Advertisement
JJ | 21/06 2012 | 22:55
Skákhátíđ í Árneshreppi og fjöltefli á Hólmavík PDF Prenta Tölvupóstur

Image

Skákhátíđ á Ströndum 2012 verđur haldin nú um helgina. Efnt er til fjölteflis á Hólmavík og skákmóta í Djúpavík, Trékyllisvík og Norđurfirđi. Von er á stórmeisturunum Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni og Ţresti Ţórhallssyni, auk skákáhugamanna víđa ađ. Ţá munu mörg af efnilegustu skákbörnum landsins taka ţátt í hátíđinni, sem er öllum opin. Fjöldi viđurkenninga og verđlauna eru í bođi, m.a. munir eftir tvo af kunnustu handverksmönnum Strandasýslu, flugfarseđlar, sérsmíđađir silfurhringir, silki frá Samarkand, bćkur og peningaverđlaun.

Hátíđin hefst á Hólmavík klukkan 16:00 föstudaginn 22. júní. Ţá mun Róbert Lagerman, heiđursgestur hátíđarinnar, tefla fjöltefli viđ alla sem vilja í Hnyđju, neđstu hćđ Ţróunarsetursins ađ Höfđagötu 3 á Hólmavík. Róbert sem verđur fimmtugur nú í sumar er sá skákmeistari sem tekiđ hefur ţátt í flestum skákviđburđum á Ströndum sl. ár. Fjöltefliđ er öllum opiđ og ţátttaka er ókeypis.

Klukkan 20 á föstudagskvöld verđur tvískákarmót í Hótel Djúpavík og á laugardag klukkan 13 hefst Afmćlismót Róberts Lagerman í samkomuhúsinu í Trékyllisvík. Heildarverđlaun á mótinu verđa rúmlega 100 ţúsund krónur, en ađ auki gefa fjölmörg fyrirtćki og einstaklingar verđlaun. Á sunnudag kl. 13 verđur svo hrađskákmót í Kaffi Norđurfirđi, sem markar lok Skákhátíđar á Ströndum 2012.

Til mikils er ađ vinna á hátíđinni. Sigurvegarar í Trékyllisvík og Norđurfirđi fá muni eftir Guđjón Kristinsson frá Dröngum og Valgeir Benediktsson í Árnesi. Ţá mun sigurvegarinn á Afmćlismóti Róberts fá sérsmíđađan silfurhring, smíđađan af Úlfari Daníelssyni gullsmiđ. Á hringinn er greypt međ rúnaletri kjörorđ skákhreyfingarinnar: Viđ erum ein fjölskylda.

Útlit er fyrir góđa ţátttöku í hátíđinni, sem hefur unniđ sér sess sem einhver skemmtilegasti skákviđburđur ársins. Ýmsir kunnir skákáhugamenn hafa bođađ komu sína, og má nefna Halldór Blöndal fv. forseta Alţingis, Magnús Matthíasson formann Vinafélagsins, Stefán Bergsson framkvćmdastjóra Skákakademíu Reykjavíkur, Ingibjörgu Eddu Birgisdóttur fv. Íslandsmeistara kvenna, Gunnar Finnsson fv. skólastjóra í Trékyllisvík og Gunnar Björnsson forseta Skáksambandsins. Ţá munu heimamenn ađ vanda taka virkan ţátt í skákhátíđinni.

Helstu bakhjarlar Skákhátíđar á Ströndum 2012 eru Brim hf. menntamálaráđuneytiđ, Skáksamband Íslands, Flugfélagiđ Ernir, Kaupfélag Steingrímsfjarđar, Sögur útgáfa, forlagiđ, Securitas, Jóhanna Travel o.fl.

 Allir eru velkomnir, og verđur efnt til ýmissa viđburđa fyrir utan skákina, m.a. haldin grillveisla í Trékyllisvík og ,,landsleikur" í fótbolta milli gesta og heimamanna í UMF Leifi heppna. Ţađ er von mótshaldara ađ sem flestir leggi leiđ sína á hátíđina um helgina, og komist í snertingu viđ stórbrotna náttúru og auđugt mannlíf Strandasýslu.

 Skákhátíđ á Ströndum hefur stofnađ Facebook-síđu, en einnig er hćgt ađ skrá sig hjá Hrafni , Róbert í Andreu , sem einnig veita frekari upplýsingar um ćvintýraferđ á Strandir.

 

Advertisement
Advertisement