Advertisement
JJ | 11/03 2010 | 22:19
Strandagangan í Selárdal á laugardag PDF Prenta Tölvupóstur
Image
Laugardaginn 13. mars verður Strandagangan haldin í Selárdal við Steingrímsfjörð. Þetta er 16. árið í röð sem gangan er haldin, en fyrsta Strandagangan var haldin snjóaveturinn 1995. Það er ástæða til að hvetja fólk til að fjölmenna í Selárdal, annaðhvort til að vera með í göngunni eða fylgjast með bestu skíðagöngumönnum landsins sem sumir eru nýkomnir úr Vasagöngunni.  Brautin sést öll frá veginum fram að Geirmundarstöðum og er ágætt fyrir áhorfendur að hafa kíki meðferðis.
 
Skráning fer fram á staðnum milli 11:30 og 12:20 en þá eru yngstu aldursflokkar ræstir af stað.
 
Að göngu lokinni er kaffihlaðborð og verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík. Selt er inn á kaffihlaðborðið fyrir aðra en keppendur og starfsmenn til styrktar starfsemi Skíðafélagsins.

 
Advertisement