|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . . . . . . .
|
Hættur og ógnir
Háski steðjar að sauðkindinni Hér á landi leggst fækkun bænda sjálfsagt þungt á blessaðar skepnurnar. Það er öllum ljóst að eftir því sem fleiri kindur eru í eigu hvers bónda hefur hann minni tíma fyrir hverja og eina.
Sjálfsagt eru lélegir bílstjórar helsta banamein sauðkinda á sumrin. Eftir að bifreiðar fóru að þeysa um vegi landsins á hraða sem varla er nokkurri skepnu skiljanlegur, hefur mörg sauðkindin orðið fyrir bíl. Lömbin eiga erfiðast með að verja sig, enda kunna þau ekki umferðarreglurnar.
Alltaf er nokkur hætta á að kindur fari
afvelta
úti í haganum. Ef kindur lenda á bakinu, geta þær enga björg sér
veitt. Þær liggja þá bara áfram þannig og sprikla með fótunum út í
loftið, nema einhver hjálplegur velti þeim við. Það verður að gerast
áður en þær örmagnast eða krummi ræðst á augun eða magann.
Tófan er býsna klók við að krækja sér
í lömb og eins hafa hundar
átt það til að drepa kindur. Það er þó sem betur fer frekar
sjaldgæft að hundar gerist dýrbítar.
|
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||