|
| Strandabyggð | 17/12 2008 | 09:05 | |||
| Sveitarstjórn - 16. des. 2008 |
|
|
|
|
Ár 2008 þriðjudaginn 16. desember var haldinn fundur í sveitarstjórn Strandabyggðar. Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl. 17:00. Rúna Stína Ásgrímsdóttir varaoddviti setti fundinn og stjórnaði honum en auk hennar sátu fundinn, Jón Gísli Jónsson, Már Ólafsson, Jón Stefánsson og Ásta Þórisdóttir varamaður. Einnig sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri sem ritaði fundargerð. Þetta var gert: Varaoddviti kynnti dagskrá fundarins í 9 töluliðum, sem var eftirfarandi:
Þá var gengið til dagskrár. 1. Skýrsla sveitarstjóra. „Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 verði miðað við að ekki verði lögð niður þjónusta eða stofnanir á vegum sveitarfélagsins, þótt leitast verði við að finna leiðir til að hagræða og minnka kostnað. Í vinnslu eru tillögur frá millistjórnendum um hagræðingu og aðhald í rekstri og verður farið yfir þær með það fyrir augum að lækka rekstrarkostnað. Sveitarstjórn samþykkir að leggja sitt af mörkum við að halda uppi atvinnustigi á svæðinu og hafa jákvæð áhrif á mannlíf og byggðaþróun. Við framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins verði horft til þess hvar þörfin er brýnust og leitast við að ráðast í verkefni sem skila sveitarfélaginu ávinningi til langs tíma litið. Sérstaklega verði horft til verkefna sem geta stuðlað að atvinnusköpun í sveitarfélaginu og er þar m.a. horft til samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða. Einnig leitast við að skapa atvinnulífinu aðstæður til að vaxa og dafna. Lögð verði áhersla á umhverfisverkefni á árinu 2009 og framkvæmdum á skólalóð haldið áfram, auk annarra verkefna. Þá samþykkir sveitarstjórn að áfram verði unnið að aðalskipulagi og deiliskipulagi þar sem þörf krefur. Auk þess verði áhersla lögð á undirbúning fyrir unglingalandsmót 2010 og vinnu við fjármögnun þess verkefnis. Undirbúið verði útboð vegna gatnaframkvæmda og unnið að viðhaldi á eigum sveitarfélagsins. Haldið verði áfram framkvæmdum við vatnsveitu.“ Bókunin var borin undir atkvæði og var hún samþykkt með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði á móti. Vildi minnihluti sveitarstjórnar láta bóka eftirfarandi: „Minnihluti sveitarstjórnar telur að bókun meirihlutans sé mjög óábyrg og gefi væntingar umfram getu. Ekki er sýnt fram á raunhæfa fjármögnun fyrir þeim framkvæmdum sem verið er að samþykkja að fara í.“ Þá er greint frá því að Veiðifélag Víðidalsár greiðir eina millj. kr. í arð, en á síðasta ári nam arðgreiðslan 850 þús. kr. sem nýtt var til kaupa á stólum og borðum. Samþykkt var að fresta ráðstöfun fjársins með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði gegn tillögunni. 2. Beiðni um fjárstuðning við Snorraverkefnið sumarið 2009. 3. Beiðni um styrk vegna samstarfsverkefnisins „Bændur græða landið“. 4. Kynning á starfsemi og verkefnum Yrkjusjóðs. 5. Beiðni um fjárstyrk fyrir Stígamót. 6. Erindi frá þingmönnum Norðvesturkjördæmis sem send voru ráðuneytum eftir árlegan haustfund með sveitarstjórnarmönnum á Vestfjörðum. 7. Fundargerð samráðsnefndar á vegum Sambands ísl. sveitarfélaga. 8. Fundargerð stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga ásamt afriti af bréfi til samgönguráðherra vegna framlengingar útboðstíma vegna háhraðanets. 9. Fundargerð Byggingar-, umferðar- og skipulagsnefndar Strandabyggðar dags. 15. desember 2008. Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:30.
|
|







