Ferðaþjónustan
Kirkjuból leitast við að kynna umhverfi, náttúru og dýralíf, sögu og menningu á staðnum og
í nágrenni gistihússins fyrir gestum:
Bæklingur
um sögu, umhverfi og nágrenni Kirkjubóls er aðgengilegur á 3 tungumálum í
gistihúsinu.
Saga
og umhverfi er kynnt á vefsíðu á 3 tungumálum.
Æðarvarp
í Orrustutanga og teistuvarp á Langatanga er aðgengilegt gestum á
Kirkjubóli og
gefnar leiðbeiningar um umgengni við það.
Sögu- og upplýsingaskilti, örnefnaskilti, borð og bekkir, merkt gönguleið
o.fl. gera umhverfið aðgengilegra.
Skotveiði
er með öllu bönnuð í fjörunni á Kirkjubóli og í landhelgi
jarðarinnar á sjó og óheimilt að skjóta að sel og fuglum. Rjúpa er
einnig alfarið friðuð í landi Kirkjubóls. Myndatökur eru hins vegar
leyfðar.
Ferðaþjónustan
Kirkjuból stendur fyrir sérstöku
átaksverkefni til að kynna náttúru Stranda, Náttúrubörn á
Ströndum, í samvinnu við Sauðfjársetur
á Ströndum. Í því felst margvísleg miðlun á fróðleik um umhverfi
og náttúru, einnig viðburðir tengdir náttúruskoðun og útivist, og umhverfisbætur á jörðinni Kirkjubóli.
Stuðlað
er eftir megni að verndun náttúru og menningarminja á Kirkjubóli og á
Ströndum og Vestfjörðum öllum.
Ferðaþjónustan
Kirkjuból styður dýra- og náttúruvernd á Vestfjörðum og landsvísu,
friðlýsingu náttúruvætta og sögustaða, stofnun
verndarsvæða, friðlanda og þjóðgarða.
Ferðaþjónustan
Kirkjuból styður markvissa þátttöku sveitarfélagsins Strandabyggðar
og annarra vestfirskra sveitarfélaga í Staðardagskrá 21 - sjá Staðardagskrá
fyrir Strandabyggð. Stutt er við allar fyrirætlanir Sorpsamlags
Strandasýslu um flokkun sorps og fagleg vinnubrögð.
Ferðaþjónustan
Kirkjuból vinnur markvisst að því að halda nánasta umhverfi hreinu og aðlaðandi:
Tekið
er saman plastrusl í fjörunni tvisvar sinnum á ári og oftar ef þörf
krefur og því skilað í sorpgám.
Farið
er með vegi tvisvar á ári og týnt rusl.
Þess
er gætt að drasl, spýtur og járn, liggi hvergi á víð og dreif í
landareigninni eða að ruslahrúgur hlaðist upp við veggi útihúsa.
Girðingar
sem ekki eru ónýtar og ekki er þörf fyrir eru teknar niður og
fjarlægðar.
Rekaviðarstöflum
og rekadrumbum í fjöru er leyft að halda sér, enda mikilvægur hluti
af ímynd Stranda og staflarnir búsvæði teistunnar.
Leitast
er við að halda ásýnd húsakosts á jörðinni þokkalegri, eftir
efnum og ástæðum hverju sinni.
Efnistaka
er leyfð á tveimur stöðum í landi Kirkjubóls þar sem hefð var
fyrir efnistöku þegar núverandi ábúendur keyptu jörðina. Ekki
verða opnaðar nýjar námur og töku efnis við ós Miðdalsár er
stillt mjög í hóf. Nágrannabændur fá einnig sand í sandkassa,
kattakassa og sandgryfjuna á íþróttavellinum við Sævang úr
sandfjöru innan við Innri-Tanga.
Í
starfi sínu leitast Ferðaþjónustan Kirkjuból við að nota umhverfisvænar
lausnir:
Notað
er umhverfisvottað þvottaefni og uppþvottalögur.
Sparperur
eru notaðar þar sem hægt er að koma því við.
Leitast
er við að halda jöfnum hita í gistihúsnæðinu og spara orku.
Fráveitumál
og vatnsból eru til fyrirmyndar.
Vörur
og þjónusta úr heimabyggð eru valdar sé þess kostur vegna framboðs
og verðlags, einnig ráðið
starfsfólk úr heimabyggð ef þörf er á slíku.
Notkun
á pappír er meðvituð og útprentun takmörkuð.
Rafhlöðum,
dagblöðum, gleri, plasti, áli og járni, er safnað og skilað til
endurvinnslu og eyðingar eftir því sem við á.
Unnið
er með öðrum fyrirtækjum á svæðinu að umhverfismálum,
stefnumótun, kynningu og fræðslu, eftir því sem færi gefast.
Akvæðum
laga og reglugerða um umhverfismál er fylgt og reksturinn háður
eftirliti, úttektum og starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti
Vestfjarða.
Umhverfisstefna
var síðast
endurskoðuð í nóv. 2009.