|
| JJ | 25/06 2012 | 09:56 | |||
| Alls konar ást - á Hólmavík |
|
|
|
![]() Tónleikar sem bera hiđ ljúfa heiti Alls konar ást eru fyrsti viđburđur Hamingjudaga á Hólmavík ţetta áriđ. Ţeir verđa í Hólmavíkurkirkju og hefjast kl. 20 á mánudagskvöld, 25. júní. Ađ tónleikunum stendur kór kirkjunnar ásamt góđu samstarfsfólki og gestum. Efnisskráin er fjölbreytt en eitt er ţar ţó sammerkt: Fjallađ er um ást frá ýmsum hliđum. Ţjóđfrćđistofa á Ströndum verđur međ skemmtileg innlegg milli laga og sérstakir gestir eru Gógó-píurnar sem gert hafa garđinn frćgan, m.a. á tónlistarhátíđinni Aldrei fór ég suđur. Undirleikari er Stefán Steinar Jónsson og stjórnandi Viđar Guđmundsson. Ađgangseyrir er kr. 2.000 fyrir 13 ára og eldri. Segja má ađ Hamingjudögum á Hólmavík sé ţjófstartađ međ ţessum upphafstónleikum. Dagskrá ţeirra verđur ađ öđru leyti frá 28. júní til 1. júlí eđa frá fimmtudegi og fram á sunnudag. Međfylgjandi ljósmynd er frá Kaldalónstónum sem haldnir voru á Hólmavík á síđasta ári og kemur frá Ólafi J. Engilbertssyni.
|
|








