Jón Jónsson
|
Menntun:MA-próf í þjóðfræði, Háskóla Íslands 2006. BA-próf í þjóðfræði með sagnfræði sem aukagrein, Háskóla Íslands 1995. Stundaði BA-nám við HÍ 1992-1995,
|
Félagsstörf:Frá 2002. Í stjórn Sauðfjárseturs á Ströndum. 2001-2003. Formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða. Frá 2000. Formaður stjórnar Strandagaldurs, sjálfseignarstofnunar á Ströndum 2000-2002. Stjórnarmaður frá 2002. 1998-2000. Formaður Félags þjóðfræðinga á Íslandi. 1998-2000. Fulltrúi Íslands í stjórn BIN-Norden (Barnekulturforskning i Norden). 1993-94. Í fyrstu stjórn Hástoðar, fyrirtækis nemenda við Háskóla Íslands. 1989-91. Formaður Leikfélags Hólmavíkur. Feiknafár af öðrum félagsstörfum. |
Starfsferill frá 1993:Eigandi og framkvæmdastjóri Sögusmiðjunnar frá ársbyrjun 1998, fyrirtækis sem einbeitir sér að miðlun sögu og þjóðfræða og vinnur að menningartengdum verkefnum um land allt. Ritstjóri strandir.is frá 2004. Umsjónarmaður með Upplýsingamiðstöð ferðamála á Hólmavík frá 2003. Forstöðumaður Sauðfjárseturs á Ströndum 2002-2006. Stundakennari í þjóðfræði við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands 1999-2000 og einstaka námskeið fyrr. Starfsmaður verkefnisins Ferðaþjónusta og þjóðmenning 1995-1998. Starfsmaður Reyðarfjarðarhrepps og Hástoðar við undirbúning fyrir stofnun Stríðsárasafns á Reyðarfirði 1993-1994. Margvísleg verkefnavinna og rannsóknir frá 1993 á sviði ferðaþjónustu og sýningahalds, þjóðfræði og sögu, vefvinna, þáttagerð, ritstjórn og söguritun. Ritverk:Að hefna sín dauður, ef það hefst ekki fyrr. Trú á afturgöngur og hefndin í íslenskum draugasögnum. Óprentuð BA-ritgerð í þjóðfræði við Háskóla Íslands 1995. Ástargaldrar - bók um fornan átrúnað og galdur. Útg. Edda, Reykjavík 2005, [meðhöfundur: Rakel Pálsdóttir]. Kom einnig út á ensku undir titlinum Love charms - a book on ancent magic and spells (Edda uk 2005) og dönsku Kærlighedsmagi - en bog om gammel magi og trolddom (Gudrun 2005). „Bíta kvaðst hún börnin og blæða láta í skel. Þjóðtrú, hræðsla og hryllingur.“ Rannsóknir í félagsvísindum III. Erindi flutt á ráðstefnu í október 1999. Reykjavík 2000, s. 409-420. „Det skrækkelige i islandsk folketro: Udvikling og funktion.“ Tidsskrift for Börne- & Ungdomskultur 42. Börn og rædsel. Ritstj. Ulf Palmenfeldt og Torben Kuer Marker, 42. árg. 2000, s. 35-54, [meðhöfundur: Rakel Pálsdóttir þjóðfræðingur]. „Draugur í skjalasafni biskups.“ Sagnir 17. árg. (1996), s. 6-11. „Dúllað og tónað, dansað og leikið. Förumenn og leiklist í lok 19. aldar.“ Lesbók Morgunblaðsins 7. júní 1997, s. 6-7. Ferðaþjónusta & þjóðmenning. Strandasýsla 1996. Útg. Héraðsnefnd Strandasýslu, Hólmavík 1996. Skýrsla - 55 bls. "Fréttir af Ströndum 2001." Strandapósturinn 34. árg. (2001), s. 20-44. Friðaðar kirkjur í Húnavatnsprófastdæmi I (Kirkjur Íslands VII). Útg. Þjóðminjasafn Íslands og fleiri, Reykjavík 2006, [meðhöfundar: Guðmundur L. Hafsteinsson, Þór Magnússon, Þorgeir Jónsson og Gunnar Bollason]. Förumenn í íslenska bændasamfélaginu. Óprentuð MA-ritgerð í þjóðfræði við Háskóla Íslands 2006. „Förumenn og leiklist undir lok 19. aldar.“ Rannsóknir í félagsvísindum II. Erindi flutt á ráðstefnu í febrúar 1997. Reykjavík 1999, s. 301-311. Grettistak. Menningar- og ferðaþjónustuverkefni í Húnaþingi vestra. Útg. Sögusmiðjan og Stýrihópur um Grettistak, Húnaþing vestra 2002. Skýrsla unnin fyrir Stýrihóp um Grettistak - 95 bls, [meðhöfundur: Sigurður Atlason]. „Heim sækir hefnd um síðir. Sekt og réttlæti í sögnum af afturgöngum.“ Slæðingur 1. árg. (1996), s. 35-46. „Heimskuleg spurning fær háðulegt svar. Orð og æði - Minni og merking.“ Íslenska söguþingið 28.-31. maí 1997. Ráðstefnurit II. Reykjavík 1998, s. 47-56, [meðhöf.: Sigurður Gylfi Magnússon]. „„Komdu aftur ef þú villist.“ Gestrisni og förumennska í gamla íslenska sveitasamfélaginu.“ Þjóðlíf og þjóðtrú. Ritgerðir helgaðar Jóni Hnefli Aðalsteinssyni. Reykjavík 1998, s. 177-189. Lagarfljótsormurinn. Hugmyndaskýrsla unnin fyrir Fljótsdalshérað um nýtingu Lagarfljótsormsins við markaðssetningu á svæðinu og þróun ferðaþjónustu og atvinnulífs. Útg. Sögusmiðjan, Reykjavík 2000. Skýrsla unnin fyrir Þróunarstofu Austurlands - 50 bls, [meðhöfundar: Sigurður Atlason og Áki Guðni Karlsson]. "Lestrarfélög fyrir almenning." Alþýðumenning á Íslandi 1830-1930. Ritað mál, menntun og félagshreyfingar. (Sagnfræðirannsóknir 18). Ritstj. Ingi Sigurðsson og Loftur Guttormsson. Reykjavík 2003, s. 171-193. „Menning og saga.“ Ráðunautafundur 2001. Bændahöllinni 6.-9. febrúar. Reykjavík 2001, s. 91-95. Menningarhús í Vestmannaeyjum. Útg. Verkefnisstjórn um byggingu menningarhúss í Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjar 2004. Skýrsla unnin fyrir Verkefnisstjórn um byggingu menningarhúss í Vestmannaeyjum - 52 bls, [meðhöfundur: Arnar S. Jónsson]. „Menningarlandslag og ólíkar fræðigreinar.“ Fjallið 15. árg. (1999), s. 23-24, [meðhöf.: Rakel Pálsdóttir]. Menningarsagan í vestfirsku landslagi. Útg. Sögusmiðjan, Vestfirðir 1999. Skýrsla unnin fyrir Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna - 72 bls, [meðhöfundur: Viggó Ásgeirsson]. Notkun sögu og þjóðmenningar í ferðaþjónustu. Útg. Iðntæknistofnun og Sögusmiðjan, Reykjavík 1998. Kennsluhefti - 56 bls. „Nýsköpun á Ströndum: Ferðaþjónusta og þjóðmenning.“ Sveitarstjórnarmál 2. tbl., 57. árg. (1997), s. 76-82. "Sauðfjársetur á Ströndum." Strandapósturinn 35. árg. (2003), s. 121-129, [meðhöf.: Arnar S. Jónsson]. Söfn og sýningar í Eyjafirði. Uppbygging, rekstur og samvinna. Útg. Sögusmiðjan, Eyjafjörður 2002. Skýrsla unnin fyrir Héraðsnefnd Eyjafjarðar - 93 bls, [meðhöfundur: Arnar S. Jónsson]. „Tvö börn, ber og nakin. Um uppskriftir á dánar- og þrotabúum.“ Slæðingur 2. árg. (1997), s. 45-62. Tækniminjasafn Austurlands. Seyðisfjörður - vagga tækninnar á Íslandi. Útg. Sögusmiðjan, Seyðisfjörður 2002. Skýrsla - 56 bls, [meðhöfundur: Kristinn Schram þjóðfræðingur]. Óbirtir fyrirlestrar "Á mörkum mennskunnar. Sögur af flökkurum." Fyrirlestur fluttur á málþinginu Þjóðfræði og þakkarskuld í Þjóðminjasafninu til heiðurs Jóni Hnefli Aðalsteinssyni prófessor í þjóðfræði áttræðum. Fyrirlesturinn var tekinn upp og honum útvarpað á Rás 1. "Draugar og tröll og ósköpin öll." Fyrirlestur um þjóðtrú og þjóðsögur, Strandagaldur og fyrirhugaða Þjóðtrúarstofu, fluttur tvisvar sinnum í Þjóðminjasafni Íslands á Menningarnótt í Reykjavík 2005 og einnig á hátíðinni Perlan Vestfirðir í maí 2006. Síbreytilegur fyrirlestur fyrir börn með sama nafni hefur verið fluttur við allmörg tækifæri á Ströndum 2006 og 2007, m.a. á Hamingjudögum á Hólmavík 2007. "Hrútaþukl og furðuleikar. Sauðfjársetur á Ströndum" Fyrirlestur um sögusýningu Sauðfjárseturs á Ströndum fluttur í Perlunni Vestfirðir maí 2006. ""Brytjar hún börn í pottinn sinn ..." Þjóðlegur jólahrylllingur af bestu gerð." Jólahugvekja bönnuð börnum haldin á kvöldvöku Strandagaldurs á Hólmavík 20. des. 2001. „Strandagaldur. Dæmi um menningarverkefni.“ Fyrirlestur á ráðstefnunni Að láta steinana tala. Ráðstefna um menningarferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, sem haldin var á Reykjum í Hrútafirði 10. mars 2001. Fluttur aftur í breyttri mynd á málþingi í Borgarnesi sama ár. „Þjóðtrú barna í Reykjavík.“ Fyrirlestur á ráðstefnunni Líf í borg, sem haldin var í samvinnu Reykjavíkur – Menningarborgar Evrópu árið 2000 og Háskóla Íslands þann 28. maí 2000. „Galdrar á Vestfjörðum.“ Fyrirlestur á Málþingi um sérkenni Vestfirðinga í Bolungarvík 27. maí 2000. Meðhöfundur: Sigurður Atlason. „„Skáld geta víst skapað úr engu.“ Viðhorf til förumanna.“ Fyrirlestur á ráðstefnunni Íslendingar á faraldsfæti, sem haldin var á Sauðárkróki 14.-16. apríl 2000 á vegum Sagnfræðingafélags Íslands, Félags þjóðfræðinga, nemendafélaganna í þessum greinum og heimamanna. „Menningararfurinn sem atvinnutækifæri.“ Fyrirlestur á málþinginu Menning sem atvinnugrein, sem haldið var á Reyðarfirði á vegum Þróunarstofu Austurlands og Markaðsstofu Austurlands 24. feb. 2000. „Förumenn.“ Skemmtilestur haldinn með Rósu Þorsteinsdóttur á opnun sýningar á verkum Birgis Andréssonar í ReykjavíkurAkademíunni undir heitinu Annars vegar fólk, 21. jan. 2000. „Ferðaþjónusta, menning og atvinnulíf.“ Fyrirlestur á málþinginu Spástefna um atvinnu og búsetu í dreifbýli Austur-Skaftafellssýslu, á Hrolllaugsstöðum í Suðursveit 13. nóv. 1999. „Aðferðir og sjónarhorn þjóðfræðinnar.“ Fyrirlestur á ráðstefnunni Menningarsaga á Íslandi. Vestfirðir í brennidepli, sem haldin var á Ísafirði 1.-2. maí 1999 á vegum Sagnfræðingafélags Íslands, Félags þjóðfræðinga, ReykjavíkurAkademíunnar og heimamanna. „Gæðaþróun og samvinna; lykilhugtök nýrrar aldar.“ Fyrirlestur á málþinginu Íslenskur menningararfur – auðlind í ferðaþjónustu, sem haldið var í Hafnarfirði 12. febrúar 1999 á vegum ReykjavíkurAkademíunnar og Félags háskólamenntaðra ferðamálafræðinga. „Ferðaþjónusta og þjóðmenning – hugmyndafræði og útfærsla.“ Framsaga á Opnum fundi Ferðamálabrautar Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal, á Hólum 7. febrúar 1998. „Ferðaþjónusta og þjóðmenning á Ströndum.“ Erindi flutt á Aðalfundi Ferðamálasamtaka Vestfjarða, á Hólmavík 9. nóvember 1996. Ritstjórn:Fréttavefurinn strandir.is - ritstjóri frá 2004. Vestfjarðavefurinn - ritstjóri frá opnun vefjarins árið 2000. Þjóðlíf og þjóðtrú. Ritgerðir helgaðar Jóni Hnefli Aðalsteinssyni. Reykjavík 1998. Strandapósturinn. Ritstjóri 31.-34. árgang, 1997-2000. Sagnir. Tímarit um söguleg efni, 18. árg. (1997). Í ritstjórn. Dagskrárgerð:Kynjakarlar og skringiskrúfur. Sex útvarpsþættir (40 mín.) um förumenn í íslenska sveitasamfélaginu, frumfluttir í Ríkisútvarpinu (Rás 1) í mars og apríl 2000. Endurfluttir sumarið 2003. Meðhöfundur: Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur á Stofnun Árna Magnússonar. Vefsmíði og ritstörf fyrir vefinn:Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna – Vefur um Byggðasafnið á Reykjum, starfsemi þess, gripi og verkefni. Unninn í samvinnu við Pétur Jónsson safnvörð á Reykjum. Opnaður 19. mars 2001, liggur nú niðri – www.simnet.is/ofeigur. Eyjasigling.is - Vefur um siglingar á Breiðafirði, í Skáleyjar, Hvallátur og Flatey frá Stað á Reykjanesi, opnaður í júníbyrjun 2007 - www.eyjasigling.is. Félag þjóðfræðinga á Íslandi – Vefur félagsins, upplýsingar um starfsemi þess, félagatal, upplýsingar um lokaverkefni þjóðfræðinema og fleira, opnaður árið 2000. Hönnun, skrif og uppsetning. Þjóðfræðingafélagið hefur tekið við umsjón með vefnum, uppfærslum og viðbótum – www.akademia.is/thjodfraedingar. Galdrasýning á Ströndum – höfundur texta á Viskubrunni Galdrasýningarinnar, ásamt Magnúsi Rafnssyni og Rakel Pálsdóttur. Uppsetning á Viskubrunninum og vinna við vefinn. Sigurður Atlason hannaði útlit vefjarins. Vefur Galdrasýningarinnar var opnaður snemma árs 2000 og Viskubrunninum var bætt við og opnaður formlega 25. nóvember 2000, hefur verið aukinn og endurbættur síðan – www.galdrasyning.is. Héraðsbókasafn Strandamanna – vefur um starfsemi bókasafnsins. Opnaður í október 2003 – www.holmavik.is/bokasafn. Íslendingasögurnar á ensku – kynning á útgáfu Bókaútgáfunnar Leifs Eiríkssonar á Íslendingasögunum á ensku í fimm bindum, í ritstjórn Viðars Hreinssonar. Hönnun og uppsetning, ásamt Áka Guðna Karlssyni. Vefurinn var opnaður árið 2000. Áki Guðni hefur tekið við umsjón vefjarins – www.sagas.is. Kirkjuból við Steingrímsfjörð – fjölskylduvæn ferðaþjónusta og gistihús á Ströndum. Hönnun, uppsetning og höfundur texta. Vefurinn opnaður snemma árs 2001, Sögusmiðjan hefur umsjón með vefnum – www.strandir.is/kirkjubol. Kirkjubær á Stöðvarfirði – kynning á einstökum gististað, í gamalli kirkju á Stöðvarfirði. Hönnun og uppsetning, vefsíðan var upphaflega opnaður 1999. – www.simnet.is/birgiral. Leikfélag Hólmavíkur – vefur um félagið og starf þess, opnaður formlega 15. janúar 2003. – www.holmavik.is/leikfelag. ReykjavíkurAkademían – kynning á ReykjavíkurAkademíunni, félögum og ýmislegt fleira skemmtilegt. Var opnaður formlega 29. okt. 1999. Skrif, hönnun og uppsetning ásamt Áka Guðna Karlssyni. Ný uppsetning leysti vefinn af hólmi haustið 2002 – www.akademia.is. Sauðfjársetur á Ströndum – vefur Sauðfjársetursins sem er allt í senn safn, menningarstofnun og ferðaþjónustuaðili. Opnaður 2002 – www.strandir.is/saudfjarsetur. Strandabyggð – vefur um sveitarfélagið (og áður um Hólmavíkurhrepp), þjónustu, sögu og mannlíf. Opnaður um áramótin 2000-2001 og endurhannaður og breytt í tengibretti 2007. Hönnun uppsetning, höfundur texta, umsjón með viðhaldi vefjarins – www.holmavik.is og www.strandabyggd.is. strandir.is – fréttavefur um Strandasýslu, tengibretti og ýmis fróðleikur. Fyrst opnaður 2002, en fréttavefurinn sjálfur fór í loftið 20. desember 2004 og var kynntur sem jólagjöf Sögusmiðjunnar til Strandamanna nær og fjær – www.strandir.is. Sögusmiðjan – kynning á fyrirtækinu og verkefnum þess. Upphaflega gefinn út 1998, en endurnýjaður og einfaldaður 2004 – www.strandir.is/sogusmidjan. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur – söguskoðun, frásagnir, útgáfa, skoðanir. Hönnun og uppsetning. Gefinn út árið 1999, hefur nú verið endurnýjaður og Áki Guðni Karlsson tekið við umsjón – www.akademia.is/sigm. Upplýsingamiðstöðin á Hólmavík – vefur fyrir Upplýsingamiðstöð ferðamála á Hólmavík, opnaður í maí 2003, umsjón með rekstri og uppfærslu vefjarins – www.holmavik.is/info. Vestfjarðavefurinn – risavaxinn upplýsingavefur um Vestfirði, upphaflega hugsaður fyrir ferðamenn og áhersla lögð á upplýsingar um ferðafyrirtæki, útivist, þjóðmenningu, sagnir og sögu. Saminn og settur upp í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða – opnaður 27. maí 2000. Umsjón með verkefninu, sá um uppsetningu og er höfundur texta ásamt fleirum. Ritstjóri vefjarins frá ársbyrjun 2000. Í ársbyrjun 2007 tók vefurinn www.westfjords.is í umsjón Markaðsstofu Vestfjarða við hlutverki leiðandi vefjar um ferðaþjónustu á Vestfjörðum og þar með er ætlunin að breyta Vestfjarðavefnum hægt og sígandi í myndskreytt alfræðirit um náttúruperlur og sögustaði á Vestfjörðum – www.vestfirdir.is. Æðarkolluverkefnið á Kirkjubóli – lítill vefur um skemmtilegt ferðaþjónustuverkefni sem snýst um að gera æðarvarp aðgengilegt fyrir ferðafólk. Opnaður í júní 2007 – www.strandir.is/kollan. Ferðaþjónustu- og menningarverkefni:Þjóðtrúarstofa – undirbúningsvinna fyrir vinnustað, fræðasetur og rannsóknarstofnun í tengslum við starfsemi Strandagaldurs, frá ársbyrjun 2006. Menningarhús í Vestmannaeyjum – hugmyndaskýrsla unnin árið 2004 fyrir Verkefnisstjórn um byggingu menningarhúss í Vestmannaeyjum. Meðhöfundur: Arnar S. Jónsson. Upplýsingamiðstöðin á Hólmavík – yfirumsjón með rekstri og gæðaþróun Upplýsingamiðstöðvar ferðamála á Hólmavík frá vorinu 2003. Grettistak í Húnaþingi vestra – hugmyndaskýrsla unnin fyrir stýrihóp um Grettisverkefni. Fjallað um möguleika viðamikils menningar- og ferðaþjónustuverkefnis í tengslum við Gretti sterka Ásmundarson og Grettis sögu. Meðhöfundur: Sigurður Atlason. Skilað í janúar 2002. Lagarfljótsormurinn – hugmyndaskýrsla unnin fyrir Fljótsdalshérað um nýtingu Lagarfljótsormsins við markaðssetningu á svæðinu og þróun ferðaþjónustu og atvinnulífs. Meðhöfundar: Sigurður Atlason og Áki Guðni Karlsson. Unnið á árinu 2000, skýrsla gefin út í desember. Menningarsagan í vestfirsku landslagi – nýsköpunar- og rannsóknarverkefni þar sem fjallað var um vestfirskt menningarlandslag og möguleika á rannsóknarverkefni á því sviði. Unnið með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna fyrir Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, ásamt Viggó Ásgeirssyni. Skýrslu skilað mars 1999. Ferðaþjónusta til framtíðar – ritun á kennsluhefti og kennsla í verkefni á vegum Iðntæknistofnunar 1998-1999. Sagnareki á Ströndum – merkingar á sögustöðum og þjóðsagnaslóðum o.fl. merkilegum stöðum á Ströndum frá 1997-1998. Ferðaþjónusta og þjóðmenning – fjögurra ára átaksverkefni við uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu og menningarstarfs í Strandasýslu 1995-1998. Sýningar og söfn:Þverárvirkjun 50 ára - lítil sögusýning í Þverárvirkjun við Hólmavík á Ströndum, opnuð á 50 ára afmælishátíð virkjunarinnar 25. sept. 2004. Djúpavíkurævintýrið – sögusýning í verksmiðjunni í Djúpavík, opnuð 2004. Söfn og sýningar í Eyjafirði – úttekt og hugmyndavinna á árinu 2002. Meðhöfundur skýrslu sem skilað var í des. 2002 er Arnar Snæberg Jónsson. Tækniminjasafnið á Seyðisfirði – úttekt og hugmyndavinna á árinu 2002. Meðhöfundur skýrslu sem skilað var í nóv. 2002 er Kristinn Schram þjóðfræðingur. Sauðfjársetur á Ströndum – sýning um sauðfjárbúskap fyrr og nú. Undirbúningur, hönnun, textagerð og uppsetning sýningarinnar sem er í félagsheimilinu Sævangi á Ströndum, opnuð formlega 23. júní 2002. Milli fjalls og fjöru – sérsýning um skógarmenningu og skógarnytjar í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Sýningin var opnuð formlega 15. júní 2002 og byggða- og náttúrugripasafn um leið sett upp til bráðabirgða í nýjum sal. Unnið með Kristni Schram þjóðfræðingi. Hákarlaveiðar við Húnaflóa – sérsýning Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna í Ófeigsskálanum á Reykjum í Hrútafirði. Alhliða undirbúningur, hugmynda-, hönnunar- og uppsetningarvinna. Sýningin var opnuð formlega 8. júlí 2001. Galdrasýning á Ströndum – alhliða undirbúnings- og hugmyndavinna, allt frá árinu 1997. Galdrasafnið á Hólmavík var opnað þann 23. júní 2000. Annar hluti sýningarinnar, Kotbýli kuklarans á Klúku í Bjarnarfirði, var opnaður 23. júlí 2005. Þorskastríðin og saga varðskipsins Þórs – sögusýning um borð í varðskipinu Þór sem um tíma var rekinn sem veitingastaður í Hafnarfjarðarhöfn sem lá síðar um tíma í Reykjavíkurhöfn. Opnuð 1999 og var uppi til 2002 þegar skipið var selt. Unnið með Sigurði Atlasyni, Rakel Pálsdóttur þjóðfræðingi, Björk Bjarnadóttir þjóðfræðingi. Íslenska stríðsárasafnið á
Reyðarfirði Sjávarskrímsli úr Suðurhöfum – smásýning um skaldbökuævintýrið á Hólmavík 1963. Var uppi í Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík sumarið 1998. Uppsetning, skrif og hugmyndavinna. Ásamt Sigurði Atlasyni og Fanneyju Gunnarsdóttur. Litla ljósmyndasýningin – Sumar á Ströndum. Myndasýning í Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík, var uppi sumarið 1998. Textagerð, hönnun og uppsetning. Mannlíf á Hólmavík – Ljósmyndasýning á veitingastaðnum Café Riis á Hólmavík, sett upp 1996 og hefur verið uppi öðru hverju yfir sumartímann síðan. Textagerð, hönnun og uppsetning, ásamt Rakel Pálsdóttur þjóðfræðingi. Ráðstefnustjórn:Íslendingar á faraldsfæti. Þriggja daga ráðstefna á Sauðárkróki, 14.-16. apríl 2000, haldin í samvinnu Félags þjóðfræðinga, Sagnfræðingafélagsins og heimamanna. Skipulagning, undirbúningur og ráðstefnustjórn með fleirum. Íslensk menningarsaga – Vestfirðir í brennidepli. Tveggja daga ráðstefna á Ísafirði, 1.-2. maí 1999, haldin í samvinnu Félags þjóðfræðinga, Sagnfræðingafélagsins, Reykjavíkur-Akademíunnar og heimamanna. Skipulagning, undirbúningur og ráðstefnustjórn með fleirum. Íslenskur menningararfur – auðlind í ferðaþjónustu. Eins dags ráðstefna, haldin í Hafnarfirði 12. febrúar 1999, í samvinnu ReykjavíkurAkademíunnar og Félags háskólamenntaðra ferðamálafræðinga. Skipulagning, undirbúningur og ráðstefnustjórn. Helstu viðurkenningar:Ferðafrömuður ársins 2003. Útnefndur af útgáfufyrirtækinu Heimi. Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 1996. Önnur verðlaun fyrir verkefnið Ferðaþjónusta og þjóðmenning. |