Advertisement
Strandabyggð | 30/05 2007 | 09:58
Sveitarstjórn - 29. maí 2007 PDF Prenta Tölvupóstur

Ár 2007 þriðjudaginn 29. maí var haldinn fundur í sveitarstjórn Strandabyggðar. Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00. Valdemar Guðmundsson oddviti setti fundinn og stjórnaði honum en auk hans sátu fundinn Rúna Stína Ásgrímsdóttir, Jón Gísli Jónsson, Daði Guðjónsson og Jón Stefánsson varamaður. Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta var gert:

Oddviti kynnti dagskrá fundarins í 10 töluliðum, sem var eftirfarandi:

1. Skýrsla sveitarstjóra.
2. Áskorun frá íbúum Strandabyggðar um aðstöðu og uppsetningu fyrir hjólabretti og línuskauta.
3. Beiðni um styrk vegna starfsemi Kvennakórsins Norðurljósa, Hólmavík.
4. Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfjarða um tilnefningu eins fulltrúa í Menningarráð Vestfjarða fyrir Strandasýslu og Reykhólahrepp.
5. Erindi frá stjórn Ungmennafélagsins Geislans um fjölgun brauta í sundlauginni á Hólmavík.
6. Erindi frá formanni Menningarmálanefndar Strandabyggðar um stöðu og ábyrgð nefndarinnar.
7. Erindi frá Elísabetu Pálsdóttur og Sævari Benediktssyni um kaup á gamla vatnstankinum.
8. Fundargerð Bygginga-, umferðar- og skipulagsnefndar Strandabyggðar dags. 23. maí 2007.
9. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarða dags. 27. apríl 2007.
10. Reglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa vegna fiskveiðiársins 2006/2007.

Þá var gengið til dagskrár.

1. Skýrsla sveitarstjóra. 
Í skýrslu sveitarstjóra er fjallað um tilhögun skólaaksturs næsta skólaár en formaður skólanefndar hefur lagt fram minnispunkta frá Einari Indriðasyni um ástand skólabifreiða í eigu sveitarfélagsins. Þá var fjallað um hvort haga beri skólaakstri með sama sniði og áður, hvort endurnýja þurfi bílakostinn eða hvort bjóða ætti hreinlega aksturinn út. Vildi skólanefnd að akstur skólarútu yrði óbreyttur enda hafi bifreiðin reynst afar vel.

Þá er einnig sagt frá fundi um fyrirhugaða olíuhreinsunarstöð sem staðsett eigi að vera á Vestfjörðum en kynningarfundur var haldinn á Ísafirði um málið. 

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að bjóða út skólaakstur í Ísafjarðardjúpi en annar akstur verði að öðru leyti með óbreyttu sniði.

2. Áskorun frá íbúum Strandabyggðar um aðstöðu og uppsetningu fyrir hjólabretti og línuskauta. 
Borist hefur undirskriftalisti dags. 24. maí 2007 um aðstöðu og uppsetningu fyrir hjólabretti og línuskauta og þess farið á leit að sveitarstjórn skoði málið í fullri alvöru. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að verða við erindinu og er sveitarstjóra falið að skoða málið og fylgja því eftir.

3. Beiðni um styrk vegna starfsemi Kvennakórsins Norðurljósa, Hólmavík. 
Borist hefur beiðni um styrk frá Kvennakórnum Norðurljós á Hólmavík dags. 7. maí 2007 þar sem farið er fram á styrk vegna starfsemi kórsins á árinu. Valdemar Guðmundsson og Rúna Stína Ásgrímsdóttir véku af fundi.  Samþykkt var samhljóða að styrkja kórinn um 100.000 kr. Valdemar og Rúna Stína komu aftur á fundinn.

4. Erindi frá Fjórðungssambandi Vestfjarða um tilnefningu eins fulltrúa í Menningarráð Vestfjarða fyrir Strandasýslu og Reykhólahrepp. 
Borist hefur erindi frá Fjórðungssambandi Vestfjarða dags. 11. maí 2007 þar sem farið er fram á tilnefningu eins fulltrúa í Menningarráð Vestfjarða fyrir Strandasýslu og Reykhólahrepp. Samþykkt var samhljóða að vísa erindinu til Héraðsnefndar Strandasýslu.

5. Erindi frá stjórn Ungmennafélagsins Geislans um fjölgun brauta í sundlauginni á Hólmavík. 
Borist hefur erindi frá stjórn Ungmennafélagsins Geislans dags. 11. maí 2007 um fjölgun brauta í sundlauginni á Hólmavík úr þremur í fjórar. Samþykkt var samhljóða að verða við erindinu og er stefnt að því að verkinu ljúki í haust.

6. Erindi frá formanni Menningarmálanefndar Strandabyggðar um stöðu og ábyrgð nefndarinnar. 
Borist hefur erindi frá formanni Menningarmálanefndar Strandabyggðar dags. 11. maí 2007 um stöðu og ábyrgð nefndarinnar og hvort það hafi breyst með nýrri sveitarstjórn. Samþykkt var að fresta erindinu fram á föstudag.

7. Erindi frá Elísabetu Pálsdóttur og Sævari Benediktssyni um kaup á gamla vatnstankinum. 
Borist hefur erindi frá Elísabetu Pálsdóttur og Sævari Benediktssyni um kaup á gamla vatnstankinum til að byggja þar upp aðstöðu fyrir viðburði tengda menningu og listum. Samþykkt var samhljóða að fela sveitarstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður og afla nánari upplýsinga.

8. Fundargerð Bygginga-, umferðar- og skipulagsnefndar Strandabyggðar dags. 23. maí 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Bygginga-, umferðar- og skipulagsnefndar Strandabyggðar frá 23. maí 2007.  Fundargerðin var samþykkt samhljóða fyrir utan lið a undir liðnum önnur mál þar sem sveitarstjórn samþykkir til reynslu lokun Vitabrekku fram til 15. september 2007.

9. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarða dags. 27. apríl 2007. 
Borist hefur fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarða frá 27. apríl 2007. Lagt fram til kynningar.

10. Reglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa vegna fiskveiðiársins 2006/2007.
Samþykkt var samhljóða að fresta erindinu fram til 1. júní 2007 en þá verður aukafundur hjá sveitarstjórn. 

Fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fundi slitið kl. 18:30.

 

Advertisement