Advertisement
JJ | 12/06 2009 | 11:28
Búið að opna Steinadals- og Tröllatunguheiði PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Búið er að opna vegina um Tröllatungu- og Steinadalsheiðar samkvæmt vef Vegagerðarinnar og er leiðirnar færar fjórhjóladrifnum bílum á meðan þær eru að þorna. Þar með eru sumarvegirnir á milli Reykhólahrepps og Strandabyggðar allar orðnar færar, en Þorskafjarðarheiði var opnuð seint í maí. Reikna má með að nýr heilsársvegur um Arnkötludal leysi þessa sumarvegi að miklu leyti af hólmi nú í haust, en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður sá vegur opnaður í ágúst.
Advertisement
Advertisement