Advertisement
JJ | 18/09 2012 | 11:30
Vetrarstarf hjá kvenfélaginu Glæður PDF Prenta Tölvupóstur
Image

Vetrarstarfið hjá kvenfélaginu Glæðum á Hólmavík og nágrenni er að hefjast og eru allar konur í Strandabyggð sem áhuga hafa á verkefnum sem kvenfélagið fæst við hjartanlega velkomnar til þáttöku í starfinu. Starfsemin í vetur hefst mánudaginn 24. september næstkomandi, með fundi í húsi kvenfélagsins Glæðum að Kópnesbraut 7. Fundurinn hefst klukkan 20:00.
Advertisement
Advertisement