Advertisement
JJ | 19/06 2012 | 15:34
Verktakafélagið Glaumur í Garðabæ átti lægsta boð PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Í dag voru opnuð tilboð í vegagerð í norðanverðum botni Steingrímsfjarðar. Þar á að leggja nýjan veg, samtals 2,8 km á Strandavegi (643) frá vegamótum við Djúpveg að afleggjaranum að Geirmundarstöðum. Aðrir afleggjarar sem fylgja útboðinu eru 400 metrar. Samkvæmt frétt um útboðið á að ljúka verkefninu að fullu fyrir 15. nóvember 2013, en samkvæmt heimildum strandir.is er miðað við að hægt verði að aka veginn og nýta nýju brúna næsta vetur, þótt slitlagið verði ekki komið á í haust. Fimm tilboð bárust og var það lægsta að upphæð 147.706.200.- eða 75,9% af kostnaðaráætlun. Lægsta boð á Verktakafélagið Glaumur ehf í Garðabæ.

 

BjóðandiTilboð kr. 
Áætlaður verktakakostnaður194.600.000
Þróttur ehf., Akranesi190.662.060
Nesey ehf., Selfossi175.000.000
Skagfirskir verktakar ehf., Sauðárkróki171.957.000
Borgarverk ehf., Borgarnesi166.520.000
Verktakafélagið Glaumur ehf., Garðabæ            147.706.200

 

 

Advertisement
Advertisement