Advertisement
Strandabyggð | 10/10 2007 | 11:50
Sveitarstjórn - 9. okt. 2007 PDF Prenta Tölvupóstur

Ár 2007 þriðjudaginn 9. október var haldinn fundur í sveitarstjórn Strandabyggðar. Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00. Valdemar Guðmundsson oddviti setti fundinn og stjórnaði honum, en auk hans sátu fundinn Már Ólafsson, Jón Stefánsson varamaður, Ásta Þórisdóttir varamaður og Ingibjörg Emilsdóttir varamaður. Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta var gert:

Oddviti kynnti dagskrá fundarins í 12 töluliðum, sem var eftirfarandi:

1. Skýrsla sveitarstjóra.
2. Erindi frá Kaupþingi um styttri opnunartíma og fækkun starfa á Hólmavík.
3. Skerðing á rækjubótum í Húnaflóa fiskveiðiárið 2007-2008.
4. Erindi frá Háafelli um viðræður um hugsanleg kaup á jörðinni Nauteyri.
5. Erindi frá starfsmönnun Grunnskólans um styrk til kaupa á flíspeysum.
6. Beiðni frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um umboð til að hefja viðræður við lögreglustjóra á Vestfjörðum um skipan samstarfsnefndar milli lögreglunnar og sveitarfélaga á Vestfjörðum.
7. Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um viðmiðunarreglur um kirkjugarðsstæði.
8. Fundargerð Atvinnumálanefndar Strandabyggðar dags. 13. 06. 2007.
9. Fundargerð Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefndar Strandabyggðar dags. 19. 09. 2007.
10. Fundargerð Umhverfisnefndar Strandabyggðar dags. 1. 10. 2007.
11. Fundargerð Leikskólanefndar Strandabyggðar dags. 4.10. 2007.
12. Fundargerð Heilbrigðisnefndar dags. 14. september 2007.

Þá var gengið til dagskrár.

1. Skýrsla sveitarstjóra. 
Í skýrslu sveitarstjóra er fjallað um fund sem sveitarstjórn átti með Aðalsteini Óskarssyni framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða þar sem hann kynnti hugmyndir sínar um Þróunarsetur á Hólmavík. Sagði Aðalsteinn frá reynslu Ísfirðinga og Patreksfirðinga af slíku setri og þeim möguleikum sem skapast við slíkt setur. Vöxtur setursins á Ísafirði hefur verið afar mikill en byrjað var með 10 skrifstofur en þær eru orðnar 24 og fjölgar enn. Taldi Aðalsteinn afar mikilvægt að komið yrði á fót Þróunarsetri á Hólmavík sem myndi gera kleyft að taka við fleiri verkefnum frá m.a. höfuðborgarsvæðinu. Það húsnæði sem best væri fallið undir slíka starfsemi væri Höfðagata 3 sem er í eigu sveitarfélagsins. Samþykkt var að leigja aðra hæðina undir skrifstofuhúsnæði fyrir Þróunarsetur. 

Þá er einnig greint frá fundi sem haldinn var með eigendum Félagsheimilisins á Hólmavík þar sem rædd voru ýmis mál er lúta að rekstri þess. Vilja eigendur skoða það hvort hægt sé að ráða húsvörð í 20% starf og sæi hann um rekstur þess ásamt viðhaldi. Þá var rætt um þörfina fyrir viðhaldi en margt þarf að gera til að koma húsinu í sæmilegt horf. Boðist hefur verið til að leggja nýjar lagnir í húsið eigendum að kostnaðarlausu gegn því að þeir greiddu efniskostnað og er boðið þegið með þökkum. Þá kom upp tillaga að eigendur kæmu og máluðu og dittuðu að því sem þeir geta s.s. að klára þakskegg og setja klæðningu í loft á anddyri. Því gerir hún að tillögu um að keypt verði lagningarefni og málning sem og að auglýsa eftir húsverði í 20% stöðu. Samþykkt var að kaupa efni svo hægt verði að fara í viðhaldsvinnu hið fyrsta en beðið verði með í bili að ráða húsvörð en aðrir kostir skoðaðir.

2. Erindi frá Kaupþingi um styttri opnunartíma og fækkun starfa á Hólmavík. 
Borist hefur tilkynning frá Kaupþing banka þar sem kynnt er fyrirhuguð breyting á opnunartíma sem verður 12:30 til 16:00 frá og með 8. október. Þá munu rúm tvö stöðugildi leggjast niður við breytinguna. Sveitarstjórn harmar þær uppsagnir sem orðið hafa og lýsir vonbrigðum sínum yfir viljaleysi Kaupþings banka til að leita annarra leiða í samvinnu við sveitarfélagið. 

3. Skerðing á rækjubótum í Húnaflóa fiskveiðiárið 2007-2008. 
Vegna skerðingar á rækjubótum vill sveitarstjórn Strandabyggðar koma á framfæri eftirfarandi bókun:

“Sveitarstjórn Strandabyggðar mótmælir harðlega skerðingu rækjubóta vegna fiskveiðiársins 2007/2008 sem kemur í kjölfar yfir 30% samdráttar á aflaheimildum á þorski fyrir sama fiskveiðiár þrátt fyrir loforð ráðherra um að slíkt verði ekki gert næstu árin. Þessi viðbótarskerðing sem nemur rúmum 55% mun leiða til þess að ekki verður neinn rekstrargrundvöllur fyrir þær útgerðir sem fyrir skerðingunni verða. Fyrir sveitarfélög á Húnaflóasvæðinu er þetta óásættanleg viðbótarskerðing á aflaheimildum sem getur riðið þeim að fullu.”

4. Erindi frá Háafelli um viðræður um hugsanleg kaup á jörðinni Nauteyri. 
Borist hefur erindi dags. 21. september 2007 frá Háafelli þar sem óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um hugsanleg kaup á jörðinni Nauteyri í Strandabyggð. Samþykkt var samhljóða að ganga til viðræðna um hugsanleg kaup.

5. Erindi frá starfsmönnun Grunnskólans um styrk til kaupa á flíspeysum. 
Borist hefur erindi dags. 3. október 2007 frá starfsmönnum Grunnskólans á Hólmavík þar sem sótt er um styrk til kaupa á flíspeysum. Ásta Þórisdóttir og Ingibjörg Emilsdóttir véku af fundi við afgreiðslu málsins.  Samþykkt var með tveimur atkvæðum gegn einu að verða við erindinu með því skilyrði að peysurnar verði merktar Grunnskóla Hólmavíkur. Ásta og Ingibjörg komu aftur á fundinn.

6. Beiðni frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um umboð til að hefja viðræður við lögreglustjóra á Vestfjörðum um skipan samstarfsnefndar milli lögreglunnar og sveitarfélaga á Vestfjörðum.  
Borist hefur erindi þar sem falast er eftir að Fjórðungssamband Vestfirðinga fái umboð sveitarfélagsins til að hefja viðræður við lögreglustjóra á Vestfjörðum um skipan samstarfsnefndar milli lögreglu og sveitarfélaga.  Samþykkt var samhljóða að veita Fjórðungssambandinu umboðið.

7. Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um viðmiðunarreglur um kirkjugarðsstæði. 
Borist hefur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 7. september 2007 þar sem kynntar eru viðmiðunarreglur um kirkjugarðsstæði. Lagt fram til kynningar.

8. Fundargerð Atvinnumálanefndar Strandabyggðar dags. 13.06. 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Atvinnumálanefndar Strandabyggðar frá 13. júní 2007.  Fundargerðin er samþykkt samhljóða.

9. Fundargerð Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefndar Strandabyggðar dags. 19.09. 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefndar Strandabyggðar frá 19. september 2007. Fundargerðin er samþykkt samhljóða.

10. Fundargerð Umhverfisnefndar Strandabyggðar dags. 1.10. 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Umhverfisnefndar Strandabyggðar frá 1. október 2007.  Fundargerðin er samþykkt samhljóða.

11. Fundargerð Leikskólanefndar Strandabyggðar dags. 4.10. 2007. 
Lögð er fram til samþykktar fundargerð Leikskólanefndar Strandabyggðar frá 4. október 2007. Fundargerðin er samþykkt samhljóða.

12. Fundargerð Heilbrigðisnefndar dags. 14. september 2007. 
Borist hefur fundargerð Heilbrigðisnefndar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða frá 14. september 2007.  Lagt fram til kynningar.

Fundargerð lesin upp og hún samþykkt. Fundi slitið kl. 19:00.

 

Advertisement