Ferðaþjónustan

Kirkjuból
510 Hólmavík

- fjölskylduvæn
ferðaþjónusta

 
Aðalsíða

Gistihúsið

Þjónusta

Verð

Pantanir

Kirkjuból

Útivist

Í fjörunni

Fuglarnir

Myndir

Tenglar

Umhverfisstefna

 
Sumarið á Ströndum

... er upplifun og ævintýri fyrir unga sem aldna, hvort sem ætlunin er að sjá náttúruperlur og markverða staði eða taka lífinu með ró. Þar hefur fólk nægt rými til að vera eitt með sjálfu sér á kvöldgöngu, hvort sem um er að ræða þaulvana fjallagarpa sem stefna á toppinn eða þá sem vilja heldur rölta í rólegheitum eftir fjörunni.

Fjölskyldufólk ...

... hefur fjölmargt við að vera og margvísleg tækifæri gefast til að kynna börnunum náið sambýli manns og náttúru, minjar frá liðinni tíð og sögu genginna kynslóða. Auðvelt er að heillast af stórbrotinni náttúrunni þar sem hvert undrið tekur við af öðru, rekaviður liggur í hrúgum í fjörunni og fjallasýnin er fögur. 


 

Ef sól skín í heiði ...

... er sjálfsagt að taka lífinu með ró. Í góðu veðri á maður að njóta veðurblíðunnar. Þegar sólin skín er betri hugmynd vandfundin en að skella lambakjöti af Ströndum í ofninn eða á grillið. Bragðlaukarnir verða ekki sviknir af slíku ljúfmeti. 


 

Líf og fjör ...

... einkennir Strandir yfir sumartímann. Margvíslegir atburðir og uppákomur standa ferðalöngum og heimamönnum til boða. Á Drangsnesi er t.d. Bryggjuhátíð á hverju sumri og á Hólmavík eru Hamingjudagar. Miðsvæðis á Ströndum er meðal annars hægt að skella sér í sund á Hólmavík, skoða Galdrasýninguna á Hólmavík og Sauðfjársetrið í Sævangi, kíkja í golf eða fara fínt út að borða á Café Riis

 

  

Kirkjuból á Facebook

Strandir á vefnum:

strandir.is

vestfirdir.is

Skemmtilegar sögusýningar:

Galdrasýning á Ströndum

 Sauðfjársetur
á Ströndum

Hólmavík
12 km

 

Opið allt árið:
vetur
sumar
vor
haust

 Ferðaþjónustan Kirkjuból 
Sími: 451-3474 – Netfang: kirkjubol@strandir.is 

© Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð nóv. 2009