|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . . . . . . .
|
Á Smyrlabjörgum í Suðursveit er rekið myndarfjárbú. Þar kom í heiminn árið 1950 grá gimbur sem gefið var nafnið Þoka. Sjálfsagt hefur fáa órað fyrir því að þarna væri á ferðinni kind sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á fjárrækt í landinu. Þoka var gæðakind, með eindæmum frjósöm og varð nokkrum sinnum þrílembd. Einn sonur hennar, sem nefndur var Tossi, var seldur að bænum Borgarhöfn. Þar jókst frjósemi ánna svo um munaði og dætur Tossa voru oftar en ekki þrí- eða fjórlembdar.
Gríðarleg fjölgun varð síðan á þessum
stofni þegar dætur hrútsins Anga
komu til sögunnar. Angi var dótturdótturdótturdóttursonur Þoku.
|
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||