|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . . . . . . .
|
Horn
Beinin voru vinsæl leikföng. Kjálkarnir voru virðulegar kýr, leggirnir tignarlegir reiðhestar og kjúkurnar voru hundar. Leggurinn var einnig notaður til að vinda upp á þráð og hét þá þráðaleggur. Leggjatöng sem notuð var við skinnklæðasaum var búin til úr tveimur leggjum. Aska af brenndum beinum var notað til lækninga á skurðum og smásárum. Stundum voru beinin látin liggja í sýru þar til þau voru orðin meyr, en þá voru þau tekin upp og soðin í mauk sem var borðað og hét beinastrjúgur. Enn fremur voru beinin eins og hornin notuð til að búa til verkfæri og bæta húsmuni. Ýmsar afurðir af hrútum þóttu líka góðar til lækninga. Menn drukku hrútahland blandað með hunangi til að lækna vatnssótt, hrútafeiti var góð við brunasárum og hrútakjöt var brennt til ösku og hún borin á útbrot í andliti. Þegar fjárdauði gerði vart við sig var hrútsvinstur soðin með víni og gefið fénu.
Húðir voru þurrkaðar og skinnið notað í fatnað. Peysur, buxur, sjóklæði og skófatnaður eru nokkur dæmi um nýtingu skinnsins. Einnig voru bókfell gerð úr skinni og þurrkaðir skinnbelgir voru notaðir undir ýmsan mat. Ekki má gleyma hrútspungunum sem voru notaðir undir neftóbak eða smáaura.
|
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||