Sauðfjársetur á Ströndum - Sævangi - 510 Hólmavík - Sími: 451-3324 / 661-2009 - Mail: saudfjarsetur@strandir.is

 

Sauðkindin

.

Vor og sumar
.
Smalamennska

.

Sláturtíð

.

Afurðir

.

Ullarvinnsla

.

Fjárhús

.

Vetrarverkin

.

Frægar kindur

.

Ýmislegt

.

Upphafssíða

 

Rúningur
- Til baka í ullarhorn -

Ullin af kindinni heitir einu nafni reifi. Ullin skiptist í tvær gerðir. Yst á gærunni er ullin löng og fremur gróf, það er kallað tog. Togið var kembt í togkömbum sem voru frekar grófir. Neðar í reyfinu er ullin hins vegar fíngerð og mjúk. Hún er kölluð þel. Áður fyrr var fé rúið með höndum, þá var reifið reytt eða rifið af kindinni. Vasahnífar og handklippur úr járni voru síðan lengi notuð, en nú er fé klippt með vélklippum.

Sú breyting hefur einnig orðið að forðum var féð rúið í
júnímánuði. Þá var það rekið heim í stekk og rúið undir beru lofti. Nú rýja bændur fé sitt inni í húsum um veturinn.

Utan úr heimi berast þau tíðindi síðan nýjust að búið sé að
finna upp lyf sem leysir rúninginn af hólmi. Losnar þá ullin af kindunum á tilskyldum tíma án þess að mannshöndin komi þar nærri svo neinu nemi.

 


 

 

 

 

 

 

Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum - saudfjarsetur@strandir.is
© 2002 Sögusmiðjan - Síðan var síðast uppfærð febrúar 2008