Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

 

Safnið
 

Kaffi Kind

 

Minjagripir

 

Viðburðir

 

Fréttir

 Myndir

 

Munir

 

Fróðleikskista

 

Tenglar

 

Hafa samband

 

 

 

 
Fréttasafn Sauðfjársetursins

Hjá Sauðfjársetrinu er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast. Á þessari síðu er hægt að nálgast fréttir frá fyrri starfsárum safnsins, en með því að smella hér getur þú lesið nýjustu fréttirnar.

 

FRÉTTIR árið 2010


Elvar Stefánsson Íslandsmeistari - aldrei fleiri þátttakendur
18. ágúst 2010

Hér má sjá myndir af hrútadómum ársins 2010.

Þá er Íslandsmeistaramótinu í hrútadómum 2010 lokið. Það er skemmst frá því að segja að mótið í ár var best sótti viðburðurinn í átta ára sögu Sauðfjársetursins. Samkvæmt nokkuð nákvæmri talningu má telja víst að meira en 400 manns hafi kíkt í Sævang yfir daginn og hvorki fleiri né færri en 71 tóku þátt í hrútadómunum - 43 í flokki óvanra og 28 í flokki vanra dómara. Aldrei hafa fleiri tekið þátt og óhætt er að fullyrða að mótið sé sannarlega að eflast, vaxa og dafna þessi árin.

Það var Bolvíkingurinn Elvar Stefánsson sem fór með sigur af hólmi í flokki vanra þuklara, en hann hefur keppt í þuklinu svo til frá upphafi og náði meðal annars öðru sæti árið 2005. Elvar hlaut því til varðveislu í eitt ár verðlaunagripinn Horft til himins sem er tileinkaður minningu Brynjólfs Sæmundssonar ráðunautar á Hólmavík, auk fjölda annarra verðlauna. Aðrir verðlaunahafar í vana flokknum hafa komið áður við sögu hrútadómanna, en Björn Torfason sem lenti nú í öðru sæti varð Íslandsmeistari árin 2003 og 2008 og Eiríkur Helgason hreppti titilinn árið 2004.

Í flokki óvanra fór Keflavíkurmærin Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir frá Hólmavík og Skarði í Bjarnarfirði með sigur af hólmi með aðstoð hinnar þriggja ára gömlu Emmu Ýr Kristjönudóttur á Hólmavík. Kvenþjóðin vann öll verðlaunasætin sem í boði voru í óvana flokknum.

Úrslit Íslandsmeistaramótsins voru annars þessi:

Í flokki óvanra hrútaþuklara:
1) Emma Ýr Kristjönudóttir, Hólmavík (3ja ára) og Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir, Keflavík
2) Guðný Hrönn Þorsteinsdóttir, Reykjavík (11 ára)
3) Birna Ingimarsdóttir, Kaldrananesi í Bjarnarfirði

Í flokki vanra hrútaþuklara:
1) Elvar Stefánsson, Bolungarvík
2) Björn Torfason, Melum í Árneshreppi
3) Eiríkur Helgason, Stykkishólmi

Hrútarnir sem voru dæmdir voru þeir Spaði, Grafar, Hvellur og Fleygur, en allir eru þeir í eigu Jóns Stefánssonar á Broddanesi utan þess síðastnefnda sem er í eigu Matthíasar Lýðssonar í Húsavík. Verðlaun voru afar vegleg, meðal annars fengu sigurvegararnir í vana flokknum 5, 10 og 15 skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingarstöð Vesturlands. Margir aðrir vinningar voru einnig veittir keppendum í þremur efstu sætum í hvorum flokki frá Bændasamtökum Íslands, Sauðfjársetrinu, Strandagaldri, Malarhorni á Drangsnesi, Hólmadrangi, Strandalambi í Húsavík og Strandakúnst á Hólmavík.

Það varð Jón Viðar Jónmundsson sem fór að vanda fyrir dómnefnd sem valdi hrúta til dómanna og venju samkvæmt voru þau Lárus Birgisson og Svanborg Einarsdóttir með Jóni Viðari í dómnefndinni. Gestum og þátttakendum dómanna er þakkað kærlega fyrir komuna og um leið eru menn boðnir velkomnir á Íslandsmeistaramót í hrútadómum árið 2011, en það verður haldið ásamt þuklaraballinu laugardaginn 13. ágúst.


Þuklaraballið tókst frábærlega!

16. ágúst 2010

Þuklaraballið sem haldið var í Félagsheimilinu á Hólmavík tókst frábærlega, en þar spilaði hljómsveit Geirmundar Valtýssonar fyrir dansi fram á rauða nótt. Sveiflukóngurinn lét ekki að sér hæða og var í sínu allra besta formi ásamt meðreiðarsveinum sínum sem héldu Strandamönnum og landsmótsgestum á dansgólfinu allan tímann sem dansleikurinn stóð yfir.

Geirmundur biður fyrir bestu kveðjur til allra sem mættu á dansleikinn og Sauðfjársetrið þakkar kónginum hans frábæra framlag. Ákveðið hefur verið að Þuklaraballið verði haldið aftur að ári, þann 13. ágúst, en ekki er enn ákveðið hvaða hljómsveit mun spila fyrir dansi.


Hrútadómunum lokið

16. ágúst 2010

Þá er hrútadómunum lokið þetta árið. Þeir tókust frábærlega vel sem og Þuklaraballið sem haldið var í Félagsheimilinu á Hólmavík um kvöldið. Fréttir af úrslitum og fleiru munu koma hingað á vefinn innan skamms.
 

Landsmót í hrútaþukli og þuklaraball!
9. ágúst 2010

Það verður sannkölluð stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum laugardaginn 14. ágúst nk. kl. 14:00. Þá verður haldið í áttunda sinn Íslandsmeistaramót í Hrútadómum – venjulega kallað hrútaþukl - en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni.

Nóg verður um að vera; ókeypis verður inn á safnið og sýningu þess, Strandahestar bjóða upp á hestaferðir, ljúffengt kaffihlaðborð verður í boði í Kaffi Kind, skemmtiferðir verða farnar í dráttarvélavagni og leiktæki verða staðsett á íþróttavellinum. Reyndir og óreyndir þuklarar hvaðanæva að af landinu eru boðnir innilega velkomnir á þessa miklu hátíð.

Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og æðsti sauðfjárspekúlant Íslands fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja. Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum – t.d. fá þrír efstu í vana flokknum nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands!

Um kvöldið verður síðan hægt að kíkja á veglegt matarhlaðborð á Café Riis á Hólmavík milli kl. 18:00 og 21:00 og smella sér síðan á Þuklaraballið svonefnda sem fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík, en þar spilar skagfirski sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit sinni fyrir dansi. Aðgangseyrir að dansleiknum er aðeins kr. 2.500, en ekkert kostar inn á hrútaþuklið né að taka þátt í því. 


Dragkerling og dragvélar
9. ágúst 2010

Dráttarvéladagur Sauðfjársetursins var einstaklega vel heppnaður í ár, en um 80 manns komu í Sævang og skemmtu sér konunglega við að horfa á fjöruga ökuleikni á Deutz-dráttarvél í eigu Jóns Vilhjálmssonar á Hólmavík. Endapunktur keppnisbrautarinnar, sem var lögð af þeim Svanhildi Jónsdóttur og Jóni Vilhjálmssyni eins og nokkur undanfarin ár, vakti sérstaka kátínu. Þar sat framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins, Arnar S. Jónsson, í dragdressi ættuðu úr gamla bændasamfélaginu og tók við kossum frá keppendum til að reka endahnútinn á þáttöku hvers og eins. Uppátækið var tileinkað Gay Pride hátíðinni sem fram fór í Reykjavík sama dag og dráttarvéladagurinn.

Refsistig voru að vanda gefin fyrir að keyra yfir keilur og snerta hlið, en einnig fyrir hverja sekúndu sem tók að keyra brautina. Þá lágu ströng viðurlög við því ef menn kysstu ekki dragdrottningu setursins í lokin og ennþá strangari ef menn slepptu því að kyssa hana. Reyndar kyssti Jón Jónsson, Kirkjubólsbóndi og menningarfulltrúi Vestfjarða, kerlinguna svo harkalega að hún fékk blóðnasir og Jóni var samstundis vísað úr keppni.

Leikar fóru þannig í kvennaflokki að Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir á Heydalsá varð í fyrsta sæti, Þórunn Kristinsdóttir í öðru sæti og Ásdís Jónsdóttir í þriðja sæti, en aðeins þrjár konur tóku þátt í keppninni og voru aðrar konur á staðnum harðlega ávíttar af dragkerlingunni og hvattar til að hefja strax æfingar fyrir næsta dráttarvéladag. Sigríður fékk frímiða á kaffihlaðborð og einnig miða á Þuklaraballið í verðlaun. Ásdís Jónsdóttir var jafnframt útnefnd skussi keppninnar 2010, en hennar ferð var sérstaklega klaufaleg þegar kom að því að bakka með vagninn í gegnum hlið í enda brautarinnar.

Keppnin í karlaflokknum var sérstaklega hörð, en þar kepptu alls 15 manns. Atli Már Atlason, Kálfanesbóndi og barnaskólaeigandi á Hólmavík, fékk dúndrandi lófatak þegar dragkerlingin útnefndi hann "besta kyssarann". Í þriðja sæti varð Björn Pálsson á Grund og í öðru sæti varð Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum sem var jafnframt eini keppandinn sem fór villulaust í gegnum brautina. Dráttarvélameistari í karlaflokki varð hins vegar Jón Stefánsson á Broddanesi sem sýndi frábær tilþrif í brautinni, var á góðum tíma og keyrði aðeins á eina keilu. Það eru því feðgin sem eru best allra að keyra dráttarvél á Ströndum - það er verðugt rannsóknarefni fyrir Kára og Erfðagreininguna!

Þá er vert að nefna skemmtilegt framlag Grundarbræðra í Reykhólasveit, Guðmundar og Unnsteins Ólafssona, en þeir komu færandi hendi yfir Arnkötludalinn með gullfallega appelsínugula forndráttarvél af Porche-gerð. Henni var keyrt um völlinn eftir að keppni lauk við mikinn fögnuð og aðdáun áhorfenda.
 

 Dráttarvéladagur á laugardaginn
5. ágúst 2010

Einn af helstu samkeppnisatburðum Gay Pride og Fiskidagsins mikla, sem verða haldnir með pompi og prakt á Dalvík og í Reykjavík um komandi helgi, fer fram í Sauðfjársetrinu í Sævangi laugardaginn 7. ágúst næstkomandi kl. 14:00. Þá verður haldin ökuleikni dráttarvéla á Sævangsvelli og boðið upp á töðugjöld í Kaffi Kind gegn vægu verði. Keppendur í ökuleikninni keyra í gegnum stórskemmtilega braut með ýmsum þrautum á sem stystum tíma og og í tilkynningu segir að vegleg verðlaun séu í boði fyrir sigurvegara í karla- og kvennaflokkum.

Frábærir Furðuleikar!
5. júlí 2010

Þá er Furðuleikunum árið 2010 lokið. Þeir tókust í einu orði sagt stórkostlega vel þrátt fyrir að veðurguðirnir væru lítið að splæsa sól á Strandirnar í tilefni dagsins. Um 250 manns mættu í Sævang og fylgdust með eða kepptu í fjölmörgum stórfurðulegum íþróttagreinum sem reyndu á huga, líkama og hláturtaugar. Sérstaklega það síðastnefnda.

Fyrsta grein dagsins var Durga- og girðingarstaurakast, en þar köstuðu fullorðnir durgnum Viðari Mar Ægissyni og börnin köstuðu girðingarstaur. Að tveimur umferðum loknum var ljóst hverjir væru sigurvegarar; Guðjón Bjarki Hildarson vann í flokki barna og hlaut að launum skítverkasápu og vinnuvettlinga, en Ragnar Bragason þeytti durgnum Viðari lengst allra í flokki fullorðinna og hlaut sömu verðlaun og Guðjón Bjarki - utan þess að vinnuvettlingarnir voru í XL stærð. Ragnar hræddi líftóruna úr áhorfendum með því að fleygja durgnum með sleggjukastsaðferð, en hún snýst um að snúa durgnum í hringi yfir höfði sér og sleppa síðan við hentugt tækifæri. Afraksturinn var heimsmet: 12,60 metrar.

Önnur greinin var tímamótagrein í sögu Furðuleikanna, en þar var um að ræða fyrsta landsleikinn í trjónufótbolta. Þar spilaði lið Íslands gegn heimsúrvali frá Bandaríkjunum, Englandi, Ítalíu, Rússlandi og Suður-Kóreu. Leikurinn var æsispennandi og mikið var um opin marktækifæri á báða bóga í leiknum. Inn vildi knötturinn þó ekki og niðurstaðan markalaust jafntefli. Því var gripið til vítaspyrnukeppni þar sem markverðir beggja liða fóru á kostum og vörðu sem berserkir. Niðurstaðan var 3-3 jafntefli sem kunna að þykja óvenjuleg úrslit í vítaspyrnukeppni, alls staðar nema á Furðuleikunum. Sverrir Guðbrandsson úr liði Íslands var útnefndur maður leiksins.

Þá tók við hið æsispennandi farsímakast, en þar var tveimur farsímum kastað af færi ofan í ruslafötu. Þeir sem hittu ofan í fötuna fengu síðan að halda áfram í næstu umferð. Mjög margir tóku þátt í þessari grein, enda til mikils að vinna; í verðlaun var Nokia 2330 farsími sem símafyrirtækið Vodafone gaf til leikanna. Að loknum þremur umferðum var ljóst hver var sigurvegari, en það var hin bandaríska Sue, yfirleitt kölluð "Sú bandaríska", sem hélt heim á leið með glæsilegan síma í farteskinu.

Í öskurkeppninni var keppt í tveimur flokkum, flokki ófermdra og fermdra, en öskrin þrjú sem framkvæma átti snerust um að öskra á vel valinn fjölskyldumeðlim, hamingjuhróp og að lokum frjálst öskur. Í flokki ófermdra lét Laufey Heiða Reynisdóttir í Miðdalsgröf móður sína heyra það svo um munaði og uppskar fyrir það fjölda stiga frá dómnefndinni, mikið klapp áhorfenda og sigurlaunin sem voru hálstöflur og eyrnatappar. Hin tiltölulega nýfermda Íris Jóhannsdóttir vann hins vegar í eldri flokknum með skerandi veinum sem heyrðust að sögn kunnugra alla leið til Bolungarvíkur. Dómnefindin mun leita sér lækninga á komandi vikum, en Sara hlaut í sigurlaun tvö sett af eyrnatöppum og hálsmixtúruna Pektólín.

Kvennahlaupið var ansi erfitt í ár, en á brautinni þurftu menn og konur að hlaupa upp tvö grasbörð, stíga yfir trébekk, taka upp kefli og hringja síðan Kvennahlaupsbjöllunni í lokin. Lýður Jónsson sýndi hetjulega baráttu þegar hann hljóp með 3-4 konur í strikklotu og Strandapörin María Mjöll Guðmundsdóttir og Snorri Jónsson, Viðar Guðmundsson og Barbara Guðbjartsdóttir og Ingi Vífill Ingimarsson og Birna Ingimarsdóttir sýndu frábær tilþrif. Þau Ingi og Birna komust einmitt í úrslitahlaupið, en þau duttu í lokin og sigurvegarar urðu því þau Luke Boxall frá Bretlandi og Sabrina Negro frá Ítalíu. Þau fengu til varðveislu verðlaunabikarinn Kvennahlaupskristalinn sem var nú veittur í fyrsta sinn.

Lokagreinin var síðan Skítkastið, sem var í sannkallaðri viðhafnarútgáfu að þessu sinni. Tvö skotmörk mættu á svæðið í „borgaralegum klæðnaði“ og sátu sallaróleg meðan skítkastið dundi á þeim, en það voru þau Arnar S. Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins og Kristín Sigurrós Einarsdóttir framkvæmdastjóri Hamingjudaga sem fengu það óþvegið frá yfir sig hamingjusömum skítkastandi áhorfendum.

Sauðfjársetrið þakkar öllum gestum Furðuleikanna kærlega fyrir komuna - og býður þá velkomna að ári!


Furðuleikar framundan...
29. júní 2010

Furðuleikar Sauðfjárseturs á Ströndum eru orðnir ómissandi hluti af Hamingjudögum, en þeir hefjast við Sævang kl. 13:00 sunnudaginn 4. júlí nk. Sú nýbreytni verður tekin upp á leikunum að veita verðlaun í þeim greinum sem ekki eru sýningargreinar, t.d. getur fólk unnið splunkunýjan farsíma fyrir sigur í farsímahittni og önnur verðlaun fyrir öskur og durgakast. Í Kvennahlaupi verður afhentur til varðveislu nýr farandbikar, Kvennhlaupskristallinn.

Sýningargreinin Trjónufótbolti tekur á sig nýja mynd, en þar verður haldinn fyrsti opinberi landsleikurinn milli Íslands og heimsúrvalsins með stjörnum frá Bandaríkjunum, Suður-Kóreu, Ítalíu, Rússlandi og Englandi. Skítkastið verður á sínum stað og auk þess fer fram Hamingjuhappdrætti með veglegum vinningum, en allir gestir á kaffihlaðborði setursins fá miða í happdrættinu. 

 

Aðgangur á Furðuleikana er ókeypis fyrir alla og alls engar kröfur eru gerðar til keppenda um færni, þol eða fyrri reynslu í íþróttum. Skráning í greinar fer fram á staðnum.

 

Fjörudagur búinn!
29. júní 2010

Fjörudagurinn í Sævangi tókst með miklum ágætum. Tæplega 20 manns fylgdu Jóni Jónssyni Kirkjubólsbónda um fjöruna og fundu fullt af hreiðrum, ungum, eggjum og fleiru að ógleymdu allskonar skemmtilegu dóti í fjörunni góðu. Í kaffistofunni var gómsæt fiskisúpa í boði sem vakti lukku þeirra sem dreyptu á henni.
 

Fjörudagur framundan
20. júní 2010

Sunnudaginn 27. júní verður haldinn Fjörudagur á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Dagurinn er skipulagður í samvinnu Sauðfjársetursins og Ferðaþjónustunnar Kirkjubóls, en Jón Jónsson sér um að leiða fólk um fjöruna. Fjörudagurinn hefst kl. 13:00.

Fjörudagurinn er skemmtilegur og rólegur dagur fyrir alla fjölskylduna þar sem gengið er um Kirkjubólsfjöru og lífríki hennar skoðað, kíkt á hreiður, slegist við kríur og kellingum fleytt af hjartans lyst. Í gönguferðinni verða einnig send flöskuskeyti til fjarlægra landa og sá sem finnur stærstu skelina í fjörunni fær verðlaun af sætara taginu í sjoppu setursins.

Gestir eru hvattir til að koma vel stígvélaðir á fjörudaginn. Gómsæt sjávarréttasúpa verður í boði í Kaffi Kind frá kl. 13:00 til kl. 18:00. Fólk er að sjálfsögðu velkomið í súpu án þess að það þurfi að bregða sér í gönguferð um fjöruna :)
 

Hænur og heimalningar
19. júní 2010

Sauðfjársetrið hefur jafnan verið með heimalninga í fóstri og vörslu yfir sumarið. Yfirstandandi sumar er engin undantekning, en í ár koma lömbin frá Steinadal í Kollafirði, en í gegnum árin hafa lömb komið frá fjölmörgum bæjum á Ströndum. Lömbin eru tvær fallegar gimbrar sem hafa verið nefndar Jóna og Gústa eftir Steinadalsbóndanum Jóni Gústa Jónssyni.

Einnig hefur setrið tekið hænsnatríó í sína vörslu og umönnun. Þær komu frá hænsnabóndanum Ingibjörgu Emilsdóttur á Hólmavík, en heimilishaninn hafði orðið heldur aðgangsharður við fiðurféð og því var tekin sú ákvörðun að veita þeim hæli á Náttúrulækningasetrinu fyrir hænsn í Sævangi :) Þær eru strax byrjaðar að verpa á fullu og hafa hlotið nöfnin Inga, Björg og Emma, eftir Ingibjörgu hænsnabónda.
 

Þjóðhátíðarhlaðborð og Kaffikviss
19. júní 2010

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní var haldinn hátíðlegur í Sævangi eins og venjulega undanfarin ár. Hið hefðbundna þjóðhátíðarkaffihlaðborð var haldið í Kaffi Kind. Það var ágætlega sótt af um 60 manns sem létu ekki sitt eftir liggja í köku og tertuáti í tilefni dagsins.

Um kvöldið var síðan haldið fyrsta kaffikviss sem sögur fara af, en það er spurningaleikur sem kaffiþambandi gestir geta spreytt sig á í von um verðlaun. Um 25 manns mættu á Kaffikvissið, en að lokum voru það feðgarnir Jón Jónsson og Arnór Jónsson á Kirkjubóli sem fóru með nauman sigur af hólmi. Nokkuð ljóst er að kvissið verður endurtekið einhvern tímann aftur í sumar.
 

Barnahornið endurnýjað
10. júní 2010

Þessa dagana er verið að vinna við málningarvinnu í barnahorninu, en þar ætlar Hildur Guðjónsdóttir að mála nýtt vegglistaverk í sumar. Vonast er til að unnt verði að afhjúpa það 17. júní eða á Furðuleikum 4. júlí. Ásdís Jónsdóttir málaði fyrra listaverkið á veggina, en stór hluti þess er búinn að vera uppi allt frá opnun Sauðfjársetursins árið 2002. Sá síðari var málaður fyrir opnun 2007.

Auk veggja verða stólar og borð í barnahorninu máluð. Að mála er klárlega málið.
 

Hlaðborð og hreiðurmerkingar
6. júní 2010

Þá er fyrsta hlaðborð sumarsins afstaðið, en það var haldið fyrr í dag í tilefni af sjómannadeginum. Aðsókn var þokkaleg, en um 40 manns létu sjá sig í Sævangi í fínu en örlítið köldu veðri. Auk hlaðborðsins sá Jón Jónsson sagnabóndi á Kirkjuból og menningarfulltrúi Vestfjarða um gönguferð um Orrustutanga í þeim tilgangi að leita uppi æðarkolluhreiður og merkja þau með veifum. Gönguferðin gekk stórvel og nokkrir tugir hreiðra voru merkt auk þess sem nokkrum fuglahræðum var dúndrað upp á tanganum. Það er ekki spurning um að þetta verður endurtekið að ári.

Næsta hlaðborð verður á þjóðhátíðardaginn 17. júní, en þá verður einnig haldið svonefnt Kaffi Quiz um kvöldið kl. 20:00. Allir að mæta - þá er miklu skemmtilegra :)
 

Búið að opna
2. júní 2010

Þá er búið að opna Sauðfjársetrið þetta sumarið. Starfsmenn í sumar verða Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og hætt er við því að Arnar S. Jónsson þurfi eittvað að vinna líka! Arnór Jónsson verður einnig innan handar þegar mikið liggur við að baka fyrir hlaðborðin í sumar.
 

Breytingar í Sævangi
31. maí 2010

Eins og venjulega er alltaf reynt að gera eitthvað smálegt í Sævangi yfir veturinn, breyta og bæta. Framkvæmdirnar í vetur hafa þó hreint ekki verið af smærra taginu. Framkvæmdastjóri setursins er búinn að vera iðinn við kolann og er m.a. búinn að rífa niður olíukyndingu í kjallara, allt járn utan af ofninum og stóran stokk sem var í lofti og á veggjum. Þegar þetta er skrifað á eftir að sjóða í sundur ofninn sjálfan (sem er úr cm. þykku stáli) en þegar það er búið ætti að vera hægt að halda áfram við endurbæturnar.

Í anddyrinu hefur það helst borið til tíðinda að veggur sem stúkaði af miðasölu sem fór jafnan fram í gegnum lúgu hefur verið rifinn niður og þar er á döfinni að setja upp myndarlegt afgreiðsluborð. Til þess þarf þó að taka allt í gegn, mála, múra og fleira meðfylgjandi. Vonast er til að það klárist fyrir fyrsta hlaðborð sumarsins sem verður í Kaffi Kind sjómannadaginn 6. júní nk.
 

Skemmtidagskráin komin
28. apríl 2010

Jæja, þá er skemmtidagskrá sumarsins 2010 tilbúin - nærri því. Það er alla vega búið að setja hana inn á viðburðasíðuna hér á vefnum. Að vanda ber Furðuleika og Hrútadóma einna hæst, en dansþyrstir fá líka eitthvað fyrir snúð sinn þar sem Sauðfjársetrið stendur fyrir stórdansleik með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni í Félagsheimilinu á Hólmavík sama dag og hrútadómarnir fara fram, laugardaginn 14. ágúst.

Ekki láta þig vanta á Sauðfjársetrið í sumar!
 

Verið að uppfæra vefinn
25. apríl 2010

Þessa dagana er verið að uppfæra vefinn á ýmsum vígstöðvum. Því má búast við ýmsum truflunum, en vonandi verður hann aðeins betri en hann var fyrir, blessaður. Skemmtidagskrá sumarsins 2010 ætti að vera komin hér inn eftir fáa daga. Hún verður kynnt betur um leið og það gerist.


 

FRÉTTIR árið 2009

Stefnumót á Ströndum
29. ágúst 2009

Sauðfjársetrið mun taka þátt í atvinnu- og menningarsýningunni Stefnumót á Ströndum ásamt um 60 öðrum fyrirtækjum, félögum, fyrirbærum, stofnunum, sveitarfélögum o.s.frv. nk. laugardag, þann 29. ágúst. Hátíðin fer fram í Féalgsheimilinu á Hólmavík og um hana má fræðast á slóðinni www.strandir.is/stefnumot.

Hlökkum til að hitta ykkur þar - sem flest!


Guðbrandur á Smáhömrum varð landsmótsmeistari
27. ágúst 2009

Afar fjölmennt var á Landsmóti í hrútadómum sem fram fóru í sjöunda skipti í frábæru veðri á Sauðfjársetrinu í Sævangi laugardaginn 22. ágúst. Tæplega 50 manns tóku þátt. Strandamaðurinn Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum stóð uppi sem sigurvegari í flokki vanra þuklara, en hann hefur oftsinnis verið í öðru eða þriðja sæti á mótinu undanfarin ár. Í öðru sæti var Halldór Olgeirsson á
Bjarnastöðum í Öxarfirði og í því þriðja varð Gunnar Steingrímsson í Stórholti í Fljótum. Í flokki óvanra fór Barbara Guðbjartsdóttir í Miðhúsum í Kollafirði með sigur af hólmi. Hægt er að skoða myndir frá mótinu á myndasíðunni.

Úrslitin í keppninni voru sem hér segir:

Í flokki óvanra hrútaþuklara:
1) Barbara Ósk Guðbjartsdóttir, Miðhúsum í Kollafirði
2) Steinar Baldursson, Odda í Bjarnarfirði
3) Alda Ýr Ingadóttir, Kaldrananesi í Bjarnarfirði

Í flokki vanra hrútaþuklara:
1) Guðbrandur Björnsson, Smáhömrum í Tungusveit
2) Halldór Olgeirsson, Bjarnastöðum í Öxarfirði
3) Gunnar Steingrímsson, Stórholti í Fljótum

Hrútarnir sem voru dæmdir voru þeir Sólon, Freri, Hvinur og Gutti, en allir eru þeir í eigu Jóns Stefánssonar á Broddanesi utan þess síðastnefnda sem Reynir Björnsson í Miðdalsgröf á. Það voru 24 sem kepptu í óvana flokknum en 22 tóku þátt í flokki hinna vönu. Verðlaun voru afar vegleg, en m.a. fengu sigurvegararnir í vana flokknum 5, 10 og 15 skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingarstöð Vesturlands. Margir aðrir vinningar voru einnig fyrir keppendur eins og bók Bjarna Guðmundssonar "Og svo kom Ferguson", vinnugallar og veggspjöld frá Bændasamtöku Íslands, úttektargjafabréf, höfuðföt og minjagripir frá Sauðfjársetrinu. Guðbrandur Björnsson hlaut einnig til varðveislu í eitt ár verðlaunagripinn Horft til himins sem er tileinkaður minningu Brynjólfs Sæmundssonar ráðunautar.


Fréttir væntanlegar
27. ágúst 2009

Nei, það er ekki svona lítið að frétta. Þvert á móti er heilmikið að frétta og enn meira að gera - og þess vegna gefst svo lítill tími til að koma fréttum hér inn á vefinn. Úr því verður hins vegar bætt á komandi dögum og vikum.
 

Spilakvöld næsta föstudag
4. feb. 2009

Nú er undirbúningur fyrir fyrsta félagsvistarspilakvöldið af þriggja kvölda törn í fullum gangi. Spilað verður í Sævangi, en þar var rík hefð á árum áður fyrir spilakvöldum af þessu tagi.

Þetta fyrsta keppniskvöld fer fram föstudaginn 6. febrúar kl. 20:00. Veitt verða verðlaun fyrir hvert kvöld fyrir sig og stigahæsti einstaklingurinn eftir kvöldin þrjú fær einnig vegleg verðlaun. Sjoppa á staðnum og heitt á könnunni. Aðgangseyrir er aðeins kr. 500.- pr. mann.  Seinni keppniskvöldin verða föstudagana 13. og 20. febrúar!


Þýskur texti og fræðsluhefti
4. feb. 2009

Nú er búið að þýða allan texta af sýningunni Sauðfé í sögu þjóðar yfir á þýsku. Þetta er geysilega mikilvægur áfangi, en þýðing yfir á ensku lauk síðasta vor. Þýski textinn verður að sjálfsögðu settur í textamöppu eins og sá enski og mun hann liggja frammi fyrir áhugasama þýskumælandi gesti öll komandi sumur.

Þá er einnig að ljúka vinnu við útgáfu á fræðsluheftum um sauðfjárbúskap á ensku, þýsku og íslensku. Heftin verða að líkindum prentuð í vor og verða til sölu í Sauðfjársetrinu og víðar. Frekari fréttir af þeim síðar.

Bæði þessi verkefni eru styrkt af Menningarráði Vestfjarða. Sauðfjársetrið kann ráðinu sínar bestu þakkir fyrir veitta styrki.
 

Hannes? Bjarni? Hreiðar Már? Einhver?
9. jan. 2009

Sauðfjársetrið auglýsir hér með formlega eftir fyrrverandi útrásarvíkingum sem vilja gefa kost á sér sem skotmark í skítkast á Furðuleikunum í sumar. Áhugasamir geta haft samband í netfangið saudfjarsetur@strandir.is. Fullum trúnaði heitið.


Kómedía á bændahátíð
9. jan. 2009

Kómedíuleikhúsið á Ísafirði hefur verið fengið til að sjá um skemmtiatriði á bændahátíðinni í ár - en henni er ætlað að verða sú veglegasta frá upphafi. Hún verður haldin í félagsheimilinu á Hólmavík laugardaginn 22. ágúst, sama dag og hrútadómarnir verða í Sævangi. Það er mikill fengur að fá leikhúsið hingað á Hólmavík, en það samanstendur af rekstraraðila þess, eiganda, leikara og leikstjóra - hinum bráðsmellna Elfari Loga Hannessyni. Heimasíða leikhússins er www.komedia.is.


Meira nýtt
9. jan. 2009

Allt að gerast hjá okkur! Nú er endanlega búið að staðfesta skemmtidagskrána og hafa okkur borist afar jákvð viðbrögð frá ýmsum aðilum vegna hennar. Það leggst greinilega vel í fólk að blásið sé til sóknar á þessum síðustu og verstu í að viðhalda menningarlífi og stuðla að betri líðan fólks á öllum aldri með heilbrigðri skemmtan.

Á vefnum hafa verið nokkrar uppfærslur í gangi, tenglar hér vinstra megin voru teknir í gegn og verið er að vinna í að bæta við sérstökum síðum um kaffistofuna í Sævangi og handverksbúðina. Texti um sýninguna sjálfa hefur einnig verið tekinn í gegn auk fjölda smáatriða, villna og fleira á vefnum. Þá var einnig sett inn myndasyrpa frá Furðuleikum árið 2006.


Nýtt á vefnum
4. jan. 2009

Nú eru kominn inn á vefinn drög að skemmtidagskrá ársins 2009, en þau má finna hér. Það stefnir í að Sauðfjársetrið hafi aldrei staðið fyrir jafn mörgum atburðum - og ekki veitir af því sjaldan hefur verið mikilvægara að menningarstofnanir standi sig í stykkinu við að bjóða upp á margvíslega afþreyingu og menningarviðburði fyrir alla fjölskylduna en einmitt nú þegar kreppir að á flesta vegu. Einhverjar breytingar verða eflaust gerðar á planinu á næstu dögum, en líklegt er að þær verði smávægilegar.

Einnig hefur verið bætt við nokkrum tenglum inn á tenglasíðuna.

FRÉTTIR árið 2008
- Sjá eldri fréttir hér -

Takk fyrir árið
31. des. 2008

Sauðfjársetrið þakkar öllum velunnurum, gestum, þátttakendum í viðburðum, sjálfboðaliðum, fyrirtækjum, sauðfjárbændum og öllum landsmönnum fyrir gamla árið. Megi hið nýja færa með sér mikla gleði og farsæld!


Sauðfjársetrið á Sauðamessu
6. október 2008

Laugardaginn 4. október var haldin stóreflis hátíð til heiðurs íslensku sauðkindinni og hennar kostum og kynjum haldin í Borgarnesi. Það eru þeir Gísli Einarsson og Bjarki Þorsteinsson, fyrrum verslunarstjóri á Hólmavík, sem hafa veg og vanda af atburðinum sem þótti takast afar vel.

Sauðfjársetrið átti að sjálfsögðu fulltrúa á Sauðamessunni, en Ásdís Jónsdóttir skrapp í Borgarnes með megnið af sölubúð setursins, auk kynningarbæklinga um setrið. Skemmst er frá því að segja að varningurinn og Ásdís vöktu mikla lukku þeirra fjölmörgu gesta sem sóttu þessa skemmtilegu hátíð heim. Ekki skemmir fyrir þátttöku setursins að Ásdís vann keppni í smalagóli og sýndi þar með yfirburði Strandamanna á rekstrarsviðinu.

Vefur Sauðamessunnar er á slóðinni www.saudamessa.is.
 

Lækjarbrekka í heimsókn
22. september 2008

Á dögunum kom stór hópur barna, um 15 talsins, frá leikskólanum Lækjarbrekku í heimsókn á Sauðfjársetrið ásamt starfsmönnum. Börnin skoðuðu sýninguna af miklum áhuga undir leiðsögn Arnars Jónssonar safnstjóra, spurðu fjölmargra spurninga og veittu líka alls kyns upplýsingar um sína eigin reynslu af sauðfjárbúskapnum. Heimsóknin tók um klukkustund og voru börnin leyst út með verkefna- og litabókum frá Bændasamtökum Íslands og þéttu handtaki frá safnstjóranum. Sauðfjársetrið þakkar unga fólkinu kærlega fyrir komuna og vonast svo sannarlega til að sjá leikskólahópinn aftur næsta haust.

Sauðfjársetrið getur tekið við skólahópum og öðrum hópum allan veturinn - hringdu bara í s. 661-2009 eða sendu póst í netfangið saudfjarsetur@strandir.is með smá fyrirvara.
 

Aðalfundi lokið
22. september 2008

Aðalfundi Félags áhugamanna um Sauðfjársetur er lokið. Heldur fámennt var á fundinum en að sama skapi góðmennt. Samþykkt var að fela stjórn félagsins að sjá um stofnun sjálfseignarstofnunar, kosin var ný stjórn og málefni setursins rædd fram og til baka. Lagabreytingartillögur voru samþykktar og því er félagið á leiðinni að verða nokurs konar hollvinafélag, en sjálfseignarstofnunin nýja mun eingöngu snúast um rekstur safnsins.

Aðalmenn í stjórn voru kjörnir og eru það þeir Matthías Lýðsson í Húsavík, Sverrir Guðbrandsson á Hólmavík og Reynir Björnsson í Miðdalsgröf sem munu stýra félagsskútunni næsta árið a.m.k. Þeir munu einnig skipa fyrstu stjórn sjálfseignarstofnunarinnar til næstu fjögurra ára. Varastjórn skipa Hranfhildur Guðbjörnsdóttir á Hólmavík, Karl Kristjánsson á Kambi í Reykhólasveit og Dagrún Magnúsdóttir á Laugarholti við Djúp.

Nú stendur yfir vinna við gerð skipulagsskrár vegna fyrirhugaðrar sjálfseignarstofnunar og jafnframt er verið að vinna að endurgerð söfnunarstefnu og starfsstefnu fyrir árin 2009-2012.
 

Aðalfundi seinkað!
16. september 2008

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna er áður auglýstum og boðuðum aðalfundi Félags áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum, sem vera átti þriðjudagskvöldið 23. september, frestað um einn dag.

Nýr fundartími er miðvikudagurinn 24. september kl. 20:00 í Sævangi.


Aðalfundur Félags áhugamanna um Sauðfjársetur
15. september 2008

Aðalfundur Félags áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum verður haldinn í félagsheimilinu Sævangi þriðjudaginn 23. september kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf en auk þess verður boðið upp á léttar kaffiveitingar. Félagsmenn og áhugamenn um starfsemi Sauðfjársetursins eru velkomnir á fundinn.

Rétt er að taka fram að á fundinum verður lögð fram lagabreytingartillaga og ályktun sem fela í sér grundvallarbreytingu á starfsemi félagsins. Ef samþykki 2/3 fundarmanna næst mun rekstur og starfsemi Sauðfjársetursins færast frá félaginu til sjálfseignarstofnunar sem mun fá heitið Sauðfjársetur á Ströndum ses. Ástæðan fyrir þessum breytingartillögum er að Safnasjóður, einn helsti fjárhagslegi bakhjarl Sauðfjársetursins, mun ekki halda áfram stuðningi sínum við safnið í núverandi rekstrarformi.  Þeir sem vilja frekari upplýsingar um lagabreytingartillöguna eða fyrirhugað rekstrarform geta haft samband við Arnar í netfangið saudfjarsetur@strandir.is.
 
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar 2007.
2. Ársreikningur 2007.
3. Tillögur að lagabreytingum.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning skoðunarmanna reikninga.
6. Önnur mál.
 
Ársreikningar frá 2002-07 munu liggja
frammi á fundinum auk ársskýrslna frá 2002-07. Þeir sem vilja fá skýrslurnar sendar fyrirfram geta haft samband við Arnar í netfangið saudfjarsetur@strandir.is.

 
Flutt til Hólmavíkur
9. september 2008

Í dag hefst formlegt vetrarstarf Sauðfjárseturs á Ströndum samfara flutningi framkvæmdastjóra safnsins inn í ný húsakynni Þróunarsetursins á Hólmavík. Þar verður Sauðfjársetrið til húsa í vetur á miðhæðinni ásamt Þjóðfræðistofu, Strandagaldri, Menningarfulltrúa Vestfjarða, Náttustofu Vestfjarða og Gagnvegi. Einmitt núna er verið að tengja tölvur, prentara og annað smálegt ásamt því að raða í skúffur og skápa.

Þeir sem hafa hug á að koma efni til setursins, myndum eða munum, er velkomið að kíkja í Þróunarsetrið og taka hús á Arnari S. Jónssyni framkvæmdastjóra eða hafa samband í netfangið saudfjarsetur@strandir.is
 

Umfjöllun í Bændablaðinu
9. september 2008

Þeir sem ekki fá Bændablaðið inn um lúguna hjá sér ættu endilega að redda sér áskrift. Blaðið er nefnilega einn allra besti fjölmiðill landsins, jákvæður og fjölbreyttur en hikar um leið ekki við að taka á alvarlegum málefnum. Í síðasta blaði var heil opna tileinkuð Sauðfjársetrinu og tveimur skemmtunum á vegum þess; Dráttarvéladegi og Meistaramóti í hrútadómum. Flennistórar myndir af atburðunum glöddu augu aðstandenda setursins mjög - náið ykkur í eintak!


Opið eftir samkomulagi í vetur
1. september 2008

Rétt er að benda á að hópar eða einstaklingar sem eiga leið um Strandir eiga greiðan aðgang að Sauðfjársetrinu yfir vetrartímann. Það eina sem þarf að gera er að hringja í Arnar í síma 661-2009 eða senda tölvupóst í netfangið saudfjarsetur@strandir.is með smá fyrirvara - þá er ekkert mál að kíkja á sýninguna eða fá kaffi og bakkelsi í kaffistofunni. Eins eru skólahópar velkomnir í allan vetur og fundarhaldarar eiga líka athvarf í Sævangi yfir vetrartímann.


Sauðfjársetrið lokar
31. ágúst 2008

Þá er sumarvertíðinni lokið þetta árið. Aðsókn var með miklum ágætum í sumar; lausatraffík talsvert meiri heldur en árið 2007, en aðsókn á atburði heldur lakari þó hún væri í flestum tilfellum afar góð. Starfsmennirnir Sigga og Brynja hverfa nú til starfa á öðrum vettvangi og er þeim þakkað kærlega fyrir frábært framlag til Sauðfjársetursins í sumar. Eins fá allir sjálfboðaliðar sem tóku þátt í viðburðahaldi setursins hjartans þakkir fyrir sína vinnu. Hún var ómetanleg í alla staði.

Nú tekur við viðamikil vinna við innra starf Sauðfjársetursins. Vinna er í gangi við þýðingu á sýningartextum yfir á þýsku og einnig er verið að útbúa upplýsingaskilti um náttúru og nágrenni Sævangs sem verða sett á undirstöður utan við húsið. Einnig þarf að vinna að skráningu muna og mynda og enn frekari lagfæring á sýningunni Sauðfé í sögu þjóðar er í bígerð. Stefnt var að því að skipta um þakjárn á Sævangi nú í haust, en líklegt er að því verði frestað fram á vorið enda nauðsynlegt að fjármögnun verksins sé tryggð áður en hafist verður handa.


Björn Torfason Íslandsmeistari í hrútadómum
19. ágúst 2008

Afar fjölmennt var á Íslandsmeistaramóti í hrútadómum sem fram fór í frábæru veðri á Sauðfjársetrinu í Sævangi á sunnudaginn. Þátttaka í þuklinu sjálfu hefur aldrei verið betri, en þar um 50 manns dæmdu hrútana Koll, Berg, Gimstein og Hrein. Það var Björn Torfason á Melum í Árneshreppi sem sigraði í flokki vanra þuklara og varðveitir því verðlaunagripinn Horft til himins sem er tileinkaður minningu Brynjólfs Sæmundssonar ráðunautar í ár. Björn vann einnig mótið árið 2003.

Melafólk gerði sér annars lítið fyrir og sópaði til sín verðlaunum í ár - Árný Björk Björnsdóttir vann í flokki óvanra og Guðmundur Björnsson varð í þriðja sæti, en þau kepptu meðal annars við Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra í óvana flokknum. Auk þuklsins var nóg að gerast í Sævangi fyrir fólk á öllum aldri - kaffihlaðborð, andlitsmálun, skemmtiferðir í dráttarvélavagni og harmonikkuspil svo fátt eitt sé nefnt.

Úrslitin í
keppninni voru sem hér segir:

Í flokki óvanra hrútaþuklara:
1) Árný Björk Björnsdóttir, Melum í Árneshreppi
2) Ómar Ólafsson
3) Guðmundur R. Björnsson, frá Melum í Árneshreppi

Í flokki vanra hrútaþuklara:
1) Björn Torfason, Melum í Árneshreppi
2) Guðbrandur Björnsson, Smáhömrum í Tungusveit
3) Hörður Guðmundsson, Böðmóðsstöðum í Laugardal

Það voru 27 sem kepptu í óvana flokknum en 22 tóku þátt í
flokki hinna vönu. Dómnefndin var leidd af Jóni Viðari Jónmundssyni. Búið er að setja inn fullt af myndum frá atburðinum á sérstaka myndasíðu. Smellið hér til að skoða þær!

Verðlaun voru afar vegleg, en m.a. fengu sigurvegararnir í vana flokknum 5, 10 og 15 skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingarstöð Vesturlands. Margir aðrir vinningar voru einnig fyrir keppendur eins og vegleg bókagjöf frá Sparisjóði Strandamanna og Sauðfjársetrinu, vinnugallar frá Bændasamtökum Íslands og kjötlæri, úttektargjafabréf, höfuðföt og minjagripir frá Sauðfjársetrinu.

 

Nýtt á vefnum
14. ágúst 2008

Þegar tími gefst er vefur Sauðfjársetursins uppfærður og stækkaður. Síðustu daga hafa bæst við þrjú albúm á myndasíðuna; myndir frá Kraftakeppni 2008, Dráttarvéladegi 2008 og Dráttarvéladegi 2007.

Nú er bara að mæta á Hrútadómana á sunnudag og láta taka mynd af sér - það er aldrei að vita nema hún rati hingað inn á vefinn!
 

Hrútadómarnir á sunnudaginn!!!
11. ágúst 2008

Það verður stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum nk. sunnudag, þann. 17. ágúst. Þá verður haldið í sjötta skipti Meistaramót í hrútaþukli, en sú íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans, síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Meistaramótið er fyrir löngu orðinn landsþekktur viðburður og ljóst að tími er kominn til að gera alvarlega atrennu að því að koma greininni á næstu Ólympíuleika, í London árið 2012.

Hrútaþuklið hefst við Sævang kl. 14:00. Nóg annað verður um að vera; andlitsmálning verður í boði fyrir yngstu kynslóðina, ókeypis verður inn á safnið og sýningu þess, ljúffengt kaffihlaðborð verður í boði í kaffistofu setursins, skemmtiferðir verða farnar í dráttarvélavagni, lifandi tónlist mun óma um salinn og að sjálfsögðu verður farið í leiki á íþróttavellinum.

Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu gefa hins vegar hrútunum stig fyrir einstaka þætti eins og t.d. bakbreidd, útlit og samræmi og fara þá eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja.

Aðgangur að hátíðinni og safninu er ókeypis. Kaffihlaðborð kostar kr. 1.200.- fyrir fullorðna, kr. 600.- fyrir 6-12 ára og frítt fyrir yngri.


Þuklaraball og bændahátíð slegin af
11. ágúst 2008

Ákveðið hefur verið að halda ekki bændahátíð og Þuklaraball í ár. Ýmsar ástæður liggja að baki þessari ákvörðun, en aðstandendur Sauðfjársetursins eru staðráðnir í að koma tvíefldir til leiks á næsta ári með meira fjör, glens og grín í þeim anda sem venjulega hefur ríkt á skemmtunum þess í gegnum tíðina.


Dráttarvéladagurinn tókst vel
11. ágúst 2008

Í gær fór fram á íþróttavellinum við Sævang æsispennandi keppni í dráttarvélaökuleikni. Keppnin var aðalatriðið á Dráttarvéladegi Sauðfjársetursins, en einnig var heyskaparlokum fagnað með töðugjaldakaffi inni í kaffistofunni í Sævangi. Blíðskaparveður gladdi gesti sem hefðu mátt vera fleiri, en þeir sem mættu gátu vart á heilum sér tekið af spenningi yfir akstrinum og hlaðborðinu.

Þátttaka í ökuleikninni var sérlega góð og keppnin var lengst af æsispennandi. Keyrt var um á Ford-dráttarvél í eigu Páls Áskelssonar frá Hnitbjörgum með kindavagn í eftirdragi, en meðal þess sem keppendur þurftu að leysa af hendi var að kyssa fuglahræðu með vagninum eftir að hafa bakkað að henni, sparka bolta í mark með ámoksturstækjum vélarinnar, bakka í gegnum hlið og hella síðan úr vatnsglasi í lok brautarinnar með fyrrnefndum moksturstækjum.

Ómar Pálsson frá Grund í Tungusveit fór með sigur af hólmi í karlaflokki, en þar voru þátttakendur tæplega fimmtán. Ómar var eini keppandinn sem fór villulaust í gegnum brautina. Í öðru sæti var Jón Stefánsson bóndi á Broddanesi og í því þriðja var bjarnfirski hagleiksbóndinn Ólafur Ingimundarson á Svanshóli. Í kvennaflokki voru keppendur hins vegar aðeins tveir; þær Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir og Ásdís Jónsdóttir. Sigríður fór með öruggan sigur af hólmi enda var ferð Ásdísar um brautina afar skrautleg og skemmtileg. Sigurvegararnir fengu í verðlaun inneignarnótu í kaffistofu og handverksbúð setursins að upphæð kr. 5000 auk ærbókar frá Þúfu.

Þeim Ásdísi Jónsdóttur frá Steinadal og Ingimundi Magnússyni í Litla-Fjarðarhorni var síðan veitt sérstök skammarverðlaun, en þeirra ferðir í keppnisbrautinni vöktu ómælda kátínu áhorfenda.

Myndir frá Dráttarvéladegi ættu að koma í myndasafnið innan skamms.


Kraftar í kögglum
24. júlí 2008

Sunnudaginn 20. júlí fór fram árleg kraftakeppni á vegum Sauðfjársetursins í Sævangi undir heitinu Kraftar í kögglum. Reyndu heimamenn og gestir þar með sér í fjórum kraftagreinum - brúsahlaupi, fuglahræðukasti, Sævangslyftu og dráttarvéladrætti. Keppnin er hugsuð sem leikur og skemmtun fremur en háalvarleg kraftakeppni, en það kemur ekki í veg fyrir að menn geri sitt allra besta. 

Það var Arnar Kristjánsson frá Ármúla sem sigraði í karlaflokki, en jafnir í 2.-3. sæti urðu Kristinn H. Gunnarsson þingmaður og Ragnar Frank.  Í kvennaflokki sigraði Anna Linda Sigurðardóttir, Svanhildur Jónsdóttir á Hólmavík varð önnur og Úlla Pedersen varð þriðja.

Aðsókn á kraftakeppnina hefði getað verið betri, en nokkrir tugir mættu þó og skemmtu sér geysivel.

Myndir frá keppninni má skoða á þessari síðu hér.


Undurfurðulegir Furðuleikar
3. júlí 2008

Í trjónufótboltanum mættust Strandir og Reykhólasveit í 10 mínútna löngum kappleik. Liðin voru að vísu aðeins blönduð. Leikar fóru að lokum 2-2 eftir æsispennandi keppni og mikil tilþrif þar sem boltinn var oft á tíðum marga tugi metra frá mesta kraðakinu.

Í girðingarstuarakastinu voru aðstæður erfiðar og ljóst að tilraunir til að fella heimsmet Gunnars Garðarssonar í greininni yrðu ekki árangursríkar. Í karlaflokki sigraði Arnar Barði Daðason með kast upp á 12,30 metra, í öðru sæti varð Ragnar Bragason fyrrverandi heimsmethafi með kast upp á 11,50 og í því þriðja Ingi Vífill með 11,40 m. Í kvennaflokki vann Helga * með kast upp á 8,50, næst var Rebekka Eiríksdóttir með 7.70 og því næst Svanhildur Jónsdóttir með 7,00. Í flokki barna og ungmenna varð Alda Ingadóttir langfyrst með kast upp á 8,10 metra. 17 kepptu í karladeildinni, 7 í kvennaflokki og 18 í flokki barna og ungmenna. Alls 42!

Í öskrinu var þáttaka ágæt en fullorðnir voru heldir ragir þetta ár, sérstaklega karlpeningurinn. Í flokki fullorðinna vann Brynja Bjarnfjörð með einstaklega kröftugum öskrum. Hún fékk 26 stig, 9 fyrir stíl, 9 fyrir hávaða og 8 fyrir áhrif. Í öðru sæti var Ásdís Jónsdóttir, sigurvegari árið 2007, með 25 stig; 9 fyrir stíl, 8 fyrir hávaða og 8 fyrir áhrif. Hinir þrír keppendurnir (þeir voru fimm alls) í fullorðinsflokknum voru jafnir í þriðja sæti með 22 stig. Í flokki barna voru þær Sara, Laufey Heiða og Ásdís Jónsd. efstar og jafnar með 26 stig hver. Alls tóku fimm þátt í fullorðinsflokknum og 16 í barnaflokknum.

Í hrafnasparkinu var sparkað 96 sinnum í hrafninn en ekki vildi hann ofan í ruslatunnuna.

Óljóst er hver sigraði í belgjahoppinu þar sem fjöldi keppenda beitti ólöglegum hoppum. Hoppið vakti þó gríðarlega kátínu meðal keppenda.

Kvennahlaupið var geysilega spennandi og skemmtilegt. Gunnar Bragi-Lisa vs. Sverrir og Sabba í úrslitum. Áður höfðu tekið þátt Raggi og Sigga og Viðar og Barbara.


Smásýning um Herdísarvíkur-Surtlu

3. júlí 2008

Sauðfjársetur á Ströndum opnaði á dögunum sérsýningu um eina frægustu kind Íslandssögunnar, hina fótfráu og stórgáfuðu Herdísarvíkur-Surtlu. Á sýningunni, sem verður uppi til sumarloka, segir frá ævi og örlögum kindarinnar og þar gefur einnig að líta höfuð Surtlu sem Sauðfjársetrinu var góðfúslega lánað af Sigurði Sigurðarsyni dýralækni. Árin 1951 og 1952 var Surtla hundelt af smölum, hundum og skotmönnum, en þá fóru fram fjárskipti á svæðinu frá Hvalfirði að Rangá vegna mæðiveikinnar. Óhætt er að segja að kindin hafi orðið goðsögn í lifanda lífi, en fjárskiptayfirvöld gripu að lokum til þess örþrifaráðs að leggja fé til höfuðs henni.

Eftir margra klukkustunda eltingaleik þann 30. ágúst 1952 var Surtla felld ofan við Herdísarvík, en örlög hennar vöktu mikla athygli og hörð viðbrögð fjölmargra sem töldu að kindin hefði átt skilið að lifa, enda bersýnilega ekki mæðiveik .

 

Þrírifað í þrístýft og þrettán rifur ofan í hvatt
3. júlí 2008

Við upphaf Furðuleika á Ströndum þann 29. júní sl., var opnuð sýning í Sauðfjársetrinu á verkinu Þrírifað í þrístýft og þrettán rifur ofan í hvatt, sem unnið er af nemendum Reykhólaskóla í samvinnu við kennarana Kolfinnu Ýr Ingólfsdóttur og Rebekku Eiríksdóttur. Verkið gerir skil eyrnamörkum og markaheitum og bæjamörkum í Reykhólahreppi.

Áður en Furðuleikarnir hófust þakkaði Arnar S. Jónsson, framkvæmdastjóri setursins, kennurum og nemendum Reykhólaskóla fyrir verkið, sem verður til sýnis á Sauðfjársetrinu í sumar. Strandamenn, íbúar Reykhólahrepps og aðrir gestir eru hvattir til að líta við og skoða þessa skemmtilegu sýningu.
 

Allt á fullu
3. júlí 2008

Það er svo sannarlega nóg að gerast hjá Sauðfjársetrinu þó það rati ekki allt hingað á vefinn sem hefur verið slælega uppfærður undanfarna mánuði.

Í vetur var opnuð ný og glæsileg fróðleikskista sem inniheldur alla sýningartexta Sauðfjársetursins (og meira til). Þá dró til tíðinda í húsnæðismálum þegar setrið eignaðist 66,7% hlut í félagsheimilinu Sævangi eftir að Strandabyggð ákvað að gefa sinn hlut í húsinu, en meðeigandi er Umf. Hvöt í Tungusveit. Þetta er mikilvægur áfangi hjá setrinu sem á nú tvær fasteignir, Sævang og Sauðhúsið að Skeiði 3 á Hólmavík sem er notað sem geymsla og verkstæði fyrir vélar í eigu safnsins.

Allur texti á sýningunni hefur verið þýddur yfir á ensku, bæði af textaspjöldum og einnig texti á minni spjöldum. Menningarráð Vestfjarða veitti veglegan styrk til þýðingarinnar, en eftir á að ljúka verkinu með því að þýða allan texta yfir á þýsku. Stefnt er að því að þeim hluta ljúki fyrir sumarlok 2008. Þessi nýjung hefur vakið mikla lukku hjá erlendum gestum sýningarinnar eins og gefur að skilja, en um leið hefur krafa á fleiri tungumál aukist.

Þá fékk Sauðfjársetrið einnig góðan styrk frá Menningarráði Vestfjarða til að vinna að upptöku- og heimildasöfnunarverkefni sem ber heitið Búskapur á Ströndum. Vinna við verkefnið er enn á frumstigi, en stefnt er að því að hún fari á fullan skrið haustið 2008.

Dálitlar breytingar voru gerðar á sýningunni í Sævangi fyrir sumarið, öllum textaspjöldum skipt út, texti uppfærður og sýningarkassar voru málaðir auk þilveggja. Bárujárnsveggur var settur upp í verkfærahorninu og skrifstofa bóndans færð upp á litla pallinn í horni salarins.

Ekki má gleyma að nefna uppsetningu á varmadælu í Sævangi sem leysir af hólmi gamla, rándýra og helst til mikið mengandi olíukyndingu sem átti orðið erfitt með að komast í gang. Varmadælan sparar rafmagn, kyndir jafnt og vel og fer vel með safn- og sýningarmuni. Tilkoma hennar þýðir einnig að kynding yfir veturinn veðrur ekki lengur vandamál, en olíukyndingin stóð sig sérstaklega illa þegar kólnaði úti. Þá var geysimikið verk unnið við að einangra loft í Sævangi, en einungis lítill hluti loftsins var einangraður við byggingu hússins árið 1957. Þeirri vinnu er nú nánast lokið.

 

FRÉTTIR árið 2007
- Til baka í fréttasafn -

Fleiri fréttir væntanlegar
3. júlí 2008

Hér á enn eftir að bæta við nokkrum fréttum frá árinu 2007, þó það sé löngu liðið. Það verður gert þegar tími gefst (hvenær sem það nú verður).
 

Spunakeppnin Ull í fat
8. nóv 2007

Á sama tíma og hrútaþuklið fór fram á Sauðfjársetrinu í Sævangi á sunnudaginn, var haldin þar landskeppni í spuna undir heitinu Ull í fat. Keppnin fór þannig fram að fjögur lömb voru rúin á staðnum og spunnið var úr ullinni ókemdri. Fimm lið kepptu um að koma þessarri ull í fat og að þessu sinni átti að gera lambhúshettu með frjálsu sniði. Liðin sem kepptu voru Norðanvindur úr Þingeyjasýslum, Alþýðulist úr Skagafirði, Ullarselið á Hvanneyri, Þingborg í Flóa og Tröllin af Ströndum.

Fjórir til sex þátttakendur voru í hverju liði, en sérfróð dómnefnd Sauðfjársetursins valdi svo sigurliðið og tók mið af ýmsum þáttum svo sem flíkinni sjálfri, vinnubrögðum og hraða, skipulagi og samvinnu innan hópsins og ýmsum öðrum þáttum svo sem göngulagi, útliti nestisboxa og skemmtilegheitum liðanna.

Það var lið Ullarselsins á Hvanneyri sem stóð uppi sem sigurvegari og hafði hannað klæðilegustu lambhúshettuna að mati dómnefndar. Í liði Ullarselsins voru spuna- og prjónakonurnar Kristín Gunnarsdóttir, Rita Bach, Ástríður Sigurðardóttir og Ingibjörg Jónasdóttir. Einnig voru í liðinu Ásthildur Thorsteinsson faglegur liðstjóri og Guðmundur Hallgrímsson andlegur liðstjóri og leikfimistjóri. Ullarselshópurinn varðveitir því fram að næstu keppni glæsilegan farandgrip, sem gerður var af Miðhúsafeðgum og Landsamtök sauðfjárbænda gaf.

 

Meistaramót í Hrútadómum
8. nóv 2007

Keppt var í hrútadómum og hrútaþukli á Sauðfjársetrinu í Sævangi sunnudaginn 26. ágúst og var mikið um dýrðir. Kristján Albertsson á Melum í Árneshreppi gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppninni í flokki þeirra vönu, annað árið í röð. Varðveitir hann því annað ár verðlaunagripinn Horft til himins sem Búnaðarsamband Strandamanna gaf til minningar um Brynjólf Sæmundsson ráðunaut. Mikið fjör var við Sævang á meðan á keppninni stóð og veðrið lék við mannskapinn eftir eina góða skúr í upphafi þukls. Nærri 40 manns kepptu í þuklinu, en talið er að yfir 300 manns hafi komið í Sævang í tilefni dagsins.

Úrslit í flokki óvanra hrútaþuklara:

1) Sverrir Þór Þórarinsson, 10 ára frá Stórhóli í Skagafirði
2) Alda Ýr Ingadóttir, 12 ára frá Kaldrananesi í Bjarnarfirði
3) Bjarnheiður Fossdal, Melum í Árneshreppi

Úrslit í flokki vanra hrútaþuklara:

1) Kristján Albertsson, Melum í Árneshreppi
2) Guðbrandur Björnsson, Smáhömrum í Tungusveit
3) Ólafur Bragi Halldórsson, bóndi á Magnússkógum III, Dölum

Hrútarnir sem menn áttu að raða í rétta röð heita Leiftur, Neisti, Hnoðri og Robin og voru allir frá Heydalsá. Ragnar Bragason bóndi á Heydalsá á þrjá þeirra en Stefán Snær Ragnarsson á Robin. Það voru 20 sem kepptu í óvana flokknum en 17 tóku þátt í flokki hinna vönu. Dómnefndin var leidd af Jóni Viðari Jónmundssyni.

Verðlaun voru afar vegleg, en m.a. fengu sigurvegararnir í vana flokknum 5, 10 og 15 skammta af hrútasæði, en margir aðrir vinningar voru einnig fyrir keppendur eins og ullarteppi frá Ístex, úrvalsrækju frá Hólmadrangi, vinnugalla frá Bændasamtökunum, boli frá Sauðfjársetrinu, hrútaspil, kaffihlaðborð o.fl.

Myndir af atburðinum má sjá með því að smella hér.


Kraftar í kögglum
8. nóv 2007

Fimm efstu í karlaflokki:

1. Ragnar Bragason
2.-3. Daníel Ingimundarson
2.-3. Ómar Pálsson
4. Steinar Baldursson
5. Arnar S. Jónsson

Fimm efstu í kvennaflokki:

1. Birna Ingimarsdóttir
2. Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir
3. Brimrún Vilbergsdóttir
4. Svanhildur Jónsdóttir
5. Alda Ýr Ingadóttir

Besti árangur í einstökum greinum var blabla 'Omar Pálsson hélt múrsteinafötunni í Sævangslyftunni uppi í 3:30"99 og ót´rúlegt kast Raganrs í Belgjakasti up á 30,35 metra.
 

Úrslit dráttarvéladags 2007
8. nóv 2007

Dráttarvéladagurinn var vakinn upp af værum svefni árið 2007 eftir að hafa verið í bælinu árið 2006. Gamli Fergusoninn á Kirkjubóli var líka rifinn fram úr rúminu og settur í gang með miklum harmkvælum þann 12. ágúst í sumar, en þá fór einmitt dráttarvéladagurinn fram. Í Sævangi var að vanda ljóffengt kaffihlaðborð á boðstólum en aðalatriði dagsins var að sjálfsögðu ökuleikni á Fergusoninum.

Frekar napurt var í veðri á dráttarvéladeginum og margir áhorfenda, sem voru um 100 talsins, héldu sig inni í bílum sínum og horfðu þaðan á ökuþórana þeysa um í þar til gerðri þrautabraut í Heimalninga-haga. Þurftu menn að aka í gegnum brautina á góðum tíma, án þess þó að aka niður keilur sem afmörkuðu brautina. Einnig þurftu menn að gæta þess vandlega að aka ekki á fuglahræður og í lokin þurfti að leysa erfiða bakkþraut þar sem bakka þurfti með vagn. Loks urðu menn að gæta þess vel að Hamingju-Hrólfur, hliðvörðurinn í Sævangi, sem stóð á vagninum ylti ekki um koll og af vagninum. Ef það gerðist varð ökumaðurinn í refsingarskyni að stökkva af vélinni og sækja karlinn. Þeir sem voru síðan með fæst refsistig + besta tímann urðu í efstu sætunum.

Alls tóku 15 þátt í keppninni - þrettán karlar og tvær konur sem er ansi lítið miðað við mikla hæfileika kvenþjóðarinnar á þessu sviði. Í karlaflokknum börðust Smáhamrabræðurnir Kalli Þór og Brandur um sigurinn. Að lokum hafði Kalli betur, en einungis munaði 5 refsistigum á þeim sem þykir afar lítið. Karl, Guðbrandur og Jón Pálmar Ragnarsson voru þeir einu sem fóru í gegnum brautina án þess að fá refsistig. Því réðust úrslitin í karlaflokki á sekúndum, en hver þeirra gefur eitt refsistig. Í kvennaflokki var keppnin æsispennandi þrátt fyrir fæð keppenda, en þar lenti meistarinn í keppnisgreininni frá upphafi, Svanhildur Jónsdóttir, í óvæntu basli við að bakka í endamarkið.

Úrslit í karlaflokki urðu sem hér segir:

1. Karl Þór Björnsson - 164 refsistig
2. Guðbrandur Björnsson - 169 refsistig
3. Auðunn Ingi Ragnarsson - 184 refsistig
4. Björn Pálsson - 190 refsistig
5. Haraldur V.A. Jónsson - 192 refsistig
6.-7. Jón Pálmar Ragnarsson - 197 refsistig
6.-7. Jón Jónsson - 197 refsistig
8. Egill Ólafsson - 209 refsistig
9. Jón Gústi Jónsson - 232 refsistig
10.-11. Guðmundur Björgvin Magnússon - 265 refsistig
10.-11. Pétur Matthíasson - 265 refsistig
12. Jón Örn Haraldsson - 315 refsistig
13. Ólafur Egilsson - 425 refsistig

Úrslit í kvennaflokki urðu þessi:

1. Svanhildur Jónsdóttir - 316 refsistig
2. Ásdís Jónsdóttir - 327 refsistig

Sigurvegararnir í hvorum flokki fengu frímiða fyrir tvo á Strandamannamót Sauðfjársetursins síðar um sumarið. Hægt er að sjá fleiri myndir frá dráttarvéladeginum með því að smella hér.


Efni á leiðinni
21.
okt 2007

Eins og glöggir lesendur vefjarins hafa áttað sig á hefur lítið verið um uppfærslur á honum undanfarnar vikur. Það stendur þó allt til bóta; nú er verið að vinna úr myndum og fleira efni sem til er frá sumrinu 2007 og verður því smellt inn á vefinn von bráðar. Annars er það af Sauðfjársetrinu að frétta að aðsókn í sumar var sennilega sú besta frá upphafi og allir atburðir tókust eins og best verður á kosið.
 

Hrútadómar og spunakeppnin Ull í fat á sunnudaginn
21. ágúst 2007

Það verður stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum nk.sunnudag, þann. 26. ágúst. Þá verður haldið hið árlega Meistaramót í hrútaþukli og auk þess verður haldin þar landskeppni í spuna, keppni sem nefnd er Ull í fat. Kvöldið áður verður haldið Strandamannamót í félagsheimilinu á Hólmavík þar sem hinn kunni Gísli Einarsson sér um að stjórna veislunni og á eftir mótinu verður síðan Þuklaraball sem stendur fram á rauða nótt.

Meistaramótið í hrútadómum er nú haldið í fjórða sinn, en það er fyrir löngu orðinn landsþekktur viðburður. Það hefst kl. 14:00, eins og spunakeppnin Ull í fat. Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra íturvaxna hrúta með öllum nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan eiga keppendur að reyna sig við matið á hrútunum með hendurnar og hyggjuvitið að vopni og komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að númera hrútana frá einum og upp í fjóra og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu gefa hins vegar hrútunum stig fyrir einstaka þætti eins og t.d. bakbreidd, útlit og samræmi og fara þá eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja.

Í keppninni Ull í fat keppa fimm lið víðs vegar að af landinu um hvert þeirra er fljótast að koma ull í fat á sem stystum tíma. Kindur verða rúnar á staðnum og ullin af þeim spunnin í band sem liðin eiga síðan að prjóna lambhúshettu úr. Sérvalin dómnefnd dæmir um hraða, vinnubrögð, útlit og samvinnu.

Aðgangur að hátíðinni og sögusýningu Sauðfjár­setursins, Sauðfé í sögu þjóðar, er ókeypis. Kaffi­hlaðborð kostar kr. 1.200.- fyrir fullorðna, kr. 600.- fyrir 6-12 ára og frítt fyrir yngri.


Strandamamannamót og Þuklaraball
21. ágúst 2007

Laugardaginn 25. ágúst verður haldið Strandamannamót í Félagsheimilinu á Hólmavík , en það er bændahátíð Sauðfjárseturs á Ströndum í nýjum búningi. Þar hittast Strandamenn og gera sér glaðan dag við mat, drykk og dans. Hinn kunni gleðigjafi Gísli "út og suður" Einarsson verður veislustjóri og ræðumaður, en auk þess verða skemmtiatriði frá Sauðfjársetrinu og að lokum spila Halli og Þórunn á Þuklaraballi fram á rauða nótt. Aðalréttur kvöldsins er holusteikt lambakjöt að hætti Strandamanna.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram með því að hringja í Arnar í síma 661-2009, en einnig má senda póst í netfangið saudfjarsetur@strandir.is
. Skráningu lýkur nk. fimmtudag, en miðaverð er kr. 4.500.-


Allt að gerast
21. ágúst 2007

Óskaplega lítill tími hefur gefist til að uppfæra vefinn í sumar. Það er þó ekki merki um leti eða að lítið sé að gerast hjá Sauðfjársetrinu. Þvert á móti stefnir í að þetta verði besta sumarið frá upphafi, bæði hvað varðar gestakomur, frábært veður og almenna stemmningu á atburðum setursins. Vefurinn verður að sjálfsögðu uppfærður þegar tími gefst. Akkúrat núna er hann enginn enda stórhátíðarhelgi framundan hjá setrinu (sjá frétt fyrir ofan þessa).


Fjölmenni á þjóðhátíðarkaffihlaðborði
18. júní 2007

Í gærkvöldi var haldið kaffihlaðborð í Sævangi í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. Það er skemmst frá því að segja að aðsóknin var afar góð, en sennilega hafa í kringum 50 manns mætt á kaffihlaðborðið sem þótti afar ljúffengt.


Dagur hinna villtu blóma
17. júní 2007

Í dag stóðu Flóruvinir að Degi hinna villtu blóma um allt Ísland og á Norðurlöndunum, Sauðfjársetrið hefur staðið að þessum viðburði hér á Ströndum undanfarin ár og engin undantekning var gerð á því þeta árið. Það var Matthías Lýðsson sem sá um leiðsögn í gönguferðinni sem var nú farin um Orrustutangann við Sævang. Mæting var hins vegar í dræmari kantinum, en þeir sem mættu voru flestir af yngri kynslóðinni og skemmtu sér einstaklega vel í gönguferðinni.

Eftir ferðina var síðan sest inn í Sævang þar sem gómsætt kaffihlaðborð beið göngugarpanna.


Heimalningarnir dafna vel
16. júní 2007

Sauðfjársetrið fékk í síðastliðinni viku heimalningana sem munu verða í Sævangi í allt sumar. Þeir hafa verið í stíu fyrstu dagana, en verður fljótlega sleppt lausum þannig að þeir geta leikið lausum dindli á Orrustutanganum. Heimalningarnir koma að þessu sinni frá Húsavík og Hrófá. Þeim gengur ágætlega að samlagast lífinu hjá Sauðfjársetrinu og eru geysiþyrstir og skemmtilegir.

Líklegt er að lömbin fái nöfn við hátíðlegt tækifæri í kringum mánaðarmótin júní-júlí.


Pútnahús í Sævangi

16. júní 2007

Sunnudagurinn 10. júní var stór dagur í lífi íslensku hænuunganna sem Sauðfjársetrið hefur í fóstri í sumar. Þá fengu þeir afhent pútnahús eitt mikið sem stóð áður á Bassastöðum, en Ásdís Jónsdóttir hafði nýlega tekið það í sína vörslu. Hún lánaði Sauðfjársetrinu húsið í sumar og það mun standa á Orrustutanga rétt fyrir neðan Sævang, þannig að gestir setursins geta auðveldlega heimsótt hænsnahópinn.

Í bígerð er að mála húsið næstu daga og girða í kringum það svo ungarnir komist nú út í góða veðrið sem verið hefur á Ströndum undanfarna daga. Það var Arnar S. Jónsson sem tók við húsinu fyrir hönd hænsnanna og var afar ánægður með slotið eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.

 

Menningarsamningurinn undirritaður
16. júní 2007

Síðasta sunnudag var skrifað undir menningarsamning milli sveitarfélaga á Vestfjörðum á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Þar með er Menningarráð Vestfjarða orðið að veruleika og mun það næstu þrjú árin hafa úr fjármagni frá ríkisvaldinu að spila til að styðja við menningarverkefni í fjórðungnum með verkefnastyrkjum.

Fjöldi sveitarstjórnarmanna var við undirritun samningsins og einnig voru uppákomur og skemmtiatriði, fyrir utan dýrindis kaffihlaðborð. Sigurður Atlason hjá Strandagaldri kenndi sveitarstjórnarmönnum til dæmis hvernig megi með göldrum komast hjá því að verða nokkru sinni peningalaus og Elvar Logi Hannesson fræddi gesti um skrímsli.


Handverk frá Þúfu

15. júní 2007

Það hefur heldur betur bæst við í handverksbúð setursins undanfarna daga. Þar ber fyrst og fremst að nefna frábæra muni frá minjagripa- og handverksfyrirtækinu Þúfu, sem er rekið af mæðgunum Ástu Þórisdóttur á Hólmavík og Lilju Sigrúnu Jónsdóttur á Drangsnesi. Fyrirtækið hefur framleitt mikið af vörum sérstaklega fyrir Sauðfjársetrið og hafa vörurnar vakið mikla athygli og sala á þeim farið vel af stað.

Meðal þess sem Þúfa hefur framleitt eru fagurlega skreyttar ærbækur og Lambalúllar sem eru einstaklega notalegir og góðir til að kúra hjá - auk þess sem þeir eru einstakir karakterar og bera hver sitt nafn. Þá eru einnig til sölu kindakrúsir, kaffihettur með einstökum myndum, púðar sem bera heitið Horn í síðu (enda er horn í síðu púðans) og flókaskór.

Ýmislegt fleira ber fyrir augu í handverkinu frá Þúfu og fjölbreytnin er mikil. Sjón er sögu ríkari og því ættu allir sem hafa áhuga á einstakri gjafavöru og handverki að smella sér í Sævang.

 

Bætist við í atburðaflóruna
8. júní 2007

Nú er orðið öruggt að helgin 25.-26. ágúst verður ein sú stærsta í sögu Sauðfjársetursins hvað varðar skemmtanir og viðburði. Löngu er búið að ákveða að halda Strandamannamót og Þuklaraball að kveldi hins 25. og hið gríðarlega vinsæla Meistaramót í hrútadómum verður síðan haldið daginn eftir, sunnudaginn 26. ágúst.

Nú hefur bæst við stórskemmtilegur atburður í skemmtanaflóru þessarar helgar, því laugardaginn 25. ágúst mun fara fram landskeppni í spuna í Sævangi. Keppnin ber heitið Ull í fat og hún snýst um að koma ósköp venjulegri ull af kind í fagra flík á sem skemmstum tíma. Hraðinn skiptir þó ekki alveg öllu máli, því gæði handverksins og útlit hafa líka áhrif. Þá eru reglurnar mjög ólíkar því sem tíðkast í venjulegum keppnum af þessu tagi, því t.d. gætu liðsmenn átt það yfir höfði sér að þurfa að labba stanslaust um meðan verið er að prjóna. Sérvalin dómnefnd velur síðan sigurliðið eftir kúnstarinnar reglum, en liðin sem verða á bilinu fjögur til fimm talsins, koma hvaðanæva að af landinu.

Þessi atburður er mikill fengur fyrir Sauðfjársetrið og heiður að fá að hýsa hann, en undirbúningur að honum verður unninn í samvinnu við Jennýju Karlsdóttur kennara á Akureyri. Það er deginum ljósara að enginn ætti að þurfa að láta sér leiðast á Ströndum síðustu helgina í ágúst.
 

Skrifað undir menningarsamning í Sævangi
7. júní 2007

Næstkomandi sunnudag, þann 10. júní, verður skrifað undir samning um samstarf sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál í tengslum við stofnun Menningarráðs Vestfjarða og stuðnings ríkisvaldsins við það sem þegar hefur verið samþykktur. Undirritunin mun fara fram í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Búast má við allmörgum fulltrúum sveitarfélaga og menningarstofnanna víðs vegar af Vestfjörðum á Strandir í tilefni dagsins.

Undirritun samningsins á milli sveitarfélaganna er lokapunkturinn á samningsgerð milli ríkis og sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál á Vestfjörðum. Tilgangur þessa samnings er að efla menningarstarf á svæðinu og jafnframt verða áhrif heimamanna aukin í forgangsröðun verkefna á sviði menningarmála.

Á dagskrá verða, auk undirritunarinnar, ávörp formanns Fjórðungssambands Vestfirðinga og formanns Menningarráðs Vestfjarða og menningaratriði frá hinum þremur samstarfssvæðum um menningarmál á Vestfjörðum.

 

Samstarf við Ferðaþjónustuna Kirkjuból
7. júní 2007


Á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð er í gangi verkefni sem snýst um að gera æðarvarp aðgengilegt fyrir ferðafólk. Í Orustutanga, sem er tanginn sem félagsheimilið Sævangur stendur á, verpa um það bil 30 æðarkollur og fólki er velkomið að rölta um tangann í rólegheitum og skoða varpið. Búið er að setja upp nokkrar fuglahræður sem vakta varpið og merkja æðarhreiðrin sjálf með litlum flöggum til að minni líkur séu á að fuglaskoðendur fæli fuglinn af hreiðrum eða stigið sé á þau.

Þá er þessa dagana unnið að gerð nokkurra upplýsingaskilta um svæðið, fjöruna og fuglalífið í samvinnu Sauðfjársetursins og Ferðaþjónustunnar á Kirkjubóli. Stefnan er að þau skilti verði sett upp í sumar, en þetta verkefni er styrkt af Pokasjóði og Umhverfissjóði.

Í gær var farin eftirlitsferð um varpið og merkt ný hreiður og eru hreiðrin í tanganum nú 26 talsins, en varptíminn dreifist nokkuð hjá æðarfuglinum. Fyrstu ungarnir eru þegar komnir á flot, en sumar kollurnar liggja ennþá á eggjum seinnipartinn í júní.

Öllum er velkomið að skoða sig um í fjörunni á Orustutanga sem Sævangur stendur á, en auk æðarfuglsins búa þar kríur, tjaldar, teistur, sandlóur og fleiri fuglar. Reikna má með að íslenskar hænur bætist við í fuglaflóruna í sumar þegar hænuungar sem 1. bekkur Grunnskólans á Hólmavík unguðu út í vor og eru núna í búri inni á Sauðfjársetrinu, fá að fara út í sinn eigin hænsnakofa. Sjálfsagt er að nýta sér kaffistofuna í Sauðfjársetrinu í Sævangi í slíkum fjöruferðum og skoða sýningu safnsins!

 

Sjómannadagskaffið gekk vel
4.  júní 2007

Óhætt er að segja að fyrsta kaffihlaðborð sumarsins hafi gengið eins og best verður á kosið. Fjöldi manns mætti í Sævang á sjómannadaginn, skoðaði sýninguna og drakk kaffi með alls kyns tertum, kökum, kleinum og vöfflum með rjóma. Mætingin gefur góð fyrirheit um sumarið og það er vel. Sauðfjársetrið þakkar öllum kærlega fyrir komuna.


Sauðfjársetrið opnað og fyrstu gestirnir af hænsnfuglaætt
1. júní 2007

Í morgun opnaði Sauðfjársetur á Ströndum sýningu sína, kaffistofu og handverksverslun í félagsheimilinu Sævangi. Þetta er fimmta starfsár setursins og að sögn Arnars S. Jónssonar framkvæmdastjóra eru menn bjartsýnir á að sumarið verði gjöfult, bæði hvað varðar gestakomur og veðursæld. Fyrstu gestirnir mættu reyndar í fyrradag, en það eru ellefu rammíslenskir hænuungar sem ætla að dvelja í Sævangi fram á haustið. Áhugasamir geta kíkt í Sævang, spjallað við ungana og jafnvel haldið á þeim. Ýmislegt annað hefur bæst við og breyst í Sævangi og á döfinni eru enn frekari breytingar og nýjungar, bæði á sýningu og húsnæði.

„Núna í júní ætlum við síðan að endurhanna sýninguna uppi á sviðinu, en þar verður meðal annars máluð heljarstór mynd á veggina. Þá er einnig á döfinni að koma upp sérstökum myndum í gluggana í salnum, setja upp horn sem fjallar um starf ráðunautanna, koma upp internetkaffi, herja á tískumarkaðinn með bolaframleiðslu og setja upp útiskilti um nágrennið og náttúruna við Sævang - svo fátt eitt sé nefnt. Svo koma auðvitað heimalningarnir í næstu viku og þá geta gestir farið að spreyta sig á mjólkurpelanum. Það er sem sagt fullt að gerast og við höldum áfram að vinna í að breyta og bæta í allt sumar“, sagði Arnar S. Jónsson í samtali við strandir.is í dag.

Sauðfjársetrið í Sævangi er opið alla daga frá kl. 10:00 til 18:00. Fyrsta kaffihlaðborð sumarsins verður haldið á sjómannadaginn, sunnudaginn 3. júní. Hlaðborðið hefst kl. 10:00 og stendur yfir allt til kl. 18:00, en sérstök áhersla verður lögð á vöfflubakstur þennan dag. Hænuungarnir bíða að sögn Arnars spenntir eftir því að hitta hlaðborðsgesti og hafa lofað að haga sér skikkanlega.



Stólarnir í Sævangi bólstraðir

31. maí 2007

Í sumar er stefnt að því að gera ýmsar breytingar á sýningunni í Sævangi. Meðal þess fyrsta sem var gert í því verkefni var að bólstra stólana í kaffistofunni í Sævangi. Þeir voru orðnir ansi lúnir, enda mikið notaðir á dansleikjum og öðrum skemmtunum í Sævangi á síðustu öld. Glögglega mátti sjá á þeim að áfengið sem haft hefur verið um hönd á þessum skemmtunum hefur ekki alltaf endað innvortis, heldur hafa stólarnir fengið sinn skerf af guðaveigunum.

Það var HS bólstrun í Kópavogi sem sá um að bólstra stólana sem nú eru orðnir fagur-vínrauðir í stað þess að vera heiðbláir. 


Búið að ráða starfsfólk
30. maí 2007

Starfsfólk Sauðfjársetursins í sumar verða þau Arnar S. Jónsson, framkvæmdastjóri setursins og nemi í KHÍ, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, kennari, bóndi og nemi á Hólmavík og Hafdís Sturlaugsdóttir bóndi, nemi og forystukindaatferlisrannsóknarmanneskja í Húsavík. Öll hafa þau unnið hjá Sauðfjársetrinu áður, Arnar þó aldrei á sýningunni sjálfri.


Auglýst eftir starfsfólki
23. apr. 2007

Sauðfjársetur á Ströndum auglýsir eftir starfsfólki fyrir sumarið 2007. Starfshlutfall verður um 50%.
 
Starfsmenn Sauðfjársetursins á sýningunni í Sævangi þurfa fyrst og fremst að vera jákvæðir, duglegir og samviskusamir, auk þess að eiga auðvelt með mannleg samskipti.
 
Gott er að starfsmenn hafi reynslu af þjónustustörfum og búi yfir kunnáttu í erlendum tungumálum. Starfsmennirnir afgreiða á sýningunni og í handverksbúð og veita leiðsögn, auk þess að sjá um afgreiðslu og rekstur kaffistofu í samráði við forstöðu­mann, bakstur og undirbúning fyrir kaffihlaðborð. Þeir sjá einnig um uppgjör og skýrsluhald, skrá muni og minjar. Þá er ætlast til að þeir taki þátt í vinnu við markaðssetningu og skipulagningu atburða og hátíðahalda.
 
Sýningin verður opin 10:00-18:00 alla daga frá 1. júní – 31. ágúst.
 
Umsóknarfrestur er til 4. maí.  Fyrirspurnir og skriflegar umsóknir skal senda á netfangið saudfjarsetur@strandir.is eða til Arnars Jónssonar, Víkurtúni 17, 510 Hólmavík.


Kennarar unnu Spurningakeppni Sauðfjársetursins
17
. apr. 2007

Lokakvöld Spurningakeppni Strandamanna fór fram í Félagsheimilinu á Hólmavík á sunnudagskvöldið. Óhætt er að fullyrða að spurningakeppnin hefur aldrei verið jafn spennandi og þetta kvöld, en tvöfaldan bráðabana þurfti til að útkljá úrslit í lokaviðureigninni milli kennaranna og Ungmennafélagsins Neista. Það voru að lokum lið kennara við Grunnskólann á Hólmavík sem fór með sigur af hólmi, í þriðja skiptið í fimm ára sögu keppninnar. Heilmikil stemmning var í Félagsheimilinu og allt á suðupunkti frá upphafi til enda. Þeir Ingimundur Pálsson og Árni Þór Baldursson smelltu af fjölmörgum myndum sem hægt er að skoða hér fyrir neðan ásamt umsögnum Arnars S. Jónsonar spyrils um einstakar keppnir á kvöldinu.

Kennarar við Grunnskólann Hólmavík - Skrifstofa Strandabyggðar = 17-15

„Hér mættust tvö sterk og jöfn lið. Eftir hraðaspurningarnar og Þríhöfðann, sem snerist um að þekkja þrjá alþingismenn sameinaða í einu andliti, var staðan 11-9 kennurum í vil. Skrifstofan, sem tefldi fram nýliðanum Viktoríu Rán Ólafsdóttur, jafnaði metin strax í tveimur fyrstu bjölluspurningunum og síðan skiptust liðin á að svara rétt þar til í lok bjölluspurninganna, en þá náðu kennararnir ágætis kafla þar sem þeir svöruðu þremur spurningum í röð. Staðan eftir bjölluspurningarnar var 16-14 fyrir kennara, en í fyrri vísbendingaspurningunni minnkaði skrifstofan muninn í eitt stig með því að þekkja matvöruna Cheerios. Halla Jónsdóttir, kona Fjalla-Eyvindar, vafðist hins vegar illilega fyrir liðunum í síðustu vísbendingaspurningu, en að lokinni harðri baráttu um bjölluna kræktu kennarar í síðasta stigið sem í boði var. Lokastaðan 17-15, en í raun hefði Skrifstofan alveg eins getað unnið þessa keppni, eða a.m.k. náð jafntefli hefðu þær náð bjöllunni í síðustu spurningu. Þær voru hins vegar aðeins lakari í hraðaspurningunum og þar réðust úrslitin að mínu mati.“
 

Ungmennafélagið Neisti - Hólmadrangur = 17-15

Hér mætti spútniklið keppninnar í ár, nýliðarnir í Neista, meisturunum í Hólmadrangi. Hólmadrangur sýndi mikinn styrk í átta liða úrslitum og þar hefði ekkert lið unnið þá, en það kom fljótlega í ljós að Ungmennafélagið var staðráðið í að hleypa þeim ekki í úrslitakeppnina. Hnífjafnt var á öllum tölum, 11-10 fyrir Hólmadrang eftir hraðaspurningar og þríþraut og 14-14 eftir bjölluspurningar þar sem lið Hólmadrangs klofnaði í þrennt við að leita að réttu svari við spurningu um búrhval. Uppátækið vakti mikla kátínu áhorfenda sem og liðsmannanna sjálfra. Í fyrri vísbendingaspurningunni giskaði Aðalbjörg Óskarsdóttir á að hljómsveitin sem spurt væri um væri 200.000 naglbítar og hitti þar naglann fast á höfuðið og þrjú stig komu í hús til Umf. Neista. Hólmadrangsmenn náðu síðan ekki að svara seinni vísbendingaspurningunni fyrr en í síðustu vísbendingu og Neisti því kominn í úrslit. Hólmadrangsmenn hefðu með smá heppni getað komist í úrslit, en að þessu sinni var mótherjinn bara of sterkur. Þar ber sérstaklega að nefna Aðalbjörgu Óskarsdóttir sem var í banastuði allt kvöldið og klárlega sá keppandi sem vakti mesta athygli spurningaspekinginna í salnum.“
 

Úrslit: Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík - Ungmennafélagið Neisti = 16-15 (bráðabani)

Í raun er fátt hægt að segja um þessa keppni annað en að hún var í einu orði sagt ein sú allra besta og mest spennandi frá upphafi keppninnar. Ungmennafélagið Neisti náði ekki flugi í hraðaspurningunum og staðan eftir þær og þríhöfðann var 12-9 kennurum í vil. Sennilega hafa einhverjir talið að eftir þetta yrði leiðin greið fyrir kennarana að sigri, enda er liðið óhemju fljótt á bjölluna. Neisti fylgdi þó liðinu eftir eins og skugginn og eftir bjölluspurningar var enn þriggja stiga munur, 15-12. Í fyrri vísbendingaspurningunni náði Neisti einu stigi og staðan 15-13 kennurum í vil. Í síðustu spurningu keppninnar var spurt um ártalið 1952. Liðin náðu ekki að svara í fyrstu vísbendingu en í annarri vísbendingunni komu liðsmenn Neista með hárrétt svar. Staðan var því 15-15 og grípa þurfti til bráðabana til að finna sigurvegara. Hvorugt liðið gat svarað fyrstu spurningunni sem snérist um eitt af boðorðunum 10, en bráðabanaspurning nr. tvö um frumefnið brennistein small fullkomlega að áhugasviði eins kennarans sem var ekki lengi að slá á bjölluna og tryggja þeim sigur.

Kennararnir náðu því að vinna keppnina í þriðja sinn, en aldrei hefur munað jafn litlu á liðunum í úrslitunum eins og í þetta skipti. Í raun sannaðist þarna að það þarf að hafa góðan skammt af heppni til að vinna keppni eins og þessa og í þetta skiptið voru það kennararnir sem fengu spurningu sem hentaði þeim vel. Þeir eru afar vel að sigrinum komnir, en að sama skapi má segja að það hefði Ungmennafélagið Neisti verið líka. Sigurinn þarf þó alltaf að detta öðru hvoru megin og í þetta skipti fer Viskubikarinn ekki út á Drangsnes. Það er þó greinilegt á öllu að það á eftir að gerast eitt árið.“

 

Skemmtilegar gamlar myndir úr Sævangi
12
. apr. 2007

Sauðfjársetur á Ströndum stefnir að því í sumar að opna litla ljósmyndasýningu í tilefni af 50 ára afmæli félagsheimilisins Sævangs í Tungusveit. Söfnun er þegar hafin, en að sögn Arnars S. Jónssonar framkvæmdastjóra Sauðfjársetursins hefur dálítið magn af myndum borist nú þegar. Margar þeirra eru stórskemmtilegar og ráða má af þeim að Sævangur hefur verið lífleg miðstöð menningar- og skemmtanalífs á svæðinu um árabil.

Þrátt fyrir ágæta byrjun á söfnuninni vantar að sögn Arnars enn heilmikið upp á til að hægt sé að opna myndasýningu í sumar. Því eru Strandamenn og aðrir sem kunna að eiga myndir úr Sævangi hvattir til að hafa samband við Sauðfjársetrið í síma 661-2009 eða í netfangið saudfjarsetur@strandir.is

Aðeins fjögur lið eftir í Spurningakeppninni
2. apríl
2007

Átta liða úrslit í Spurningakeppni Strandamanna fóru fram í gærkvöldi í Félagsheimilinu á Hólmavík. Að vanda var vel mætt og létt stemmning í húsinu. Keppnirnar voru misspennandi en allar voru þær skemmtilegar og keppendur greinilega með það á hreinu að það skipir höfuðmáli að vera með og helst að hafa svolítið gaman af því um leið. Úrslit í tveimur keppnum réðust ekki fyrr en í síðustu spurningunum. Það voru lið Umf. Neista, kennara við Grunnskólann á Hólmavík, Skrifstofu Strandabyggðar og Hólmadrangs sem komust að lokum á úrslitakvöldið sem verður haldið sunnudaginn 15. apríl næstkomandi. Hér fyrir neðan má sjá úrslit kvöldsins og stuttar umsagnir og hugleiðingar Arnar S. Jónssonar, spyrils og dómara, um hverja keppni:  

Umf. Neisti - Heilbrigðisstofnunin Hólmavík = 12-9
„Hér hafði Ungmennafélagið Neisti betur eftir harða baráttu. Staðan eftir hraðaspurningar og þríþraut sem snérist um að þekkja augu nokkurra vel valinna Íslendinga var 8-5 Neista í vil. Liðin svöruðu sex af tíu bjölluspurningum rétt og eftir þær var aðeins eins stigs munur, 10-9 fyrir Neista. Í fyrri vísbendingaspurningunni réðust hins vegar úrslitin þegar Aðalbjörg Óskarsdóttir í liði Neista barði á bjölluna við aðra vísbendingu og svaraði því rétt að Íslendingurinn sem spurt var um væri Mörður Árnason. Liðin áttu ekki roð í seinni vísbendingaspurninguna þar sem þau virtust ómögulega muna hvað höfuðborg Eistlands hét. Þetta var spennandi og skemmtileg keppni með eldhressum liðum sem hefðu bæði getað komist áfram í undanúrslit. Neistafólk var hins vegar heppið með vísbendingaspurninguna, en er afar vel að því komið að vera komið á úrslitakvöldið. Að sama skapi munaði sáralitlu hjá Heilbrigðisstofnuninni - en það gengur bara betur næst.“

Kennarar Grunnskólanum Hólmavík - Leikfélag Hólmavíkur = 16-8
„Tveir þriðju af kennaraliðinu kom beint upp á svið úr svaðilför norður á Strandir og var nokkuð lengi að ná upp dampi gegn liði Leikfélagsins sem innihélt aðeins einn fyrrum keppanda þess. Staðan eftir hraðaspurningarnar var 9-7 kennaraliðinu í vil og allt gat gerst. Í bjölluspurningunum hrukku kennarar hins vegar heldur betur í gang, svöruðu fyrstu fjórum spurningunum rétt og héldu áfram að keyra í fimmta gírnum út keppnina. Að sama skapi hrökk Leikfélagið í bakkgír og náði aðeins einu stigi úr bjölluspurningunum á móti fimm stigum kennaranna. Lið kennaranna er ógnarsterkt og erfitt er að stoppa það þegar það kemst á skrið; hraðinn í bjölluspurningunum er afar mikill. Það má finna til með liði Leikfélagsins sem þurfti að skipta tveimur mönnum út úr liðinu fyrir þetta keppniskvöld og hafði kannski ekki burði til að stilla saman strengi sína.“

Skrifstofa Strandabyggðar - Grunnskólinn Drangsnesi = 15-10
„Skrifstofan hefur verið með óbreytt lið í fimm ár og það sýndi sig í þessari keppni. Lið Grunnskólans á Drangsnesi sem tefldi fram örlítið breyttu liði frá síðasta keppniskvöldi stóð sig hins vegar afar vel í þessari keppni sem var spennandi allt til lokaspurningar. Eftir hraðaspurningar og þríþraut var staðan 10-7 fyrir Skrifstofuna. Liðin svöruðu samtals fimm bjölluspurningum, m.a. reiknaði lið Grunnskólans á Drangsnesi út á u.þ.b. 4 sekúndum að Grýla í Grýlukvæði hefði haft 29.999 börn í 100 belgjum á 15 hölum. Eftir bjölluspurningar var staðan 12-10 fyrir skrifstofuna sem gerði síðan út um leikinn í seinni vísbendingaspurningunni um skákeinvígi Fischers og Spassky 1972. Vel að verki staðið hjá skrifstofu Strandabyggðar sem er enn einu sinni komin í undanúrslit, en að sama skapi hálfgrátlegt fyrir Grunnskólann á Drangsnesi sem hefði vel getað unnið keppnina með smá skammti af heppni. Heppnin eykst hins vegar eftir því sem menn reyna oftar og það verður sannarlega gaman að fylgjast með Drangsnesingum á næsta ári.“

Hólmadrangur - Sparisjóður Strandamanna = 19-9
„Hér varð leikurinn tiltölulega ójafn. Það var ekki vegna þess að Sparisjóðsfólk stæði sig illa, heldur vegna þess að lið Hólmadrangs var í roknastuði. Liðið náði að svara ellefu hraðaspurningum meðan Sparisjóðurinn svaraði sex, en á einhvern ótrúlegan hátt náðu Hólmadrangsmenn að vera með fullt hús í þríþrautinni meðan Sparisjóðsfólk stóð á gati. Þetta gerði að miklu leyti út um leikinn enda staðan orðin 14-6. Bæði lið héldu þó dampi og skemmtu sér og áhorfendum hið besta. Sparisjóðsfólk klóraði í bakkann í bjölluspurningum en í vísbendingaspurningunum gerðu Hólmadrangsmenn endanlega út um málið. Niðurstaðan var því öruggur sigur Hólmadrangs, 19 stig gegn 9. Sparisjóðsfólk var sennilega óheppið með keppni; það er öflugt lið en þetta var einfaldlega ekki þeirra kvöld. Hólmadrangsliðið hefði hins vegar unnið hvaða lið sem er með frammistöðu sinni sem var mögnuð. Ragnar, Þröstur og Úlfar gætu átt eftir að fara afar langt í keppninni þetta árið.“

 

Bætt við vefinn
31. mars 2007

Alltaf er eitthvað smálegt að bætast við á vef Sauðfjársetursins. Í gær voru settar inn myndir af nokkrum atburðum frá árinu 2005, en myndahornið hefur verið eilítið eftir á síðustu misserin. Alls er búið að bæta við sex vefsíðum en verið er að vinna í að koma myndum frá árinu 2006 inn.

Hægt er að skoða myndahornið með því að smella hér.
 

Átta lið komin áfram
11
. mars 2007

Nú er orðið ljóst hvaða lið taka þátt í átta liða úrslitum í Spurningakeppni Strandamanna sem Sauðfjársetur á Ströndum heldur. Fjöldi fólks mætti á seinna keppniskvöldið í fyrstu umferð sem fór fram í kvöld og skemmti sér hið besta yfir mjög spennandi keppnum. Stigaskor var fremur lágt enda hafa keppnirnar í ár verið örlítið erfiðari en undanfarin ár, en það breytir þó ekki þeirri staðreynd að úrslit í öllum keppnunum nema einni réðust í síðustu spurningu. Eftir að keppnunum lauk var dregið í átta liða úrslit og þar komu fram keppnir sem verða án efa barátta upp á líf og dauða. Hér gefur að líta úrslit síðasta kvölds og viðureignirnar í átta liða úrslitunum:

Umf. Neisti - Vegagerðin = 11-8
Sparisjóður Strandamanna - Félag eldri borgara = 17-10
Ferðaþjónustan Kirkjuból - Leikfélag Hólmavíkur = 11-14
KSH - Grunnskólinn Drangsnesi = 11-15

Hólmadrangur komst áfram úr fyrstu umferð sem stigahæsta taplið, með 18 stig.

Þessar viðureignir fara fram í átta liða úrslitum:
Heilbrigðisstofnunin á Hólmavík - Ungmennafélagið Neisti
Leikfélag Hólmavíkur - Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík
Grunnskólinn Drangsnesi - Skrifstofa Strandabyggðar
Hólmadrangur - Sparisjóður Strandamanna


Þrjú lið áfram í Spurningakeppni Strandamanna
26
. feb. 2007

Image

Þrjú lið komust áfram í átta liða úrslit í Spurningakeppni Strandamanna í gær, en þá var fyrsta keppniskvöldið haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík. Það er Sauðfjársetur á Ströndum sem stendur fyrir keppninni sem Strandamenn fjölmenntu svo sannarlega á, en tæplega 120 manns voru í húsinu þegar keppnin hófst. Fólk skemmti sér hið besta yfir keppnunum og nettum skotum milli liða sem náðu hámarki strax í fyrstu keppninni. Í hléi flutti tríó frá Leikfélagi Hólmavíkur tvö lög úr leikverkinu Þið munið hann Jörund sem nú er verið að æfa. Úrslit kvöldsins urðu sem hér segir:

Strandahestar - Skrifstofa Strandabyggðar = 10-20
Heilbrigðisstofnunin Hólmavík - Sundfélagið Grettir = 13-9
Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík - Hólmadrangur = 21-18

Eins og sjá má laut meistaralið Hólmadrangs frá því í fyrra naumlega í gras fyrir kennurum við Grunnskólann á Hólmavík í síðustu keppninni. Hólmadrangur er þó enn stigahæsta tapliðið í fyrstu umferð og kemst í átta liða úrslit ef ekkert annað lið nær hærra stigaskori. Keppnirnar þrjár voru misspennandi eins og sjá má á stigaskorinu, en áberandi þátttökugleði ríkti engu að síður meðal allra liðanna í gær. Arnar S. Jónsson, stjórnandi keppninnar, hafði orð á því að það væri það sem skipti öllu máli; að keppendur og áhorfendur skemmtu sér vel á góðri kvöldstund. 

Næsta keppniskvöld í Spurningakeppni Strandamanna er sunnudaginn 11. mars.

Spurningakeppninni frestað
11. feb. 2007

Fyrsta keppniskvöldinu í Spurningakeppni Strandamanna, sem fara átti fram í kvöld í Félagsheimilinu á Hólmavík, hefur verið frestað af óviðráðanlegum orsökum. Ekki hefur verið ákveðin önnur dagsetning fyrir viðburðinn, en ný dagsetning verður auglýst um leið og hún liggur fyrir. Strandamenn eru hvattir til að láta þessi tíðindi berast eins víða og mögulegt er, sérstaklega til allra þeirra sem höfðu hugsað sér að mæta á keppnina í kvöld.


Hólmadrangur mætir kennurunum í fyrstu umferð   

6. feb. 2007

Nú er búið að draga í fyrstu umferð í Spurningakeppni Strandamanna. Það voru Lilli og Keli, starfsmenn og stuðboltar í Hólmadrangi, sem drógu í keppnina í mötuneyti fyrirtækisins, en það vann einmitt keppnina í fyrra. Fyrsta keppniskvöldið verður haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík næstkomandi sunnudag, 11. febrúar, og hefst það hefst stundvíslega kl. 20:00. Fjölmargar athyglisverðar viðureignir fara fram í fyrstu umferðinni; til dæmis tekur meistaraliðið Hólmadrangur á móti liði kennara við Grunnskólann á Hólmavík sem hefur unnið keppnina tvisvar sinnum, Skrifstofa Strandabyggðar keppir við Strandahesta og KSH etur kappi við Grunnskólann á Drangsnesi, svo örfá dæmi séu nefnd. Liðin sem mætast fyrsta keppniskvöldið eru eftirfarandi:

Sparisjóður Strandamanna - Félag eldri borgara
Leikfélag Hólmavíkur – Ferðaþjónustan Kirkjuból
Kaupfélag Steingrímsfjarðar - Grunnskólinn Drangsnesi

Eins og áður segir verður fyrsta keppniskvöldið næstkomandi sunnudag 11. febrúar. Ferðaþjónustan Kirkjuból tekur þátt í keppninni í fyrsta skipti, en öll hin liðin hafa tekið þátt áður með ágætis árangri. Annað keppniskvöldið fer síðan fram sunnudaginn 25. febrúar í Félagsheimilinu á Hólmavík. Keppnin hefst kl. 20:00. Þá fara þessar keppnir fram:

Ungmennafélagið Neisti – Vegagerðin
Strandahestar – Skrifstofa Strandabyggðar
Sundfélagið Grettir – Heilbrigðisstofnunin Hólmavík
Hólmadrangur – Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík

Auk sigurliðanna sjö í  fyrstu umferð kemst stigahæsta tapliðið áfram í átta liða úrslit. Aðgangseyrir á spurningakeppnina, sem verður að sögn Arnars S. Jónssonar skemmtilegri en nokkru sinni fyrr, er aðeins kr. 500.- fyrir 16 ára og eldri. Tónlistaratriði verða flutt í hléi og hungraðir geta nælt sér í kaffi, gos og gúmmelaði á góðu verði.


Byrjað að undirbúa spurningakeppnina

10. jan. 2007

Nú er undirbúningur hafinn fyrir Spurningakeppni Strandamanna 2007, en þetta er í fimmta skipti sem hún fer fram. Keppt verður í Félagsheimilinu á Hólmavík sunnudagskvöldin 11. og 25. febrúar og 11. og 25. mars að öllu óbreyttu. Spyrill, dómari og spurningahöfundur er framkvæmdastjóri setursins, Arnar S. Jónsson frá Steinadal, en hann gegndi því hlutverki fyrstu tvö árin sem keppnin var haldin. Keppnin verður með svipuðu sniði og verið hefur, fyrir utan örlitlar áherslubreytingar sem ávallt fylgja nýjum spurningahöfundum. Byrjað er að taka á móti skráningum í netfangið saudfjarsetur@strandir.is

Hólmadrangur vann Spurningakeppni Strandamanna árið 2006 og er því núverandi handhafi Viskubikarsins enn um sinn, en sigurvegarar í keppninni frá upphafi eru eftirfarandi:

2003 - Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík
2004 - Strandagaldur
2005 - Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík
2006 - Hólmadrangur


Skemmtidagskrá ársins 2007

10. jan. 2007

Um leið og nýr vefur var tekinn í notkun nú á þrettándanum var kynnt skemmtidagskrá komandi árs. Hún er að vanda býsna vegleg og á dagskrá eru nokkrar nýjungar. Þar á meðal má nefna nýja útfærslu á bændahátíðinni sem fær nafnið Strandamannamót og verðu haldin sömu helgi og Meistaramót í hrútadómum, kraftakeppni verður haldin í lok júní og einnig verður haldið upp á fimmtíu ára afmæli Sævangs.

Hægt er að skoða skemmtidagskrána með því að smella hér. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda rafpóst á netfangið strandir@saudfjarsetur.is.


Nýr vefur tekin í notkun

6. jan. 2007

Áramótin eru að margra mati hentugur tími til breytinga og jólin sem eru nú að renna sitt skeið á enda eru án efa ein helsta hátíð íslensku sauðkindarinnar, sér í lagi blessaðra hrútanna. Í tilefni þess hefur verið unnið að því undanfarið að breyta og bæta vefsvæði Sauðfjárseturs á Ströndum auk þess að veita því nauðsynlega andlitslyftingu. Útliti vefjarins hefur verið breytt mjög og bætt hefur verið inn á vefinn um 60 nýjum síðum og enn fleiri myndum úr eigu safnsins. Ein helsta byltingin er Fróðleikskista Sauðfjársetursins, en í henni er að finna gríðarlega mikið efni um sauðkindina og sauðfjárbúskap á Íslandi.

Í kistuna er búið að safna saman öllum textum af sýningunni Sauðfé í sögu þjóðar og auk þess er þar fjöldinn allur af myndum sem fjölmargir aðilar hafa látið setrinu í té undanfarin ár. Meðal fleira efnis á vefnum má nefna atburðadagskrá ársins 2007, myndasyrpur frá ýmsum atburðum setursins í gegnum árin og allar nauðsynlegar upplýsingar um Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum og sýninguna Sauðfé í sögu þjóðar. Að sögn Arnars S. Jónssonar, framkvæmdastjóra Sauðfjársetursins, verður vefurinn uppfærður reglulega næstu misseri og haldið áfram að byggja hann upp.

FRÉTTIR árið 2006
- Til baka í fréttasafn -

 

Áramót   
31. des. 2006

Sauðfjársetur á Ströndum sendir lesendum þessa vefjar og öllum vinum, kunningjum, velunnurum og síðast en ekki sísta sauðfjáráhugamönnum og bændum um land allt bestu kveðjur um farsælt komandi ár. Takk fyrir öll gömlu árin.

Kleinupartý á Sauðfjársetrinu á laugardag   
13. okt. 2006

Sauðfjársetrið verður með sérstaka karókí-opnun milli kl. 15:00 og 17:00 á morgun, laugardag. Þá verður Sævangur opnaður upp á gátt og boðið upp á kaffi, mjólk, djús, vatn og síðast en alls ekki síst verða ljúffengar kleinur á boðstólum. Kleinurnar voru steiktar nú fyrr í dag af Ásdísi Jónsdóttur, en hún á óopinbert Norðurlandamet í kleinubakstri með hefðbundinni aðferð. Aðgangur að kleinuhlaðborðinu og sýningunni Sauðfé í sögu þjóðar verður á sérstöku tilboðsverði, aðeins kr. 500.- fyrir 12 ára og eldri. Sævangur verður því kjörinn vettvangur á morgun fyrir þá sem vilja hittast og spá og spekúlera í söngkeppni kvöldsins, njóta góðra veitinga og kynnast menningararfinum í sauðfjárrækt.

 

Nýr framkvæmdastjóri Sauðfjárseturs   
22. sept. 2006

Arnar S. Jónsson frá Steinadal hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Sauðfjárseturs á Ströndum. Hann tekur við starfinu af Jóni Jónssyni á Kirkjubóli sem hefur verið forsvarsmaður Sauðfjársetursins frá því það hóf starfsemi sumarið 2002. Sauðfjársetrið hefur haldið úti sögusýningu um sauðfjárbúskap með áherslu á Strandir í félagsheimilinu Sævangi, en einnig verið mjög áberandi í menningarlífi á Ströndum og staðið fyrir fjölmörgum uppákomum og skemmtunum síðustu árin.

Reiknað er með að starfsemi Sauðfjársetursins verði efld verulega á næstu misserum og mikill hugur er í aðstandendum þess að ráðast í ýmis verkefni sem lengi hafa verið á döfinni. Þar má meðal annars nefna endurnýjun sýningarinnar, markvissa heimildasöfnun, útgáfuverkefni og fleira.
Stjórn Sauðfjársetursins skipa Jón Jónsson á Kirkjubóli, Matthías Lýðsson í Húsavík og Sverrir Guðbrandsson á Hólmavík.

 

Þuklið sló í gegn
29. ágúst 2006

Meistaramót í hrútadómum fór fram á Sauðfjársetrinu í Sævangi á sunnudag og var mikið um dýrðir. Veðrið hélst þokkalegt á meðan mótið fór fram, en keppnin fór fram í skjóli við húsvegginn í Sævangi. Fjöldi keppenda sem margir voru langt að komnir mættu til leiks og hefur þátttaka sjaldan verið betri í flokki þeirra sem eru vanir hrútadómum. Það var Strandamaðurinn Kristján Albertsson á Melum í Árneshreppi sem bar sigur úr býtum á mótinu eftir harða keppni, því alls voru sex sem fundu út réttu röðina á hrútunum miðað við mat yfirdómnefndar undir stjórn Jóns Viðars Jónmundssonar. Í öðru sæti í flokki þeirra sem gáfu hrútunum stig og eru vanir hrútaþuklarar varð annar Strandamaður, Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum í Tungusveit, en þriðji varð Úlfar Sveinsson úr Skagafirði.

Í flokki þeirra óvönu sigraði Sigurður Sigurðarson dýralæknir sem hafði röðina rétta og óvenju snjallan rökstuðning. Dómnefnd taldi að vísu álitamál hvort Sigurður hefði keppt í réttum flokki, en hann fullyrti að hann kynni ekkert í stigakerfinu og væri alsendis óvanur að þukla lifandi hrúta, þó hann hefði vissulega skoðað innyflin í allmörgum slíkum. Sigurður brá síðan á leik og flutti vísur sem hann hafði ort á meðan á skemmtuninni stóð við verðlaunaafhendinguna, en hann var á ferð með Kvæðamannafélaginu Iðunni á Ströndum í tengslum við Landsmót hagyrðinga. Í öðru sæti í flokki þeirra óvönu varð Alda Ýr Ingadóttir á Kaldrananesi á Ströndum sem er 11 ára og sú þriðja varð Sólrún Ósk Pálsdóttir sem er 6 ára.

Fjölmenni á Ladsmóti hagyrðinga   
29. ágúst 2006

Fjölmenni var á Landsmóti hagyrðinga á Hólmavík á laugardag og tókst mannfagnaðurinn með miklum ágætum. Öll gisting á Hólmavík og í næsta nágrenni var upppöntuð vegna mótsins, húsbílar voru ófáir og fjöldi aðkomumanna gisti einnig hjá vinum og kunningjum á Hólmavík. Bergur Torfason frá Felli var veislustjóri á mótinu, en Bjarni E. Guðleifsson heiðursgestur og eiga báðir þakkir skyldar fyrir glæsilega framgöngu. Kristján Stefánsson frá Gilhaga spilaði á harmonikku fyrir gesti ásamt fleirum eftir að dagskrá lauk.

Sauðfjársetur á Ströndum sá um veisluföngin og framkvæmd mótsins í samvinnu við Landsnefnd hagyrðingamóta. Ef einhverjir hafa tekið vídeómynd á mótinu vill Landsnefndin gjarnan frétta af því, þar sem hljóðupptaka tókst ekki eins og best verður á kosið á hluta mótsins. Einnig væri gaman að fá myndir frá Landsmótinu sendar til Sauðfjársetursins saudfjarsetur@strandir.is.

Hrútadómarnir í Sævangi í dag   
27. ágúst 2006

Í dag verður árlegt Meistaramót í hrútadómum haldið í Sævangi við Steingrímsfjörð og hefst kl. 14.00. Jón Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins segir að allt sé að verða tilbúið fyrir keppnina og er bjartsýnn á góða mætingu: "Hér á Ströndum var fjölmennt og skemmtilegt hagyrðingamót í gær og ég býst við fjölda góðra gesta til viðbótar við heimamenn. Þessi skemmtun hefur mjög verið að festa sig í sessi." Til viðbótar við hrútaþuklið verður veglegt kaffihlaðborð og kjarnmikil kjötsúpa á boðstólum í allan dag í kaffistofunni í Sævangi og kostar 1.000.- Eins er sögusýningin Sauðfé í sögu þjóðar opin, en kaffistofan og sýningin eru opin frá 10:00-18:00.

Nú er belgingur úr austri við Steingrímsfjörð, en þurrt í veðri: "Við færum okkur kannski í skjól undir húsveggnum í Sævangi með hrútana ef ekki lægir og höfum harmonikkuleik og fjör inni, en annars köllum við nú ekki allt ömmu okkar í þessum efnum," segir Jón. "Það er þó þurrt núna og lítur ekkert illa út. Ég man eftir einum Furðuleikunum sem Sauðfjársetrið stóð fyrir í Sævangi fyrir tveimur árum, þar sem var alveg slagveðursrigning og minnst níu vindstig úr norðaustri. Samt tókst mér að fá tuttugu krakka og einn fullorðinn með mér út á völl í fjölskyldufótbolta. Þá spiluðum við hinn æfaforna knattleik Hringlanda sem er hvergi þekktur utan Stranda og ég er viss um að krakkarnir gefa það ekkert eftir í dag að fara líka í bolta og leiki úti."

 

Meistaramót í hrútadómum   
23. ágúst 2006

Árlegt Meistaramót í hrútadómum verður haldið á sunnudaginn kemur í Sævangi við Steingrímsfjörð og hefst kl. 14:00. Það er Sauðfjársetur á Ströndum sem stendur fyrir mannfagnaðinum, en um er að ræða einhverja fjölmennustu skemmtun ársins hjá safninu og eru sumir gestirnir jafnan langt að komnir. Þessi sérkennilega skemmtun fer þannig fram að yfirdómnefnd undir forsæti Jóns Viðars Jónmundssonar tekur fyrirfram nokkra hrúta til skoðunar og velur úr þeim fjóra gripi og raðar þeim í gæðaröð. Síðan eiga keppendur að finna út hver þessi röð er með hendurnar einar og hyggjuvitið að vopni.

Keppt er í tveimur flokkum á meistaramótinu. Annars vegar eru það vanir hrútaþuklarar sem kunna að stiga hrúta á þann hátt sem venja er til þegar þeir eru teknir til skoðunar. Vegleg verðlaun eru veitt í þeim flokki fyrir þrjú efstu sætin, m.a. fær sigurvegarinn titilinn Hrútameistari ríkisins og fallegan farandgrip sem gerður var af Valgeiri Benediktssyni í Árnesi og Búnaðarsamband Strandamanna gaf á síðasta ári til minningar um Brynjólf Sæmundsson ráðunaut.

Hrútameistarar og verðlaunahafar í flokknum fyrir vana hrútadómara til þessa hafa verið:

2003:
1) Björn Torfason á Melum í Árneshreppi
2) Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum
3) Kristján á Melum í Árneshreppi

2004:
1-2) Eiríkur Helgason í Stykkishólmi og Björn Sigurvaldason á Litlu-Ásgeirsá í Víðidal
3) Gréta Karlsdóttir á Efri-Fitjum í Húnaþingi vestra

2005:
1) Björn Þormóður Björnsson á Ytra-Hóli í Vindhælishreppi
2) Elvar Stefánsson í Bolungarvík
3) Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum í Kaldrananeshreppi á Ströndum, Gunnar Dalkvist á Bæ í Árneshreppi og Reynir Stefánsson í Hafnardal í Hólmavíkurhreppi.

Hinn flokkurinn er fyrir óvana og hrædda hrútaþuklara og hefur oft verið fjölmennt í þessum flokki. Keppendur þar þurfa aðeins að skrá niður röðina og láta fylgja stuttan rökstuðning um hvernig þeir komust að niðurstöðunni. Segja má að menn keppist við að komast að gáfulegum niðurstöðum með misgáfulegum aðferðum í þessum flokki. Verðlaunahafar í flokki óvanra hafa verið:

2003:
1) Jón Örn Haraldsson bóndasonur á Hólmavík
2) Dagrún Ósk Jónsdóttir á Kirkjubóli
3) Vilhjálmur Jakob Jónsson á Hólmavík

2004:
1) Guðlaug Elíasdóttir í Bolungarvík
2) Svala Einarsdóttir í Bolungarvík
3) Jón Valur Jónsson á Kirkjubóli

2005:
1) Rebekka Eiríksdóttir á Stað á Reykjanesi í Reykhólahreppi
2) Dagrún Magnúsdóttir í Laugarholti í Skjaldfannadal
3) Victor Örn Victorsson skólastjóri Grunnskólans á Hólmavík

Sögusýning Sauðfjársetursins er opin að venju á hrútadómunum og er aðgangseyrir þar kr. 500.- Einnig er dýrindis kaffihlaðborð á boðstólum og kjötsúpa að hætti Strandamanna fyrir kr. 1.000.-

 

Landsmót hagyrðinga um helgina   
23. ágúst 2006

Landsmót hagyrðinga verður haldið á Hólmavík á laugardaginn kemur og hefst skemmtunin kl. 20:00 í Félagsheimilinu. Skráning hefur verið ágæt og stefnir í skemmtilega samkomu, en allir sem áhuga hafa mega mæta - hvort sem ætlunin er að horfa og hlusta eða yrkja. Til skemmtunar verður margvísleg vísnagerð, auk þess sem söngatriði og kveðskapur setur svip á mótið. Enn er hægt að skrá þátttöku á mótinu í s. 451-3474 eða netfangi saudfjarsetur@strandir.is. Aðgangseyrir er 4.000.-

Sauðfjársetur á Ströndum sér um að holugrilla lambalæri fyrir mannskapinn og heiðursgestur mótsins verður Bjarni E. Guðleifsson náttúrufræðingur á Möðruvöllum. Veislustjóri er Bergur Torfason frá Felli, en Kristján Stefánsson frá Gilhaga mun ásamt fleirum spila á harmonikku fyrir dansi fram eftir nóttu þegar dagskrá lýkur. Stór hópur frá Kvæðamannafélaginu Iðunni mætir til leiks og fer Sigurður Sigurðarson dýralæknir fyrir hópnum og munu félagar örugglega troða upp. Ingi Heiðmar Jónsson stjórnar fjöldasöng og margir fleiri taka þátt í skemmtuninni.

Í Landsnefnd hagyrðingamóta eru Jón Jónsson á Kirkjubóli, Stefán Vilhjálmsson Akureyri, Þorsteinn Bergsson Unaósi, Ragnar Böðvarsson Selfossi og Sigrún Haraldsdóttir Reykjavík.

 

Landsmót hagyrðinga í undirbúningi   
18. ágúst 2006

Undirbúningur fyrir Landsmót hagyrðinga sem haldið verður á Hólmavík laugardaginn 26. ágúst er nú í fullum gangi og að sögn Jóns Jónssonar á Kirkjubóli er nú verið að hnýta síðustu lausu endana í undirbúningnum. "Við erum búin að fá Bjarna Guðleifsson náttúrufræðing á Möðruvöllum til að vera heiðursgest að þessu sinni og erum mjög ánægð með að fá hann til að flytja ávarp því Bjarni er bráðskemmtilegur. Svo erum við að tryggja að nóg verði til af steik og meðlæti, en aðalrétturinn verður að sjálfsögðu holugrillað lambakjöt að hætti Strandamanna."

Engin bændahátíð verður haldin á vegum Sauðfjárseturs á Ströndum þetta haustið, en að sögn Jóns vonast menn til að í staðinn fjölmenni íbúar á Ströndum og nálægum sveitum á Landsmót hagyrðinga, enda sé um að ræða stórviðburð sem alvöru gleðimenn megi ekki missa af. "Hér verður mikið um dýrðir og áhugamenn um vísnagerð, kveðskap og söng fá örugglega mikið fyrir sinn snúð. Hér verða margir af fremstu hagyrðingum landsins samankomnir og skemmta sér og öðrum með vísnagerð. Auk þess hefur stór hópur frá Kvæðamannafélaginu Iðunni pantað miða og munu félagar í þeim hópi örugglega taka virkan þátt í skemmtuninni. Svo eru allir sem áhuga hafa velkomnir á hátíðina, hvort sem þeir hyggjast sjálfir yrkja eða flytja kveðskap eða bara hlusta, syngja með og borða veislumatinn. Þegar líður á kvöld og skemmtiatriðum lokið og allir búnir að fá nægan mat verður harmonikkan síðan örugglega dregin fram og þá geta menn fengið sér snúning," segir Jón. 

Til að tryggja að nóg verði af mat á boðstólum er fólk er beðið að skrá þátttöku sína á hátíðinni í síma 451-3474 eða saudfjarsetur@strandir.is  í síðasta lagi miðvikudaginn 23. ágúst. Landsmótið hefst kl. 20:00 laugardaginn 26. ágúst og verður haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík. Miðaverðið er kr. 4.000.-

Daginn eftir, sunnudaginn 27. ágúst, verður síðan árlegt Meistaramót í hrútadómum og hrútaþukli haldið á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Segist Jón búast við að margir af gestunum á Landsmótinu muni einnig líta við á þeim mannfagnaði áður en þeir halda heim, taka dálítið á hrútunum, spjalla við bændur og næra sig á kjötsúpu eins og Strandamenn eldi hana eða fá sér af kaffihlaðborðinu. "Það fæðast örugglega einhverjar góðar vísur þá líka," segir Jón.

 

Vonast eftir góðum ágústmánuði   
4. ágúst 2006

Að sögn Jóns Jónssonar forsvarsmanns Sauðfjárseturs á Ströndum hefur júlímánuður verið ljómandi góður í ferðaþjónustunni á Ströndum. Býst hann einnig við góðum ágústmánuði á sögusýningu Sauðfjársetursins í Sævangi, enda eigi íslenskt bændafólk og Ítalir það sameiginlegt að vera helst á ferðinni í ágústmánuði: "Reynslan sýnir að ágúst er oft ekkert síðri en júlí á safninu í Sævangi. Svo hefur nú ferðatímabilið jafnt og þétt verið að lengjast fram á haustið hér á Ströndum á síðustu árum og töluvert mikið er af ferðafólki í september líka."

Verið er að undirbúa miklar skemmtanir sem tengjast Sauðfjársetrinu síðustu helgina í ágúst, en laugardaginn 26. ágúst verður Landsmót hagyrðinga haldið á Hólmavík: "Þetta er nokkurs konar árleg árshátíð þeirra sem unna kveðskap og vísnagerð og allir sem áhuga hafa eru velkomnir, þarna verður gríðarleg lambakjötsveisla og skemmtiatriði, fyrir utan auðvitað alla fremstu hagyrðinga landsins sem fara á kostum. Búist er við um það bil 100 aðkomumönnum og öðru eins af heimafólki, u.þ.b. 60 hafa pantað nú þegar." Skráning á Landsmótið fer fram í tölvupóstinum saudfjarsetur@strandir.is og þar eru veittar nánari upplýsingar.

Daginn eftir, sunnudaginn 27. ágúst, verður síðan haldið árlegt meistaramót í hrútaþukli og dómum á Sauðfjársetrinu í Sævangi. "Það er mikil skemmtun þar sem bændafólk af öllu landinu hittist og á góðan dag. Við ætlum að hafa matarmikla kjötsúpu á boðstólum í Sævangi til viðbótar við hefðbundið kaffihlaðborð og svo verður auðvitað sýningin og handverksbúðin opin og líklegt að farið verði í leiki á vellinum að venju. Jón Viðar Jónmundsson verður yfirdómari að venju, en í fyrra mættu um það bil 300 manns á mótið," segir Jón.

 

Íslenski safnadagurinn í dag   
9. júlí 2006

Íslenski safnadagurinn er í dag, sunnudaginn 9. júlí. Af því tilefni hefur Sauðfjársetur á Ströndum ákveðið að ókeypis verður inn á sögusýninguna Sauðfé í sögu þjóðar í Sævangi í dag og auk þess verður þeim sem koma færandi hendi með muni eða myndir fyrir safnið boðið upp á kaffidreitil og kökubita. Mikið var um að vera á Sauðfjársetrinu í gær þar sem Héraðsmót HSS í frjálsum íþróttum stóð yfir á Sævangsvelli.

 

Sauðfjársetrið sækir í sig veðrið   
7. júlí

Fremur dræm aðsókn var að Sauðfjársetri á Ströndum í júní að sögn Jóns Jónssonar talsmanns setursins: "Þeir dagar þar sem eitthvað hefur verið um að vera standa upp úr. Yfir 200 manns komu á Furðuleikana og einnig var ágæt mæting á spurningakeppnina okkar á Hamingjudögum á Hólmavík og svo á þjóðhátíðarkaffið 17. júní. Annars virðist okkar helsti markhópur ennþá vera lítið á ferðinni, íslenskt fjölskyldufólk og bændafólk. Það kemur vonandi seinni partinn í júlí og ágúst."

Framundan eru skemmtanir á Sævangi og tvö íþróttamót eru þar í næstu viku, Héraðsmót HSS á laugardaginn og Barnamót í vikunni á eftir. "Síðan erum við að ræða hvort við höldum Sumarhátíð, okkar árlegu kraftakeppni, og svo Dráttarvéladag og Bændahátíð þetta árið. Það fer eftir því hvernig gengur að fá fólk í undirbúninginn. Hins vegar er ákveðið að helgin 26.-27. ágúst verður ein af stóru helgunum hér á Ströndum. Þá verður Landsmót hagyrðinga á Hólmavík laugardaginn 26. ágúst og hefst kl. 20:00 og daginn eftir verður Meistaramót í hrútadómum og hrútaþukli á Sævangi frá 14-18."

Jón segir að sennilega séu margþættar skýringar á því hversu lítil lausatraffík Íslendinga er ennþá: "Auðvitað hefur HM í fótbolta einhver áhrif, en það er of einfalt að kenna því ágæta móti alfarið um. Ég er hræddur um að þetta sumar verði alls ekki gott ferðasumar þegar upp verður staðið. Veðrið hefur ekki verið hagstætt, ég held t.d. að úrkoman hér í júní hafi verið tvöföld meðalúrkoma í þeim mánuði. Og það rignir ennþá þessa vikuna og spáir áfram komandi helgi. Við Strandamenn og Vestfirðingar verðum líka að átta okkur á að það eru ekki Vesturland og Norðurland vestra sem eru okkar helstu samkeppnisaðilar um þennan markað, heldur Norðurlöndin, Spánn og Ítalía. Bensínverð og verðbólga dregur líka úr ferðahug hjá hópi sem er mjög mikilvægur fyrir okkur. Það dregur hins vegar úr niðursveiflunni að sífellt fleiri útlendingar ferðast á eigin vegum, á bílaleigubílum, og skipuleggja ferðirnar sínar sjálfir. Við Strandamenn og Vestfirðingar njótum góðs af því," segir Jón.

Sauðfjársetrið er opið 10-18 alla daga. Bæði er kaffistofa og sjoppa á staðnum, sögusýningin Sauðfé í sögu þjóðar og lítil minjagripaverslun. Heimalningarnir Snoppa og Sprettur sem eru komnir af forystufé halda sig í grennd við sýninguna og hægt er að taka þátt í að gefa þeim mjólk úr pela.

 

Furðuleikar á Ströndum í dag   
2. júlí

Dagskrá Hamingjudaga á Hólmavík heldur áfram af fullum krafti í dag eftir góðan dag í gær. Furðuleikarnir í Sævangi verða haldnir á eftir og hefjast klukkan tvö. Þar er keppt í margvíslegum furðugreinum og fá allir sem áhuga hafa að vera með, ungir sem aldnir. Til dæmis er keppt í öskri, belgjahoppi, kvennahlaupi (þar sem karlarnir hlaupa með konur sínar), skítkasti, ruslatínslu og fleiru. Hinn sívinsæli trjónufótbolti er meðal sýningargreina og kaffihlaðborð verður á boðstólum í kaffistofunni. Frítt er inn á svæðið en selt á kaffihlaðborðið og sögusýninguna.

 

Strandamenn unnu spurningakeppnina   
1. júlí 2006

Sauðfjársetur á Ströndum stóð fyrir spurningakeppni milli héraða við upphaf Hamingjudaga á Hólmavík. Þar mættu vaskar sveitir Borgfirðinga, Húnvetninga, Dalamanna og Strandamanna og kepptu sín á milli í skemmtilegum spurningaleik að viðstöddum fjölda áhorfenda. Fór svo að lokum að Strandamenn sigruðu Borgfirðinga í úrslitakeppni 19-16. Keppnislið Húnvetninga tróð upp í hléi með söngatriði sem gestir höfðu afar gaman af.

Allar keppnirnar voru spennandi og góð stemmning bæði hjá keppendum og áhorfendum sem voru um 70-80. Fékk keppnin nokkra samkeppni frá indælu sumarveðri sem var sama kvöld og gripu margir heimamenn tækifærið til að skreyta hús sín. Það var Sauðfjársetur á Ströndum sem stóð fyrir keppninni og umsjónarmaður með henni, spurningahöfundur og spyrill var Arnar S. Jónsson frá Steinadal. Í sigurliði Strandamanna voru Kristján Sigurðsson á Hólmavík, Þorvaldur Hermannsson á Ósi og Jón Jónsson á Kirkjubóli.

 

Spurningakeppni héraða á Hólmavík   
26. júní 2006

Sauðfjársetur á Ströndum stendur fyrir stórskemmtilegri spurningakeppni milli fjögurra nágrannahéraða fimmtudaginn 29. júní í Félagsheimilinu á Hólmavík. Keppnin hefst kl. 20:00 stundvíslega. Keppnin er sú fyrsta sinnar tegundar á Ströndum, en undanfarin ár hafa heimamenn keppt sín á milli við góðar undirtektir. Keppnin markar einnig upphaf bæjarhátíðarinnar Hamingjudaga á Hólmavík ásamt fleiri atburðum á fimmtudeginum. Liðin sem taka þátt eru: Strandamenn sem ætla sér væntanlega stóra hluti á heimavelli, Dalabúar sem mæta með frækið lið vaskra manna, Húnvetningar renna með gáfurnar norður á Strandir og Borgfirðingar úr UMSB mæta með ungmennafélags- og baráttuanda í brjósti.

Spyrill og höfundur spurninga er Arnar S. Jónsson frá Steinadal, en hann hefur getið sér gott orð fyrir slíkt hlutverk í fyrri keppnum á Ströndum. Arnar lofar léttri, skemmtilegri og áhorfendavænni keppni sem mun þó reyna örlítið á þrautreynda huga keppendanna. Dregið verður í viðureignir á staðnum og sigurlið keppninnar fær vegleg verðlaun. Líklegt er að tapliðin fái að taka eitthvað með sér heim líka. Aðgangseyrir að spurningakeppninni er kr. 1.500 fyrir sextán ára og eldri og er kaffi og kökudiskur þar innifalinn.

 

Kaffihlaðborð í Sævangi   
10. júní

Sauðfjársetur á Ströndum í Sævangi verður með kaffihlaðborð í tilefni af sjómannadeginum á morgun kl. 14:00-18:00 og eins verður þar á boðstólum þjóðhátíðarkaffi þann 17. júní á sama tíma. Ekki er við öðru að búast en að borðin svigni undan tertum og kaffibrauði á þessu fyrsta hlaðborði sumarsins.

 

Húnvetnskar konur á Ströndum   
3. júní 2006

Um fjörutíu konur úr Húnavatnssýslu heimsóttu Strandir í dag í orlofsferð húsmæðra og fengu blíðskaparveður. Ferðin hófst með heimsókn á Sauðfjársetrið í Sævangi þar sem drukkið var kaffi og sögusýningin skoðuð og þaðan lá leiðin á Galdrasafnið á Hólmavík áður en farið var í siglingu með Sundhana á Drangsnesi og þaðan í Kotbýli kuklarans í Bjarnarfirði. Það var létt yfir hópnum á Sauðfjársetrinu í hádeginu. Konurnar eru líklega í kvöldverði á Hótel Laugarhóli þegar þetta er ritað, áður en þær halda aftur heim í Húnaþing.

 

Bændafundir á föstudag   
1. júní 2006

Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga og Sláturshús Kaupfélags Vestur-Húnvetninga (KVH) hafa boðað til kynningarfunda á morgun föstudag á Ströndum. Fyrst verður fundað á Borðeyri í Hrútafirði kl. 12:00 og síðan í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð kl. 15:30. Á fundinum verða rædd og kynnt málefni afurðastöðvanna og undirbúningur fyrir komandi sláturtíð. Kjötafurðastöð KS rekur eitt stærsta og best búna sauðfjársláturhús landsins og Sláturhús og kjötvinnsla KVH á Hvammstanga hefur fengið alþjóðlega vottun Vottunarstofunnar Túns til vinnslu á lífrænum hráefnum. Allir eru velkomnir á fundina.

 

Uppsetning sýningar í Sævangi   
28. maí 2006

Í dag er mikið um að vera að venju á Ströndum, bændur á kafi í sauðburði og Hólmvíkingar ætla að sameinast um að hreinsa þorpið í dag og hefst sú vinna undir stjórn hverfisstjóra kl. 13. Síðan verður sameiginleg grillveisla við skólann kl. 18. Sauðfjársetursmenn ætla að setja upp sögusýninguna sína í Sævangi í dag og hefjast þær framkvæmdir kl. 14:00 eða þegar Formúlukeppni nokkurri í Mónakó lýkur. Sjálfboðaliðar á öllum aldri til að leggja hönd á plóg í Sævangi eru vel þegnir og er kaffi og vöfflum lofað öllum þeim sem reka inn nefið. 

Rekstur Sauðfjársetursins í Sævangi verður með hefðbundnu sniði í sumar, en nýlega var gengið endanlega frá leigu hússins undir starfsemina í sumar og uppgjöri fyrir leiguna fyrir fyrri ár. Af atburðum ber hæst Furðuleikana 2006 sem verða 2. júlí og Meistaramótið í hrútadómum sem verður 27. ágúst þetta árið. Von er á fyrsta hópnum í heimsókn á Sauðfjársetrið þann 3. júní, en opnað verður þann 1. júní að venju.

 

Vorhreingerning hjá Sauðfjársetrinu   
20. apríl 2006

Aðstandendur Sauðfjárseturs á Ströndum ætla að taka til hendinni í vor og gera allsherjar hreingerningu á heljarstórri lóð Sauðhússins á Skeiði 3 á Hólmavík. Töluvert er þar af safngripum á vegum setursins sjálfs, en einnig nokkuð af torkennilegum hlutum á annarra vegum. Vegna þessa biðja Sauðfjársetursmenn þá aðila sem eiga eitthvert góss eða verðmæti á lóðinni að fjarlægja þau fyrir næstu mánaðarmót eða að minnsta kosti að ræða málin við Jón Jónsson forstöðumann Sauðfjársetursins. Það sem út af stendur verður væntanlega flutt á haugana eftir 1. maí næstkomandi.

 

Sauðburður hafinn á Ströndum   
7. apríl 2006

Sauðburður er hafinn á Ströndum, en ær hjá bændunum í Bæ í Árneshreppi bar óvænt tveim lömbum þann 5. apríl. Frá þessu segir á fréttavefnum www.litlihjalli.it.is sem er fréttasíða Jóns G. Guðjónssonar í Litlu-Ávík í Trékyllisvík. Bændur í Bæ eru þau Gunnar Dalkvist og Pálína Hjaltadóttir. Ærin gekk í haust í Veyðileysu og hefur fengið um það leyti sem bændur náðu í fé þangað í haust. Hefðbundin sauðburður hefst um tíunda maí í Árneshreppi og víðar á Ströndum.

 

Spurningakeppni við upphaf Hamingjudaga   
3. apríl 2006

Sauðfjársetur á Ströndum hefur ákveðið að efna til spurningakeppni við upphaf Hamingjudaga á Hólmavík í sumar og verður keppnin haldin fimmtudagskvöldið 29. júní. Ætlunin er að þar keppi 4 lið og verður eitt lið sem skipað verður Strandamönnum í þeim hópi. Ætlunin er síðan að skora á þrjár aðrar sýslur eða sveitarfélög í nágrenninu að senda lið til að berjast við spurningaglaða Strandamenn. Sauðfjársetrið stefnir að átaki í kynningarmálum og eflingu á starfsemi sinni á næstu vikum og mun taka virkan þátt í stórsýningunni Perlan Vestfirðir sem haldin verður dagana 5.-7. maí í sumar ásamt öðrum ferðaþjónustuaðilum á Ströndum.

Hamingjudagarnir verða haldnir 29. júní - 2. júlí í sumar og verður þar mikið um dýrðir.

 

Hólmadrangur hampaði Viskubikarnum   
28. mars 2006

Á sunnudaginn fylgdust Strandamenn með æsispennandi lokabaráttu í Spurningakeppni Strandamanna 2006. Stóð baráttan milli þeirra fjögurra liða sem eftir stóðu eftir 12 liða keppni sem hófst í febrúar. Keppnirnar voru allar hnífjafnar og réðust úrslit í þeim öllum í síðustu spurningum. Í fyrri umferð sigruðu Strandamenn í Kennaraháskóla Íslands lið kennara við Grunnskólann á Hólmavík og starfsmenn Hólmdrangs sigruðu Leikfélag Hólmavíkur. Báðum viðureignunum lauk með eins stigs mun. Í úrslitaviðureigninni sigraði svo Hólmadrangur Strandamenn í KHÍ 17-14, en úrslitin réðust í síðustu spurningu. Fyrir utan heiðurinn hlutu þeir Viskubikarinn að launum til varðveislu í eitt ár og vegleg bókaverðlaun ásamt páskaeggi.

Umsjónarmenn spurningakeppninnar í ár voru þau Jón Jónsson spyrill, Ester Sigfúsdóttir, Kristján Sigurðsson og Matthías Lýðsson, auk þess sem fjölskyldur þeirra og Svanhildar Jónsdóttur komu að undirbúningnum. Í lok keppninnar var tilkynnt að Arnar Snæberg Jónsson hefði tekið að sér hlutverk spyrils á næsta ári.

 

Ljóst hverjir keppa til úrslita   
13. mars 2006

Nú er orðið ljóst hverjir keppa til úrslita í Spurningakeppni Strandamanna á lokakvöldinu sem fram fer sunnudaginn 26. mars næstkomandi. Það eru lið Hólmadrangs, Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík, Leikfélag Hólmavíkur og Strandamenn í Kennaraháskólanum sem tryggðu sér þátttöku á úrslitakvöldinu í feykilega spennandi spurningakeppni sem fram fór í gær í Félagsheimilinu á Hólmavík.

Mjótt var á munum í öllum keppnum kvöldsins og úrslitin réðust ekki fyrr en í vísbendingaspurningunum tveim í lokin í öllum keppnunum. Reyndar í sjálfri lokaspurningunni í tveimur keppnum af þremur. Hólmadrangur lagði lið Strandamanna í Kennaraháskólanum í fyrstu keppni kvöldsins með 20 stigum gegn 17. Úrslitin réðust þar með þriggja stiga svari við vísbendingaspurningu í lokin. Niðurstaðan varð þó að lokum sú að bæði lið komust áfram í 4-liða úrslitin, því Kennaranemarnir voru stigahæsta tapliðið í keppnum kvöldsins og komust áfram á því.

Önnur keppni kvöldsins var ekki síður spennandi á milli Sparisjóðs Strandamanna og Leikfélags Hólmavíkur. Þar réðust úrslitin einnig með þriggja stiga svari við vísbendingarspurningu sem var næstsíðasta spurning kvöldsins. Stigaskorið var 19-15 fyrir Leikfélaginu að lokum. Í þriðju keppni kvöldsins lögðu Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík síðan lið Kaupfélags Steingrímsfjarðar með 12 stigum gegn 10 þar sem úrslitin réðust ekki heldur fyrr en í lokaspurningu. Þorbjörg Matthíasdóttir í Húsavík spilaði á þverflautu fyrir gesti eftir hléið, en það hefur verið venja í vetur að hafa tónlistaratriði á spurningakeppninni þar sem nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík koma fram.

Í lok kvöldsins var dregið fyrir úrslitakvöldið og var niðurstaðan sú að Strandamenn í Kennaraháskólanum mæta Kennurum við Grunnskólann á Hólmavík. Hólmadrangur mætir hins vegar Leikfélagi Hólmavíkur og sigurliðin úr þessum viðureignum keppa síðan til úrslita sama kvöld.

 

Mikil spenna í spurningakeppninni   
2. mars 2006

Síðastliðinn sunnudag fóru fram þrjár viðureignir í fyrstu umferð Spurningakeppni Sauðfjársetursins 2006. Þar mættu Strandamenn í Kennaraháskólanum liði nemenda við Grunnskólann á Hólmavík í fyrstu umferð og fóru leikar þannig að kennaranemarnir unnu 21-10. Önnur keppni kvöldsins var sú jafnasta í keppninni til þessa. Þar mættust lið Leikfélags Hólmavíkur og kennarar við Grunnskólann á Drangsnesi og var jafnt að lokum 20-20. Kom til bráðabana í keppninni þar sem Leikfélagið svaraði spurningunni rétt. Þriðja keppnin var milli Félagsmiðstöðvarinnar Ozon og kennara í Grunnskólanum á Hólmavík þar sem kennarar sigruðu 19-10.

Í lok kvöldsins var dregið í sex liða úrslitum sem fram fara þann 12. mars í Félagsheimilinu á Hólmavík. Þau lið sem mætast þar eru:

Strandamenn í Kennaraháskólanum - Hólmadrangur
Leikfélag Hólmavíkur - Sparisjóður Strandamanna
Kaupfélag Steingrímsfjarðar - Kennarar Grunnskólanum á Hólmavík

Búast má við jöfnum og spennandi keppnum þar sem sigurliðin þrjú komast áfram á úrslitakvöldið, ásamt því tapliði sem verður stigahæst.

 

Spennandi spurningakeppni   
14. feb. 2006

Viðureignir í Spurningakeppni Strandamanna á Hólmavík um helgina voru bæði jafnar og spennandi. Það voru Sparisjóður Strandamanna, Kaupfélag Steingrímsfjarðar og Hólmadrangur sem tryggðu sér sæti í 6 liða úrslitunum í keppnum kvöldsins sem allar voru jafnar og spennandi. Jón Jónsson var spyrill á keppninni og naut dyggrar aðstoðar frá Kristjáni Sigurðssyni sem var tæknimaður, tímavörður og yfirdómari, Ester Sigfúsdóttur sem var stigavörður og Matthíasi Lýðssyni sem var yfirsetumaður. Í hléi tróðu Vilhjálmur Jakob og Agnes Jónsdóttir upp og sungu þrjú lög.

Fyrsta keppni kvöldsins var á milli Félags eldri borgara og Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík. Fyrir fyrra liðið kepptu Guðfinnur Finnbogason, Maríus Kárason og Áskell Benediktsson, en fyrir KSH kepptu Ragnheiður Ingimundardóttir, Sigurður Vilhjálmsson og Bryndís Sveinsdóttir. Keppnin var mjög jöfn og spennandi og úrslit réðust ekki fyrr en í síðustu vísbendingaspurningu. Staðan í leikslok var 15-14 fyrir KSH.

Í annarri keppni kvöldsins var ekki minni spenna og aftur réðust úrslitin í síðustu vísbendingaspurningu. Þar bar lið Sparisjóðs Strandamanna, sem var skipað þeim Guðmundi B. Magnússyni, Svanhildi Jónsdóttur og Þorbjörgu Stefánsdóttur, sigurorð af liði Skrifstofu Hólmavíkurhrepps sem var skipað Ásdísi Leifsdóttur, Salbjörgu Engilsbertsdóttur og Láru Jónsdóttur. Leikar fóru 15-16 fyrir Sparisjóðinn, en fyrir þessa keppni töldu margir að lið Skrifstofu Hólmavíkurhrepps væri í hópi þeirra liða sem væru líklegust til að standa uppi sem sigurvegarar í keppninni þetta árið.

Lokakeppnin varð ekki síður spennandi, en í henni sigraði lið Hólmadrangs lið Strandahesta 22-17. Úrslitin réðust þó ekki fyrr en í vísbendingaspurningum og bæði lið sýndu góðan árangur, sérstaklega í hraðaspurningum sem þau komust mun lengra í en önnur lið sem kepptu um kvöldið. Í liði Hólmadrangs kepptu Pétur Matthíasson, Björn Hjálmarsson og Þröstur Áskelsson, en fyrir lið Strandahesta kepptu Jón Örn Haraldsson, Victor Örn Victorsson og Haraldur V.A. Jónsson.

Næsta keppniskvöld fer fram eftir hálfan mánuð, sunnudaginn 26. febrúar og hefst kl. 20:00.

 

Spurningakeppnin hefst á sunnudag   
7. feb. 2006

Nú fyrir skemmstu var dregið í fyrstu umferð í Spurningakeppni Strandamanna árið 2006, sem Sauðfjársetur á Ströndum stendur fyrir. Tólf lið skráðu sig til leiks að þessu sinni og verður fyrsta umferðin háð nú á sunnudaginn 12. febrúar í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefst keppnin kl. 20:00. Þrjár viðureignir fara fram á sunnudaginn, en hinar þrjár keppnirnar í fyrstu umferð fara fram sunnudaginn 26. febrúar. Sigurliðin í þessum viðureignum komast áfram í keppninni.

Viðureignir sunnudaginn 12. febrúar:

Kaupfélag Steingrímsfjarðar - Félag eldri borgara
Sparisjóður Strandamanna - Skrifstofa Hólmavíkurhrepps
Strandahestar - Hólmadrangur

Viðureignir sunnudaginn 26. febrúar:

Strandamenn í KHÍ - Nemendur Hólmavíkurskóla
Leikfélag Hólmavíkur - Grunnskólinn Drangsnesi
Félagsmiðstöðin Ozon - Kennarar Hólmavíkurskóla

 

Sameining Búnaðarsambanda?   
30. jan. 2006

Nú eru hafnar viðræður milli stjórna búnaðarsambandanna við Húnaflóa þ.e. Búnaðarsambands A.-Hún., V.-Hún. og Strandamanna hvort skynsamlegt geti verið að sameina þessi búnaðarsambönd, en ályktun um slíka skoðun var samþykkt í fyrra á aðalfundum sambandanna í V.-Hún. og á Ströndum. Frá árinu 2002 hafa þessi þrjú búnaðarsambönd rekið sameiginlega leiðbeiningaþjónustu undir merkjum “Ráðunautaþjónustu Húnaþings og Stranda” og hefur sú samvinna gengið vel.

Nú finnst mönnum tímabært að skoða hvort sameining Búnaðarsambandanna sé rökrétt og vænlegt skref í þróuninni. Helst er þá horft til þess að einfalda “stoðkerfið” eins og bændur hafa lagt ríka áherslu á á undanförnum árum og samhliða því að ná fram ákveðinni hagræðingu í rekstri, en jafnframt aukinni skilvirkni með stofnun slíkra heildarsamtaka.

Stefnt er að því að vinna málið nokuð hratt og ljúka viðræðum í febrúar-mars þannig að hægt sé að leggja tillögur um sameiningu fyrir aðalfundi búnaðarsambandanna í vor ef niðurstöður viðræðna leiða í ljós að þessi sameining geti verið vænlegur kostur.

 

Skráning í Spurningakeppnina   
29. jan. 2006

Nú líður að Spurningakeppni Strandamanna og er óskað eftir skráningum frá félögum og vinnustöðum í netfangið saudfjarsetur@strandir.is. Nú þegar hafa 6 lið skráð sig til leiks og vonast er til að þau verði orðin 16 á miðvikudaginn þegar lokað verður fyrir skráningu, en ætlunin er að draga í keppninni á fimmtudaginn. Jón Jónsson á Kirkjubóli stjórnar keppninni og verður spyrill að þessu sinni og hann semur einnig spurningarnar með Kristjáni Sigurðssyni á Hólmavík. Hópur aðstoðarmanna á ýmsum aldri kemur einnig að spurningagerðinni. Keppnin verður með hefðbundnu sniði, en þó verður forminu breytt þannig að hver keppni taki styttri tíma en áður og miðað við að skemmtunin í heild fari ekki yfir tvo og hálfan tíma með hléi hvert keppniskvöld.

 

Spurningakeppni Sauðfjársetursins   
8. jan. 2006

Undirbúningur er nú hafinn fyrir árlega Spurningakeppni Sauðfjársetursins en eins og síðustu ár verður keppnin haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík. Stefnt er á sunnudagskvöldin 12. og 26. febrúar fyrir fyrstu kvöldin. Byrjað er að semja spurningarnar og sjá Jón Jónsson á Kirkjubóli og Kristján Sigurðsson á Hólmavík um það vandasama verk að þessu sinni og hafa heilan her af aðstoðarmönnum á ýmsum aldri. Arnar S. Jónsson hefur verið ráðinn gæðaeftirlitsmaður. Spurningakeppnin hefur verið mjög vel sótt undanfarin ár og sett svip á mannlífið á Ströndum. Tekið er á móti skráningum liða í netfangið saudfjarsetur@strandir.is, en í hverju liði eru þrír einstaklingar sem keppa fyrir fyrirtæki eða félög.

Liðin hafa hingað til komið úr flestum hlutum sýslunnar og jafnvel utan hennar. Arnar S. Jónsson hafði umsjón með keppninni fyrstu tvö árin og Kristín S. Einarsdóttir í fyrra. Sigurvegarar í keppninni til þessa eru:

2003: Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík
2004: Strandagaldur
2005: Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík

FRÉTTIR árið 2005
- Til baka í fréttasafn -

Bændahátíð aflýst
19. nóv. 2005

Bændahátíð sem átti að vera í Sævangi í kvöld hefur verið aflýst vegna ónógrar þátttöku. "Skráningin byrjaði ágætlega, en svo kom nánast ekkert í viðbót seinni part vikunnar og frekar að menn heltust úr lestinni," segir Jón Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins. "Okkur finnst leiðinlegt að aflýsa vegna þeirra sem þó ætluðu að mæta. En við mætum bara tvíefldir til leiks á næsta ári og þá á öðrum tíma og reynum líklega jafnframt að víkka út markhópinn sem höfðað er til með Bændahátíðinni. Fólki hefur fækkað umtalsvert hér í sveitunum og menn hafa heldur ekkert yngst síðustu árin. Aðstæður hafa þannig breyst töluvert á þessum fimm árum sem liðin eru frá því við endurvöktum hátíðina og við verðum bara að vinna í samræmi við það."


Skráning á Bændahátíð byrjar vel
17. nóv. 2005

Skráning á Bændahátíð Sauðfjársetursins á laugardaginn hefur farið ágætlega af stað og sama á við um undirbúninginn sem gengur að óskum. Það stefnir því í ljómandi góða veislu og uppskeruhátíð í Sævangi á laugardaginn. Að venju er eitt atriðið ræðumaður kvöldsins og að þessu sinni verður þar á ferðinni Sigurður Sigurðarson dýralæknir. Víst má telja að Sigurður láti ekki nægja að segja gamansögur, því hann er einnig landsþekktur hagyrðingur og kveður rímur nærri manna best. Allir sem áhuga hafa eru velkomnir á bændahátíðina, jafnt þeir sem búa í sveitinni og þéttbýlinu. Fólk er vinsamlegast beðið að skrá þátttöku í síma 451-3474 (Ester) eða með tölvupósti saudfjarsetur@strandir.is.

 
Stífar æfingar fyrir Bændahátíð

16. nóv. 2005

Samvalinn hópur úr Leikfélagi Hólmavíkur æfir nú stíft skemmtidagskrá fyrir Bændahátíð á Ströndum sem haldin verður nú á laugardaginn. Prógrammið er að mestu sett saman af systkinunum Jóni og Svanhildi Jónsbörnum frá Steinadal og er skotið þéttingsfast í allar áttir að venju. Heyrst hefur að meðal annars verði litið inn á miðilsfund á Ströndum í skemmtiatriðunum miðjum þar sem yfirnáttúrulegir atburðir gerast og einnig verði litið á piparsveinasamkeppni á Ströndum sam haldin er í anda raunveruleikaþátta sem nú eru mjög vinsælir í sjónvarpi.

 
Bændahátíð næstu helgi

14. nóv. 2005

Sauðfjársetur á Ströndum hefur nú blásið til árlegrar Bændahátíðar setursins um næstu helgi, en henni var frestað á dögunum vegna ótryggs veðurútlits. Skemmtunin verður haldin í Sævangi laugardagskvöldið 19. nóvember í blíðskaparveðri og hefst kl. 20:00. Á bændahátíð verður að venju margt til skemmtunar, þaulæfð og fjölbreytt skemmtiatriði, ræðumaður sem kemur á óvart, dýrindis grilluð lambasteik og dansiball á eftir þar sem Gunnlaugur Bjarnason og Sigríður Óladóttir spila og syngja. Skráning á hátíðina fer fram í síma 451-3474 (Ester á Kirkjubóli) og á saudfjarsetur@strandir.is.

 
Lifandi landbúnaður - fundur í Sævangi

10. nóv. 2005

Verkefnið Lifandi landbúnaður og Bændasamtök Íslands standa fyrir fundaherferð næstu vikurnar. Í Sævangi verður hádegisverðarfundur með súpu og brauði þann 16. nóvember kl. 12:00 og verður þar m.a. gerð grein fyrir grasrótarhreyfingunni Lifandi landbúnaður, fjallað um verkefnið Byggjum brýr og rætt um nýsköpun, hugmyndabanka og tengslanet og margt fleira. Gert er ráð fyrir að hver fundur taki einn og hálfan tíma með umræðum og erindum frá Ragnhildi Sigurðardóttir verkefnisstjóra Lifandi landbúnaðar og Árna Jósteinssyni verkefnisstjóra Sóknarfæra til sveita.

 
Bændahátíðin verður 29. október

21. okt. 2005

Árleg Bændahátíð Sauðfjárseturs á Ströndum verður haldin laugardaginn 29. október næstkomandi (um næstu helgi) í félagsheimilinu Sævangi, ef ekkert óvænt kemur upp á. Allir Standamenn, nágrannar þeirra og vildarvinir eru velkomnir á hátíðina, en skrá þarf þátttöku fyrirfram í síma 451-3474 (Ester). Dagskrá á Bændahátíðinni verður með hefðbundnu sniði, menn snæða lambasteik, hlusta á ræðumann kvöldins, horfa á skemmtiatriði og síðan er dansiball á eftir. Gert hefur verið heiðursmannasamkomulag við veðurguðina um að vera til friðs um helgina þannig að menn komist úr öllum nálægum sveitum á hátíðina.

 
Skólaheimsókn á Sauðfjársetrið

12. okt. 2005

Sauðfjársetrið í Sævangi fékk góða gesti í heimsókn í morgun. Þar voru á ferðinni 18 krakkar í 3.-5. bekk í Grunnskólanum á Hólmavík ásamt kennurum sínum - Ástu Þórisdóttir og Hrafnhildi Þorsteinsdóttir. Jón Jónsson þjóðfræðingur leiddi hópinn um safnið og sagði frá hvernig ýmsir hlutir voru og eru notaðir. Í ljós kom að meirihluti hópsins átti kind, enda sýndu þau yfirgripsmikla þekkingu á efninu. Eftir skoðunarferðina borðaði hópurinn nestið sitt í kaffistofunni og fór að lokum út í leiki. Þessir krakkar eru síðasti hópurinn sem heimsækir Sauðfjársetrið í haust, en vegna nokkurra slíkra heimsókna í september og október hefur sýningin staðið lengur uppi en áður.

 
Leikfélagi Hólmavíkur boðið í kaffi

27. ágúst 2005

Sauðfjársetrið í Sævangi hefur ákveðið að bjóða félögum í Leikfélagi Hólmavíkur í kaffi, kleinur og snúða, í Sævangi á morgun, sunnudaginn 28. ágúst kl. 16:00. Allir virkir leikfélagar sem hafa tekið þátt í starfi félagsins síðustu árin eru hjartanlega velkomnir og líka þeir sem hafa áhuga á að vinna með félaginu í vetur. Ætlunin er að spjalla um hitt og þetta tengt Leikfélaginu og samstarfi þessara aðila, en ekki er um formlegan fund að ræða. Einnig er öllum þeim sem aðstoðað hafa Sauðfjársetrið við uppákomur og atburði eða troðið upp á atburðum á vegum safnsins boðið í kaffi á sama tíma á morgun. Þar sem ómögulegt er að láta alla vita af kaffiboðinu eru menn hvattir til að láta fagnaðarerindið spyrjast út.

 
Hrútaþuklið tókst frábærlega

21. ágúst 2005

Heimsmeistaramót í hrútaþukli var haldið á vegum Sauðfjársetursins í Sævangi í dag, þriðja árið í röð. Mikil aðsókn var að deginum en vel á þriðja hundrað manns skrifuðu sig í gestabók. Mætti fólk víðs vegar að af landinu á þessa árvissu skemmtun sem aldrei hefur tekist betur. Það var Björn Þormóður Björnsson bóndi og kjötmatsmaður á Ytra-Hóli í Húnavatnssýslu sem fór með sigur af hólmi í flokki vanra eftir harða baráttu og mikið þukl. Margvísleg verðlaun stóðu þeim til boða sem lentu í fyrstu sætunum, m.a. munir frá handverksfólki og ferðaþjónum, rækjur frá Hólmadrangi, gisting frá Ferðaþjónustu bænda og Heydal í Mjóafirði, 15 skammtar af hrútasæði frá Sæðingastöð Vesturlands og margt fleira.

Jón Viðar Jónmundsson stýrði dómnefndinni af alkunnri snilli, en hún metur fjóra hrúta með öllum nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan eiga keppendur að reyna sig við matið á hrútunum með hendurnar og hyggjuvitið að vopni og komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að númera hrútana frá einum og upp í fjóra og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu gefa hins vegar hrútunum stig fyrir einstaka þætti eins og t.d. bakbreidd, útlit og samræmi og fara þá eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja.

Strandamenn urðu að sjá á eftir aðalverðlaununum að þessu sinni, en áttu verðlaunahafa í báðum flokkum. Glæsilegur verðlaunagripur sem unnin var úr rekaviði og hvalbeini af handverksmanninum Valgeiri Benediktssyni í Árnesi var nú veittur í fyrsta skipti fyrir hrútameistaratignina, en hann var gefinn af Búnaðarsambandi Strandamanna til minningar um Brynjólf Sæmundsson búnaðarráðunaut á Ströndum.

Flokkur vanra hrútaþuklara:
1. sæti: Björn Þormóður Björnsson á Ytra-Hóli í Vindhælishreppi
2. sæti: Elvar Stefánsson í Bolungarvík
3. sæti: Guðbrandur Sverrisson á Bassastöðum í Kaldrananeshreppi á Ströndum, Gunnar Dalkvist á Bæ í Árneshreppi og Reynir Stefánsson í Hafnardal í Hólmavíkurhreppi.

Flokkur óvanra:
1. sæti: Rebekka Eiríksdóttir á Stað á Reykjanesi í Reykhólahreppi
2. sæti: Dagrún Magnúsdóttir á Laugalandi í Skjaldfannadal í Hólmavíkurhreppi
3. sæti: Victor Örn Victorsson, skólastjóri Grunnskólans á Hólmavík

Aðstandendur Sauðfjársetursins eru stóránægðir með uppákomuna, en Hrútadómarnir eru best sótti viðburðurinn á Sauðfjársetrinu í Sævangi sumarið 2005 og besti dagur frá upphafi í kaffistofu og á sögusýningunni.

 
Dráttarvéladagurinn gekk vel

7. ágúst 2005

Heilmikið fjör var á dráttarvéladegi og töðugjöldum í Sævangi í dag, þar sem á boðstólum var kaffihlaðborð, harmonikkuspil, fjölskyldufótbolti, leikir á vellinum og aksturskeppni. Alls tóku 16 keppendur þátt í akstursleikni á gamla Massey Ferguson sem átti að keyra í gegnum flókna þrautabraut með hliðum og keilum. Sigurvegarar í keppninni urðu Sævar Ólafsson kartöflubóndi á bænum Háf í Þykkvabænum á Suðurlandi og Svanhildur Jónsdóttir frá Steinadal í kvennaflokki. Stig allra keppenda eru birt hér að neðan ásamt fjölda mynda úr keppninni.

Endaði þrautin á að menn áttu að bakka með vagn að staur og gekk það misjafnt. Refsistig voru gefin fyrir minnstu mistök, eins og t.d. fyrir að drepa óvart á vélinni, bakka á staurinn, hitta ekki á planka, keyra á keilur, brautarstarfsmenn og drumba og eins ef spýtukallinn Ófeigur sem stóð í vagninum valt um koll. Refsistigin voru síðan lögð við aksturstímann í sekúndum og útkoman í því samanlögðu réði röð keppenda.

Úrslitin urðu sem hér segir: 

Karlaflokkur:
1. Sævar Óli Ólafsson
2. Guðbrandur Björnsson
3. Karl Þór Björnsson
4. Jón Vilhjálmsson
5. Jóhann *son
6. Hlynur Þorsteinsson
7. Jón Jónsson
8. Brynjar *son
9. Ívar *son
10. Guðmundur *son
11. Pétur *son
12 Victor Örn Victorsson
 
Kvennaflokkur:
1. Svanhildur Jónsdóttir
2. Ásdís Jónsdóttir
3. Guðrún *dóttir
4. Heiðdís Arna Ingvarsdóttir

 
Heimildasöfnun á dráttarvéladegi

6. ágúst 2005

Á morgun sunnudag verða haldin Töðugjöld og dráttarvéladagur á Sauðfjársetrinu í Sævangi og hefst skemmtunin kl. 14:00. Keppt er í akstursleikni á gamalli dráttarvél, veglegt kaffihlaðborð er á boðstólum, farið verður í leiki á vellinum og fleira til gamans gert. Í tilefni af hátíðisdeginum hefur Sauðfjársetrið nú hrundið af stað heilmikilli heimildasöfnun um vélvæðinguna á Ströndum og er ætlunin að nota afraksturinn á sýningu safnsins næsta sumar. Bæði er óskað eftir ljósmyndum að láni til að skanna og einnig margvíslegum upplýsingum og sögum sem tengjast dráttarvélabúskap Strandamanna og öðrum tækjum, hvenær vélar komu á bæi og fleira þess háttar. Síðar í haust verður síðan birtur spurningalisti til að forvitnast frekar um þessi efni, bæði hér á strandir.is og einnig sendur á sveitabæi.

 
Sauðfjársetur út um víðan völl

4. ágúst 2005

Sauðfjársetur á Ströndum verður til umfjöllunar í þættinum Út um víðan völl sem verður útvarpað á Rás 1 núna á laugardagmorguninn kl. 9:00. Þar er rætt við Jón Jónsson framkvæmdastjóra safnsins um starfsemi þess. Sigríður Ásgeirsdóttir fréttamaður hjá Svæðisútvarpinu á Ísafirði stýrir þættinum og í honum verður einnig spjallað við Guðbrand Baldursson í Vatnsfirði um lundaveiðar í Borgarey og Sigurð Pétursson um sögugöngur sem hann stendur fyrir á Ísafirði. Rétt er að nota þetta fréttefni til að minna á töðugjöldin og dráttarvéladaginn á Sauðfjársetrinu á sunnudaginn en bakstur fyrir kaffihlaðborðið þá stendur nú sem hæst.

 
Bogi og Örvar dafna vel

28. júlí 2005

Heimalningarnir tveir í Sævangi sem hafa hlotið nöfnin Bogi og Örvar eru sífellt þyrstir og jarma ógurlega þegar þá er farið að lengja eftir pelanum. Þeim er jafnan gefið upp úr kl. 10 á morgnana og síðan dálítið um kl .14:00 og 17:30. Þá geta þau börn sem stödd eru að Sauðfjársetrinu hverju sinni fengið að sjá um pelana og hafa jafnan mikið gaman af. Það er upplagt að fá sér fjölskyldubíltúr til að gefa lömbunum og ekki gleyma myndavélinni heima. Í morgun komu tvö börn sem höfðu dvalið með fjölskyldunni í góðu yfirlæti á Kirkjubóli um nóttina og fengu að gefa lömbunum. Mátti ekki á milli sjá hvor voru ánægðari, Bogi og Örvar sem dilluðu dindlunum hraðar en nokkru sinni fyrr eða börnin sem skríktu af kæti.

 
Heilmikið fjör á kraftakeppni

18. júlí 2005

Heilmikil kraftakeppni fór fram á Sumarhátíð Sauðfjársetursins í Sævangi síðstliðinn sunnudag. Þar drógu menn dráttarvélar, héldu á múrsteinum, báru vatnsbrúsa og köstuðu belgjum sem mest þeir máttu. Allmargir spreyttu sig á kraftaþrautunum og léku sér á vellinum í hinum fjölbreyttustu leikjum. Það voru þau Jón Bjarni Bragason frá Heydalsá og Laufey kona hans sem fóru með sigur af hólmi í kraftakeppninni að þessu sinni. Í karlaflokki voru Lýður Jónsson og Vignir Pálsson í öðru og þriðja sæti, en í kvennaflokki voru það mæðgurnar Agnes Jónsdóttir og Svanhildur Jónsdóttir.
 
Veður var skaplegt á sunnudaginn, hann hékk þurr og norðanáttin var hlýrri en venjulega. Keppendur voru alls 22, en fimm fyrstu sætin í hverri þraut gáfu stig í karla- og kvennaflokki. Gátu menn tekið þátt í þeim þrautum sem þeir treystu sér í, en þurftu ekki nauðsynlega að keppa í öllum. Sólin lét ekki sjá sig og áhorfendur hafa oft verið fleiri, margir hafa líklega látið vonda veðurspá gabba sig. Þeim sem mættu er kærlega þakkað fyrir skemmtunina.

 
Sumarhátíð í Sævangi

15. júlí 2005

Sumarhátíð Sauðfjársetursins í Sævangi verður haldin á sunnudaginn og hefst kl. 14:00. Að venju verður veglegt kaffihlaðborð á boðstólum og einnig verður farið í margvíslega leiki á vellinum. Þá er að venju haldin árleg kraftakeppni þar sem barist er um titilinn Sterkasti Strandamaðurinn. Sverrir bassi Guðbrandsson sem unnið hefur þann titil í karlaflokki síðan þessi keppni hófst fyrir þremur árum verður fjarri góðu gamni og því er kjörið tækifæri fyrir aðra að sýna kraftana og krækja í titilinn í ár. Svanhildur Jónsdóttir frá Steinadal hefur titil að verja í kvennaflokki.

 
Kaffihlaðborð í dag

10. júlí 2005

Í dag eins og aðra sunnudaga í sumar, er boðið upp á kaffihlaðborð í Sauðfjársetrinu í Sævangi. Meðal þess sem er á hlaðborðinu í dag má nefna rækjubrauðtertu, marenstertu með rjóma, kleinur, snúða, jólaköku, hjónabandssælu, ostaköku og kaldan brauðrétt. Hlaðborðið stendur frá tvö til sex í dag og er því kjörinn sunnudagsrúntur að skreppa í Sævang á kaffihlaðborð. Sýningin er að sjálfsögðu opin líka og tveir sísvangir heimalningar jarma fyrir utan.

 
Glímumenn og hagyrðingar

30. júní 2005

Allt er nú að verða tilbúið fyrir dagskráratriði dagsins á Hamingjudögum á Hólmavík sem verður þjófstartað nú á eftir. Glímukappar láta ljós sitt skína og slá upp glímumóti fyrir gesti og gangandi í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík kl. 17:00 í dag og í kvöld klukkan 20:00 munu svo hagyrðingar glíma við vísnagerðina í Félagsheimilinu á Hólmavík. Nú klukkan þrjú voru Sauðfjársetursmenn langt komnir við að stilla upp fyrir hagyrðingakvöldið með góðri hjálp Lýðs Jónssonar sem er allra manna duglegastur við að rétta fram hjálparhönd.

Hagyrðingar sem koma fram í kvöld eru Georg Jón Jónsson á Kjörseyri, Björn Guðjónsson í Bakkagerði, Stefán Gíslason frá Gröf í Bitru, Ása Ketilsdóttir á Laugalandi, Aðalsteinn Valdimarsson á Strandseljum og Helgi Björnsson á Snartastöðum.

 
Hagyrðingar á Hólmavík

28. júní 2005

Sauðfjársetur á Ströndum stendur fyrir Hagyrðingakvöldi sem verður haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík fimmtudaginn 30. júní 2005 og hefst kl. 20:00. Eftirtaldir hagyrðingar taka þátt í kvöldinu: Stefán Gíslason frá Gröf í Bitru, Georg Jón Jónsson á Kjörseyri, Björn Guðjónsson í Bakkagerði, Ása Ketilsdóttir á Laugalandi í Skjaldfannadal, Aðalsteinn Valdimarsson á Strandseljum við Djúp og Helgi Björnsson á Snartastöðum í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Aðgangur að hagyrðingakvöldinu er kr. 1.500.- fyrir fullorðna og kr. 700.- fyrir 16 ára og yngri. Kaffiveitingar í hléi eru innifaldar. Kvartett Munda Jó treður upp eftir hlé.

 
Jónsmessuganga

21. júní 2005

Sauðfjársetur á Ströndum hefur skipulagt Jónsmessugöngu næstkomandi föstudag og er ætlunin að göngumenn skoði sig þá dálítið um í Arnkötludalnum. Hugmyndin er að göngumenn mæti að Húsavík kl. 20:00 á föstudagskvöld og aki þaðan í einum hópi upp á Tröllatunguheiði. Þaðan verði svo gengið niður í Arnkötludalinn og skoðaðir ýmsir athyglisverðir staðir eins og t.d. Víghóll. Einnig verði litið við á gömlum bæjarstæðum og spekúlerað dálítið í væntanlegu vegstæði um dalinn. Gangan endi svo í grennd við Tröllatungu. Gönguferðin verður nánar kynnt þegar nær líður. Göngustjóri verður Matthías Lýðsson.

 
Fjör á Furðuleikum

 20. júní 2005

Heilmikið fjör var á Furðuleikum 2005 í Sævangi í gær, þótt veðrið hafi verið afbragðsvont sem hefur örugglega haft áhrif á mætinguna. 50-60 manns létu sjá sig og flestum keppnisgreinum sem halda átti úti var slegið á frest fram á sumarhátið. Þó létu þeir allra hörðustu sig hafa það að fara út til að læra og leika hinn æfaforna knattleik Hringlanda. Hins vegar var þeim mun meira um að vera inni og sannaðist að Strandamenn geta alveg eins verið furðulegir inni og úti. Öskurkeppni fór fram í anddyrinu og heilmikil Grettukeppni í kaffistofunni þar sem menn spiluðu líka og sungu. Þá var farið í heilmikinn Vísbendinga- eða ratleik inni á sögusýningunni og vakti hann mikla lukku.

 
Dagur hinna villtu blóma

19. júní 2005
 
Í dag er Dagur hinna villtu blóma og verður af því tilefni gönguferð frá Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík kl. 19:30 í kvöld upp í Borgir. Þar fá þeir sem mæta í ferðina leiðsögn um helstu blóm sem vaxa villt í Borgunum og er Matthías Lýðsson í Húsavík leiðsögumaður og jurtagreinandi. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram og ókeypis er í gönguna. Það eru Flóruvinir, Sauðfjársetur á Ströndum og Upplýsingamiðstöðin á Hólmavík sem standa fyrir atburðinum á Ströndum.

 
Furðuleikar á sunnudag

18. júní 2005

Á morgun, sunnudag, verða haldnir Furðuleikar 2005 á Sauðfjársetrinu í Sævangi og hefjast kl. 14:00. Jón Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins segist vonast til að töluvert af fólki mæti á svæðið. Félagar í Leikfélagi Hólmavíkur setja svip á hátíðina og vonandi mæta fleiri í viðeigandi búning. Gestir og gangandi keppa í alls konar furðugreinum. „Við ætlum í vísbendingaleik á safninu, keppum í trjónuhlaupi og fílafótbolta, öskrum og afturgöngum, svo eitthvað sé nefnt," sagði Jón í samtali við fréttaritara. „Svo er líka ætlunin fara í stórfiskaleik og keppa í girðingastaurakasti, auk þess sem við ætlum að kynna knattleikinn Hringlanda sem vísbendingar eru um að iðkaður hafi verið á Ströndum fyrr á öldum." Kaffihlaðborð verður í kaffistofunni Sævangi kl. 14-18 og allir eru velkomnir á Furðuleikana

 
Kaffihlaðborð á Sævangi í dag

12. júní 2005

Hefðbundið kaffihlaðborð á sunnudegi er á boðstólum á Sauðfjársetrinu í Sævangi í dag á milli kl. 14-18. Ætlunin er að vera með slík kaffihlaðborð á hverjum sunnudegi í sumar og einnig verður hlaðborð á þjóðhátíðardaginn 17. júní (föstudaginn í næstu viku). Undirbúningur fyrir Furðuleika á Ströndum 2005 sem verða sunnudaginn 19. júní er kominn vel af stað og hugmyndavinna um furðulegar keppnisgreinar í fullum gangi. Leikfélag Hólmavíkur tekur virkan þátt í Furðuleikunum í ár eins og í fyrra þegar fyrst var gerð tilraun með þessa einstöku keppni.

 
Kaffihlaðborð og fjölskyldubolti

4. júní 2005

Fyrsta kaffihlaðborð sumarsins og jafnframt sjómannadagskaffi verður haldið í Sauðfjársetrinu í Sævangi á morgun sunnudag og stendur frá 14-18. Einnig stefna Sauðfjársetursmenn að því að spila fjölskyldufótbolta kl. 16 og verður líklega spilað á eitt mark, til að ekki fari illa hjá æðarkollunni frú Kollfríði sem verpti á miðjum Sævangsvelli og er enn ekki búin að unga út. Fyrstu æðarungarnir fóru annars á flot í bæjarvíkinni á Kirkjubóli síðasta dag maímánaðar þetta árið og víða má sjá tjalds- og þrastarunga og fleira ungviði.  Allir sem áhuga hafa eru velkomnir til að taka þátt í fjölskylduboltanum þar sem eldri og yngri spila saman, foreldrar og börn, afar og ömmur.

 
Sögusýningin í Sævangi sett upp

28. maí 2005

Starfsmenn Sauðfjárseturs byrjuðu í dag að bisa við að setja upp sögusýninguna Sauðfé í sögu þjóðar, fyrir sumarvertíðina. Safnið í Sævangi opnar á miðvikudaginn í næstu viku, þann 1. júní, og þá þarf allt að vera fínpússað. Gera þarf sögusýninguna sjálfa klára, einnig að setja upp handverksbúðina og sjoppuna, laga til í kaffistofunni og fínisera barnahornið. Verkið gekk býsna greiðlega í dag, en þó er töluvert eftir. Á morgun kl. 14:00, að lokinni formúlukeppni nokkurri í Þýskalandi, ætla menn að halda áfram við uppsetninguna og láta hendur standa fram úr ermum fram eftir degi. Er mönnum velkomið að kíkja við og leggja hönd á plóginn og víst er að verkefnin eru næg. Vöfflur og kaffi eru á boðstólum fyrir alla sem reka inn nefið.

 
Sumarstarfið framundan

19. maí 2005

Sauðfjársetur á Ströndum opnar á hefðbundnum tíma þetta árið, þann 1. júní næstkomandi og verður opið í sumar á milli 10:00-18:00 alla daga. Ráðið hefur verið starfsfólk - Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, Hafdís Sturlaugsdóttir og Kristín S. Einarsdóttir.

 
Kennararnir unnu Spurningakeppnina

20. mars 2005
 
Kennarar við Grunnskólann á Hólmavík sigruðu Spurningakeppni Sauðfjársetursins þetta árið. Slógu þeir Hólmadrang út í undanúrslitum 24-23 og sigruðu síðan fréttaritara á strandir.is í úrslitaviðureign 27-20, en fréttamenn höfðu áður sigrað skrifstofu Hólmavíkurhrepps 32-23. Keppnirnar voru býsna spennandi og var sigur kennaranna verðskuldaður. Fengu þeir Viskubikarinn til varðveislu í eitt ár að launum, auk veglegrar bókagjafar frá Eddu útgáfu.

 
Átta liða úrslit

6. mars 2005
 
Átta liða úrslit í Spurningakeppni Strandamanna fóru fram í Félagsheimilinu á Hólmavík í kvöld. Það er Sauðfjársetur á Ströndum sem stendur fyrir keppninni sem nú er haldin þriðja árið í röð. Allar viðureignir keppninnar í gær voru stórskemmtilegar og liðin í miklu stuði sem og áhorfendur, en keppnin var ágætlega sótt. Það er augljóst að Strandamenn stíga í vitið svo um munar ef eitthvað er að marka gang keppnanna í gærkvöldi, en stigaskor var óvenju hátt í sumum þeirra. Fréttaritari strandir.is var á staðnum og smellti af myndum af keppendum og gestum og gangandi.

Í fyrstu keppni kvöldsins mættust lið strandir.is og Félagsmiðstöðvarinnar Ózon sem sló rækilega í gegn í fyrstu umferð keppninnar. Félagsmiðstöðvarfólk var án efa þjakað af þreytu eftir frækna för á Samfésball kvöldið áður, en eftir að hraðaspurningum lauk var staðan 17-13 strandir.is í vil. Eftir það hallaði allnokkuð undan fæti hjá Ózonliðum og lokatölur keppninnar urðu 31-15 strandir.is í hag.

Önnur keppni kvöldsins var á milli Strandahesta og Skrifstofu Hólmavíkurhrepps, en þessi lið eru þau einu sem hafa tekið þátt öll árin með óbreyttan mannskap. Reynslan gerði það að verkum að menn voru afslappaðir og skemmtilegir og tafðist keppnin allverulega við langt og mikið hláturskast liðanna við spurningu um postulann Pál, en flestir héldu þá að verið væri að tala um póstinn Pál sem er vissulega allt annar maður. Lokatölur keppninnar urðu þær að Skrifstofukonur unnu með 26 stigum gegn 19 Strandahesta, eftir að keppnin hafði verið í járnum lengst af.

Eftir hlé áttust við lið Bitrunga og Hólmadrangs. Liðin náðu háu skori úr hraða- og þemaspurningum, en eftir þær var staðan 20-20. Hólmadrangsmenn sigu síðan smám saman fram úr í bjölluspurningum en þó var enn von fyrir Bitrunga þegar kom að vísbendingaspurningum, en þá var aðeins þriggja stiga munur á liðunum. Hólmadrangsmenn stóðu sig hins vegar vel í vísbendingunum og lokatölur urðu 32-26 þeim í vil.

Síðasta keppni kvöldsins var á milli Sparisjóðs Strandamanna og kennara við Grunnskóla Hólmavíkur. Þessi keppni var jöfn nánast allan tímann og mikil barátta - Sparisjóðsmenn fylgdu sterku kennaraliði eftir sem skugginn. Lokatölur urðu á þann veg að kennararnir sigruðu með þriggja stiga mun; 27-24. Að keppnunum loknum var dregið í undanúrslit sem fara fram sunnudaginn 20. mars í Félagsheimilinu. Þar mætast eftirtalin lið:

strandir.is - Skrifstofa Hólmavíkurhrepps
Hólmadrangur - Kennarar Grunnskólanum Hólmavík

Sigurvegarar í þessum keppnum mætast svo síðasta kvöldið í úrslitakeppni.

 
Spurningakeppnin - kvöld II

20. febrúar 2005
 
Annað keppniskvöld í Spurningakeppni Strandamanna var haldið nú fyrr í kvöld. Átta lið öttu kappi og fjögur þeirra duttu út úr keppninni. Sigurliðin fjögur halda hins vegar áfram í átta liða úrslit sem fara fram sunnudaginn 6. mars. Liðin sem komust áfram í átta liða úrslit í kvöld voru lið Félagsmiðstöðvarinnar Ozon, Skrifstofa Hólmavíkurhrepps, strandir.is og lið kennara við Grunnskólann á Hólmavík. Dregið var í átta liða úrslitin í lok keppninnar. Í átta liða úrslitum mætast:

Hólmadrangur - Bitrungar
Strandahestar - Skrifstofa Hólmavíkurhrepps
strandir.is - Félagsmiðstöðin Ozon
Kennarar Grunnskólanum Hólmavík - Sparisjóður Strandamanna
 
Í fyrstu keppni kvöldsins áttust við lið Félagsmiðstöðvarinnar Ozon á Hólmavík og lið Fiskvinnslunnar Drangs á Drangsnesi. Keppnin var jöfn og spennandi allan tíman og bæði lið áttu góða möguleika á sigri fram í rauðan dauðann. Lið Ozon náði þó yfirhöndinni í vísbendingaspurningunum og vann sigur 19-16. Vösk framganga Úlfars Hjartarsonar frá Geirmundarstöðum í liði Fiskvinnslunnar Drangs vakti sérstaka athygli spekinga í salnum.
 
Í annarri keppni kvöldsins mættust lið Kvenfélagsins Iðunnar úr Hrútafirði og Skrifstofa Hólmavíkurhrepps. Var þetta fyrsta viðureignin í sögu keppninnar, að sögn Kristínar Einarsdóttur spyrils, þar sem bæði lið voru eingöngu skipuð konum. Skrifstofan hafði mikla yfirburði í keppninni og vann öruggan sigur að lokum, 26-9.
 
Þriðja keppni kvöldsins var á milli fréttavefjarins strandir.is og liðs nemenda í Grunnskólanum á Hólmavík. Bæði lið voru í afar góðu skapi og léku á alls oddi við hvert tækifæri. Lítil spenna var hins vegar í keppninni sjálfri, en hana vann strandir.is með 28 stigum gegn 12 nemendanna.
 
Fjórða og síðasta viðureignin var á milli liðs kennara við Grunnskólann á Hólmavík og Sjoppuliðsins. Sjoppuliðið var myndað á síðustu stundu til að bregðast við forföllum annars liðs og miðað við það stóð liðið sig með mikilli prýði. Þegar tíu bjölluspurningar af fimmtán voru búnar var staðan 16-14 fyrir kennarana, en eftir það tóku þeir sig aldeilis á og fengu nánast öll stigin sem eftir voru í boði, m.a. fullt hús úr vísbendingaspurningum eða 9 stig alls. Lokatölur voru því 29-14 kennurunum í vil, en Sjoppuliðið fékk mikið hrós fyrir einstaklega góðan húmor og hnyttin og óvænt svör við ýmsum spurningum.
 
Keppnin var mjög fjölsótt eins og venjulega og nánast hvert einasta sæti var skipað í Félagsheimilinu

 
Spurningakeppni Strandamanna
6. feb 2005

Núna rétt áðan lauk fyrsta keppniskvöldinu í Spurningakeppni Strandamanna 2005. Átta lið öttu kappi í fjórum spennandi viðureignum og oft var gríðarlega mjótt á munum. Liðin sem komust áfram í kvöld voru lið Sparisjóðs Strandamanna, Bitrungar, Strandahestar og Hólmadrangur. Keppninni verður framhaldið eftir hálfan mánuð, sunnudaginn 20. febrúar.

Í fyrstu viðureign kvöldsins áttust við lið Snerpu og Sparisjóðs Strandamanna, en tveir meðlimir Snerpu komu alla leið frá Ísafirði til að keppa. Keppnin var geysispennandi allan tímann og úrslit réðust ekki fyrr en í síðustu spurningu. Munurinn á liðunum í lokin var aðeins tvö stig, 17-15 Sparisjóðnum í vil.

Önnur keppnin var á milli Bitrunga og Félags eldri borgara. Eldri borgarar stóðu sig geysivel gegn silfurliðinu frá því í fyrra. Undir lokin var afar mjótt á munum, en Bitrungar höfðu nauman sigur 14-12. Félag eldri borgara má vel við una.

Eftir hlé þar sem gestir fengu sér nammi og gos hófst keppnin á ný með viðureign Strandahesta og Strandagaldurs, meistaranna frá því í fyrra. Þessi sömu lið mættust í átta liða úrslitum í fyrra og þá vann Strandagaldur 30-20. Strandahestar mættu hins vegar grimmir til leiks og höfðu nauman sigur í stórskemmtilegri keppni þar sem bæði lið reyttu af sér brandara. Stigatalan í lokin var 26-23 fyrir Strandahesta.

Síðasta keppni kvöldsins var viðureign Heilbrigðisstofnunar Hólmavíkur og Hólmadrangs. Staðan eftir hraðaspurningar var mjög jöfn en í bjölluspurningum sigu Hólmadrangsmenn smám saman fram úr þrátt fyrir harða baráttu kvennanna í Heilbrigðisstofnunarliðinu. Lokatölur urðu 18-13 fyrir Hólmadrang. Það gengur bara betur á næsta ári!

Mikið fjölmenni var á keppninni sem endranær. Kristín S. Einarsdóttir sem tók við spyrilshlutverkinu stóð sig með prýði en hljóðið var aðeins að stríða mönnum fyrir hlé. Það var lagað skjótt og vel af tæknigúrúnum Bjarna Ómari Haraldssyni. Það er ekki spurning að keppnin í ár verður jöfn og spennandi og því vilja strandir.is hvetja alla sem vettlingi geta valdið að mæta og hvetja sína menn!

Næsta keppniskvöld verður haldið sunnudaginn 20. febrúar og hefst keppnin í Félagsheimilinu á Hólmavík kl. 20:00.

 
Vestfjarðavíkingurinn 2004
3. jan. 2005

Sauðfjársetur á Ströndum fékk mjög veglega umfjöllun í þættinum Vestfjarðavíkingurinn 2004 sem sýndir var á gamlárskvöld. Ein keppnisgreinin fór fram við Sævang eins og menn muna og voru sýndar svipmyndir af sýningunni og viðtal við forstöðumann safnsins. Hólmavík og Galdrasýning á Ströndum fengu einnig töluverða umfjöllun.

 
Spurningakeppnin 2005

3. jan. 2005

Undirbúningur fyrir spurningakeppni félaga og fyrirtækja á Ströndum 2005 er þegar hafinn. Keppnisdagar hafa verið ákveðnir 6. og 20. febrúar og mars.

Ákveðið hefur verið að hætta að halda úti sérstöku Atburðadagatali hér á vef Sauðfjársetursins, en í staðinn er notað dagatal af Vestfjarðavefnum hér á síðunni undir tenglinum Atburðir. Hér á fréttasíðunni verður síðan fjallað um atburði sem framundan eru hverju sinni.

 
Góður styrkur frá Fjárlaganefnd
3. jan. 2005

Sauðfjársetrið fékk vilyrði fyrir góðum styrk í árslok 2004 og eru aðstandendur afar hamingjusamir með hann. Fjárlaganefnd Alþingis ákvað að styrkja framtakið um 3 milljónir sem koma sér vel við húsakaup félagsins á Hólmavík.

Svar hefur ekki borist við styrkumsókn til Héraðsnefndar Strandasýslu fyrir árið 2005, en ekki hefur verið fundað á þeim vettvangi.

Eins er beðið eftir úthlutun úr Safnasjóði fyrir árið 2005, en þar eigum við Sauðfjársetursmenn von á góðum rekstrarstyrk.

 

FRÉTTIR árið 2004
- Til baka í fréttasafn -
 

Myndir frá Hrútadómunum komnar inn
25. ágúst 2004

Myndir eru nú komnar á vefinn frá Hrútadómunum 2004. Kíkið á þessa síðu til að sjá árangurinn og hafa fréttir af uppákomunni.

Enn eru framundan atburðir á viðamikilli dagskrá Sauðfjársetursins. Þann 29. ágúst er síðasta kaffihlaðborð sumarsins, en sýningunni lokar 1. september. Einnig er búið að negla bændahátíð haustsins niður á 11. september. Vonast til að Strandamenn, vinir þeirra og velunnarar, geti ennþá smalað og skemmt sér sama daginn. Miðapantanir eru í síma 451-3474, en miðaverðið er kr. 4.000.-
 

Meistaramót í hrútadómum 
10. ágúst 2004

Sunnudaginn 22. ágúst næstkomandi stendur Sauðfjársetrið í Sævangi á Ströndum fyrir meistaramóti í hrútadómum. Framkvæmdin verður með þeim hætti að sérvalin nefnd valinkunnra ráðunauta og hrútaþuklara mun taka nokkra hrúta til skoðunar og raða þeim í gæðaröð fyrirfram. Yfir þessari röð mun hvíla mikil leynd.

Fyrirkomulag keppninnar verður síðan með þeim hætti að keppt er í tveimur flokkum. Annar er hugsaðir fyrir vana bændur og fleiri vitringa, en hinn fyrir óvana sem þurfa þó að vita hvað snýr aftur og fram á hrútinum. Þeir sem eru vanir hrútadómum þurfa að stiga fimm hrúta á hefðbundinn hátt og raða þeim í gæðaröð. Hinir þurfa ekki að beita stigum í mati sínu á gæðum hrútanna. Keppendur í báðum hópum þurfa að rökstyðja dóma sína og vegur snjall rökstuðningur og lýsingar þungt í lokaeinkunn hinnar alvöldu dómnefndar. Góð verðlaun eru í boði í báðum flokkum.

Skráning er óþörf, keppendur og áhorfendur þurfa aðeins að mæta til leiks á Sauðfjársetrinu í Sævangi, í síðasta lagi klukkan 14:00.

Menningarborgarsjóður styrkir sumardagskrá Sauðfjársetursins árið 2004.

 

Íslenski safnadagurinn framundan

júlí 2004

Sunnurdagurinn 11. júlí næstkomandi er íslenski safnadagurinn í ár. Í tilefni dagsins ætla vinir Sauðfjársetursins að hittast við Sævang á opnunartíma safnsins og gera umhverfi sýningarinnar til góða með ýmsum aðferðum. Að sjálfsögðu verður gert hlé fyrir fjölskyldufótbolta kl. 16:00 og kaffihlaðborð á eftir honum.

 

Fjölmenni var viðstatt Vestfjarðavíkinginn

júlí 2004

Um það bil 200 manns mættu og voru viðstaddir Vestfjarðavíkinginn, en ein keppnisgrein í þeirri ógurlegu kraftakeppni fór fram við Sævang 8. júlí kl. 20:00. Nánar má fræðast um viðburðinn og skoða myndir á þessari síðu.

 

Vestfjarðavíkingurinn á leiðinni

júlí 2004

Fimmtudagskvöldið 8. júlí kl. 20:00 nákvæmlega verður kapparnir í Vestfjarðavíkingnum staddir við Sauðfjársetrið í Sævangi og reyna með sér í réttstöðulyftu. Búist er við fjölmenni til að fylgjast með þessum ógnvænlegu köppum sýna kraftana og eru Strandamenn hvattir til að láta ekki þessi tröllslegu átök fram hjá sér fara. Þetta er ágæt upphitun fyrir kraftakeppni Strandamanna á Sumarhátíðinni sem haldin verður 18. júlí í ár.

Sýningin verður að sjálfsögðu opin um kvöldið í tilefni dagsins og kraftakaffi á boðstólum. Svo geta menn líka skroppið í sjoppuna og fengið sér íspinna eða slikkerí.

 

Fjör á Fjörudegi

júlí 2004

Heilmikið fjör var á Fjörudegi á Sauðfjársetrinu sem haldinn var 4. júlí. Farið var í magnaða fjöruferð þar sem náttúruskoðendur fengu töluvert fyrir snúð sinn. Það er sko ekki á hverjum degi sem menn upplifa það að sjá unga brjótast út úr egginu, en það gerðist einmitt núna þegar litið var í einn tilraunakassann sem teisturnar verpa í. Annar ungi hafði greinilega losnað úr egginu nokkrum tímum fyrr. Ótrúleg upplifun.

Einnig höfðu menn náin kynni af kríu og tjaldi, æðarkollum og sandlóum. Þang og þari var tekið til greiningar og skeljar týndar af kappi, auk þess sem menn kepptust við að fleyta kerlingar og kasta grjóti í rekadrumb sem bar að landi. Spýtukóngurinn að þessu sinni varð Agnes Jónsdóttir.

 

 

Ís til sölu - ís til sölu á Sauðfjársetrinu

júlí 2004

Tekið hefur verið upp á þeirri nýbreytni að selja íspinna og slíkan varning á Sauðfjársetrinu og hefur það mælst vel fyrir. Er þetta ágæt viðbót við sjoppuna sem komið var upp í Sævangi nú í sumarbyrjun.

 

Furðuleikarnir gengu býsna vel

júlí 2004

Furðuleikarnir 2004 gengu býsna vel og voru menn kátir með daginn. Aðsókn hefði getað verið betri, en veður var ljómandi gott og þeir sem mættu skemmtu sér konunglega. Nánar má fræðast um Furðuleikana og skoða myndir á þessari síðu.

 

Opnun sýningarinnar í Sævangi
1. júní 2004

Sýning Sauðfjársetursins í Sævangi verður opnuð núna klukkan 10 í dag og verður síðan opin alla daga frá 10:00-18:00 í sumar, fram að 31. ágúst. Sýningin er með hefðbundnu sniði og hægt er að kaupa kaffi og með því í kaffistofunni. Handverksbúðin er starfrækt eins og áður og handverksfólk á Ströndum hvatt til að koma til okkar gripum í sölu.

Aðstandendur sýningarinnar hafa staðið í ströngu síðustu daga við að setja upp sýninguna og er flest allt frágengið. Verið er að ganga frá búrborði sem ákveðið var seint í gærkveldi að bæta við og setja upp tjald

Von er á heimsókn fyrsta hópsins um hádegisbilið í súpu og kaffi, þar er á ferðinni stórfjölskylda sem dvalið hefur síðustu daga á Ströndum og haldið upp á 60 ára afmæli. Annars er vöffludagur í Sævangi í dag og heilmikil gleði. Ef nægur mannskapur verður á staðnum verður farið í fjölskyldufótbolta á vellinum við Sævang.

  

Starfsfólk fyrir sumarið ráðið
5. maí 2004

Sauðfjársetur á Ströndum hefur nú ráðið starfsmenn á sýninguna Sauðfé í sögu þjóðar í félagsheimilinu Sævangi í sumar. Alls bárust 9 umsóknir og voru á meðal þeirra umsóknir frá 3 starfsmönnum sem voru hjá okkur síðasta sumar. Voru þeir starfsmenn ráðnir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, Grétar Matthíasson og Ásdís Jónsdóttir. Öðrum umsækjendum er þakkaður áhuginn og vonum við að þeir fái góða vinnu í sumar.

 

Auglýst er eftir starfsfólki í sumar
5. apríl 2004

Sauðfjársetur á Ströndum auglýsir eftir STARFSFÓLKI  í sumar á sýninguna Sauðfé í sögu þjóðar í félagsheimilinu Sævangi, 12 km sunnan við Hólmavík.

Starfsmenn Sauðfjársetursins á sýningunni í Sævangi þurfa fyrst og fremst að vera jákvæðir, duglegir og samviskusamir, auk þess að eiga auðvelt með mannleg samskipti.

Gott er að starfsmenn hafi reynslu af þjónustustörfum og búi yfir kunnáttu í erlendum tungumálum. Starfsmennirnir afgreiða á sýningunni og í handverksbúð og veita leiðsögn, auk þess að sjá um afgreiðslu og rekstur kaffistofu í samráði við forstöðu­mann, bakstur og undirbúning fyrir kaffihlaðborð. Þeir sjá einnig um uppgjör og skýrsluhald, skrá muni og minjar, gefa heimalningunum og sjá um þrif. Þá er ætlast til að þeir taki þátt í vinnu við markaðssetningu og skipulagningu atburða og hátíðahalda.

Sýningin verður opin 10:00-18:00 alla daga frá 1. júní – 31. ágúst.

Umsóknarfrestur er til 23. apríl og er óskað eftir skriflegum umsóknum, á netfangið saudfjarsetur@strandir.is eða til Jóns Jónssonar á Kirkjubóli, 510 Hólmavík. Í sama netfangi eru allar nánari upplýsingar veittar.
 

Styrkjafréttir
5. apríl 2004

Sauðfjársetur á Ströndum fékk nýlega tilkynningu um rekstrarstyrk frá Safnasjóði. Þar með er Sauðfjársetrið komið í hóp viðurkenndra safna hér á landi. Við þökkum Safnasjóði kærlega fyrir stuðning og skilning.

Einnig fékk Sauðfjársetrið á dögunum styrk frá Menningarborgarsjóði til að efla sumardagskrá setursins. Sá stuðningur er mjög mikilvægur fyrir setrið enda hefur dagskráin verið einn lykillinn að velgengni þess. Nú er hægt að efla og auglýsa betur þennan mikilvæga þátt í starfseminni.

 
 

Spurningakeppninni lokið
30. mars 2004

Þá er Spurningakeppni Strandamanna lokið þetta árið. Úrslitakvöldið fór fram sunnudaginn 21. mars og var það sennilega best sótt af öllum kvöldunum. Ekki vantaði heldur spennuna því úrslitin í öllum þremur viðureignum kvöldsins réðust ekki endanlega fyrr en komið var í síðasta liðinn sem voru eins og venjulega tvær vísbendingaspurningar.

Fyrsta viðureign kvöldsins var keppni Skrifstofu Hólmavíkurhrepps og Bitrunga. Skrifstofan, sem komst líka í undanúrslit árið 2003, hafði unnið báðar viðureignir sínar í keppninni í ár með eins stigs mun – síðast á ótrúlegan hátt gegn Héraðsbókasafninu. Bitrungar eru hins vegar óumdeilanlega spútniklið keppninnar, enda liðið búið til á síðustu stundu eftir þrýsting frá spyrli. Skrifstofukonur náðu ekki að sýna sínar bestu hliðar að þessu sinni en Bitrungar léku hins vegar á alls oddi. Lokatölur urðu 27-22 Bitrungum í vil, en úrslitin réðust endanlega þegar Skrifstofukonur gátu ekki svarað síðustu spurningunni í fyrstu vísbendingu. Það gerðu Bitrungar hins vegar í annarri vísbendingu.

Seinni viðureignin í undanúrslitunum var síðan á milli Strandagaldurs og Hólmadrangs, en árið 2003 duttu galdramennirnir út í fyrstu umferð en Hólmadrangur fór alla leið í úrslit og laut þar í lægra gras fyrir liði kennara við Grunnskóla Hólmavíkur. Svo fór ekki núna og Strandagaldursliðið, sem var skipað tveimur nýjum liðsmönnum vegna fjarveru annarra tryggði sér sæti í úrslitakeppninni með því að sigra baráttuglatt lið Hólmadrangs 30-21. Hólmadrangsmenn mega engu að síður vel við una og gera án efa djarfa atlögu að titlinum í þriðja skipti á næsta ári. Hólmadrangsmenn og Hreppsskrifstofukonur voru því sem næst verðlaunuð með bókinni Spennandi Spurningakeppni eftir Guðjón Eiríksson.

Eftir undanúrslitin var tekið hlé þar sem fólk hámaði í sig nammi, gos og kaffi af hjartans lyst og síðan tóku við skemmtiatriði sem voru hreint ekki af verri endanum. Ingimundur Jóhannsson, Kristján Sigurðsson og Bjarni Ómar Haraldsson spiluðu á gítar og sungu þrjú lög sem þeir höfðu “æft lítillega”. Hógværðin dugði þeim skammt því þeir voru klappaðir upp af miklum krafti. Höfðu menn orð á því að þetta tríó yrði að starfa saman áfram. Þegar þremenningarnir höfðu lokið spiliríinu drógu þau Hildur Guðjónsdóttir og Jón Ragnar Gunnarsson í aðgöngumiðahappdrættinu sem var í gangi allar keppnirnar. Þær Elfa Björk Bragadóttir og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir unnu í happdrættinu og hrepptu glæsilega vinninga frá Sauðfjársetrinu.

Úrslitaviðureignin var því á milli Strandagaldurs og Bitrunga. Hún var æsispennandi allt til loka og hin besta skemmtun fyrir áhorfendur. Liðin fóru vægast sagt hamförum í hraðaspurningum og myndadæmum og staðan eftir þá liði var 21-21 – óhætt að segja að liðin hafi með sóma sannað rétt sinn á því að vera komin í úrslitin með ótrúlega háu skori. Nokkurt jafnræði var í bjölluspurningum og mikil barátta um bjölluna sem Strandagaldursmenn voru heldur hlutskarpari í. Þegar farið var í vísbendingaspurningar áttu Bitrungar enn möguleika á að ná sigri með því að svara báðum vísbendingaspurningum rétt í fyrstu tilraun. Spyrillinn fékk sting í hjartað í fyrstu vísbendingu fyrri vísbendingaspurningar – svarið við henni var ský en svar Bitrunga var ský...strókur. Keppnin fór að lokum þannig að Strandagaldur vann Bitrunga með 29 stigum gegn 24.

Bitrungum voru afhent bókaverðlaun og frítt kaffihlaðborð að gjöf fyrir að ná öðru sætinu en Strandagaldursmenn voru krýndir nýir viskubrunnar Strandamanna með miklum sóma, hlaðnir verðlaunum og fengu síðan að sjálfsögðu afhentan Viskubikarinn eftirsótta.

Í lokin var Jóni Ragnari Gunnarssyni og Bjarna Ómari Haraldssyni afhent ávísun á kaffihlaðborð fyrir ósérhlífið starf í þágu keppninnar og eftir það var Hildi Guðjónsdóttur stigaverði og Arnar S. Jónssyni dómara, spurningahöfundi og spyrli afhent glæsileg stafræn myndavél að gjöf fyrir umsjónina með keppninni og "vegna mikillar elsku við menningarlíf á Ströndum", eins og Matthías Lýðsson komst svo skemmtilega að orði.

 

Spennandi spurningakeppni
9. mars 2004

Þriðja keppniskvöldið í Spurningakeppni félaga og fyrirtækja á Ströndum 2004 fór fram í Félagsheimilinu á Hólmavík sunnudaginn 7. mars sl. Komið var að 8 liða úrslitum og ekkert lát virðist ætla að verða á vinsældum keppninnar. Aðsókn var góð eins og venjulega, um 100 manns mættu og skemmtu sér konunglega yfir skemmtilegum og spennandi keppnum.

Úrslit keppninnar þetta þriðja kvöld urðu þessi: 

  • Fiskvinnslan Drangur – Bitrungar = 16-18

  • Hólmadrangur – Leikfélag Hólmavíkur = 23-21

  • Strandagaldur – Strandahestar = 30-20

  • Skrifstofa Hólmav.hr. – Héraðsbókasafnið = 23-22

Eins og sjá má af tölunum voru flestar keppnirnar æsispennandi og aðeins í einni þeirra réðust úrslitin áður en komið var í síðasta liðinn, vísbendingaspurningar. Síðasta keppni kvöldsins sló þó öllum hinum við hvað varðar spennu, því þar þurfti að grípa til bráðabana í fyrsta sinn í sögu keppninnar eftir að Skrifstofa Hólmavíkurhrepps hafði jafnað með því að svara síðustu spurningunni rétt í fyrstu vísbendingu.

Þá var einnig slegið stigamet í keppninni þegar lið Strandagaldurs náði að rjúfa 30 stiga múrinn í viðureign við Strandahesta. Lið Strandahesta féll út með 20 stig sem hefði dugað til sigurs í mörgum viðureignum í keppninni hingað til.

Eftir keppnina var dregið í undanúrslit sem fara fram í Félagsheimilinu sunnudaginn 21. mars kl. 20:00 stundvíslega. Á úrslitakvöldinu mætast:

  • Bitrungar – Skrifstofa Hólmavíkurhrepps

  • Strandagaldur – Hólmadrangur

Sigurliðin úr þessum tveimur viðureignum etja síðan kappi í úrslitaviðureign. Sigurvegarar fá glæsileg verðlaun frá Sauðfjársetri á Ströndum sem heldur keppnina auk þess að fá Viskubikarinn svokallaða til varðveislu í eitt ár. 
 

8 liða úrslit
24. feb. 2004

Eftir keppnina á sunnudagskvöldið var dregið í 8 liða úrslit sem fara fram í Félagsheimilinu á Hólmavík sunnudaginn 7. mars nk., kl. 20:00 stundvíslega.

 Í 8 liða úrslitum mætast þessi lið: 

Fiskvinnslan Drangur – Bitrungar
Hólmadrangur – Leikfélag Hólmavíkur
Strandahestar – Strandagaldur
Héraðsbókasafn Strandasýslu – Skrifstofa Hólmavíkurhrepps

Sigurlið kvöldsins komast síðan áfram á úrslitakvöldið sem fer fram sunnudaginn 21. mars.
 

Annað kvöld Spurningakeppninnar
24. feb. 2004

Annað keppniskvöldið í Spurningakeppni Strandamanna var haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík sunnudagskvöldið 22. febrúar síðastliðinn. Aðsóknin að keppninni var svipuð og fyrsta kvöldið en vel yfir 100 manns mættu og skemmtu sér konunglega. Keppnir kvöldsins voru ekki alveg jafn spennandi og á fyrsta kvöldinu. Sigrarnir voru öruggari en áhorfendur skemmtu sér vel engu að síður.

Strandahestar og Kaupfélag Steingrímsfjarðar áttust við í fyrstu umferð kvöldsins. Eftir hraðaspurningar höfðu Strandahestar höfðu 5 stiga forystu og juku við það forskot í bjölluspurningunum. Þegar komið var að vísbendingaspurningum var sigur Strandahesta orðinn öruggur og lokatölur viðureignarinnar urðu 23-14 Strandahestum vil.

Fiskvinnslan Drangur og Nemendur Grunnskóla Hólmavíkur öttu síðan kappi í annarri keppninni. Viðureign þessarra liða var skemmtileg en spennan var ekki mikil því fjörugt lið nemenda fór flatt á fyrsta lið keppninnar, hraðaspurningunum. Drangsfólk fraus hins vegar ekki og vann að lokum öruggan sigur, en lokatölur urðu 19-13 og Fiskvinnslan Drangur þar með komin í 8 liða úrslit.

Eftir hlé keppti Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur við Leikfélag Hólmavíkur. Keppni þessara liða var virkileg spennandi allt til loka. Eftir hraðaspurningar var staðan 13-12 fyrir Heilbrigðisstofnunina og eftir bjölluspurningar var Leikfélagið yfir 17-16. Vísbendingaspurningarnar réðu því úrslitum og þar hafði Leikfélagið betur. Lokatölur gáfu því ekki alveg rétta mynd af spennandi keppni skemmtilegra liða; 22-16 fyrir Leikfélagið.

Síðasta keppni kvöldsins var síðan á milli Kennara við Grunnskólann og Strandagaldurs. Kennaraliðið, sem var skipað alveg nýjum liðsmönnum, vann keppnina í fyrra en Strandagaldursliðið féll hins vegar út í fyrstu umferð. Eftir hraðaspurningarnar var staðan 16-14 fyrir Strandagaldur og allt gat gerst. Strandagaldur hrökk þó í gírinn í bjölluspurningunum og svöruðu þar átta spurningum gegn þremur kennaranna og tryggðu sér þar með góðan sigur. Lokatölur urðu 26-18 Strandagaldri í hag.
 

Næsta keppniskvöld
10. feb. 2004

Næsta keppniskvöld í Spurningakeppni Strandamanna fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík sunnudaginn 22. febrúar og hefst keppnin kl. 20:00 stundvíslega. Þá eigast við:

Strandahestar – Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Nemendur Hólmavíkurskóla – Fiskvinnslan Drangur
Leikfélag Hólmavíkur – Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur
Strandagaldur – Kennarar Hólmavíkurskóla
 

Spurningakeppnin hafin
10. feb. 2004

Fyrsta kvöldið í Spurningakeppni Strandamanna fór fram í félags-heimilinu á Hólmavík síðasta sunnudagskvöld. Fjöldi fólks lagði leið sína í félagsheimilið og greinilegt var að hinn mikli áhugi sem var fyrir keppninni í fyrra hafði síður en svo dvínað, en á bilinu 110-20 manns komu til að berja keppnina augum.

Eftir að Jón Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjárseturs á Ströndum, sem heldur keppnina, hafði sagt nokkur orð tók Arnar S. Jónsson spyrill við stjórninni. Fyrsta keppni kvöldsins var á milli Skrifstofu Hólmavíkurhrepps og Lyfsölunnar á Hólmavík. Hún var æsispennandi allan tímann og þegar síðasta spurning keppninnar var lesin voru liðin enn hnífjöfn. Að lokum fór leikar þannig að Skrifstofa Hólmavíkurhrepps vann 25-24 með því að svara síðustu spurningunni rétt.

Keppni nr. 2 var á milli liðs Grunnskólans á Drangsnesi og Hólmadrangs, en Hólmadrangur komst í úrslit í keppninni í fyrra. Eftir hraðaspurningar höfðu Hólmadrangsmenn fimm stiga forystu, en lið Grunnskólans á Drangsnesi vann það forskot upp í fimm fyrstu bjölluspurningunum. Keppnin var síðan hörkuspennandi allt til lokaspurningar, en lið Hólmadrangs komst áfram með því að svara síðustu vísbendingaspurningu keppninnar rétt – Hólmadrangur fékk 25 stig á móti 21 stigi Grunnskólans á Drangsnesi. Að sögn Gunnars Melsteð, skólastjóra á Drangsnesi "munaði einum fjórða úr sekúndu" að Grunnskólinn næði að jafna í síðustu spurningunni. Það er hárrétt hjá honum.

Þegar þarna var komið sögu var ekki vanþörf á því fyrir keppendur sem og áhorfendur að kæla sig og róa sig niður enda óvenju mikil spenna í gangi. Sem betur fer fyrir alla viðstadda var löngu planað að taka stutt hlé. Það var gert og síðan haldið áfram á fullu. 

Þriðja viðureign kvöldsins var á milli Félags eldri borgara og Héraðsbókasafns Strandasýslu, en í bókasafnsliðinu voru tveir úr sigurliðinu árið áður, liði kennara við Hólmavíkurskóla. Fulltrúar Félags eldri borgara létu þá staðreynd ekkert angra sig og velgdu vitringunum verulega undir uggum. Lengi vel var sáralítill munur á liðunum og þegar lestur bjölluspurninga var rétt rúmlega hálfnaður var staðan 18-15 fyrir Héraðsbókasafnið. Þá tók liðið á sig mikla rögg, átti frábæran endasprett og vann skemmtilegt lið eldri borgara með 26 stigum gegn 15.

Síðasta keppnin var síðan á milli Bitrunga og Sparisjóðs Strandamanna. Hvorugt liðanna tók þátt í keppninni í fyrra en það sást engan veginn á frammistöðu þeirra - bæði liðin eru sterklega grunuð um að hafa stundað æfingar í einhvern tíma. Jafnræði var með liðunum allt til loka, en úrslit keppninnar urðu þau að Bitrungar unnu nauman sigur á Sparisjóðsliðinu 20-18. 

Liðin sem komust í átta liða úrslit voru þessi:

Skrifstofa Hólmavíkurhrepps

Hólmadrangur

Héraðsbóksafn Strandasýslu

Bitrungar

 

Búið að draga í spurningakeppninni
2. feb. 2004

Fyrsta keppniskvöldið í Spurningakeppni vinnustaða og félaga á Ströndum verður haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík sunnudaginn 8. febrúar. Keppnin hefst stundvíslega kl. 20:00. Liðin sem mætast í fyrstu umferð eru:

Skrifstofa Hólmavíkurhrepps – Lyfsalan Hólmavík

Hólmadrangur – Grunnskólinn Drangsnesi

Héraðsbókasafn Strandasýslu – Félag eldri borgara

Bitrungar – Sparisjóður Strandamanna

+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-+-

Annað keppniskvöld fer fram sunnudaginn 22. febrúar  og hefst keppnin kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Á seinna kvöldinu mætast:

Strandahestar – Kaupfélag Steingrímsfjarðar

Nemendur Hólmavíkurskóla – Fiskvinnslan Drangur

Leikfélag Hólmavíkur – Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur

Strandagaldur – Kennarar Hólmavíkurskóla

Sigurliðin keppa síðan í undanúrslitum þann 7. mars. Aðgangseyrir er kr. 500.- fyrir 16 ára og eldri. Sauðfjársetur á Ströndum býður upp á kaffi og gúmmelaði á góðu verði í hléinu.
 

Grána komin í gang
1. febrúar 2004

Í vetur hefur á verkstæði Sauðfjársetursins í Sauðhúsinu verið unnið að viðgerðum á gamalli Ferguson dráttarvél frá Kirkjubóli. Er hún árgerð 1949, bensínvél. Um áramótin var staðan í viðgerðinni eins og sést á myndinni hér að neðan.

Viðgerðinni hefur miðað allvel hjá Jóni Gísla Jónssyni og Sverri Guðbrandssyni og í dag var vélin sett í gang í fyrsta skipti í áratugi. Enn eru þó ófá handtök eftir þangað til vélinni verður ekið fyrstu metrana eftir langa hvíld.
 

Spurningakeppnin að bresta á
31.jan. 2004

Búið er að ákveða keppnisdagana í Spurningakeppni Strandamanna 2004 og jafnframt er ákveðið að keppnin verður haldin í Félagsheimilinu á Hólmavík að þessu sinni. 15 lið hafa þegar skráð sig til leiks og vonir standa til að 1 lið bætist við áður en skráningarfrestur rennur út á morgun. Þá yrði liðafjöldinn 16 eins og í fyrra, en það er draumastaða hvers skipuleggjara að hafa 8, 16 eða 32 lið í 1. umferð.
 

Hagyrðingakvöld í sumar
31. jan. 2004

Ákveðið var á stjórnarfundi Sauðfjársetursins í janúar að halda hagyrðingakvöld í sumar. Er stefnan tekin á 19. júní til þess arna. Vonast menn til að nú takist að halda kvöldið, en það hefur staðið til undanfarin ár.

Jóni Jónssyni, forstöðumanni Sauðfjársetursins, var falið að koma þessum degi á laggirnar.
 

Spurningakeppnin 2004
3. jan. 2004

Undirbúningur fyrir spurningakeppni félaga og fyrirtækja á Ströndum 2004 er þegar hafinn og mun Arnar S. Jónsson vera dómari og spyrill eins og síðasta árið. Sauðfjársetrið stendur fyrir keppninni, en eins og menn muna sigruðu kennarar við Grunnskólann á Hólmavík glæsilega síðasta ár.

Þeir sem hyggjast senda lið til keppni eru beðnir að hafa samband við Arnar í síma 588-8641 eða 661-2009. Fyrsta keppniskvöldið verður þann 8. febrúar.
 

Góðir og sérlega mikilvægir styrkir
3. jan. 2004

Sauðfjársetrið fékk vilyrði fyrir góðum styrkjum í árslok 2003 og eru aðstandendur afar hamingjusamir með þau. Héraðsnefnd Strandasýslu styrkti setrið um 600 þúsund á árinu 2004 og Fjárlaganefnd Alþingis ákvað að styrkja framtakið um 1 milljón.

Þá fengust á seinni hluta ársins styrkir frá Menningarsjóði Kaupfélags Steingrímsfjarðar að upphæð 80 þúsund og Sparisjóði Strandamanna að upphæð 100 þúsund.

Færum við þessum aðilum okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn.

Beðið er eftir úthlutun úr Safnasjóði fyrir árið 2004, en þar teljum við Sauðfjársetursmenn að von sé á rekstrarstyrk að öllu eðlilegu.
 

Okkur vantar myndir!
3. jan. 2004

Mikill fjöldi ljósmynda setur skemmtilegan svip á sýninguna í Sævangi. Við fáum aldrei nóg af góðum myndum af Ströndum og því óskum við hér með eftir því að fá myndir að láni eða gefins. Þær þurfa ekki endilega að tengjast sauðfé á beinan hátt, nýjar og gamlar myndir af hvers konar búnaðarstörfum og  mannlífsmyndir af svæðinu eru vel þegnar. Nú er bara að kafa í albúmin.

FRÉTTIR árið 2003
- Til baka í fréttasafn -

Jólabúð í Sauðhúsinu
20. des. 2003

Eins og árið 2002 var jólamarkaður eða jólabúð í Sauðhúsi Sauðfjársetursins að Skeiði 3 á Hólmavík fyrir jólin. Að þessu sinni var það handverkshópurinn Strandakúnst sem stóð fyrir markaðinum, en þar var einnig til sölu varningur frá Sauðfjársetrinu og Galdrasýningu á Ströndum.
 

Mikið hrós um Sauðfjársetrið í Sögu
12. nóv. 2003 

Sagnfræðingurinn og háskólakennarinn Eggert Þór Bernharðsson birti á dögunum heilmikla grein um söfn og sýningar á Íslandi í ritinu Sögu, sem er tímarit sagnfræðinga. Þar er farið mjög lofsamlegum orðum um sýningu Sauðfjárseturins í Sævangi og Galdrasýningu á Ströndum, aðstandendum þeirra til mikillar gleði.

Hrós og jákvæð gagnrýni sem þessi er mikil hvatning, en jafnframt áminning um að halda áfram á sömu braut. Til að standa undir hóli sem þessu þarf að halda vel á spöðunum og sýningin þarf að vera í sífelldri þróun og sísköpun.
 

Sauðfjársetursmenn á skólabekk
12. nóv. 2003

Á haustdögum var haldinn Farskóli Safnmanna í Keflavík. Jón Jónsson og Arnar S. Jónsson fóru á farskólann fyrir hönd Sauðfjársetursins og sátu málþing og fyrirlestra. Var fróðlegt að verða vitni að þessari uppákomu og mikilvæg kynni tókust við safnmenn víða að.

Einnig var farið í skoðunarferðir um söfn og setur á Suðurnesjum og vakti Fræðasetrið í Sandgerði sérstakan áhuga. Þar má finna fjölmargar hugmyndir sem gaman væri að taka upp og þróa með einum og öðrum hætti á Sauðfjársetrinu. Einnig var fróðlegt að skoða Saltfisksetrið í Grindavík, en þar er gott dæmi um hvað hægt er að gera ef peningar eru í spilinu.
 

Nýr Strandavefur
10. nóv. 2003

Opnaður hefur verið nýr Strandavefur. Það er Héraðsbókasafnið Strandasýslu á Hólmavík sem stendur fyrir vefnum sem er á slóðinni www.holmavik.is/bokasafn. Sauðfjársetrið óskar bókasafninu til hamingju með vefinn.
 

Sótt um í Safnasjóð
6. nóv. 2003

Sauðfjársetrið hefur sótt um verkefna- og rekstrarstyrk úr Safnasjóði fyrir árið 2004. Þeim skilyrðum sem sett eru fyrir slíkum styrkjum hefur einnig verið fullnægt, m.a. hefur verið samþykkt skipulagsskrá og söfnunarstefna fyrir safn Sauðfjársetursins. Er um leið leitað eftir viðurkenningu Safnaráðs á safninu sem minjasafni, en slíkt er mikilvægt fyrir aðgang að rekstrarstyrkjum úr Safnasjóði.

Eru Sauðfjársetursmenn bjartsýnir á að rekstrarstyrkur fáist, en því hefur heyrst fleygt að verkefnastyrkir úr Safnasjóði verði í lægri kantinum þetta árið - á bilinu 100-400 þúsund. Rekstrarstyrkur getur hins vegar líklega numið allt að 1,7 milljón.
 

3200 gestir sumarið 2003
1. nóv. 2003

Sumarið 2003 kom vel út á Sauðfjársetrinu á Ströndum. Talið er að um 3200 manns hafi heimsótt safnið í Sævangi og reksturinn allur var mun hagstæðari en árið 2002. Ætlunin er að rekstur sýningarinnar yfir sumarið standi undir sér á árinu 2004.
 

Atburðir sumarsins
1. nóv. 2003

Atburðir sumarsins komu flestir vel út árið 2003. Mæting var mjög góð á Spurningakeppnina, Sumarhátíð, Dráttarvéladaginn, Fjörudag og Meistaramótið í hrútadómum, en frekar dræm á aðra atburði. Góð mæting var á kaffihlaðborð á 17. júní.

Síðustu tvö ár hefur safnast dýrmæt reynsla við þessar tilraunir með atburði sem ætlunin er að nýta árið 2004. Búið er að setja saman dagskrá næsta árs að mestu leyti, en einhver uppátæki eiga sjálfsagt eftir að líta dagsins ljós. Það væri alla vega eftir aðstandendum Sauðfjársetursins. Spurningakeppnin og atburðir sumarsins eru komnir á fastan dag, en ekki er búið að dagsetja Bændahátíðina.

Strandamenn kannast að mestu leyti við þá atburði sem framundan eru, en þó er að finna eina nýjung sem vert er að taka eftir. Það eru Furðuleikarnir 2004, sem verða haldnir í Sævangi þann 20. júní næstkomandi.
 

Síðasti opnunardagur sumarsins
24. ágúst 2003.

Sunnudaginn 31. ágúst verður síðasti opnunardagur sýningarinnar Sauðfé í sögu þjóðar í Sævangi þetta sumarið. Kaffihlaðborð verður á boðstólum, eins og venjan er á sunnudögum, og fjölskyldufótbolti verður spilaður á vellinum.
 

Meistaramót í hrútadómum 
18. ágúst 2003

Sunnudaginn 24. ágúst næstkomandi stendur Sauðfjársetrið í Sævangi á Ströndum fyrir meistaramóti í hrútadómum. Framkvæmdin verður með þeim hætti að sérvalin nefnd valinkunnra ráðunauta og hrútaþuklara mun taka nokkra hrúta til skoðunar og raða þeim í gæðaröð fyrirfram. Yfir þessari röð mun hvíla mikil leynd.

Fyrirkomulag keppninnar verður síðan með þeim hætti að keppt er í tveimur flokkum. Annar er hugsaðir fyrir vana bændur og fleiri vitringa, en hinn fyrir óvana sem þurfa þó að vita hvað snýr aftur og fram á hrútinum. Þeir sem eru vanir hrútadómum þurfa að stiga fimm hrúta á hefðbundinn hátt og raða þeim í gæðaröð. Hinir þurfa ekki að beita stigum í mati sínu á gæðum hrútanna. Keppendur í báðum hópum þurfa að rökstyðja dóma sína og vegur snjall rökstuðningur og lýsingar þungt í lokaeinkunn hinnar alvöldu dómnefndar. Góð verðlaun eru í boði í báðum flokkum.

Skráning er óþörf, keppendur og áhorfendur þurfa aðeins að mæta til leiks í Sævangi, í síðasta lagi klukkan 14:00. Í tilefni keppninnar verður einnig haldin vegleg grillveisla í Sævangi þar sem gæðakjöt af sérvöldum húnvetnskum heiðalömbum og vöðvaþykkum Strandalömbum sem kroppað hafa hinn kjarnmikla gróður sem vex við skaflarendur hinna tilkomumiklu Strandafjalla.
 

Bændahátíðin 2003
18. ágúst 2003

Árleg bændahátíð Sauðfjársetursins verður haldin að kvöldi þess 6. september. Hefst skemmtunin kl. 20:00 með borðhaldi þar sem lambakjöt verður á boðstólum. Leikfélag Hólmavíkur sér um skemmtiatriði og hljómsveitin BG frá Ísafirði spilar fyrir dansi á eftir.
 

Dráttarvéladagur og töðugjöld
18. ágúst 2003

Dráttarvéladagur Sauðfjárseturs á Ströndum sunnudaginn 17. ágúst fór vel fram í miklu góðviðri. Vel á annað hundrað manns mættu í Sævang til að njóta lífsins. 

Gamlar vélar og nýjar voru til sýnis og vöktu Willisjeppi með tréhúsi og tvær Farmal-vélar sem komu alla leið handan úr Reykhólasveit mikla athygli gesta. Ekki síður var gaman að skoða Deutz-dráttarvélina Rannveigu, frá Bæ á Selströnd, nýmálaða og gangfæra, en í vetur var hún í góðum höndum á verkstæði Sauðfjársetursins á Hólmavík. Rannveig er árgerð 1953 og var viðgerðin því vel viðeigandi á 50 ára afmælinu. Ætlunin er að gera upp svo sem eina gamla dráttarvél á vetri næstu árin á vegum Sauðfjársetursins. 

Töluverð spenna var fyrir Strandamóti í dráttarvélaakstri en þar kepptu 14 manns. Sigurvegari í þessum mikla góðakstri dráttarvéla var Guðjón Jónsson frá Gili í Bitru en hann hafði nokkra yfirburði í keppninni, einkum þegar kom að því að refsistig voru reiknuð. Hafði hann aðeins fengið 10 refsistig fyrir að láta skrölta í gírnum á gamla Massy Fergusoninum sem keppt var á. Aðrir voru yfirleitt með 40 stig eða meira fyrir að keyra á keilur, hitta ekki á planka og bakka of langt eða of stutt í lokaþrautinni. Leikur grunur á að Guðjón sem ekki hefur sinnt bústörfum um tíma hafi reynslu af keppni í dráttarvélaakstri frá landsmótum UMFÍ.

Guðjón fór brautina á rúmum 2 mínútum, en í tímanum munaði mestu um hlið sem þurfti að opna og loka á eftir sér. Jafnir í öðru sæti voru Snorri Jónsson sem er töluvert vanari vörubílaakstri en dráttarvélum og Daníel Ingimundarson sem er alvanur akstri torfærubíla og keppni á þeim, en hefur ekki ekið dráttarvél um nokkra hríð. Björn Pálsson á Þorpum varð síðan í fjórða sæti og fyrstur af starfandi bændum.

Fljótasti maður um þrautabrautina var Jón Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins á 1:31 mínútu, en refsistigin voru öllu fleiri hjá honum en öðrum keppendum eða rúmlega 100 og hafnaði hann því neðarlega í heildarkeppninni.
 

Sumarstarfið gengur vel
4. ágúst 2003

Mikið fjör er í sumarstarfinu og gestir eru nokkuð fleiri en í fyrra. Reglulega er fjölskyldufótbolti og uppákomur eru vel sóttar.

Verulegt fjör var á Sumarhátíðinni sem haldin var 20. júlí. Þar var mikil kraftakeppni haldin þar sem Sverrir "bassi" Guðbrandsson fór með sigur af hólmi. Meðal keppanda var þingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson.
 

Sýningin opnuð 1. júní
19. maí 2003

Sýningin Sauðfé í sögu þjóðar verður opnuð í Sævangi sunnudaginn 1. júní nk. Búið er að flytja megnið af munum safnsins út í Sævang og uppsetning hefst von bráðar. 

Dagskrá opnunarhátíðarinnar verður auglýst sérstaklega síðar, en þó er  ljóst að það verður mikið fjör. Kaffihlaðborð verður í boði fyrir svanga Strandamenn, og stefnan hefur verið tekin á að hafa fjölskyldufótboltaleik á vellinum. Að sjálfsögðu hefur verið samið við veðurguðina um sól og blíðu.
 

Styrkur frá Landbúnaðarráðuneyti
19. maí 2003

Landbúnaðarráðuneytið hefur styrkt Sauðfjársetrið um kr. 300.000.- Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra gaf vilyrði sitt fyrir styrknum á ferð sinni um Strandir fyrr í vor og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
 

Gengið frá húsnæðiskaupunum
6. apríl 2003

Gengið hefur verið frá húsnæðiskaupum Sauðfjársetursins á Hólmavík og Skeiði 3 er orðin réttmæt eign setursins. Slegið var lán hjá Sparisjóði Strandamanna fyrir útborguninni og Hólmadrangi er hér með þakkað fyrir ánægjuleg viðskipti. 
 

Úrslit Spurningakeppninnar 2003
10. mars. 2003

Lið kennara við Hólmavíkurskóla fór með sigur af hólmi í Spurningakeppni Sauðfjársetursins árið 2003. Þeir sigruðu lið Hólmadrangs í úrslitum, en Hólmadrangur hafði áður unnið Grundarás sem mætti til keppni í smíðagallanum. 

Keppniskvöldið var spennandi og skemmtilegt og í viðureign kennara og skrifstofu Hólmavíkurhrepps í undanúrslitum var jafnt á nær öllum tölum fram að síðustu vísbendingaspurningunum þar sem kennarar tryggðu sér sigurinn.

Verðlaun voru vegleg og ber þar fyrst að nefna bækur frá útgáfufyrirtækinu Eddu - Grískar goðsögur (Gunnar Dal) og myndabókin 20. öldin (Jakob F. Ásgeirsson). Einnig fékk hver maður í sigurliðinu sett af galdrakönnum og gjafabréf fyrir kaffihlaðborði fyrir 2 í Sævangi í sumar. Veglegur farandbikar til liðsins fylgdi einnig og viðurkenningarskjal.

Fram kom að Sauðfjársetrið stefnir að því að gera spurningakeppnina að árvissum atburði, enda hefur hún heppnast framar vonum.
 

Annað spurningakvöldið
1. mars 2003

Á öðru keppniskvöldi í spurningakeppni Sauðfjársetursins komust Skrifstofa Hólmavíkurhrepps og Hólmadrangur í úrslit. Aðsókn var góð, en u.þ.b. 135 manns mættu á keppnina sem fór fram í blíðskaparveðri.
 

Fyrsta spurningakvöldið gekk frábærlega 10. febrúar 2003

Nú er fyrsta keppniskvöldinu í Spurningakeppni vinnustaða og félaga á Ströndum 2003 lokið. Keppnin þótti takast með eindæmum vel. Aðsókn var góð og í raun fór hún fram úr björtustu vonum, en tæplega 140 manns komu í félagsheimilið Sævang þetta kvöld.

Stemmningin var gríðarlega góð, það var klappað, hlegið og borðað, en Sauðfjársetrið stóð einnig fyrir kaffisölu. 

Keppnirnar voru mjög skemmtilegar og sumar þrælspennandi - þrjár þeirra unnust með eins stigs mun. Það er ljóst af öllu að aðstandendur keppninnar hafa aldeilis hitt naglann á höfuðið og komast líklega ekki hjá því að halda nýja keppni að ári. Best að auglýsa strax eftir spyril og dómara fyrir næsta ár.

Það voru lið kennara við Hólmavíkurskóla og Grundaráss sem komust áfram á úrslitakvöldið, en það verður að sunnudaginn 9. mars. Næsta keppniskvöld verður hins vegar í Sævangi 23. mars næstkomandi kl. 20:00.
 

Spurningakeppnin á Ströndum 2003 
3. febrúar 2003

Nú er komið að því að Spurningakeppni vinnustaða og félaga á Ströndum fari í fullan gang.

Sauðfjársetur á Ströndum stendur fyrir keppninni, en Arnar S. Jónsson frá Steinadal á hugmyndina og heiðurinn af undirbúningi keppninnar. Þá var hann dæmdur til að semja spurningar ásamt því að vera spyrill og dómari.

Það er mikil stemmning fyrir keppninni á Ströndum. Það sést best á því að skráning fór fram úr björtustu vonum, en 16 lið skráðu sig og ekki þurfti að nöldra í einum einasta manni um að vera með. Það er ekki til að minnka skemmtilegheitin að keppendur eru á öllum aldri, meðal annars taka nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík þátt og Félag eldri borgara á Hólmavík ætlar líka að spreyta sig.

Fyrsta keppniskvöldið í spurningakeppninni verður haldið í Sævangi sunnudaginn 9. febrúar og hefst keppnin kl. 20:00. 

Liðin sem mætast í fyrstu umferð eru:

Heilsugæslan II - Nemendur Hólmavíkurskóla
Félag eldri borgara - Hólmadrangur I
Kennarar Hólmavíkurskóla - Fiskvinnslan Drangur
Grundarás - Strandagaldur

Annað keppniskvöld fer fram sunnudaginn 23. febrúar og hefst keppnishaldið kl. 20:00. 

Á seinna kvöldinu mætast:

Hólmadrangur II - Heilsugæslan I
Strandahestar - Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur - Skrifstofa Hólmavíkurhrepps
Vegagerðin - MHM ehf.

Keppt verður með útsláttarfyrirkomulagi. Bæði kvöldin keppa sigurlið fyrstu umferðar innbyrðis um hvaða tvö lið komast á úrslitakvöldið. Dagsetning á úrslitakvöldinu er ekki ákveðin ennþá en hún verður auglýst síðar.

Að sjálfsögðu fær vinningsliðið vegleg verðlaun og farandbikar að auki. Hugmyndin er að keppnin verði árlegur viðburður á Ströndum, ekki síst í ljósi þess hversu góðar undirtektirnar hafa verið.

Aðgangseyrir að spurningakeppninni verður kr. 500.- fyrir eldri en 16 ára og Sauðfjársetrið mun einnig selja kaffiveitingar á vægu verði.
 

Nýr Strandavefur
17. jan. 2003

Sauðfjársetrið óskar Leikfélagi Hólmavíkur hjartanlega til hamingju með nýja vefinn - www.holmavik.is/leikfelag - um leið og við þökkum kærlega fyrir samstarfið sem vonandi vex og dafnar.

Spurningakeppnin nálgast
17. jan. 2003.

Nú er skráning í Spurningakeppni Sauðfjársetursins 2003 í fullum gangi. Leitað er eftir þriggja manna liðum frá vinnustöðum, stofnunum og félögum.

Keppnin verður haldin í Sævangi á sunnudagskvöldum og fyrsta kvöldið verður líklega þann 9. febrúar. Aðgangseyrir verður kr. 500.- fyrir fullorðna.

Nánari dagsetningar og fyrirkomulag verður auglýst þegar skráningu er lokið, enda fer skipulag nokkuð eftir þátttöku.

Ef þinn vinnustaður eða félag ætlar að taka þátt, er um að gera að drífa í að skrá lið til keppni. Það er gert með því að hringja í Arnar í síma 588-8641 eða 661-2009. Frestur til skráningar rennur út föstudaginn 26. janúar.
 

Vegleg verðlaun
16. jan. 2003

Sauðfjársetur á Ströndum mun veita liðinu sem verður í fyrsta sæti í spurningakeppninni vegleg verðlaun. Ætlunin er að þetta verði árlegur viðburður, ef vel tekst til, og fyrirtækið eða félagið sem vinnur fær því farandbikar að auki.

Það er þó mest um vert að taka þátt, atburður eins og þessi lífgar upp á mannlífið og þjappar Strandamönnum saman. Þeir eru líka tilvaldir til að þjappa starfsmönnum fyrirtækja saman, þeir hittast utan vinnunnar og eiga góða kvöldstund, auk þess að allir þurfa að hvetja fulltrúa síns vinnustaðar til dáða.
 

Handverkið í Sævangi
15. jan. 2003

Ætlunin er að efla handverksbúðina í Sævangi verulega næsta sumar. Það gerist þó ekki nema með aðstoð handverksmanna í héraðinu sem þurfa að framleiða vandaðan varning sem aldrei fyrr og koma honum til okkar í sölu þegar líður að sumri.
 

Okkur vantar myndir!
15. jan. 2003

Mikill fjöldi ljósmynda setti skemmtilegan svip á sýninguna í Sævangi síðasta sumar, en yfir 100 myndir prýddu þá veggi Sævangs.

Setrið fékk þó lánaðar og gefins mun fleiri myndir og er unnið við skönnun á þeim. Lauslega áætlað eru myndirnar sem við höfum handa á milli 800-900 að tölu.

Við fáum þó aldrei nóg af góðum myndum af Ströndum og því óskum við hér með eftir því að fá myndir að láni eða gefins. Þær þurfa ekki endilega að tengjast sauðfé á beinan hátt, nýjar og gamlar myndir af hvers konar búnaðarstörfum og  mannlífsmyndir af svæðinu eru vel þegnar. Nú er bara að kafa í albúmin.

FRÉTTIR árið 2002
- Til baka í fréttasafn -

Jólabúðin 
Sauðfjársetrið stóð að heilmiklum jólamarkaði  að Skeiði 3 á Hólmavík fyrir síðustu jól ásamt Strandakúnst og Strandagaldri. Þar voru til sölu góðir gripir, gjafavörur úr ýmsum áttum, magnaðar galdravörur og handverk heimamanna. Uppátækið mæltist vel fyrir og Strandamenn fjölmenntu og keyptu fullt af jólagjöfum á markaðinum.

Markaðurinn var opinn frá 23. nóvember til jóla. Uppákomur og sprell settu svip á markaðinn. T.d. komu jólasveinar í heimsókn og létu öllum illum látum, barnakór söng einn laugardaginn og sönghópurinn Stjáni og stelpurnar komu í heimsókn og skemmtu.
28. des. 2002


Heimalningarnir
Á opnunarhátíðinni 23. júní sl. var samkeppni um nöfn á heimalningana sem starfsmenn og gestir Sauðfjársetursins munu rækta dyggilega í sumar. Hópurinn samanstendur af sex lömbum; einum svörtum hrút, einum hvítum hrút og fjórum hvítum gimbrum, mismunandi að stærð og gerð.

Frábær þáttaka var í samkeppninni um nöfn á hópinn og dómnefndin, sem var skipuð sérstökum heimalningafræðingum, átti í nokkrum erfiðleikum með að komast að niðurstöðu. Svo fór þó að þeir hlutu nöfnin: Surtur, Hákur, Frekja, Tútta, Snuðra og Tuðra. 

Sú sem gaf þeim þessi nöfn heitir Alda Sigurðardóttir á Kaldrananesi og hlýtur hún ágætis verðlaun frá Sauðfjársetrinu.
25. júní 2002  


Sauðfjársetrið opnað
Sunnudaginn 23. júní var sýningin Sauðfé í sögu þjóðar formlega opnuð í Sævangi með pompi og pragt. Veðrið lék við gesti opnunarhátíðarinnar sem hófst kl. 14:00 og stóð til tæplega 19:00.
     Jón Jónsson framkvæmdastjóri og stjórnarmaður í Félagi áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum hélt stutta ræðu og Matthías Lýðsson formaður félagsins las ljóð. Síðan var sýningin opnuð með því að klippa á ullarband með sauðaklippum. Það gerðu mjög ungir, verðandi sauðfjárbændur, Sigfús Snævar Jónsson og Laufey Reynisdóttir.
     Almenn ánægja virtist vera meðal gesta með sýninguna, og ekki síður með kaffihlaðborðið sem svignaði undan öllum kræsingunum sem fram voru bornar.
    
Margir undu sér úti við að skoða gamlar dráttarvélar og farið var í gönguferð undir leiðsögn um Orrustutangann sem Sævangur stendur á. Fundin voru nöfn á heimalningana og þeim gefin mjólk að viðstöddum fjölda fólks. Allt fór vel fram og dagurinn var hinn hátíðlegasti. Talið er að ca. 300 manns hafi komið á sýninguna, þannig að Sauðfjársetur á Ströndum fer vel af stað.
25. júní 2002

Sýning opnuð í Sævangi
23. júní 2002 var sýning um sauðfjárbúskap Strandamanna fyrr og nú opnuð formlega með viðhöfn. Jafnframt var opnuð handverksbúð og kaffistofa sem selur dýrindis heimabakkelsi. Opið er frá 10:00-18:00 í sumar, til 31. ágúst.
25. júní 2002


Fréttaleysi = Fréttafæð? Ekki aldeilis!

Fáar fréttir hafa verið settar hér inn síðustu 2 mánuði. Reyndar engar. Það þýðir þó ekki að ekkert sé að frétta. Þvert á móti hefur heill hellingur verið að gerast. Þess vegna hefur ekki gefist tími til að uppfæra vefinn. Nú hefur aðeins róast og þess vegna verður bætt úr því næstu daga.
25. júní 2002


Sumarstörf í boði

Ljóst er að okkur vantar að minnsta kosti 4 starfsmenn í sumar. Hér með er óskað eftir  umsóknum um þessi störf. Mögulegt er að sækja sérstaklega um starf í kaffistofunni eða á sýningunni. Starfshlutfall getur verið með ýmsu móti. Umsóknarfrestur er til 3. maí og skulu umsóknir sendar á Jón Jónsson á Kirkjubóli. Umsóknum verður svarað eins fljótt og auðið er.
23. apríl 2002


Okku
r vantar myndir, muni og minjar ...
Til að setja upp sýningu á jafn stuttum tíma og hér er um að ræða verður að hafa hraðar hendur og helst fleiri en þrjár. Því biðjum við ykkur Strandamenn að bregðast vel við beiðni okkar um myndir og margvíslega muni og minjar sem tengjast sauðfjárbúskap. Þeir sem vita um slíkar gersemar eru hvattir til að hafa samband við starfsmann Sögusmiðjunnar, Arnar Jónsson, í síma 451-3180 eða 846-4913.
23. apríl 2002
   

Handverksbúð
Ætlunin er að reka handverksbúð í tengslum við sýninguna, en til þess vantar allt til alls og sérstaklega söluvarning. Margvíslegir minjagripir og handverk sem tengist sauðkindinni eða Ströndum mun sjálfsagt rjúka út eins og heitar lummur. Hafið samband ef þið framleiðið söluvöru eða hafið hugmyndir.
22. apríl 2002


Sauðfé í sögu þjóðar
Ákveðið hefur verið að vinna af kappi að opnun sýningar strax um miðjan júní um sauðfjárbúskap á Íslandi fyrr og nú. Sú sýning hefur fengið vinnutitilinn: Sauðfé í sögu þjóðar. Sögusmiðjan á Kirkjubóli sér um hönnun og uppsetningu sýningarinnar.
21. apríl 2002


Skrifað undir leigusamning
Eftir nokkurt þóf er nú búið að skrifa undir samning um leigu á Sævangi fjóra mánuði á ári næstu 5 ár. Er þá ekki annað að gera en hefjast handa af fullum krafti. 
20. apríl 2002


Leigusamningur í burðarliðnum
Búið er að ganga frá uppkasti að leigusamningi vegna Sævangs og er hann til umfjöllunar hjá húseigendum, Kirkjubólshreppi, ungmennafélagi og kvenfélagi. Húsnefnd hefur þegar farið yfir samninginn á fundi og samþykkt hann fyrir sitt leyti. 
10. apríl 2002


Hagyrðingakvöld - grein 2
Nú hafa línur um fyrrnefnt hagyrðingakvöld skýrst allmjög og líklegast er að það verði haldið í Sævangi í kringum mánaðamótin apríl og maí. Valinkunnir hagyrðingar í héraðinu og utan þess hafa þegar gefið vilyrði um þátttöku.  
8. apríl 2002


Hagyrðingakvöld á Ströndum?
Sú hugmynd hefur komið upp að Félag um Sauðfjársetur standi fyrir hagyrðingakvöldi á Ströndum nú í vor, enda fá Strandamenn seint nóg af skemmtunum. Ætlunin er að kanna möguleikana næstu daga, en allar líkur eru á að af þessu verði.
18. mars 2002


Samstarf við Byggðasafn Strandamanna
Stefnt er að nánu samstarfi við Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði um sýningar, söfnun og varðveislu. Unnið er að formlegum samstarfssamningi milli þessara menningarstofnanna. 
18. mars 2002


Auglýst verður eftir sumarfólki í Sævang innan skamms
Stefnt er að auglýsa eftir sumarfólki til starfa á sýningunni á Sævangi, um leið og gengið hefur verið endanlega frá samningi við húseigendur um leigu á húsinu. Ljóst er að sýningin mun skapa fjögur 70% störf yfir sumartímann, 2 þarf við kaffistofu og 2 við afgreiðslu á sýningunni. Vinna þarf á vöktum, en stefnt er að opnunartíma frá 10-18 alla daga vikunnar. Ekki hefur verið ákveðið hvernig þessum stöðum verður skipt á milli starfsfólks og hugsanlega verður það látið ráðast af umsóknum.
15. mars 2002.


Samið við Sögusmiðjuna um uppsetningu sýningar fyrir sumarið
Þann 13. mars var gengið frá rammasamningi við Sögusmiðjuna um uppsetningu sýningar um sauðfjárbúskap fyrr og nú fyrir sumarið 2002. Ennfremur framkvæmdastjórn á verkefninu í heild fram að opnun. Stefnt er að opnun sýningarinnar með pompi og prakt þann 15. júní. Þrír mánuðir eru til stefnu. Framkvæmdastjóri Sögusmiðjunnar segir það meira en nógan undirbúningstíma og að staðan hafi oft verið verri.
 14. mars 2002.


Stjórnin skiptir með sér verkum
Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum. Formaður er Matthías Lýðsson bóndi í Húsavík, gjaldkeri er Sverrir Guðbrandsson og ritari er Jón Jónsson.
13. mars 2002.


Setrinu berast góðar gjafir
Sauðfjársetrinu hafa þegar borist góðar gjafir frá Strandamönnum, bæði hafa fengist bækur og tímarit, ljósmyndir og munir. Vegleg gjöf barst nýlega frá Einari Magnússyni og Herselíu Þórðardóttir í Hvítuhlíð, munir og fjöldi bóka og tímarita sem tengjast sauðfjárbúskap.
12. mars 2002.


Fjallkóngurinn
Einhverra hluta vegna gerast menn gjarnan skáldlegir þegar Sauðfjársetrið kemur til tals og gauka að okkur stjórnarmönnum gömlum og nýjum vísum um fólk og fénað. Eru þær vel þegnar. Set ég hér eina gamla og góða til að byrja með. Hún er um fjallkónginn sem gætti ekki stöðu sinnar og fyrri tignar eftir að hann hafði misst völdin í hendur réttarstjóranum:

  Fjallkóngur í fimmtán ár,
  flaugst ég á við seggi, 
  myndugur og mektarhár
  mölvaði réttarveggi. 


28. febrúar 2002.


Stjórnarmenn í Sauðfjársetrinu
Á stofnfundi félagsins voru kosnir í fyrstu stjórn sömu menn og setið höfðu í undirbúningsnefnd, Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli, Sverrir Guðbrandsson frá Bassastöðum og Matthías Lýðsson í Húsavík.
12. febrúar 2002.


Félag um Sauðfjársetur stofnað
Á stofnfund Félags áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum sem  haldinn var í Sævangi 10. febrúar mættu um 30 manns. Sagt var frá þeim hugmyndinum sem fyrir liggja, drukkið kaffi og etnar bollur. Ennfremur flutti Anna Karlsdóttir lektor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri erindi um ímynd bænda og möguleika í menntun og menningarstarfi.
10. febrúar 2002.

 

 

+++

 


 

 

Sauðfjársetur á Ströndum ses.
© 2007 Sauðfjársetrið