|

.

.

.

.

.

.

.

.

.

.

|
Sláturhús á Ströndum
- Til
baka í slátrunarhornið -
Sláturhúsin
á Ströndum hafa verið fjölmörg í gegnum tíðina. Lengst af voru
fjögur hús með fulla vinnslu á Ströndum á hverju hausti en nú
er ekkert þeirra starfandi.
Borðeyri
Árið 1912 byggði Richard P. Riis
sláturhús á Borðeyri sem var eitt það fullkomnasta sem gert hafði
verið á þessum tíma. Þetta sláturhús var notað til ársins 1968. Á
árunum 1962-1965 reisti Kaupfélagið nýtt sláturhús, og var þá gamla
sláturhúsið notað sem fjárrétt fyrir hið nýja. Nýja húsið var notað
fram á lok 20. aldar, en þá lagðist slátrun af á Borðeyri.
Óspakseyri
Kaupfélag Bitrufjarðar hóf slátrun á Óspakseyri frá 1945, en þá var
lagður þangað vegur. Áður hafði verið slátrað í fjárhúsunum í
Guðlaugsvík - þangað var bílfært og kjötið komst fljótlega til
Reykjavíkur. Sláturhúsið á Óspakseyri var tekið til gagngerra
endurbóta á árunum 1988-89 og stóðst þá fyllilega samanburð við
bestu sláturhús landsins. Slátrun á Óspakseyri var hætt árið 2003 og
var sláturhúsið því það síðasta, í bili að minnsta kosti, sem var
starfrækt á Ströndum.
Hólmavík
Um 1910 ráku bæði Kaupfélag Steingrímsfjarðar og Riis-verslun
sláturhús á Hólmavík. Milli þeirra var mikil samkeppni þar til
kaupfélagið keypti sláturhús Riis árið 1937. Sláturhús Kaupfélagsins
brann 1931 og nýtt var byggt árið eftir. Á árunum 1955-59 var
slátrað í gömlu frystihúsi á Kaldrananesi, en þá var byggt stórt
sláturhús á Hólmavík, og slátrað þar í fyrsta sinn haustið 1959.
Árið 1973 var skipt um allar innréttingar og keðjufláning tekin upp.
Norðvesturbandalagið og Goði sáu um rekstur og
slátrun í húsinu síðustu árin. Síðasta slátrun á Hólmavík fór fram
haustið 2000.
Norðurfjörður
Í Norðurfirði í Árneshreppi var reist sláturhús laust eftir síðustu
aldamót. Verzlunarfélag Norðurfjarðar stóð fyrir byggingu þess. Þar
var einnig saltað kjöt, en saltkjöt var aðalútflutningsvara
félagsins. Húsin voru síðan bætt og haldið vel við næstu áratugi.
1962 var tekið í notkun nýtt sláturhús. Sláturhúsið á Norðurfirði
var alla tíð rekið af Kaupfélagi Norðurfjarðar, en hætt var að
slátra í því árið 1992.
|




|