Ferðaþjónustan

Kirkjuból
510 Hólmavík

- fjölskylduvæn
ferðaþjónusta

  
Aðalsíða

Gistihúsið

Þjónusta

Verð

Pantanir

Kirkjuból

Útivist

Í fjörunni

Fuglarnir

Myndir

Tenglar

Umhverfisstefna



Kirkjuból við Steingrímsfjörð

Kirkjuból stendur við veg nr. 68 norður Strandir, 99 km norðan við vegamótin við hringveginn hjá Staðarskála í Hrútafirði og 12 km sunnan við Hólmavík (vegur 61 og svo 68 frá Hólmavík). Bærinn er miðsvæðis á Ströndum og ákjósanlegur gististaður, bæði fyrir þá sem vilja staldra við á leiðinni vestur á firði og hina sem hyggjast ferðast um Strandir og nærsveitir.

Þeir sem koma frá Reykjavík eða Suðurlandi beygja til vinstri af hringvegi nr. 1 í Norðurárdal inn á Vestfjarðaveg nr. 60. Norðan við Króksfjarðarnes beygja þeir síðan til hægri inn á Djúpveg nr. 61 yfir Arnkötludal og síðan aftur til hægri eftir veg 68 mitt á milli Hólmavíkur og Kirkjubóls. 

Þeir sem koma af Norðurlandi beygja við Staðarskála í Hrútafirði til hægri inn á veg 68.

Það liggur beint við að dvelja á Kirkjubóli nokkra daga og fara í ferðir norður í Árneshrepp til að skoða undur Trékyllisvíkur, skreppa yfir Steingrímsfjarðarheiði og kanna dásemdir Djúpsins, þvælast út fyrir Kaldalón eða renna yfir heiðarvegi í dagsferðir um Dali og Reykhólahrepp. 


 
Stórbýli fyrr og nú

Kirkjuból er sögufræg jörð, kirkjustaður og þingstaður fyrr á öldum og stórbýli fyrr og síðar. Þar var kirkja a.m.k. fram yfir 1600 og dregur jörðin nafn af henni. Kirkjuból er ekki landmikil jörð, en þar eru afbragðs góð tún og hlunnindi eru af trjáreka og lítils háttar æðarvarpi sem er einkum í Orrustutanga og er aðgengilegt ferðafólki.

Fyrr á öldinni var róið frá Kirkjubóli eins og fleiri bæjum í Kirkjubólshreppi. Margir höfðu þar uppsátur á vorin, enda voru afar góð hrognkelsamið fram af bænum. Róið var frá Orrustutanga og þar stóð einnig fjallskilarétt Tungusveitunga, hlaðin úr grjóti. Kirkjubólsrétt stendur nú í grennd við bæinn, byggð úr timbri 1971.

Unnið er að samantekt um örnefni í Kirkjubólslandi.


 

Gestgjafarnir á Kirkjubóli

Siglfirðingurinn Ester Sigfúsdóttir og Strandamaðurinn og þjóðfræðingurinn Jón Jónsson festu kaup á Kirkjubóli og fluttu þangað haustið 2000 með börnin sín fjögur, Dagrúnu Ósk (f. 1993), Arnór (f. 1995), Sigfús Snævar (f. 1998) og Jón Val (f. 2000). Áður hafði sama ættin búið á jörðinni í 157 ár samfleytt.

Í flutningunum úr höfuðborginni norður á Strandir fylgdi hugmynd Esterar um fjölskylduvænt ferðaþjónustufyrirtæki og þjóðfræðifyrirtækið Sögusmiðjan sem Jón á og rekur. 

 

  

Kirkjuból á Facebook

Strandir á vefnum:

strandir.is

vestfirdir.is

Skemmtilegar sögusýningar:

Galdrasýning á Ströndum

 Sauðfjársetur
á Ströndum

Hólmavík
12 km

Opið allt árið:
vetur
sumar
vor
haust

 Ferðaþjónustan Kirkjuból 
Sími: 451-3474 – Netfang: kirkjubol@strandir.is 

© Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð nóv. 2009