|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . . . . . . .
|
Forystufé
Forystufé finnst
hvergi í heiminum
nema á Íslandi. Það er talið hafa meira vit í kollinum en aðrar
kindur og áður fyrr var það tvöfalt dýrara en annað fé. Þetta fé
getur leitt fjárhóp og stundum smalamenn í gegnum hríðarbyl,
vatnsföll, snjóþekju og aðrar ófærur og er
veðurglöggt með
afbrigðum. Flestir bændur sem eiga forystufé taka ástfóstri við einstaka sauði. Þeir eiga það oftast sameiginlegt að vera á einhvern hátt sérstakir í útliti og fasi. Sumir þeirra hafa jafnvel orðið víðfrægir fyrir að bjarga stórum fjárhópum og leitarmönnum úr lífsháska.
|
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||