|
|
Gistihúsin
Morgunverður Ferðaþjónustan Kirkjuból býður upp á vandaðan morgunverð ef þess er óskað, en annars geta gestir líka borðað sitt eigið nesti ef þeir vilja heldur. Ekki er boðið upp á aðrar máltíðir yfir sumarið, en eldunaraðstaða er í húsinu og öll nauðsynlegustu hjálpartæki – svo sem kaffikanna, brauðrist og örbylgjuofn. Eldunaraðstöðuna er gestum að sjálfsögðu heimilt að nota að vild. Barnahús og leiksvæði Lítill leikvöllur er á Kirkjubóli, rólur og sandkassi. Jafnframt hefur einu útihúsinu verið breytt í afdrep og samastað fyrir börnin – hús þar sem yngri kynslóðin ræður ríkjum. Sauðfjársetur á Ströndum Félagsheimilið Sævangur er í göngufæri frá gistihúsinu á Kirkjubóli. Yfir sumartímann er þar opin kaffistofa, handverksbúð og sögusýning um sauðfjárbúskap á Ströndum fyrr og nú.
Sauðfjársetur á Ströndum: Í Félagsheimilinu Sævangi sem er í göngufæri frá Kirkjubóli er yfir sumartímann bráðskemmtileg sögusýning sem er helguð íslensku sauðkindinni og ber nafnið Sauðfé í sögu þjóðar. Þar er einnig Kaffi kind, listasýningar og handverksbúð. Opnunartíminn er 10:00-18:00 alla daga frá 1. júní til 31. ágúst. Vefur Sauðfjárseturs á Ströndum er undir þessum tengli. Galdrasýning á Ströndum: Á Hólmavík er afar athyglisverð sögusýning þar sem fjallað er um galdramál 17. aldar, þjóðtrú, drauga og galdra. Galdrasýning á Ströndum er undir þessum tengli. Sýningin er opin 10:00-18:00 frá 1. júní til 15. september. Á Galdrasafninu á Hólmavík er kaffihús sem heitir Kaffi Galdur. Veitingastaðurinn Café Riis: Á Hólmavík er stórmerkilegur og afbragðsgóður veitingarstaður í elsta húsi þorpsins, einungis opinn yfir sumartímann og öðru hverju yfir veturinn. Þar er lifandi tónlist af og til um helgar. Smellið hér til að fara á vef Café Riis. Upplýsingamiðstöð: Á Hólmavík (12 km) er starfrækt upplýsingamiðstöð yfir sumartímann í anddyri Félagsheimilisins. Þar er einnig handverkssala Strandakúnstar sem er félagsskapur hagleiksmanna í héraðinu. Hér er vefur Upplýsingamiðstöðvarinnar. Sundlaug: Næsta sundlaug við Kirkjuból er á Hólmavík (12 km), glæsileg 25 metra útisundlaug og heitir pottar, gufubað og líkamsræktarsalur. Sundlaugin var opnuð ný sumarið 2004. Hestaferðir: Á Hólmavík er boðið upp á hestaferðir lengri og styttri. Það eru Strandahestar sem bjóða upp á þessa þjónustu. Golfvöllur: Áhugamenn um golf geta skellt sér á Skeljavíkurvöll sem stendur rétt utan við Hólmavík, skemmtilegan 9 holu völl. Selt er á völlinn í Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík. Siglingar og sjóstangaveiði: Á Drangsnesi eru höfuðstöðvar bátsins Sundhana sem býður hópum upp á siglingar og sjóstangaveiði. Meðal annars er boðið upp á skipulagðar ferðir í Grímsey yfir sumarið. Silungsveiði: Silungur gengur yfirleitt seint í árnar á Ströndum, seinnipart júlímánaðar eða í ágúst. Bjarnarfjarðará er ágæt veiðiá og einnig má kaupa veiðileyfi í Fellsá í Kollafirði. Við Hólmavík er laxveiðiá sem heitir Víðidalsá og hægt að kaupa leyfi hjá Orkubúi Vestfjarða á Hólmavík og einnig er veiði í Selá og Staðará, en þá þarf að semja við landeigendur. Miðdalsá er rétt við Kirkjuból og þar er einnig silungsveiði í ágúst og september. Einnig eru nokkur veiðivötn á heiðum uppi og rétt við Hólmavík er Þiðriksvallavatn þar sem er silungur.
|
Strandir á vefnum: Skemmtilegar sögusýningar:
Hólmavík |
|
Ferðaþjónustan Kirkjuból © Vefsíðugerð: Sögusmiðjan - síðast uppfærð nóv. 2009 |