|
JJ | 20/06 2010 | 23:40 |
|
Glæsilegt kort af Árneshreppi |
|
|
|
|
Fyrr í mánuðinum var gefið út upplýsingakort um ferðaþjónustu og sögustaði í Árneshreppi og var það kynnt við sumaropnun á Kaffi Norðurfirði. Mæting var mjög góð. Kortið sem er sannkallað listaverk er teiknað af Ómari Smára Kristinssyni og Nínu Ivanovu á Ísafirði. M.a. er hægt að nálgast kortið á Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík og hjá fjölmörgum ferðaþjónum á Ströndum, auk þess sem það liggur frammi á viðkomustöðum í Árneshreppi.


Kort af Árneshreppi |