Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 


Ráðagóðir Vestfirðingar
- Til baka í fjárhúsahornið -

Helsta vandamál í fjárhúsum fyrri tíma var óþrifnaður og bleyta. Kindurnar tróðu á sínum eigin úrgangi sem safnaðist saman í þykka skán, sem hét tað.Þegar fjárhúsin voru þurr var taðið þurrt en ef húsin láku eða blotnuðu var voðinn vís, þá varð taðið að forarsvaði sem klesstist á kindina og eyðilagði þar með hitaeinangrunina sem ullin veitti.

Vestfirðingar, sem beittu fé sínu mikið í fjöru á veturna fundu góð ráð við bleytunni sem því fylgdi. Annað var að bera sand í garðann sem dró í sig bleytuna úr taðinu. Hitt ráðið, sem reyndist vera enn betra, var að leggja rimlagrindur úr tré í garðann svo úrgangurinn fór þar niður á milli, grindin var svo tekin upp og færð til á annan stað ofan á taðið og þá leið nokkur tími þar til fylltist milli rimlana aftur.

Þessi uppfinning hefur síðan verið útfærð á ýmsa vegu og er í dag útbreidd um allan heiminn.

 

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008