|
|
||
| Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is | ||
|
. . . . . . . . .
|
Kveður í runni, kvakar í mó
Yfir göngum og réttum hefur ætíð hvílt
ævintýraljómi.
Unga fólkið horfir á með glampa í augum þegar smalarnir leggja af
stað í göngurnar og ekki minnkar ákafinn þegar komið er í réttir.
Fyrr á öldum var húsaskjól leitarmanna á heiðum uppi
bágborið,
kofar eða tjöld, og menn lágu jafnvel úti. Í dag er aðbúnaðurinn
orðinn nokkuð góður, á öllum afréttum eru traustir gangnaskálar og
farartækin eru ekki einungis hestar, því einnig eru flugvélar,
þyrlur, snjósleðar og jeppar notaðir til leita. Tæknivæðingin sér
líka til þess að ekkert fé ætti að verða eftir á fjalli.
|
|
|
Félag
áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum -
saudfjarsetur@strandir.is |
||