Advertisement
Strandabyggð | 21/02 2007 | 09:59
Sveitarstjórn - 20. feb. 2007 PDF Prenta Tölvupóstur

Ár 2007 þriðjudaginn 20. febrúar var haldinn fundur í sveitarstjórn Strandabyggðar. Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00. Rúna Stína Ásgrímsdóttir varaoddviti setti fundinn og stjórnaði honum en auk hennar sátu fundinn Jón Gísli Jónsson, Már Ólafsson, Daði Guðjónsson og Ásta Þórisdóttir varamaður. Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta var gert:

Varaoddviti flutti tillögu um afbrigði við boðaða dagskrá um að tekið yrði inn ellefta málið sem væri beiðni frá Snævari Guðmundssyni um skipan nýs forðagæslumanns til að sinna forðagæslu á Melgraseyri og var það samþykkt samhljóða. Varaoddviti kynnti þá dagskrá fundarins í 11 töluliðum, sem var eftirfarandi:

1. Skýrsla sveitarstjóra.
2. Beiðni um fjárstyrk vegna uppskeruferðar barna í körfubolta.
3. Erindi frá Leið ehf. um nafn á væntanlegum vegi um Arnkötludal og Gautsdal.
4. Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um tilnefningu í starfshóp vegna svæðisskipulags og framtíðarsýn fyrir Vestfirði.
5. Áskorun frá kennurum Grunnskólans á Hólmavík um leiðréttingu launa samkvæmt kjarasamningi.
6. Ályktun frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga vegna samgöngu-áætlunar 2007-2010 annars vegar og 2007-2018 hins vegar.
7. Fundargerð Menningarmálanefndar Strandabyggðar dags. 7. febrúar 2007.
8. Fundargerð Félagsmálaráðs Strandabyggðar dags. 8. febrúar 2007.
9. Fundargerð Hafnarnefndar Strandabyggðar dags. 8. febrúar 2007.
10. Fundargerð Skólanefndar Grunnskólans á Hólmavík dags. 24. janúar 2007.
11. Beiðni frá Snævari Guðmundssyni um skipan nýs forðagæslumanns til að sinna forðagæslu á Melgraseyri.

Þá var gengið til dagskrár:

1. Skýrsla sveitarstjóra. 
Í skýrslu sveitarstjóra er fjallað um för nokkurra sveitarstjórnarmanna suður á fund stjórnarandstöðunnar í síðustu viku til að kynna fyrir þeim áherslur og kröfur þeirra. Var þar m.a. bent á að erfitt væri að stuðla að nýsköpun í atvinnumálum þar sem Vestfirðir væru ekki samkeppnishæfir við önnur svæði er kæmi að samgöngumálum, flutningskostnaði og fjarskiptasambandi svo eitthvað væri nefnt. 

Þá var einnig fjallað um þakleka sem upp hefur komið í íþróttasal sem og þjónustubyggingu en Gísli Gunnlaugsson hefur gert úttekt á vandanum og telur lekann stafa af því að ekki hafi verið farið eftir útboðsgögnum.

Þá var einnig fjallað um að huga þurfi að opnunartíma sundlaugar og upplýsingarmiðstöðvar í sumar og verður tekin ákvörðun um það á næsta fundi.

2. Beiðni um fjárstyrk vegna uppskeruferðar barna í körfubolta. 
Borist hefur beiðni um fjárstyrk vegna fyrirhugaðrar uppskeruferðar barna sem æft hafa körfubolta með börnum frá Hvammstanga síðast liðinn vetur. Samþykkt var samhljóða að veita styrk að fjárhæð 35.000 kr.  

3. Erindi frá Leið ehf. um nafn á væntanlegum vegi um Arnkötludal og Gautsdal. 
Borist hefur erindi dags. 1. febrúar 2007 frá Leið ehf. til Vegagerðarinnar um nafn á væntanlegum vegi um Arnkötludal og Gautsdal í Strandabyggð og Reykhólahreppi. Lagt fram til kynningar.

4. Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um tilnefningu í starfshóp vegna svæðisskipulags og framtíðarsýn fyrir Vestfirði. 
Borist hefur erindi frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 2. febrúar 2007 þar sem farið er fram á tilnefningu í starfshóp vegna svæðisskipulags og framtíðarsýn fyrir Vestfirði. Jón Gísli Jónsson lagði fram tillögu um Matthías Lýðsson sem fulltrúa Strandabyggðar og var það samþykkt samhljóða.

5. Áskorun frá kennurum Grunnskólans á Hólmavík um leiðréttingu launa samkvæmt kjarasamningi. 
Lögð er fram áskorun frá kennurum Grunnskólans á Hólmavík dags. 3. febrúar 2007 um leiðréttingu launa samkvæmt kjarasamningi. Rúna Stína Ásgrímsdóttir og Ásta Þórisdóttir véku af fundi. Sveitarstjórn þakkar kennurum erindið en bendir á að samningsrétturinn er alfarið í höndum launanefndar sveitarfélaga. Rúna Stína Ásgrímsdóttir og Ásta Þórisdóttir komu aftur inn á fundinn.

6. Ályktun frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga vegna Samgönguáætlunar 2007-2010 annars vegar og 2007-2018 hins vegar. 
Borist hefur ályktun frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 14. febrúar 2007 vegna samgönguáætlunar 2007-2010 annars vegar og 2007-2018 hins vegar. Sveitarstjórn tekur undir ánægju Fjórðungssambandsins yfir fyrirhuguðum framkvæmdum sem tilgreindar eru í samgönguáætlun, en lýsir jafnframt yfir vonbrigðum sínum yfir að ekki sé farið í að bæta vegi innan Strandasýslu, en m.a. vantar enn bundið slitlag milli Hólmavíkur og Drangsness og óvíða eru jafn margar einbreiðar brýr eins og í Strandasýslu.

7. Fundargerð Menningarmálanefndar Strandabyggðar dags. 7. febrúar 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Menningarmálanefndar Strandabyggðar frá 7. febrúar 2007. Fundargerðin var samþykkt með þeim breytingum að í 1. lið verði skoðað að gera nýja heimasíðu fyrir sveitarfélagið sem gæti hýst Hamingjuvefinn, í 4. lið er styrkbeiðni frá Elvari L. Hannessyni sem vísað var til sveitarstjórnar hafnað og í 6. lið verði kallaðir saman eigendur hússins til að fara yfir stöðu mála og endurskoða eignarhald og kostnaðarskiptingu á Félagsheimilinu.

8. Fundargerð Félagsmálaráðs Strandabyggðar dags. 8. febrúar 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Félagsmálaráðs Strandabyggðar frá 8. febrúar 2007. Fundargerðin var samþykkt samhljóða.

9. Fundargerð Hafnarnefndar Strandabyggðar dags. 8. febrúar 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Hafnarnefndar Strandabyggðar frá 8. febrúar 2007. Fundargerðin var samþykkt samhljóða.

10. Fundargerð Skólanefndar Grunnskólans á Hólmavík dags. 24. janúar 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Skólanefndar Grunnskólans á Hólmavík frá 24. janúar 2007. Fundargerðin var samþykkt samhljóða.

11. Beiðni frá Snævari Guðmundssyni um skipan nýs forðagæslumanns til að sinna forðagæslu á Melgraseyri. 
Borist hefur beiðni frá Snævari Guðmundssyni dags. 19. febrúar 2007 þar sem hann fer fram á að skipaður verði nýr forðagæslumaður til að sinna forðagæslu á Melgraseyri þar sem hann telur að núverandi forðagæslumaður sé ekki starfi sínu vaxinn. Sveitarstjórn þakkar Snævari erindið, en telur enga ástæðu fyrir því að skipa nýjan forðagæslumann og lýsir fullum stuðningi við starfandi forðagæslumann.

Fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fundi slitið kl. 19:00.

 

Advertisement
Advertisement