|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . . . . . . .
|
Fyrri tíma fjárhús voru oft ekki burðugar byggingar. Í mörgum þeirra voru gluggar fáir eða engir. Vegna þess var oft mikið myrkur og því voru draugar býsna algengir í fjárhúsum landans. Einnig snjóaði oft inn í þau og troðningurinn og þrengslin voru oft mikil. Í dag eru flest fjárhús svipuð að gerð og lögun, en á þessum tíma voru til nokkrar útgáfur af fjárhúsum. Hellar voru stundum notaðir til að geyma fé eða hey í. Þessi aðferð var aðallega brúkuð sunnanlands, sennilega er fleiri hella að finna þar. Sums staðar bjuggu bændur sér til hella.
Beitarhús voru í raun lítil fjárhús sem voru stundum langt frá bæjarhúsum. Tilgangurinn með því að hafa þau jafn dreifð og raun bar vitni var sá að jafna álagið á tún bóndans yfir veturinn - að kindurnar væru ekki allar að kroppa á sama stað.
Fjárborgir voru
kringlótt
byrgi, hlaðnar úr grjóti eða torfi. Þær voru ætlaðar fé í hríðum og
illviðrum og þess vegna stóðu þær oft langt frá bæjum. Fjárborgir
voru þannig gerðar að þegar búið var að hlaða veggina var farið að
draga þá saman þar til hleðslan var nærri lokuð í toppinn.Þar skildu
menn eftir lítið gat til að lofta út. Í fjárborgunum voru engar
jötur og dyrnar voru svo lágar að aðeins var gengt fyrir kindur inn
um þær.
Þjóðtrú tengd fjárhúsum
|
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||