Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 


Heimalningurinn Sníkja
- Til baka í frægðarhornið -

Fjölmargar sagnir eru til um trygglyndi ýmissa dýra við eigendur og uppalendur sína. Fáar þeirra fjalla hins vegar um sauðfé, en ein af þeim er sagan af Sníkju frá Kjörseyri í Hrútafirði sem var Strandaær í húð og ull. Seint á 19. öld var kona að nafni Björg til heimilis á Kjörseyri. Hún missti kind en gimbrin hennar gekk laus í túninu. Björg dekraði og nærði heimalninginn á brauði, mjólk og smjöri yfir sumarið. Eftir fráfærur voru öll lömbin rekin á fjall ásamt gimbrinni.

Haustið eftir var Björg á gangi að næsta bæ og mætti stúlku með
kindahóp. Engum togum skipti að eitt lambið hljóp beint til hennar og flaðraði upp um hana eins og hundur. Þarna var gimbrin hennar komin og hafði hún dafnað vel yfir sumarið.

Gimbrin sem fékk nafnið
Sníkja var látin lifa og fékk yfir veturinn brauð og alls kyns góðgæti ásamt heyinu. Vorið eftir var hún síðan rekin á fjall.

Haustið eftir þegar Sníkja kom af fjalli var Björg ekki heima og
kindin gaf sig ekki mikið að fólki. Skömmu síðar var verið að reka féð heim. Þá var Björg komin og langaði að hitta vinkonu sína, svo hún kallaði til fjármannsins úr nokkurri fjarlægð: Er kindin mín þarna?

Björg hafði varla
sleppt orðinu þegar hin trygglynda Sníkja kom á harðahlaupum og flaðraði upp um eiganda sinn glöð í bragði.

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008