|
Opið
allt árið: vetur |
Kirkjuból er skemmtilegur áningarstaður miðsvæðis á Ströndum. Staðurinn er kjörinn fyrir fjölskyldufólk og alla aðra sem vilja njóta þess besta sem Strandasýsla og nærsveitir hafa upp á að bjóða. Kirkjuból stendur við veginn norður Strandir (nr. 68) og er 12 km sunnan við þorpið Hólmavík. - Hvernig kemst ég að Kirkjubóli - sjá hér - Strandir eru vinsæll áfangastaður á sumrin og kjörinn fyrir náttúru- og fuglaskoðun, gönguferðir og útivist. Það er líka gaman að heimsækja Strandir yfir vetrartímann og um vor og haust. Þá er kjörið fyrir fjölskylduna, vinahópa eða saumaklúbba, að bregða sér í helgarferð á Strandir og lenda í ýmiskonar ævintýrum. Það er jafnan mikið um að vera í menningar- og mannlífi á Ströndum og heimamenn eru bæði virkir í félagsstarfi og jákvæðir í garð þeirra sem sækja þá heim. |
Strandir á vefnum: Skemmtilegar sögusýningar:
Hólmavík |
|
Ferðaþjónustan
Kirkjuból © Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð júlí 2011 |