![]() |
||
|
Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is |
||
|
|
Það verður sannkölluð stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum laugardaginn 20. ágúst nk. kl. 14:00. Þá verður haldið í níunda sinn Íslandsmeistaramót í Hrútadómum – venjulega kallað hrútaþukl - en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með hinni gamalgrónu hljómsveit Upplyftingu sem spilaði margoft í Sævangi á blómaskeiði hússins. Nóg verður um að vera; ókeypis verður inn á safnið og sýningu þess, Ljúffengt kaffihlaðborð verður í boði í Kaffi Kind, skemmtiferðir verða farnar í dráttarvélavagni og leiktæki verða staðsett á íþróttavellinum. Reyndir og óreyndir þuklarar hvaðanæva að af landinu eru boðnir innilega velkomnir á þessa miklu hátíð. Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og æðsti sauðfjárspekúlant Íslands fer fyrir dómnefnd sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja. Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum – t.d. fá þrír efstu í vana flokknum nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands! Um kvöldið verður síðan hægt að smella sér síðan á Þuklaraballið svonefnda sem fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík, en þar spilar hljómsveitin Upplyfting sinni fyrir dansi. Aðgangseyrir að dansleiknum er aðeins kr. 2.500, en ekkert kostar inn á hrútaþuklið né að taka þátt í því.
|
![]() +++
|
|
Sauðfjársetur á Ströndum
ses. -
saudfjarsetur@strandir.is |
||