|
| Dagrún | 07/06 2011 | 19:07 | |||
| Brellurnar bruna gegnum Strandir |
|
|
|
![]() Hólreiðahópurinn Brellurnar lagði af stað á sjómannadaginn frá Patreksfirði til þess að hjóla hringinn í kringum Vestfirði. Þetta er um 640 km leið og þeim miðar vel áfram. Þær eru að safna áheitum fyrir Fríðu Eyrúnu Sæmundsdóttur en hún er nýorðin lögblind. Fréttamaður strandir.is náði tali af einni úr hópnum þegar að þær stöldruðu við á Hólmavík til þess að fá sér að borða. Það var María Ragnarsdóttir sem er ein af Brellunum sem stóð fyrir svörum: Hvernig kviknaði hugmyndin að því að hjóla þessa leið? Hvernig er ferðin búin að ganga? Eruð þið búnar að lenda í einhverjum ævintýrum? Af hverju kallið þið ykkur Brellurnar? Vefurinn strandir.is þakkar Brellunum kærlega fyrir spjallið og óskar þeim góðrar ferðar á leiðinni. Um leið minnum við á söfnunarreikninginn þeirra 153-05-23 kt. 100674-3199 og hvetjum alla Strandamenn til þess að styðja þetta góða málefni.
|
|








