Sauđfjársetur á Ströndum - Sćvangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauđkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíđ

.

Afurđir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frćgar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíđa

 


Á réttarveggnum
- Til baka í smalahorniđ -

Fjallkóngur í fimmtán ár,
flaugst ég á viđ seggi,
myndugur og mektarhár
mölvađi réttarveggi.

Ţegar féđ er komiđ til byggđa er víđa siđur ađ hvíla ţađ í sólarhring áđur en réttađ er. Í réttunum tekur réttarstjóri viđ af fjallkónginum og hefur öll völd í hendi sér. Hann er oft markaglöggur međ afbrigđum og hefur undir höndum allar ţćr markaskrár sem nauđ­synlegar eru. Til réttarstjórans er leitađ međ öll vafamál og vafamörk.

Á réttardegi er féđ rekiđ inn í almenning og ţá fara leikar ađ ćsast. Allir sem vettlingi geta valdiđ reyna af kappi ađ finna kind frá sínu heimili og koma henni í rétt hólf. Allt í kringum almenninginn eru hliđ inn í hólf sem tilheyra einstökum bćjum eđa sveitarhlutum. Ţessi hólf eru kölluđ dilkar.

Ţađ má segja ađ réttir séu eins og
samkomuhús undir beru lofti. Gelt í hundum og jarm í kindum blandast viđ vélahljóđ, hróp og köll og stundum söng mannfólksins. Sumir mćta međ pela og ađrir međ neftóbaksdósir. Á síđustu árum er oft fleira fólk en fé í réttunum.

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauđfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiđjan - Síđan var síđast uppfćrđ febrúar 2008