Æðarvarpið á Orrustutanga
Kirkjuból á Ströndum - www.strandir.is/kirkjubol
( 451-3474 - kirkjubol@strandir.is
 

Æðarfuglinn

Orrustutangi

Fréttir af verkefninu

Tenglar og myndir


Æðarfugl í fjörunni

 

ImageÁ Kirkjubóli við Steingrímsfjörð á Ströndum er í gangi verkefni sem snýst um að gera æðarvarp aðgengilegt fyrir ferðafólk. Í Orrustutanga, sem er tanginn sem félagsheimilið Sævangur stendur á, verpa 30-40 æðarkollur á hverju ári og fólki er velkomið að rölta um tangann í rólegheitum og skoða varpið.

Öllum er velkomið að skoða sig um í fjörunni á Orrustutanga, en auk æðarfuglsins búa þar kríur, tjaldar, teistur, sandlóur og fleiri fuglar.

Sjálfsagt er að nýta sér kaffistofuna í Sauðfjársetrinu í Sævangi í slíkum fjöruferðum og skoða sýningu safnsins. Sauðfjársetrið er opið frá 10:00-18:00 alla daga yfir sumarmánuðina, júní-ágúst, sjá nánar www.strandir.is/saudfjarsetur

Kolla og bliki

Æðarfuglinn er einkvænisfugl og heitir kvenfuglinn kolla en karlinn bliki. Kollan er tryggari aðilinn í sambandinu og hún þolir illa nærveru annarra en maka síns.

Varptíminn hefst laust fyrir miðjan maí. Æðarfuglar eru
félagslyndir og kollurnar verpa í nágrenni við aðra fugla, að jafnaði 4-6 eggjum. Æðarungarnir koma flestir úr eggjum um og eftir miðjan júní og eru komnir niður að sjó daginn eftir. Blikinn verndar konu sína í varpinu, en fer síðan til að fella fjaðrir eftir að ungarnir eru komnir úr eggjunum. Þá er víða hægt að sjá stóra hópa af blikum hafa það náðugt í fjörunni.
 
Þegar ungarnir líta dagsins ljós passar kollan upp á þá, leiðir þá á
góða fæðustaði og varar þá við hættum. Stundum hjálpa aðrar kollur við uppeldið. Þær eru geldfuglar sem taka barnapíuhlutverkið að sér með glöðu geði og taka stundum uppeldið alveg í sínar hendur.

Image

Hinn dásamlegi dúnn

Dúnninn sem æðarfuglinn notar til hreiðurgerðar er nýttur. Um það bil 60 hreiður gefa árlega um eitt kíló af dún, sem einkum er settur í kodda og sængur sem seldar eru forríkum útlendingum. Dúnninn hefur tryggt framtíð æðarfuglsins á Íslandi, því hans vegna er fuglinn alfriðaður. Stofninn er nú stærri en allra annarra andfugla samanlagt.

 

Æðarkollurnar verpa að jafnaði 4-6 eggjum

Vefur: SÖGUSMIÐJAN
Opnaður í júní 2007