Laus er staða framkvæmdastjóra við Selasetur Íslands á Hvammstanga. Um er að ræða fullt starf í eitt ár með möguleika á framlengingu. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf í góðu og fjölskylduvænu samfélagi. Umsóknir skal senda á póstfangið . Allar nánari upplýsingar gefur Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir framkvæmdastjóri í síma 451 2345 eða 8985 5233.
Í starfinu felst m.a.:
Umsjón með daglegum rekstri
Fjármögnun og skýrslugerð
Umsjón með sýningum setursins
Umsjón með vefsíðu setursins
Stjórn stærri og smærri samstarfsverkefna t.d. á sviði rannsókna og kynningarmála
Þátttaka í innlendum og erlendum samstarfsverkefnum
Vinna að frekari þróun og nýsköpun í starfsemi setursins
Hæfnis- og menntunarkröfur
Háskólamenntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
Góð tungumálakunnátta. Nauðsynlegt er að geta bæði talað og skrifað góða ensku, þekking í Norðurlandamálum er kostur
Frumkvæði og ábyrgð
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Sjálfstæð vinnubrögð
Reynsla af starfsmannahaldi er kostur en ekki skilyrði
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eða í síðasta lagi 1. september 2010 (allavega að hluta).