|

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

|
Nöfn sauða
- Til baka
í kindahornið -
Misjafnt er á milli manna hvort þeir
nefna
kindurnar
sínar eða ekki. Þess eru dæmi að menn sem eigi mörg hundruð kindur
gefi þeim öllum nöfn og þekki þær allar með nafni. Eins eru til
sagnir um kindur sem hafa lært að hlýða kalli. Hitt er líka til og
býsna algengt að menn láti sér nægja að tala um kind númer 949 og
lamb númer 603 eða bara þessa flekkóttu þarna. Það þýðir þó engan
veginn að þeim þyki eitthvað minna vænt um kindurnar sínar en þeim
sem skíra þær.
Þegar
bóndinn ákveður að
finna gott
nafn á kindina sína hefur hann úr mörgu að velja. Hægt er að nefna
hana eftir lit, útliti, líkamlegum og andlegum eiginleikum, uppruna,
atvikum úr ævi hennar, sveitungum, ættingjum,
stjórnmálamönnum og
mörgu öðru. Oftast er sú aðferð notuð að nefna kindina
eftir lit, t.d. Flekka, Eygla, Móra eða Grána, og eftir útliti, t.d.
Hyrna, Kolla eða Litla-Ljót.
Í dag eru yngstu fjáreigendurnir
sennilega duglegastir við að gefa kindunum nöfn. Telja má fullvíst
að Barbie og Pocahontas leynist í einhverju fjárhúsi landsins. Og
einhver hrúturinn hefur eflaust fengið sæmdarheitið Æðstistrumpur þó
það nafn hafi líklega ekki ratað í fjárbókhald og skýrsluhald
bóndans.
Nafnavísur
Það hefur lengi þekkst að menn geri það að
gamni sínu
að raða nöfnum kindanna sinna saman í
vísur. Þessar nafnavísur birtust í Frey árið 1919:
Flegða, Héla, Frenja, Dröfn,
Flekka, Sauðarhyrna,
Gletta, Hnúða, Gráleit, Sjöfn,
Gullbrá, Fjóla, Birna.
Bláleit, Hekla, Blökk, Dilkhvít
Bjartleit, Ófríð, Næpa,
Svanhvít, Drífa, Sóley, Hít,
Selja, Bússa, Læpa.
Margir bændur gera þetta enn í dag og
sumir eru stórvirkari
en aðrir. Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir bóndi og kennari á
Hólmavík og
starfsmaður Sauðfjársetursins nokkur starfssumur er ein af þeim sem
hefur gaman af því að skella nöfnum kindanna sinna í vísur. Hér er
hægt að sjá vísur sem Hrafnhildur setti saman árið 2004:
Brúða, Tása, Birta, Snör,
Blíða, Gæfa, Skrudda,
Þoka, Skvísa, Þúfa, Vör,
Þruma, Næla, Budda.
Bóla, Spíra, Bolla, Rösk,
Bylgja, Þota, Sletta,
Skotta, Krúna, Skeifa, Vösk,
Skrúfa, Fjöður, Bletta.
Bjalla, Frekna, Blesa, Grá,
Brúska, Gulla, Þribba,
Sóley, Toppa, Súla, Gná,
Sunna, Trilla, Gibba.
Kríma, Grána, Krulla, Dís,
Krumpa, Hlóra, Svala,
Snotra, Perla, Snoppa, Flís,
Snerpa, Dimma, Vala.
Ófeig, Kisa, Ugla, Svört,
Elding, Rófa, Skella,
Móra, Freyja, Móleit, Björt,
Móbotna og Rella.
Ekki reyndist auðvelt mál
öllum koma í vísu
Eftir sitja Ögn og Nál
og yngri dóttir Skvísu.
|



 |