|
| JJ | 29/06 2012 | 14:21 | |||
| Andrea K. Jónsdóttir nýr sveitarstjóri í Strandabyggð |
|
|
|
![]() Andrea K. Jónsdóttir hefur verið ráðinn nýr sveitarstjóri í Strandabyggð og kemur til starfa í ágúst. Andrea hefur lokið meistaranámi í verkefnastjórnun með MPM gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún lauk einnig BSc prófi í rekstrarfræðum frá Háskólanum á Bifröst og hafði áður lokið námi í frumgreinum og diplóma í rekstrarfræðum frá sama skóla. Þá er Andrea búfræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Hún er úr Hafnarfirði, en hefur verið búsett í Mosfellsbæ síðustu árin. Andrea hefur víðtæka starfsreynslu. Hún er stjórnarformaður Kortaþjónustunnar hf. og gegndi ýmsum trúnaðar- og ábyrgðarstörfum hjá Intrum á árunum frá 1998-2009. Á meðfylgjandi mynd eru Andrea K. Jónsdóttir nýráðinn sveitarstjóri í Strandabyggð og Ingibjörg Valgeirsdóttir sem lætur af störfum sem sveitarstjóri í sumarlok.
|
|







