|
|
Fjaran fyrir utan Kirkjuból er skemmtileg og vel fallin til útivistar, sérstaklega fyrir barnafólk. Hún er í senn fjölbreytt og hættulítil og þar eru allir velkomnir í fjöruferð. Göngustígur liggur frá gistihúsinu að fjörunni.
Í Kirkjubólsfjöru er nokkur reki, skeljar og allmikið fuglalíf. Teistuvarp er í Langatanga og á haustin liggja selir gjarnan á flúrum út af töngunum. Á nesinu innan við Brimvík og Hvalvík er klettóttur Stekkjarhöfðinn. Þar er hálfhruninn grjótveggur umhverfis nátthaga og rústir af stekk og beitarhúsum sem gleðja augað. Rekadrumbanir setja líka svip á Strandir.
Sumarið 2001 voru örnefni í fjörunni utan við Kirkjuból merkt með litlum rekaviðarskiltum. Jafnframt hefur Vegagerðin gert þar áningarstað og Ferðaþjónustan á Kirkjuból lét gera borð og bekki. Þar geta menn gætt sér á nesti við áningarstaðinn og einnig í skjóli undir Stekkjarhöfðanum. Svæðið er því sannkölluð útivistarfjara yfir sumartímann. Fólk getur andað að sér sjávarloftinu á rölti eftir gamla veginum um Langatanga, Stekkjarkrókinn, Brimvík og Hvalvík sem skilur að lönd Kirkjubóls og Heydalsár. Umhverfissjóður Ferðamálastofu, Pokasjóður og Bændasamtök Íslands hafa gegnum árin styrkt vinnu við að gera Kirkjubólsfjöru að útivistarsvæði og Vegagerð ríkisins lagði sitt af mörkum með áningarstaðnum. Þessir aðilar eiga allir þakkir skyldar fyrir framtakið.
|
Strandir á vefnum: Skemmtilegar sögusýningar:
Hólmavík |
|
Ferðaþjónustan Kirkjuból © Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð nóv. 2009. |