Advertisement
ASJ | 18/06 2012 | 00:02
Reiðnámskeið hjá Strandahestum PDF Prenta Tölvupóstur
Strandahestar verða með reiðnámskeið fyrir börn og fullorðna dagana 24.-29. júní nk. Kennt verður í litlum hópum 4- 6 manns, í sex skipti, klukkutíma í senn. Kennslan fer fram á Víðidalsá á daginn og kvöldin allt eftir þörfum þátttakenda. Námskeiðið kostar 8000 kr. Fyrir þá sem eru lengra komnir í að sitja og stjórna hesti verður boðið upp stutta reiðtúra í nágrenni Hólmavíkur. Ennfremur verður boðið upp á sérstakan hóp fyrir óvana fullorðna. Upplýsingar og skráning er í síma 8452748 og á netfangið Kennarar verða Björk Ingvarsdóttir og Victor Örn Victorsson.
Advertisement
Advertisement