Advertisement
Sveitarstjórn | 13/12 2006 | 11:24
Sveitarstjórn - 12. des. 2006 PDF Prenta Tölvupóstur

Ár 2006 þriðjudaginn 12. desember var haldinn fundur í sveitarstjórn Strandabyggðar. Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00. Valdemar Guðmundsson oddviti setti fundinn og stjórnaði honum en auk hans sátu fundinn Rúna Stína Ásgrímsdóttir, Ásta Þórisdóttir varamaður, Már Ólafsson og Daði Guðjónsson. Einnig sat fundinn Lára Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta var gert:

Oddviti bar upp tillögu við boðaða dagskrá um að sjötta mál yrði tekið á dagskrá, það er erindi frá Íþróttafélagi lögreglunnar á Hólmavík um fyrirhugaða sölu á tækjum í eigu félagsins sem staðsett eru í Íþróttamiðstöð Hólmavíkur og var það samþykkt samhljóða. Oddviti kynnti þá dagskrá fundarins í 6 töluliðum, sem var eftirfarandi:

1. Skýrsla sveitarstjóra.
2. Erindi frá Rögnvaldi Gíslasyni um framtíð Bókasafns Broddaneshrepps ásamt ársreikningi.
3. Erindi frá Dalabyggð vegna aðalskipulags Dalabyggðar 2004-2016 og leitað eftir umsögn sveitarstjórnar Strandabyggðar.
4. Erindi Húsafriðunarnefndar ríkisins til menntamálaráðherra vegna gömlu slökkvistöðinnar.
5. Erindi frá Landbúnaðarráðuneytinu vegna skiptingu lóðar umhverfis Kollafjarðarneskirkju og kirkjugarðinn og leitað eftir umsögn sveitarstjórnar Strandabyggðar.
6. Erindi frá Íþróttafélagi lögreglunnar á Hólmavík um fyrirhugaða sölu á tækjum sem staðsett eru í Íþróttamiðstöð Hólmavíkur.

Þá var gengið til dagskrár.
 
1. Skýrsla sveitarstjóra. 
Í skýrslu sveitarstjóra er fjallað um Bókasafn Broddaneshrepps sem er almenningsbókasafn en fyrrum bókasafnsnefnd hefur kallað eftir því að ný nefnd verði skipuð. Í Strandabyggð er einnig rekið héraðsbókasafn og er heimilt samkvæmt lögum nr. 36/1997 að sameina almenningsbókasafnið og héraðsbókasafnið. 

Þá kemur einnig fram í skýrslu sveitarstjóra að send voru andmæli til menntamálaráðuneytisins ásamt greinargerð og fylgiskjölum vegna skyndifriðunar Húsafriðunarnefndar ríkisins á gömlu slökkvistöðinni.

2. Erindi frá Rögnvaldi Gíslasyni um framtíð Bókasafns Broddaneshrepps ásamt ársreikningi. 
Samþykkt var samhljóða að sameina Bókasafn Broddaneshrepps Héraðsbókasafni Strandasýslu og kanna vilja íbúa hvort þeir vilji hafa útibú staðsett í Broddnesskóla.

3. Erindi frá Dalabyggð vegna aðalskipulags Dalabyggðar 2004-2016 og leitað eftir umsögn sveitarstjórnar Strandabyggðar. 
Borist hefur erindi frá Dalabyggð dags. 20. nóvember 2006 vegna aðalskipulags Dalabyggðar 2004-2016 og leitað eftir umsögn sveitarstjórnar Strandabyggðar. Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti aðalskipulag Dalabyggðar.

4. Erindi Húsafriðunarnefndar ríkisins til menntamálaráðherra vegna gömlu slökkvistöðvarinnar. 
Borist hefur erindi frá Húsafriðunarnefnd ríkisins dags. 30. nóvember 2006 til menntamálaráðherra um skyndifriðun á gömlu slökkvistöðinni. Lagt fram til kynningar.

5. Erindi frá Landbúnaðarráðuneytinu vegna skiptingu lóðar umhverfis Kollafjarðarneskirkju og kirkjugarðinn og leitað eftir umsögn sveitarstjórnar Strandabyggðar. 
Borist hefur erindi frá Landbúnaðarráðuneytinu dags. 6. desember vegna skiptingu lóðar umhverfis Kollafjarðarneskirkju og kirkjugarðinn og leitað eftir umsögn sveitarstjórnar Strandabyggðar. Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaða skiptingu.

6. Erindi frá Íþróttafélagi lögreglunnar á Hólmavík um fyrirhugaða sölu á tækjum sem staðsett eru í Íþróttamiðstöð Hólmavíkur.  
Valdimar Guðmundsson og Már Ólafsson véku af fundi. Borist hefur erindi frá Íþróttafélagi lögreglumanna á Hólmavík um kaup á tækjum íþróttafélagsins sem staðsett eru í Íþróttamiðstöðinni Hólmavík. Samþykkt var að ganga til viðræðna um kaup á tækjunum. Valdimar og Már koma aftur inn á fund.

Fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fundi slitið kl. 17:35.

 

Advertisement
Advertisement