Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 

Þjóðtrú tengd slátrun
- Til baka í slátrunarhornið -

Það var víða siður þegar kind er slátrað að láta flagbrjóskið í blóðið; sá sem fær það í blóðmörs-sneiðinni sinni þegar blóðmör er gefinn um haustið mun enga kind missa vetrarlangt og þó hann vanti kind á heimtir mun hún koma.

Þegar kind er slátrað skal sá sem það gerir ávallt sletta höfðinu við strjúpann aftur og mæla fyrir munni sér: Guð uppveki aðra og gefi þeim sem átti. Á þá eigandanum að bætast kind aftur.

Þegar fénaður er skorinn til slátrunar skal gæta þess ævinlega að skera með flóði, því þá verður blóðið þriðjungi meira í skepnunni.

Það kom fyrir að snörlaði í kindunum þegar skorið var. Af því er komið
máltækið „að skera hrúta" um þá sem hrjóta hátt og mikið.

[Úr þjóðsögum Jóns Árnasonar]

 

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008