 2006 | 00:13
Myndir úr Skarðsrétt 1961 eða 1962 PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Vefurinn strandir.is fékk góða sendingu frá Halldóri Þorsteinssyni nú fyrir skemmstu þar sem voru myndir af nokkrum horfnum heiðursmönnum sem voru teknar í Skarðsrétt í Bjarnarfirði fyrir margt löngu. Hér má meðal annarra þekkja Guðmund Ragnar Guðmundsson frá Bæ og Ólaf Sigvaldason á Sandnesi, Halldór Guðmundsson í Bæ, Þorstein Matthíasson frá Kaldrananesi og Guðmund Halldórsson, alla létta í lundu og í réttarskapi.
Lesa meira...
JJ | 20/08 2006 | 13:01
Rekafjörur einkenna Strandir PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Rekadrumbarnir sem liggja víða í fjörum á Ströndum eru sannarlega eitt af einkennum svæðisins og þóttu á árum áður mikil hlunnindi. Lítið hefur rekið þetta árið, en þó kemur alltaf einn og einn drumbur á fjöruna sem nota má í sperru eða klæðningu. Fréttavefurinn komst á dögunum yfir skemmtilegar gamlar myndir af Jóni Jónssyni bónda á Broddanesi þar sem hann er að saga niður rekadrumb. Myndirnar tók Hörður Hauksson sumarið 1982, en Jón var þá 74 ára gamall. Hörður var áður í sveit hjá Stefáni á Broddanesi.
Lesa meira...
JJ | 31/12 2005 | 17:04
Gamlar myndir úr Fellsrétt PDF Prenta Tölvupóstur

Söguþættir

Image
Þegar ritstjóri strandir.is var ennþá ungur og áhyggjulaus þótti honum og sjálfsagt mörgum öðrum mikil skemmtun að fara í réttir. Í þá daga var enn réttað utan dyra í Kollafirði, en alllangt er nú síðan réttarstörfin færðust inn í fjárhús á þeim slóðum. Réttin stóð á melnum framan við Miðhús, þar sem útsýni opnast fram að Steinadal þegar ekið er þangað fram eftir og er nú lítið eftir af henni, fáein veggjabrot. Í tilefni áramótanna birtum við hér þrjár gamlar myndir úr Fellsrétt, úr safni Sauðfjárseturs á Ströndum.

Lesa meira...
<< Fyrsta < Fyrra 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 1 - 10 af 27