Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

 

Safnið
 

Kaffi Kind

 

Minjagripir

 

Viðburðir

 

Fréttir

 Myndir

 

Munir

 

Fróðleikskista

 

Tenglar

 

Hafa samband

 


Atburðadagatal 2010

Hér fyrir neðan gefur að líta skemmtidagskrá Sauðfjársetursins fyrir árið 2010. Að sjálfsögðu er aðaláherslan á að allir aldurshópar geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Ekki láta þig vanta á atburði hjá okkur í sumar!!

Júní 2010
6.
sun.
Sjómannadagskaffi og Hreiðurganga
Sauðfjársetrið býður upp á veglegt kaffihlaðborð í Sævangi í tilefni sjómannadagsins. Hlaðborðið hefst kl. 14:00 og stendur til kl. 18:00. Sama dag verður boðið upp á stórskemmtilega gönguferð um Orrustutanga þar sem merkt verða æðarhreiður og lífríki fjörunnar skoðað undir styrkri stjórn Jóns Jónssonar á Kirkjubóli.
17.
fim.
Þjóðhátíðarhlaðborð í Kaffi Kind
Sauðfjársetur á Ströndum býður upp á þjóðlegt kaffihlaðborð í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga. Hlaðborðið hefst kl. 14:00 og stendur til 18:00. Fáninn blaktir í sólskininu.
17.
fim.
Kaffi-Quiz í Kaffi Kind í tilefni af 17. júní
Léttur og skemmtilegur spurningaleikur í anda Pub-quiz keppnanna. Hlaðborð á boðstólum og vegleg verðlaun fyrir sigurlið Kaffikvissins. -Quizins. Hefst kl. 20:00. Ekki sleppa þessum skemmtilega atburði!
27.
sun.
Fjörudagur og sjávarréttasúpa
Fjörudagur í samvinnu ferðaþjónustunnar Kirkjubóls og Sauðfjársetursins. Sannkallaður fjölskyldudagur þar sem litríkt lífríki Kirkjubólsfjöru er skoðað, kellingum fleytt, farið í skeljatínslukeppni og flöskuskeyti hent í sjóinn við hátíðlega athöfn. Rjúkandi fersk sjávarréttasúpa í boði í Kaffi Kind frá kl. 13:00.
Júlí 2010
4.
sun.
Furðuleikar á Ströndum - stórhátíð -
Frábær íþróttahátíð fyrir alla fjölskylduna í Sævangi þar sem fólk skemmtir sér saman og spreytir sig á ýmsum furðugreinum. Klassískar keppnisgreinar eru t.d. öskur, kvennahlaup, girðingarstaurakast og trjónufótbolti. Fjörið hefst kl. 13:00. Veglegt kaffihlaðborð í Kaffi Kind í Sævangi frá kl. 13:00-18:00.
Ágúst 2010
7.
lau.
Dráttarvélahátíð og töðugjöld
Ökuleikni á fornri dráttarvél í aðalhlutverki, en auk þess vélasýning og önnur skemmtilegheit. Keppnin hefst kl. 14:00, skráning á staðnum. Kaffihlaðborð í Kaffi Kind frá 14:00-18:00.

14.
lau.

Íslandsmeistaramót í hrútadómum - stórhátíð -
Íslandsmeistaramót í hrútadómum við Sævang. Vanir og óvanir hrútaþuklarar spreyta sig á að raða vænum Strandahrútum í rétta röð eftir gæðum og sigurvegararnir fá vegleg verðlaun. Ýmis skemmtiatriði og óstjórnlegt fjör. Hefst kl. 14:00, kaffihlaðborð í Kaffi Kind frá 14:00-18:00.

14.
lau.

Stórdansleikur með Geirmundi Valtýssyni - stórhátíð -
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar heldur uppi stuðinu fram á rauða ágústnótt á sannkölluðum stórdansleik í félagsheimilinu á Hólmavík. Kjötsúpa á kantinum, dans og fjör. Hefst k. 23:00 og stendur yfir til 03:00. 


 

 

+++

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002
Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð mars 2010