Unnið er að skrásetningu hvalakoma í Steingrímsfjörð og reynt að sjá nokkuð nákvæmlega hvar og hvenær árs er helst von til þess að sjá hvali á firðinum. Arnkatla 2008 vill beina því til íbúa og ekki síður til sjómanna við Steingrímsfjörð að láta vita af hvalasýn og tilkynna það á þessari síðu og fylla út þær upplýsingar sem beðið er um.
Tilgangurinn með rannsókninni er að tímasetja hvalakomur á fjörðinn og átta sig á því á hvaða árstíma er best von fyrir ferðamenn að berja þessi risaspendýr augum.
Fylltu út upplýsingar á þessari síðu eins samviskusamlega og þér er unnt og ýttu síðan á hnappinn SENDA UPPLÝSINGAR neðst á síðunni.
Hvaða hvalategund?
Hve marga hvali sástu?
Á hvaða tíma dags?
Viltu koma á framfæri frekari upplýsingum til okkar?
Nafn sendanda: