|
JJ | 22/06 2010 | 23:59 |
|
Hlaupararnir komu allir af fjöllum |
|
|
|
Á laugardaginn síðasta varð fjallvega- og skemmtihlaupið Þrístrendingur að veruleika
og tóku hlauparar víðs vegar af landinu þátt í því. Leiðin lá um þrjár sýslur,
Dalasýslu, Austur-Barðastrandarsýslu og Strandasýslu, þrjá firði, Gilsfjörð,
Kollafjörð og Bitrufjörð, og þrjá fjallvegi, Steinadalsheiði, Bitruháls og
Krossárdal. Þetta er í fyrsta skipti sem þessir heiðarvegir eru hlaupnir allir í
lotu og því um sannkallað frumhlaup að ræða. Voru menn kátir og ánægðir með ferðalagið, þegar hlaupinu var lokið og allir komnir til byggða.
Hlaupið var frá Kleifum í Gilsfirði um Steinadalsheiði norður í
Kollafjörð,
þaðan yfir Bitruháls að Gröf í Bitru og loks um Krossárdal aftur suður
að
Kleifum. Meira var lagt upp úr að halda hópinn og hlaupa sér til
skemmtunar, en
að fara eins hratt og fætur toga. Samtals er vegalengdin á við
maraþonhlaup eða
42,5 km.
|