Ferðaþjónustan

Kirkjuból
510 Hólmavík

- fjölskylduvæn
ferðaþjónusta

 
Aðalsíða

Gistihúsið

Þjónusta

Verð

Pantanir

Kirkjuból

Útivist

Í fjörunni

Fuglarnir

Myndir

Tenglar

Umhverfisstefna

 


Gistingin á Kirkjubóli  

Bæði íbúðarhúsin á Kirkjubóli eru nýtt undir gistinguna. Húsið lengst til vinstri á myndinni var í notkun sem íbúðarhús allt þar til framkvæmdir vegna breytinga fyrir gistihúsreksturinn hófust í nóvember 2000. Þar var síðan opnað gistihús með 5 herbergjum vorið 2001 og er í rekstri allt árið. Sumarið 2008 var síðan bætt við 3 herbergjum á neðri hæðinni á stóra íbúðarhúsinu. Alls eru því í boði 8 herbergi fyrir allt að 15 fullorðna.

Gistihúsið var byggt árið 1962. Það er innréttað þannig að þar eru 5 misjafnlega stór herbergi með samtals 10 gistirúmum fyrir fullorðna. Tvö herbergjanna eru stærri, eitt þeirra er fjölskylduherbergi með koju til viðbótar við hjónarúm og annað er hægt að bæta við aukarúmi eða barnarúmi. Í eldra húsinu sem var reist 1947 eru 3 herbergi á neðri hæðinni, eitt eins manns og tvö tveggja manna. 

Auk herbergjanna er í báðum húsunum setustofa með sjónvarpi, sameiginleg baðherbergi með sturtum og eldunaraðstaða fyrir gesti.

 

  

Kirkjuból á Facebook

Strandir á vefnum:

strandir.is

vestfirdir.is

Skemmtilegar sögusýningar:

Galdrasýning á Ströndum

 Sauðfjársetur
á Ströndum

Hólmavík
12 km

 

Opið allt árið:
vetur
sumar
vor
haust

 Ferðaþjónustan Kirkjuból 
Sími: 451-3474 – Netfang: kirkjubol@strandir.is 

© Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð júlí 2011